Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 12
Viðskipti Hótelbókanir fyrir jól
og áramót eru í takti við fyrri ár,
þrátt fyrir verkfall flugvirkja hjá
Icelandair í byrjun vikunnar. Þetta
segja forsvarsmenn Icelandair hót-
ela og Íslandshótela. Áramótin eru
vinsælli tími en jólin.
„Áramótin eru eins og fyrri ár,
þau eru bara bókuð. Það er ánægju-
legt að jólin hafa verið að koma
til undanfarin ár. Þau eru ekki
jafn eftirsótt og áramótin en eru
að koma til,“ segir Magnea Þórey
Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri
Icelandair hótela.
Í ályktun sem stjórn Samtaka
ferðaþjónustunnar sendi frá sér á
föstudaginn sagði að ferðaheild-
salar hefðu áhyggjur af verkfalli
flugvirkja, sem þá var yfirvofandi
og þegar hefðu borist afbókanir.
Magnea segir Icelandair hótel
ekki hafa fengið mikið af afbók-
unum, en einhverjar þó. „Það
hjálpaði til að verkfallið var ekki
lengra. Einhverjir voru tvístígandi
en þó voru hópar sem létu vaða og
afbókuðu,“ segir Magnea. Það hafi
fyrst og fremst verið fólk sem ætlaði
að vera hér í aðdraganda jólanna.
Davíð Torfi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandshótela, segir
stöðuna mjög góða fyrir jól og
áramót. „Hótelin í Reykjavík og
á Suðurlandi og alveg austur að
Jökuls árlóni eru með mjög góða
bókunarstöðu,“ segir hann og
bætir við að hótelin í Reykjavík séu
nánast uppbókuð. Hins vegar sé
minna á Austfjörðum, Vestfjörðum,
Vestur landi og Norðurlandi. „Sum
hótel eru bara alveg lokuð þar um
jólin.“ Davíð Torfi segir verkfallið
hafa haft áhrif, en það hafi mest
verið í formi fyrirspurna. „Það var
komið töluvert af afbókunum en
svo hefur fyllst upp í það aftur.“
Breska blaðið Telegraph fjallar
um uppvöxt ferðaþjónustunnar
í grein sem birtist á vef blaðsins
á mánudaginn. Þar segir að búist
sé við því að 2,3 milljónir ferða-
manna komi til landsins á þessu
ári. Árið 2016 hafi komið hingað
5,4 ferðamenn á hvern íbúa. Nú
nálgist það 7 ferðamenn á hvern
íbúa. Efasemdir hafi komið upp
um að fjölgun ferðamanna hér sé
sjálfbær. Telegraph segir að landið
veki athygli fólks sem hefur séð fal-
lega náttúruna í sjónvarpsþáttum
og Hollywood-bíómyndum eins
og Game of Thrones, Star Wars og
Interstellar.
Það kann svo að hafa áhrif að í
nýlegri grein í Hollywood Repor-
ter var landið nefnt sem mögu-
legur áfangastaður í brúðkaups-
ferð Harrys Bretaprins og Meghan
Markle, unnustu hans. Þau hafa
ákveðið að ganga í hjónaband
19. maí næstkomandi.
John Spence, forstjóri ferða-
skrifstofunnar Scott Dunn, segir í
samtali við Hollywood Reporter
að Deplar í Fljótum gætu vakið
athygli þeirra. Þar séu 13 svefnher-
bergi sem hægt er að taka frá og þar
sé góð þjónusta. „Ég held þau hefðu
mjög gaman af því að fara á kajak,
í hvalaskoðun, í fluguveiði, göngu-
ferðir, á hestbak og jafnvel á brim-
bretti,“ sagði hann.
jonhakon@frettabladid.is
Segja horfur góðar þrátt fyrir verkfall
Mörg hótel eru uppbókuð fyrir áramótin og horfur fyrir jólin góðar. Verkfall flugvirkja virðist ekki ætla að hafa langtímaáhrif. Vöxtur
ferðaþjónustu vekur heimsathygli og Ísland talið ákjósanlegur áfangastaður fyrir brúðkaupsferð Harrys Bretaprins og Meghan Markle.
Ríki með flesta ferða-
menn á íbúa árið 2016
1. Andorra - 36,6 ferðamenn
á íbúa árlega
2. Makaó - 25,6
3. Bresku Jómfrúaeyjar - 13,3
4. St Martin-eyja - 13,1
5. Turks and Caicos eyjar - 13
6. Arúba - 10,5
7. Norður-Marianaeyjar - 9,6
8. Gvam - 9,4
9. Mónakó - 8,7
10. Palá - 6.4
11. Cayman-eyjar - 6,3
12. Bandarísku Jómfrúaeyjar - 6,2
13. Ísland - 5,4
14. Malta - 4,5
15. Bahamaeyjar - 3,8
*Heimild: Telegraph
Á höfuðborgarsvæðinu eru mörg hótel uppbókuð um áramót og horfur fyrir jólin eru góðar. Verkfall flugvirkja virðist ætla að hafa lítil áhrif. FréTTABlAðið/ANToN BriNk
Það hjálpaði til að
verkfallið var ekki
lengra. Einhverjir voru
tvístígandi en þó voru hópar
sem létu vaða og
afbókuðu.
Magnea Þórey
Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri
Icelandair hótela
Það var komið
töluvert af afbók-
unum en svo hefur fyllst upp
í það aftur.
Davíð Torfi Ólafsson,
framkvæmdastjóri
Íslandshótela
Fáðu
gjafirnar
sendar heim
á elko.is
Viðskipti Sífellt færri landsmenn
senda jólakort til vina eða ættingja
með bréfpósti. Þetta sýnir nýleg
könnun MMR sem framkvæmd var
dagana 12-15. desember. Í ár munu
41,7% landsmanna senda jólakort
með bréfpósti samanborið við 45
prósent í fyrra og 56 prósent árið
áður. Á sama tíma fjölgar þeim
sem eingöngu senda rafrænt jóla-
kort. Þrettán prósent segjast munu
senda rafrænt jólakort í ár, saman-
borið við 11,5 prósent í fyrra og tæp
11 prósent árið áður.
Þeim fjölgar jafnframt sem ekki
senda jólakort en 45 prósent kváð-
ust ekki ætla að senda jólakort í ár.
Þetta er aukning um tæp tvö pró-
sentustig milli ára og aukning um
rúm 12 prósentustig frá árinu 2015.
Íslendingar á aldrinum 18-29 ára
voru talsvert ólíklegri til að senda
jólakort heldur en fólk 30 ára og
eldra. Þannig sögðust 72 prósent
þeirra sem voru á aldrinum 18-29
ára ekki ætla að senda nein jólakort
í ár. Könnun MMR var gerð þannig
að 923 einstaklingar sem valdir voru
handahófskennt úr hópi álitsgjafa
MMR svöruðu spurningunni. – jhh
Æ færri senda jólakort
Desember er jafnan annatími hjá
póstinum. FréTTABlAðið/ArNþór
42%
landsmanna senda jólakort
með bréfpósti í ár.
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-7
E
B
4
1
E
9
3
-7
D
7
8
1
E
9
3
-7
C
3
C
1
E
9
3
-7
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K