Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Næstum hundrað ár eru liðin síð-
an frumherjar flugs hér á landi
gerðu heitið Flugfélag Íslands að
tákni fyrir hina miklu samgöngu-
byltingu sem flugferðum fylgdi.
Nafnið hefur verið notað á fjögur
félög, fyrst 1919 til 1920, síðan
1928 til 1931, þá 1940 til 1973 og
loks frá 1997 þar til nú að nafnið
Air Iceland Connect leysir það af
hólmi.
Flugfélag Íslands hið fyrsta var
stofnað í mars árið 1919. Fyrsta
flugvélin sem Íslendingar fengu að
kynnast kom hingað á vegum fé-
lagsins ósamsett með millilanda-
skipinu Villemoes um sumarið
þetta sama ár. Hún var af svo-
nefndri Avro-gerð 504K. Það tók
sinn tíma að skrúfa hana saman en
þegar því verki var lokið um
haustið var henni flogið sitt fyrsta
flug umhverfis Reykjavík. Þetta
fyrsta flug Íslandssögunnar var 3.
september. Vakti það óskipta at-
hygli bæjarbúa. Flugmaðurinn var
danskur, Cecil Faber að nafni;
enginn Íslendingur hafði enn lært
á þetta undratæki háloftanna. Með
Faber voru tveir enskir vélamenn.
„Faber er listaflugmaður af
fyrsta flokki,“ sagði Morgunblaðið
í frétt sinni um flugið, daginn eftir
að Avro-vélin hafði hringsólað yfir
bænum. Flugfélagið fékk leyfi til
að nota landspildu í Vatnsmýrinni
sem flugvöll. Saga Reykjavíkur-
flugvallar er því orðin alllöng.
Meðal forgöngumanna þessa
fyrsta flugfélags á Íslandi voru
nokkrir af frumkvöðlum Eimskipa-
félagsins, sem stofnað hafði verið
fimm árum fyrr, m.a. Sveinn
Björnsson, síðar forseti, Eggert
Claessen hæstaréttarlögmaður,
Garðar Gíslason stórkaupmaður og
Pétur A. Ólafsson konsúll. Ekki
voru tengsl á milli félaganna en
greinilegt var að stofnendur Eim-
skipafélagsins voru vakandi fyrir
öllum nýjungum í samgöngum og
flutningum. Framkvæmdastjóri fé-
lagsins var Halldór Jónsson kenn-
ari.
Flugfélag Íslands hélt til að
byrja með uppi skemmtiferðum til
ýmissa staða utan Reykjavíkur eft-
ir því sem lendingarskilyrði leyfðu.
Fyrsti farþeginn var Ólafur Dav-
íðsson, útgerðarmaður í Hafnar-
firði, sem var mikill áhugamaður
um nýjungar og einn af fyrstu
bílaeigendum hérlendis. Hug-
myndin var að koma á föstum
flugferðum um landið. Sumarið
1920 flaug Kanadamaður af ís-
lenskum ættum, Frank Fredrick-
son, vélinni nokkrar ferðir. Þetta
reyndist hins vegar dýrt sport og
fjárskortur og erfið lendingarskil-
yrði víðast hvar komu í veg fyrir
að mögulegt væri að hleypa föst-
um stoðum undir reksturinn til
frambúðar. Hætti félagið starfsemi
haustið 1920. Tími flugs á Íslandi
var enn ekki runninn upp.
Samstarf við Þjóðverja
Tæpum áratug seinna var ný til-
raun gerð til að hefja flugrekstur
hér á landi og aftur undir nafninu
Flugfélag Íslands. Var félagið
stofnað 1. maí 1928 með 20 þúsund
króna hlutafé. Var doktor Alex-
ander Jóhannesson helsti frum-
kvöðull að stofnun félagsins í sam-
starfi við þýska flugfélagið
Lufthansa. Fékk félagið síðsumars
1928 hingað vél af gerðinni Junk-
ers F13 og fylgdu henni þrír Þjóð-
verjar; flugmaðurinn Fritz Simon,
vélamaður og flugrekstrarstjóri.
Flugvélin var nefnd Súlan og var
fyrsta flugvél sem bar íslenska
fánaliti.
Súlan fór í reglubundið farþega-
og póstflug fimm sinnum á viku til
ýmissa staða á landinu. Auk þess
var hún um tíma leigð stjórnvöld-
um til síldarleitar og landhelgis-
gæslu. Sumarið 1929 fékk félagið
aðra vél, sem nefnd var Veiðibjall-
an, og flaug henni Þjóðverjinn
Arthur Neumann. Sumarið 1930
voru fluttar inn tvær nýjar vélar
og fengu þær sömu nöfn og hinar
eldri, sem seldar voru úr landi.
Annarri vélinni flaug Sigurður
Jónsson, fyrsti íslenski atvinnu-
flugmaðurinn. Hann hafði lært
flug í Þýskalandi. Sumarið 1931
hóf annar íslenskur flugmaður
störf hjá Flugfélagi Íslands, Björn
Eiríksson, sem lært hafði í Banda-
ríkjunum. Óhöpp urðu til þess að
félagið lagði upp laupana þetta
sama ár; Veiðibjöllunni hvolfdi á
Sundunum við Reykjavík og Súl-
unni á Pollinum við Akureyri. Fé-
lagið mátti ekki við þessum
skakkaföllum í upphafi krepp-
unnar miklu og var starfseminni
slitið.
Nafnið endurvakið 1940
Þriðja Flugfélag Íslands var
stofnað á Akureyri 1937 en starf-
aði fyrst undir nafninu Flugfélag
Akureyrar. Var Agnar Kofoed-
Hansen helsti frumkvöðull þess og
fékk stuðning Vilhjálms Þórs
kaupfélagsstjóra. Tilgangur félags-
ins var að halda uppi flugferðum á
milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Keypti félagið landvél af Waco-
gerð og lét breyta henni í sjó-
flugvél. Fékk hún einkennisstafina
TF-Örn. Agnar varð fyrsti flug-
maður félagsins og jafnframt
framkvæmdastjóri. Fyrsta flug
Arnarins var með póst í byrjun
maí 1938, en upp frá þeim degi
hefur atvinnuflug verið stundað
óslitið hér á landi.
Árið 1940 var nafni félagsins
breytt í Flugfélag Íslands og hélst
það nafn til 1973 þegar félagið var
sameinað Loftleiðum undir nafninu
Flugleiðir, nú Icelandair. Nafnið
Flugfélag Íslands var svo endur-
vakið í febrúar árið 1997, þegar
innanlandsflug Flugleiða og Flug-
félag Norðurlands, sem hafði að-
setur á Akureyri, voru sameinuð.
Nafnið á nærri 100 ára sögu
Flug hófst hér árið 1919 þegar Flugfélag Íslands var stofnað Nýtt félag með sama nafni stofnað
1928 Nafnið notað í þriðja sinn 1940 til 1973 Endurvakið 1997 Heitir nú Air Iceland Connect
Ljósmynd/Þórður Arnar Þórðarson
Flug Fokker 50 í lágflugi á flugdegi í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Líklega má telja Flugfélag Íslands eitt þekktasta vörumerki hér á landi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breytingar Nýtt nafn flugfélagsins blasir við á Reykjavíkurflugvelli.
Óhætt er að segja að nýja nafn-
ið sem forráðamenn Flugfélags
Íslands hafa valið félaginu, Air
Iceland Connect, hafi vakið litla
hrifningu meðal þeirra sem tjáð
hafa sig um málið á netinu.
Harðlega hefur verið gagnrýnt
að íslensku félagi í innanlands-
flugi skuli valið enskt nafn. Það
lýsi minnimáttarkennd og
metnaðarleysi. Þá þykir mörg-
um nafnið sjálft vera kauðskt,
minna frekar á netfyrirtæki en
félag í flugrekstri.
Hefur vakið
litla hrifningu
NÝJA ENSKA NAFNIÐ
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Verð frá
kr. 3.612
Pinnamatur 12 tegundirVörunúmer 25123
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.