Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 84
84
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Erna Hrönn Ólafsdóttir hefur lengiverið áberandi í íslensku tónlist-arlífi. Ferillinn er langur, en húnvar meðal annars söngkona
sveitarinnar Bermuda og hefur tekið þátt í
tónleikasýningum af ýmsu tagi. Hún er
einnig vel þekkt sem ein af bakröddum Ís-
lands. Samhliða söngverkefnunum, söng-
kennslu og barnauppeldi hefur Erna Hrönn
starfað um árabil við dagskrárgerð í út-
varpi. Erna Hrönn er í loftinu á K100 alla
virka daga frá klukkan 12-16.
Gælunafn:
Örní Rönn.
Fjölskylduhagir:
Er í sambúð og trúlofuð. Ég á þrjú börn og
þrjú stjúpbörn. Einn strák og fimm stelpur
frá fimm ára til tvítugs.
Helstu kostir:
Jákvæð og bjartsýn. Yfirleitt hress og kát.
Helstu ókostir:
Á frekar erfitt með að vera alltaf stundvís.
Það er alveg sama hversu mikinn tíma ég
hef, ég er yfirleitt á síðustu stundu.
Hvernig gengur að sameina söng og útvarp?
Yfirleitt er ekkert mál að sameina þessa
tvo bransa. Ég þarf þó að vega og meta
hversu mikið ég blanda söngferlinum mín-
um í dagskrárgerðina. Mér finnst mjög
gaman að segja frá Eurovision-reynslu
minni þegar keppnin er í gangi og segja
frá upplifun minni og reynslu. Það getur
hins vegar líka verið nauðsynlegt að stoppa
sig af í kynningum þegar lög hljóma sem
ég hef kannski sungið bakraddir í.
Pínlegasta atvikið í útsendingu:
Það hefur ýmislegt komið upp á í útvarps-
tíð minni og ætli ég hafi ekki lent í öllu
þessu vandræðalega. Kynnt inn viðmæl-
anda og ómögulega munað hvað viðkom-
andi hét. Ég hef líka gleymt að setja sleð-
ann niður og talað á meðan lag var í gangi.
Svo hef ég dottið af stól í miðri kynningu
og ruglast á kynjum ef ég tek símann í
beinni, svo dæmi séu tekin. Það getur allt
gerst í svona lifandi fjölmiðli og það gerir
þetta svo skemmtilegt, þótt það sé vand-
ræðalegt rétt á meðan á því stendur.
Vinnufélagarnir gera líka stólpagrín að
mér þegar ég kem hlaupandi á öðru hundr-
aðinu til að ná fyrstu kynningunni, því ég
er nánast alltaf á síðustu stundu.
Skemmtilegasta atvikið í útsendingu:
Ég elska að taka viðtöl við fólk og hef
fengið ansi marga áhugaverða í spjall í
gegnum tíðina. Það var mjög eftirminnilegt
þegar Laddi og Edda Björgvins komu sam-
an í viðtal. Þá var mikið hlegið. Svo var
líka æðislegt að fá Hafþór Júlíus, „The
Mountain“, í spjall. Ég plataði hann til að
taka mig í bóndabeygju. Það náðist góð
mynd af því.
Af hverju útvarp:
Útvarp er lifandi og skemmtilegur miðill.
Það er mjög gaman að tengja tónlist-
arheiminn, sem ég lifi og hrærist í sem
söngkona, við starfið.
Hvað getur þú sagt okkur um þáttinn þinn?
Ég verð fyrst og fremst skemmtilegur fé-
lagsskapur yfir daginn þar sem tónlistin
verður í aðalhlutverki. Ekki of mikið af
blaðri en skemmtilegur fróðleikur og slúð-
ur inni á milli. sigridurelva@mbl.is
Erna Hrönn í yfirheyrslu
Morgunblaðið/Golli
Akureyringurinn Sigurður ÞorriGunnarsson stofnaði sína fyrstu út-varpsstöð 12 ára að aldri og hefurverið viðloðandi útvarp síðan þá.
Hann er með meistaragráðu í útvarpsfræðum
frá háskólanum í Sunderland í Bretlandi og
gegnir starfi tónlistarstjóra á K100. Í beinni
með Sigga Gunnars verður á dagskrá K100
alla virka daga frá klukkan 9-12.
Gælunafn:
Alltaf kallaður Siggi en mamma kallar mig
Bróa, KiðaKið eða Múmínsnáðann.
Fjölskylduhagir:
Einhleypur og barnlaus. Stendur alls ekki til
að fá mér kött, svo það sé á hreinu.
Helstu kostir:
Léttur og geðgóður með eindæmum, reyni
alltaf að sjá spaugilegu hliðina á öllu og reyni
að taka mig ekki of hátíðlega
Helstu ókostir:
Klárlega tímaskynið sem er mjög skert. Ég á
það til að láta fólk bíða eftir mér og er mjög
oft seinn.
Pínlegasta atvikið í útsendingu:
Þegar ég tók viðtal við manneskju í beinni út-
sendingu sem ég átti að vita hvað hét, af því
ég þekkti hana, en var búinn að steingleyma
hvað hún hét. Ég var svo heiftarlega með-
virkur að ég þorði ekki að spyrja hana að
nafni. Einhvern veginn tókst mér að taka við-
tal við hana án þess að nafnið kæmi fram.
Skemmtilegasta atvikið í útsendingu:
Það er alltaf gaman í útsendingu. Sér-
staklega þykir mér gaman að heyra frá hlust-
endum og átta mig á hvernig áhrif maður
getur haft á líf þeirra. Mér dettur í hug
Snapchat sem ég fékk af ungri stelpu sem var
í útvarpsleik að leika mig. Eða þegar nokkrir
hlustendur tóku sig saman og færðu mér jóla-
kort og jólagjöf fyrir ein jólin.
Af hverju útvarp?
Af því útvarp er langskemmtilegasti miðill-
inn. Hann er meðfærilegur, persónulegur og
alltaf í beinni þar sem allt getur gerst. Út-
varp er leikhús hugans. Það er ekki að
ástæðulausu að ég hef verið ástfanginn af
þessum miðli síðan ég var sex ára.
Hvað getur þú sagt okkur um þáttinn þinn?
Ég ætla að búa til nýjan, ferskan og spenn-
andi „seinni morgunþátt“ á K100 frá klukkan
9-12 alla virka daga. Fyrirmyndin verður sótt
meðal annars til þáttarins On air með Ryan
Seacrest í Bandaríkjunum, sem er vinsælasti
útvarpsþátturinn þar í landi. Þátturinn mun
að miklu leyti snúast um tónlist þar sem lif-
andi tónlist og viðtöl við tónlistarfólk verða í
forgrunni. Ég mun auðvitað fylgjast með
málefnum dagsins og finna á þeim jafnvel
spaugilega hlið eins og fólk þekkir úr Seinni-
partinum. Fastir dagskrárliðir sem notið
hafa mikilla vinsælda eins og „Tímaflakkið“
og „Stóra spurningin“ verða á sínum stað.
Þetta verður nýr og spennandi þáttur, byggð-
ur á góðum grunni. Svo get ég lofað að það
verður mikið hlegið.
audun@mbl.is
Í beinni með Sigga Gunnars
Morgunblaðið/Golli