Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 54
Drapplitir háhæl-
aðir skór passa vel
við flest jóladress en
rauðir skór eru alltaf
jólalegir.
Ljósir skór eru klassískir og fara
aldrei úr tísku.
Flestar konur vilja skarta sínu fegursta um jólin og margar hafa keypt sér ný föt en
eru í vandræðum með að finna
réttu skóna. Ef valið er erfitt eru
drapplitaðir háhælaðir skór alltaf
skotheldir. Slíkir skór hafa þann
góða kost að fara aldrei úr tísku
og þeir passa við nær allan fatnað,
hvort sem um er að ræða kjóla,
pils eða buxur. Margar konur vilja
ekkert annað en drapplita skó
því þeir eru ekki áberandi eins
og bleikir, rauðir eða grænir skór
sem virka oft dálítið æpandi. Hins
vegar njóta fötin sín betur þegar
skórnir eru drapplitir og leggirnir
virka lengri. Þegar skór í þessum lit
eru keyptir er um að gera að máta
nokkra tóna af drapplit og finna
þann sem hentar þínum húðlit
best.
Skotheldir skór
Húðin skiptir máli og þarf góða umönnun í kulda.
Húðin getur þornað á veturna og margir eyða miklum fjármun-um í alls kyns húðmeðferðir til
að fá skínandi fallega húð. Tískutíma-
ritið Elle skrifar að ekki sé nægilegt
að hreinsa húðina einu sinni áður en
gengið er til náða heldur þurfi að gera
það tvisvar. Fyrst skal hreinsa allan
farða vel af og síðan þrífa húðina. Að
sjálfsögðu er húðin mismunandi og
sumir eru heppnari en aðrir hvað
það varðar. Sérfræðingur segir að
ráðleggingar um tvöfalda hreinsun
komi frá Asíu. Þar nota konur olíu til
að hreinsa af förðun og sólvörn, síðan
hreinsa þær andlitið með andlits-
vatni eða -froðu. Þegar húðin er þrifin
að kvöldi er nauðsynlegt að allur
farði sé þveginn burtu með andlits-
vatni. Húðin er ekki nægilega þrifin á
meðan enn kemur farði í bómullina.
Inn á milli getur verið gott að fara í
svokallað „peeling“ á snyrtistofu til
að ná upp góðri hreinsun á dauðum
húðfrumum. Einnig eru til grófkorna
krem í apótekum, eða krem með sýru
sem hægt er að nota annað slagið
heima til að fá betri húð.
Tvöfaldur andlitsþvottur
Glitrandi gull, silfur og allir regnbogans litir setja kremið á kökuna þegar
kemur að jólaförðun ársins. Jólin
eru árstíð kærleika, fegurðar og
gleði og fyrirskipan tískurisanna er
að skína jafn skært og Betlehems-
stjarnan þegar kemur að sindrandi
skini ljóssins í eigin persónulegu
útliti. Glimmer og glamúr eru boð-
orð tískuheimsins á jólunum nú og
dramatísk, glitrandi augnförðun í
anda diskóáranna er vel við hæfi,
enda hefur diskótímabilið verið
mörgum hönnuðum hugleikið
að undanförnu. Sanserað gloss á
varir, glit í kinnalitnum og nóg af
geislandi glimmeri á augun, helst í
jólarauðu eða grænu!
Jólaglimmer
á andlitið
HUMAR MARGAR STÆRÐIR VERÐ FRÁ3.600 kr.kg
STYRKLEIKAR Á SKÖTU
HUMARSÚPA
FISKIKÓNGSINS HUMAR
SKELFLETTUR
OPIÐ
22. DESEMBER 8-20
23. DESEMBER 8-20
24. DESEMBER 9-12
SKATA
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarinaSogavegi 3
Höfðabakka 1
Sími 587 7755
-1.skref.
Fyrir byrjendur.
Lítið kæst og
ósöltuð skata.
Mjög milt skötubragð.
-2.skref
Kæst og léttsöltuð.
Mest selda skata.
Mjög mild og góð.
Gott skötubragð.
Hentar í allar
skötuveislur.
-3.skref
Kæst og ósöltuð.
Fyrir þá sem eru
lengra komnir.
Vel kæst og mikill
styrkur í kæsingunni.
-4.skref.
Vestfirzk skata.
Hrikalega kæst.
Missir andann.
Aðeins fyrir vana.
-5.skref.
Vel kæst gráskata.
Þessi skata er sterk.
Vel kæst og síðan er
hún þurrkuð, hengd upp.
SAMA VERÐ 4 ÁRIÐ Í RÖÐ 1.390 kr.kg
14 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . d e s e m B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-C
3
D
4
1
E
9
3
-C
2
9
8
1
E
9
3
-C
1
5
C
1
E
9
3
-C
0
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K