Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Biðsalur eftir betra lífi
FRÉTTASKÝRING
Guðrún Hálfdándardóttir
guna@mbl.is
Hún er ellefu ára gömul og kemur
frá Sýrlandi. Vegna stríðsins í
heimalandinu gat hún ekki gengið í
skóla í fjögur ár þrátt fyrir að þrá
fátt jafn heitt og það að læra.
Í tæpt ár hefur hún búið í Grikk-
landi ásamt foreldrum sínum og
þremur systkinum. Eldri bróðir
hennar er kominn til Þýskalands og
fjölskyldan hefur óskað eftir því að
fá að sameinast honum þar.
En biðin er löng og þau hafa verið
flutt á milli flóttamannaskýla aftur
og aftur þetta tæpa ár sem þau hafa
dvalið í landinu.
Á einhverjum stöðum hefur þessi
unga stúlka getað sótt tíma í ensku
og grísku en ekki hefur verið um
hefðbundna skólagöngu að ræða.
Loks kom að því að hún fékk tæki-
færi til þess að sækja tíma ásamt
fleiri börnum sem eru á flótta. Hún
var alsæl og líkaði mjög vel við
kennarann þrátt fyrir tungumála-
erfiðleika.
En eftir mánuð var fjölskyldunni
tilkynnt að þau þyrftu að flytja eina
ferðina enn og nú dvelja þau í allt
öðrum landshluta. Hún fékk ekki
einu sinni tækifæri til þess að
kveðja kennarann sinn.
300 þúsund börn ein á flótta
Þetta er meðal þess sem börn á
flótta þurfa að ganga í gegnum. En
þessi stúlka er samt sem áður hepp-
in því hún er með fjölskyldu sinni,
ólíkt mörgum öðrum börnum sem
koma til Grikklands og Ítalíu.
Alls voru 300 þúsund börn ein á
flótta á árunum 2015 og 2016, sam-
kvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu
þjóðanna. Þau voru 66 þúsund tals-
ins á árunum 2010 og 2011. Mörg
þeirra barna sem koma til Ítalíu og
Grikklands sjóleiðina eru ein á ferð
því að börn flýja örbirgð líkt og full-
orðnir og mikil hætta er á því að þau
sem ekki eygja von um að fá hæli
sem flóttamenn hverfi einfaldlega af
yfirborði jarðar.
Ekki er óalgengt að smyglarar
tengist glæpahópum sem selja börn-
in í vændi og þrælkun í Evrópu.
Nýleg rannsókn leiðir í ljós að
75% allra ungmenna á aldrinum 14-
17 ára sem hafa komið til Ítalíu yfir
Miðjarðarhafið með smyglurum hef-
ur verið haldið gegn vilja sínum og
þau látin vinna kauplaust meðan á
flóttanum frá heimalandinu stóð.
Glíma við margvíslegan vanda
Þær Mariela Michailidou og Ka-
terina Kitidi hjá UNICEF í Grikk-
landi segja að samkvæmt grískum
lögum eigi öll börn á aldrinum 5-15
ára rétt á skólagöngu og að allir
skólar eigi að bjóða upp á nám fyrir
börn með sérþarfir. En vegna efna-
hagskreppunnar er þessu alls ekki
svo farið og engin úrræði eru í boði í
mörgum skólum, segir Kitidi við
blaðamann Morgunblaðsins á Les-
bos. Þar vísar hún til þess að stór
hluti flóttabarna glímir við alls kon-
ar erfiðleika enda ekki að ástæðu-
lausu sem þau neyddust til þess að
flýja heimalandið. Stríð, ofbeldi og
hungur eru nánast daglegt brauð á
heimaslóðum þeirra.
Aldrei áður gengið í skóla
„Mörg þeirra hafa aldrei notið
skólagöngu, bæði vegna stríðsins í
Sýrlandi og ástandsins í Afganistan
og Pakistan,“ segir Kitidi, en
UNICEF reynir að veita börnum og
ungmennum á öllum aldri einhverja
fræðslu.
Í sumum tilvikum eru foreldrar
barnanna vart af barnsaldri, en
UNICEF hefur til að mynda stutt
við bakið á flóttafjölskyldu þar sem
móðirin og eiginkonan er 16 ára
gömul en faðirinn og eiginmaðurinn
tvítugur.
Þau eiga sex mánaða gamalt barn
AFP
Skólabörn Reynt er að gæta þess að börn fái fræðslu í flóttamannabúðum en í sumum tilvikum
dvelja þau aðeins skamma stund á hverjum stað. Niðurskurður í Grikklandi bitnar líka á þeim.
Þetta eru bara börn
Mörg þeirra barna sem flýja til Evrópu eru ein á ferð eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur Þau hafa kannski
þurft að bjarga sér sjálf í langan tíma og eiga oft erfitt með að fara að reglum sem gilda í búðum fyrir börn
AFP
Fjölskyldur Eitt það mikilvægasta er að gæta þess að foreldrar og börn séu ekki skilin að við
komuna í land. Enda geta afleiðingar verið skelfilegar líkt og dæmin sýna og sanna.
SJÁ SÍÐU 20
Fjölmörg dæmi eru um að fjöl-
skyldur á flótta hafi sundrast á leið-
inni til Evrópu, stundum við kom-
una til lands úr sjávarháska.
Þórunn Ólafsdóttir, sem hefur
starfað víða við hjálparstarf, segir
að eitt af því mikilvægasta sem fólk
verði að hafa í huga sé að gæta þess
að sundra ekki fjölskyldum, sama á
hverju dynur, því slíkt geti haft
ófyrirséðar afleiðingar.
Farzad, sem er átta ára og frá
Afganistan, er dæmi um barn sem
hefur upplifað þá skelfingu að
verða viðskila við foreldra sína.
Þrátt fyrir að aðeins hafi verið um
stuttan tíma að ræða ber hann enn
merki þess, tveimur árum síðar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flóttamannaaðstoð Sameinuðu
þjóðanna (UNHCR) hefur Farzad
ekki sagt eitt einasta orð eftir að
hann varð viðskila á flótta í blindbyl
á landamærum Tyrklands árið
2015.
Farzad dvelur í Kara Tepe-
flóttamannabúðunum í Myrtilene á
Lesbos með föður sínum og bróður.
Að sögn föður hans varð
drengurinn ekki viðskila við þau
lengur en í 20 til 30 mínútur en
hann glímir enn við afleiðingarnar.
Farzad, faðir hans, Jalil, og bróð-
ir hans, sem er 22 ára, Awalmir, eru
í Kara Tepe en móðir Farzad,
Uzma, og 18 ára gamall bróðir
hans, Rafiq, eru komin til Þýska-
lands.
Þegar þau voru komin að landa-
mærum Tyrklands Íransmegin í
fylgd smyglara var veðrið mjög
slæmt og lítið sem ekkert skyggni.
Smyglararnir sem þau höfðu greitt
fyrir að koma þeim til Tyrklands
voru á vanbúnum bíl og gekk illa að
halda honum á fjallveginum.
Smyglarinn tilkynnti upp úr
þurru að þau yrðu að yfirgefa bíl-
inn, þar sem lögreglan væri á eftir
þeim. Þegar þau komu út úr bílnum
henti hann farangri þeirra út á eftir
hópnum. Í glundroðanum varð fjöl-
skyldan viðskila. Uzma og Rafiq
fóru í eina átt en Farzad, faðir hans
og Awalmir aðra.
Vegna veikinda Jalil sóttist ferðin
seint og þurfti Awalmir að bera föð-
ur sinn í hríðinni. Skyndilega áttuðu
þeir sig á að þeir höfðu týnt Farzad.
Þeir sneru við og gáfu sig fram
við lögregluna og urðu afar fegnir
þegar kom í ljós að lögreglan hafði
fundið Farzad.
„Þennan dag hætti Farzad að
tala,“ segir Jalil. Í leikskólanum í
flóttamannabúðunum blandar hann
ekki geði við önnur börn en fram að
þessum afdrifaríka degi hafði ekk-
ert amað að. Farzad var ósköp
venjulegur drengur. Það tók fimm
tilraunir fyrir þá að komast til Les-
bos en mæðginin komust til Þýska-
lands. Þar bíða þau eftir því að fjöl-
skyldan fái að sameinast að nýju en
það hefur ekki enn tekist.
Hætti að tala eftir
viðskilnað við foreldra
AFP
Aðskilnaður Farzad gengur í skóla fyrir börn með sérþarfir en ekki er vit-
að hvort það er að skila árangri þar sem hann segir ekki eitt einasta orð.
Farzad varð viðskila
við fjölskyldu sína í
blindbyl á landamærum
Tyrklands