Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 78
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Ég bjóst aldrei við að finna það
sem ég þurfti hérna á Íslandi af öll-
um stöðum,“ segir Yan Pascal
Tortelier, sem nýlega lauk fyrsta
starfsári sínu sem aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann
segir að á þessum stað í tónlistar-
ferli sínum þurfi hann hljómsveit
sem sé með skjót viðbrögð og hafi
fagmennsku og jákvætt viðhorf að
sjónarmiði. „Ég hef unnið með og
átt gott samband við fjöldann allan
af hljómsveitum um heim allan en
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur
komið mér skemmtilega á óvart,“
segir Tortelier, sem er uppalinn í
þekktri franskri tónlistarfjölskyldu.
Vill halda þeim á tánum
Tortelier kveður það hafa verið
einstaklega gefandi og ánægjulegt
að vinna með hljómsveitinni hingað
til og að hún hafi góða lyst á tónlist.
„Í rauninni má segja að hæfni
hljómsveitarinnar og samstarfið
okkar á milli hafi farið fram úr mín-
um björtustu vonum. Ég ætti
kannski ekki að segja þetta því ég
verð að halda þeim á tánum,“ segir
hann og hlær en bætir því við að
hún eigi samt sem áður viðurkenn-
ingu skilið fyrir frammistöðu sína.
Blaðamaður hitti Tortelier eftir
æfingu fyrir lokatónleika líðandi
starfsárs og kom því svolítið aftan
að honum með spurningum um það
sem er fram undan.
„Ég hef einbeitt mér mánuðum
saman að fimmtu sinfóníu Sjosta-
kovitsj, sem er 45 mínútna löng. Þó
að ég þekki verkið og hafi stjórnað
því þó nokkrum sinnum vil ég vera
vel undirbúinn til að standa undir
væntingum hljómsveitarinnar. Því
betur sem ég undirbý mig og geri
heimavinnuna, þeim mun meiri
kröfur get ég gert til hljómsveit-
arinnar,“ segir hann og bendir á
bækling hljómsveitarinnar fyrir
nýja starfsárið þar sem hann var
með ávarp auk þess sem dagskráin
er kynnt í þaula.
Tortelier nefnir þó stjórnendurna
Vladimir Ashkenazy og Osmo
Vänskä, sem eru á leið til landsins á
starfsárinu til að vinna með hljóm-
sveitinni. „Á döfinni hjá okkur eru
upptökur á sinfóníum Charles Gou-
nod, sem samdi margar frægustu
óperur 19. aldar. Á efnisskránni
okkar fyrir starfsárið má líka nefna
Konsert fyrir hljómsveit eftir Luto-
slawski,“ segir hann og bætir því við
að hann hafi unnið með verkið í 30
ár og tekið það upp hjá BBC og sé
því nánast orðinn sérfræðingur í
flutningi þess.
Einstakt lag á franskri tónlist
Af nýjum verkum sem hann mun
stjórna á komandi starfsári nefnir
hann verkið Námur eftir Þórð
Magnússon.
Tortelier hefur haft þó nokkur
áhrif á verkaval hljómsveitarinnar
síðan hann tók við sem aðal-
stjórnandi og hefur til að mynda
kynnt hljómsveitinni mikið af tónlist
frá heimalandi sínu, Frakklandi.
„Hljómsveitin hefur einstakt lag á
að spila franska tónlist en mér þótti
áhugavert að meðlimir hennar virt-
ust ekki hafa áttað sig á því hversu
færir þeir væru í því. Fyrir mig er
það auðvitað mjög ánægjulegt þar
sem frönsk tónlist er mín náttúra
og ég þarf skjót og nákvæm við-
brögð við henni, sem ég fæ svo
sannarlega frá hljómsveitinni,“
segir Tortelier ánægður.
Eiga fjölbreytni skilið
Hann segist þó ekki vilja sér-
hæfa sig í eða koma franskri tón-
list neitt sérstaklega á framfæri
heldur sé þetta einfaldlega arfleifð
hans sem hann beri með sér. „Ég
vil ekki selja franska tónlist neitt
meira en til dæmis Sjostakovitsj
eða Lutoslawski eða þá íslenska
tónlist. Það er til óendanlega mikið
af tónlist í heiminum og það þarf
að flytja hana svo það megi njóta
hennar. Áhorfendur eiga fjöl-
breytni skilið,“ segir Tortelier.
En hvað varð til þess að hann
ákvað að koma til Íslands?
„Það var ekki ég sem ákvað að
koma, það var hljómsveitin sem
ákvað að hún vildi fá mig til sín.
Mér er sagt að það hafi verið sam-
hljóða vilji allra í sveitinni að fá
mig, sem er mjög sjaldgæft. Þetta
var tækifæri sem ég gat ekki
sleppt. Það er ekki oft sem hljóm-
sveitarstjórar finna hljómsveit sem
er algjörlega á þeirra bandi,“ segir
Tortelier og kveður stærstu áskor-
anir hljómsveitarstjóra vera að
þróa samband við hljómsveitir sem
byggi á góðum samskiptum og
trausti. Hann segist eiga í mjög
góðum samskiptum við hljómsveit-
ina og ætlar að gera sitt allra besta
til að halda því þannig.
Spurður hvað hann sjái fyrir sér
varðandi samstarf hans og hljóm-
sveitarinnar í framtíðinni segir
hann að ef hlutirnir haldi áfram að
þróast eins og hafi gert eigi hann
von á að hljómsveitin geti náð
mjög góðum stalli á alþjóðavett-
vangi.
„Hljómsveitin er þegar komin
með gott orðspor erlendis og það
er mikill áhugi alls staðar í heim-
inum á því hvað er að gerast á Ís-
landi. Ég tel þessa athygli á landi
og þjóð vera kjörið tækifæri til að
koma hljómsveitinni á framfæri,“
segir Tortelier að lokum.
Gefandi og ánægjulegt samstarf
Yan Pascal Tortelier lauk nýlega fyrsta starfsári sínu með Sinfóníuhljómsveit Íslands
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hornauga Tortelier á æfingu
hljómsveitarinnar fyrir loka-
tónleika líðandi starfsárs.
„Það er af svo mörgu að taka,“
segir Arna Kristín Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, um kom-
andi starfsár sveitarinnar.
„Stærsta
stjarnan er
hollenskifiðlu-
leikarinn Jan-
ine Jansen.
Hún er algjör
stjarna og mun
meðal annars
leika Fiðlu-
konsert Sibeli-
usar undir
stjórn eig-
inmanns síns,
Daniels Blen-
dulf. Þau eru mjög gott teymi,“
segir Arna Kristín.
„Síðan er gaman að segja frá
því að við verðum með kvenna-
tónleika á Airwaves þar sem
verk eftir tónskáldin Önnu Þor-
valdsdóttur, Hildi Guðnadóttur,
Maríu Huld Markan Sigfús-
dóttur og Þuríði Jónsdóttur
verða flutt undir stjórn Önnu
Maríu Helsing,“ segir Arna
Kristín og bætir við að Vínar-
tónleikunum verði í fyrsta sinn
stjórnað af konu í ár: „Hún heit-
ir Karen Kamensek, er frá
Bandaríkjunum en lærði í tón-
listarháskólanum í Vínarborg
svo hún hefur góða þekkingu á
Vínartónlistinni.“
Arna Kristín segir þau líka
hlakka mikið til að fá til sín
Karinu Canellakis, sem er ein
skærasta stjarna ungra hljóm-
sveitarstjóra í dag.
Að lokum nefnir hún að auð-
vitað séu margir frábærir tón-
leikar með Yan Pascal Tortelier
á döfinni auk þess sem hún
mælir eindregið með Amadeus-
bíótónleikunum sem og Astrid
Lindgren-fjölskyldutónleikum.
Veisla í hverri
viku hjá Sinfó
DAGSKRÁ NÝS STARFSÁRS
Arna Kristín
Einarsdóttir STJÚPU
SPRENGJA
990kr
1.990kr
Sypris 80-100 cm
990kr
1.790kr
Stjúpur 10 stk