Morgunblaðið - 31.05.2017, Síða 26

Morgunblaðið - 31.05.2017, Síða 26
26 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Höfum opnað glæsi lega vefverslun casa.is HÚSGÖGN GJA FAVARA LJÓSA BÚNAÐUR MO TTUR LEIRTAU O.M.FL Glæsilegur bæklingur frá CASA fylgir Morgunblaðinu í dag FRÉTTASKÝRING Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Það er gríðarlega mikilvægt að al- menningur, stofnanir og fyrirtæki geri sér grein fyrir þeim miklu breyt- ingum sem fram undan eru á per- sónuverndarlöggjöfinni,“ segir Helga Þórisdóttir, for- stjóri Persónu- verndar. Víð- tækar nýjar skyldur verða lagðar á lögaðila, fyrirtæki og hið opinbera með nýrri evrópskri persónuvernd- arlöggjöf. Leiða má líkur að því að flest fyrirtæki og stofnanir vinni með persónuupplýs- ingar af einhverju tagi og lagt er til að ábyrgðaraðilar bretti upp ermar og hefji strax undirbúning vegna gild- istöku og framkvæmdar hinna nýju reglna. Vernd persónuupplýsinga er hluti af EES-samningnum og mun löggjöfin því verða tekin upp í ís- lenskan rétt. Annars vegar er um að ræða Evr- ópureglugerð um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýs- inga og frjálst flæði slíkra upplýsinga og hins vegar löggæslutilskipun um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga hjá lög- gæslu- og dómsyfirvöldum. Tímamótabreytingar Um tímamótabreytingar er að ræða, en þær eiga að tryggja öryggi í þjónustu sem veitt er yfir netið og veita fyrirtækjum réttarvissu með skýrum og samræmdum reglum. Evróputilskipun á sviði löggæslu og refsivörslu muni tryggja öryggi og vinnslu persónuupplýsinga ásamt því að efla samvinnu löggæsluyfirvalda í Evrópu í baráttunni gegn hryðju- verkum og öðrum alvarlegum glæp- um. Breytingarnar eiga að gagnast öllum borgurum Evrópu og að ein- staklingum verði veitt vald til að þekkja rétt sinn svo þeir viti hvernig unnt sé að verja þann rétt ef hann er ekki virtur. „Það þarf að klára að setja löggjöf- ina inn í EES-samninginn og und- irbúa íslenska löggjöf fyrir 18. maí á næsta ári þegar reglurnar taka gildi á EES-svæðinu.“segir Helga, en málið mun þurfa þinglega meðferð. „Ef Ís- land verður ekki tilbúið kemur það niður á persónuvernd borgaranna. Ís- lensk fyrirtæki sem eru að selja vörur og þjónustu á EES-svæðinu gætu farið að fá á sig sektir af fullum þunga, í gegnum persónuvernd- arstofnanir í Evrópu,“ heldur Helga áfram. Fáliðuð Persónuvernd Hún segir að það sé vegna þess að hægt verði að höfða persónuverndar- brotamál þar sem einstaklingur býr eða starfar eða þar sem ætlað brot er framið. Persónuvernd aflar nú gagna frá Hagstofunni um hversu mörg ís- lensk fyrirtæki og stofnanir eiga hagsmuna að gæta í þessu samhengi á EES-svæðinu til að öðlast yfirsýn. Persónuvernd er fáliðuð og því ekki vel í stakk búin við að taka við aukn- um verkefnum. Það gæti jafnframt komið niður á starfsemi fyrirtækja og stofnana með rekstrartapi eða -stöðv- unum, þar sem þau þurfa samþykki Persónuverndar fyrir því að stunda vinnslu á persónugögnum, t.d. ef skipt er um tækni eða tölvukerfi, eftir gildistöku nýju reglnanna. Persónuvernd hefur reynt að kynna löggjöfina eftir fremsta megni en verkefnastaða stofnunarinnar gef- ur ekki lengur mikið svigrúm til þess, segir Helga að lokum. Víðtæk áhrif persónuverndar  Nýjar persónuverndarreglur taka gildi eftir ár  Gríðarlegar breytingar sem snerta stofnanir og fyrirtæki  Réttarbót fyrir einstaklinga  Friðhelgi einkalífsins hlýtur umtalsverða styrkingu Helga Þórisdóttir Ný persónuverndarlöggjöf – fyrir lögaðila Til að byrja með er mælt með því fyrir lögaðila að: Hafa yfirsýn yfir hvaða persónu- upplýsingar er unnið með. Hverjar, hvaðan og lagalegur grundvöllur er fyrir notkun þeirra. Uppfylla kröfur núgildandi laga nr. 77/2000 um persónuvernd. Þeir sem uppfylla þær nú þegar munu eiga auðveldara með að uppfæra. Mælt er með að kynna sér nýju reglurnar mjög vandlega. Fylgist vel með á vefsíðu Persónuverndar, www.personuvernd.is. Uppfæra verklags- reglur. Farið yfir tölvukerfi, verklag og -ferla, gerið áætlun fyrir nauðsynlegar breytingar. Hvað er nýtt varðandi lögaðila í nýju reglunum? Nýjar skyldur verða lagðar á alla lögaðila. Lögaðilar skulu hafa stefnu um persónuvernd og aukin skylda verður um fræðslu. Lögaðilar skulumeta áhættu af vinnslu persónuupplýsinga og mögulegar afleiðingar. Öll ný kerfi skulu hönnuð með það í huga að hámarksáhersla sé á persónuvernd. Skipa þarf persónuverndarfulltrúa eða fá utanaðkomandi sérfræðing í persónuvernd. Reglurnar gilda einnig um lögaðila utan EES og ESB ef borgurum svæðisins er boðin vara og þjónusta af þeim. Nýjar skyldur eru lagðar á aðila sem vinna með persónuupplýsingar fyrir hönd annarra. Starfs- og faggreinar setji sér viðmið um góða háttsemi í starfi varðandi persónuvernd. Allir lögaðilar þurfa að uppfylla nýjar kröfur um viðbrögð við öryggisbresti. Brot á reglunum geta varðað sektum upp á allt að 4% af árlegri heildarveltu. Ný persónuverndarlöggjöf – fyrir almenning Telji fólk að brotið hafi verið á réttindum þess getur það leitað réttar síns með því að: Senda Persónuvernd eða sambærilegri eftirlitsstofnun í búsetulandi eða í landinu þar sem vinnsla upplýsinganna fór fram erindi. Bera ákvörðun vinnsluaðila persónu- upplýsinganna eða persónuverndar- stofnunarinnar undir dómstóla. Fela samtökum eða stofnunum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni að reka mál sitt fyrir dómstólum og eftir atvikum taka við skaðabótum. Helstu nýjungar sem varða almenning í reglunum eru: Hreyfanleiki persónuupplýsinga, rétturinn til að flytja þær á milli. Auknar kröfur um ótvírætt samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga. Réttur til upplýsinga um vinnslu og aðgangs að eigin persónuupplýsingum. Börnum verður veitt sérstök vernd, samþykkis foreldra verður krafist. Einn afgreiðslustaður persónuverndar, hvar sem ágreiningur kann að rísa. Rétturinn „til að gleymast“ að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Lögaðilar skulu tryggja réttindi hins skráða, að viðlögðum sektum. Hver fer að verða síðastur að und- irbúa gildistöku nýrrar evrópskrar reglugerðar um persónuvernd, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og -ráðs- ins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónu- upplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almenna per- sónuverndarreglugerðin), sem tekur gildi eftir eitt ár, eða 25. maí 2018. Reglugerðin leggur miklar skyldur og kostnað á lögaðila, annars vegar á EES svæðinu en einnig utan þess hjá aðilum sem selja borgurum á svæðinu vörur og þjónustu. Almenningur mun hins vegar njóta stóraukinnar réttarverndar gagnvart söfnun og vinnslu á persónuupplýsingum sínum. Gert er ráð fyrir stórauknum um- svifum persónuverndarstofnana víðs vegar á EES-svæðinu sem afleiðing af þessum nýju reglum, við eftirlit, vottanir og afgreiðslu fyrirspurna og mála, en á móti mun réttarvernd einstaklinga og réttarvissa lögaðila aukast. Reglugerðin er í íslenskri þýðingu á www.personuvernd.is, en þar er jafnframt að finna bæklinga og fleiri upplýsingar til gagns og fróðleiks fyrir lögaðila og einstaklinga. Nú er aðeins eitt ár til stefnu EKKI LÁTA HJÁ LÍÐA AÐ HUGA AÐ PERSÓNUVERNDARREGLUM Upplýsingar Á vef Persónuverndar er að finna bæklinga um nýju reglurnar. Landhelgisgæsla Íslands hlýtur Fjörusteininn, umhverfisverðlaun Faxaflóahafna sf., fyrir árið 2017. Frá árinu 2007 hafa Faxaflóahafnir tilnefnt fyrirtæki á hafnarsvæði sínu, þ.e. Akranes, Borgarnes, Grundartanga og Reykjavík, til um- hverfisverðlauna. Verðlaunaafhend- ingin fer fram á sama tíma og árs- skýrsla fyrirtækisins er opinberuð. Dagur B. Eggertsson, stjórnarfor- maður Faxaflóahafna, afhenti Georg Kr. Lárussyni, forstjóra Gæslunnar, verðlaunin. Landhelgisgæsla Íslands var stofnuð 1. júlí 1926. Sama ár kom til landsins gufuskipið Óðinn, sem var fyrsta varðskipið sem smíðað var fyrir Íslendinga. Skipið hafði að- stöðu í þá tæplega 10 ára gömlu Reykjavíkurhöfn og hefur Land- helgisgæslan verið við höfnina alla tíð síðan. Landhelgisgæslan hefur staðið vörð um fiskimið þjóðarinnar, unnið björgunarstörf og sinnt marg- víslegum þjónustuverkum. Um árabil hafa skip Landhelgis- gæslunnar verið tengd rafmagni í viðlegu þeirra í Reykjavík, segir í frétt á heimasíðu Faxaflóahafna. „Fyrirtækið var brautryðjandi í notkun á hitaveituvatni til upphitun- ar á skipum í höfn. Nokkuð sem fleiri útgerðir hafa tekið upp síðan. Þann- ig hefur Gæslan nýtt endurnýjan- lega orku í stað jarðefnaeldsneytis þegar varðskipin eru í heimahöfn. Landhelgisgæslan hefur þannig ver- ið öðrum til eftirbreytni. Svæðið er ávallt vel hirt, enda mikið lagt upp úr snyrtimennsku í kringum starfs- stöðvar Landhelgisgæslunnar og vel gengið um hafnarmannvirki. Ís- lenska fánanum er flaggað við varð- skýlið alla daga og er mikil prýði af því,“ sðgir í fréttinni. Fyrirtækið sé því vel að verðlaununum komið. sisi@mbl.is Hefur verið við höfnina alla tíð  Landhelgisgæslan fær Fjörusteininn Ljósmynd/Faxaflóahafnir Verðlaun Gísli Gíslason, Georg Kr. Lárusson og Dagur B. Eggertsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.