Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 29
Við köllum það skort á sögu-skyni þegar menn gera mis-tök fyrir þá vandræðalegu
sök að þeir virðast ekki þekkja
hliðstæðar skyssur fyrri tíðar.
Þetta gerðist t.d. þegar Banda-
ríkjaþing aflétti gömlum hömlum
af bönkum landsins fyrir og eftir
aldamótin 2000 til að þóknast
bankamönnum líkt og enginn
á þinginu vissi lengur eða skildi
hvers vegna hömlurnar höfðu
verið leiddar í lög á kreppuár-
unum eftir 1930. Enn vandræða-
legri eru tilburðir Trumps forseta
nú til að ráðast gegn lögbundnu
eftirliti þar eð skortur hans á
söguskyni virðist alger. Forsetinn
efndi á dögunum til sýningar í
Hvíta húsinu þar sem hann réðst
með skærum að rauðum borða í
kringum pappírshaug líkt og hann
vissi ekki að svipuð mynd af bros-
gleiðum bankamönnum að ráðast
með keðjusög að lögum og reglum
um banka varð að athlægi um
allan heim eftir bankakreppuna
2007-2008. Forseti Bandaríkjanna
birtist heiminum eins og maður
sem skreytti sig með hakakrossi
1960.
Saga er sagnfræði
Saga er það sem sagnfræðingar
hafa að segja um liðna tíð. Við
notum á okkar máli sitt hvort
orðið um sögu og sagnfræði, en
það gera margar aðrar þjóðir ekki,
t.d. hvorki Danir né Englendingar.
Saga Íslands var lengi hlutdræg,
lituð af stjórnmálum, bæði sagan
sem kennd var í skólum og sagan
sem flestir Íslendingar töldu sanna
og rétta. Ein villan var að Dönum
var kennt um allt sem aflaga
hafði farið til að beina sjónum
frá mistökum innlendra manna.
Við sjáum sömu tilhneigingu nú
þegar þeir sem mesta ábyrgð bera
á hruninu reyna sumir að ljúga
ábyrgðinni upp á útlendinga, en
fáir sagnfræðingar fást til slíkra
verka nú orðið. Sagnfræðingarnir
hafa lyft af herðum sínum oki
fortíðarinnar og ganga nú flestir
óbundnir til skrifta. Fáir hópar
innlendra fræðimanna standast
þeim snúning. Sagnfræðing-
arnir birta bók eftir bók um sögu
Íslands, prýðileg verk, nú síðast
Líftaug landsins – saga íslenskrar
utanlandsverslunar 900-2010,
mikið rit eftir sex sagnfræðinga
í Háskóla Íslands, Önnu Agnars-
dóttur, Gísla Gunnarsson, Guð-
mund Jónsson, Halldór Bjarnason
(d. 2010), Helga Skúla Kjartansson
og Helga Þorláksson.
Kvíarnar færðar út
Íslenzkir sagnfræðingar hafa
einnig birt prýðilegar bækur um
erlenda sögu. Hér skulu tvær
nefndar.
Mikill fengur er að bók Jóns
Þ. Þór Bandaríkjaforsetar – Ævi-
þættir allra forseta Bandaríkjanna
frá George Washington til Baracks
Obama sem kom út 2016. Sögu
er hægt að segja með ýmsu móti.
Gamla lagið var saga af sjónarhóli
sigurvegara í styrjöldum þar sem
kóngar og drottningar, prinsar
og prinsessur voru í aðalhlut-
verkum. Sagnfræðingar risu upp
gegn þessum frásagnarmáta eftir
miðja 20. öld og tóku þá sumir að
rekja heldur söguna af sjónarhóli
venjulegs fólks. Jón Þ. Þór slær tvær
flugur í einu höggi. Hann segir
sögu Bandaríkjanna með því að
rekja ævir allra forseta landsins
frá 1732 til okkar daga. Formúlan
virkar m.a. vegna þess að flestir for-
setar Bandaríkjanna voru það sem
við köllum venjulegt fólk. Þeirra
merkastur var trúlega Abraham
Lincoln sem ólst upp á hrakhólum,
lærði lögfræði á eigin spýtur, sagði
margt viturlegt og bjargaði landinu
frá klofningi í borgarastríðinu
1861-1865. Ef þrælahald er ekki
rangt, sagði Lincoln, þá er ekkert
rangt. Jón Þ. Þór fer hér svipaða
leið og bandaríski sagnfræðipró-
fessorinn Jonathan Steinberg fer í
bók sinni Evrópusaga og evrópskar
ævir 1715-1914 þar sem saga
álfunnar í 200 ár er rakin í lifandi
samhengi við ólíkar ævir áhrifa-
manna á ýmsum sviðum.
Hulduþjóðir Evrópu
Mikill fengur er einnig að afar fróð-
legri bók Þorleifs Friðrikssonar
Hulduþjóðir Evrópu – Ferð um
framandi samfélög frá 2016. Þor-
leifur fer aðra leið. Hann dásamar
fjölbreytni álfunnar með því að
segja ævisögur 33ja evrópskra
smáþjóða. Sumar þessara þjóða
þekkjum við, t.d. Sama í nyrztu
byggðum Noregs, Svíþjóðar og
Finnlands. Við þekkjum einnig
Bretóna og Korsíka í Frakklandi og
Frísa sem ná meðfram ströndinni
frá Hollandi um Þýzkaland til
Danmerkur. Mörg okkar hafa
þó aldrei fyrr heyrt getið t.d. um
Fríúla, Sára, Kimbra og Ladína,
fjórar smáþjóðir á Norður-Ítalíu og
í Alpafjöllum. Allt eru þetta þjóðir
eins og við, stoltar af sögu sinni,
tungu og menningu, og berjast
sumar fyrir auknu sjálfstæði líkt og
við þurftum að gera, en þó yfirleitt
af minni ákefð nú en áður. Á móti
kemur aukin rækt við eigin þjóð-
tungur sem eflast margar frekar en
að fjara út.
Þessi smálönd eiga það sam-
merkt að fólkið sem byggir þau er
yfirleitt hlynnt Evrópusamband-
inu, m.a. vegna þess að sambandið
býður vernd. Þorleifur lýsir þessu
vel í kaflanum um Bretóna. Þjóð-
ernisflokkur Bretóna setti fram
strax 1928 hugmyndina um evr-
ópskt sambandsríki. Þorleifur segir
(bls. 144): „Rökin á bak við hug-
myndina voru þau að aðeins innan
slíks sambandsríkis væri hægt að
standa vörð um réttindi minni-
hlutahópa.“ Hann bætir við: „Á
Íslandi voru hugmyndir af þessum
toga viðraðar í blaðinu Dagsbrún,
málgagni jafnaðarmanna, undir
ritstjórn Ólafs Friðrikssonar.
Ólafur gekk reyndar ekki svo langt
að vilja sameina Evrópu … Hann lét
sér nægja að dreyma um sameinuð
Norðurlönd.“ Þetta var 1917.
Um Fríúla segir Þorleifur (bls.
170): „Meginástæða þess að trúin á
Evrópusambandið er svo almenn
er líklega sú að hagsmunum Fríúla
verði best borgið undir hlíf sam-
einaðrar Evrópu. Með því losni
þjóðin að nokkru leyti úr klóm
landlægrar ítalskrar spillingar og
óskilvirks skrifræðis.“ Kannast
nokkur við það? Fríúlar byrjuðu
að skrifa bækur á 12. öld, á undan
Íslendingum. Þeir eru þrefalt fleiri
en við. Tungan hefur bundið þá
saman. Land þjóð og tunga: Kann-
ast nokkur við það?
Saga skiptir máli
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Við sjáum sömu tilhneig-
ingu nú þegar þeir sem mesta
ábyrgð bera á hruninu reyna
sumir að ljúga ábyrgðinni
upp á útlendinga, en fáir
sagnfræðingar fást til slíkra
verka nú orðið. Sagnfræð-
ingarnir hafa lyft af herðum
sínum oki fortíðarinnar og
ganga nú flestir óbundnir til
skrifta.
www.ss.is
PI
PA
R\
TB
W
A
mjúkt, safaríkt og bragðmilt
Jólin eru tími elskulegrar íhaldssemi þegar við viljum vera viss um að allt sé eins og það
á að vera. Þess vegna velja tugþúsundir Íslendinga SS birkireykta
hangikjötið á jólaborðið, því það er mjúkt, safaríkt og bragðmilt.
Gleðileg jól!
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 29F i M M T u d a g u R 2 1 . d e S e M B e R 2 0 1 7
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-7
9
C
4
1
E
9
3
-7
8
8
8
1
E
9
3
-7
7
4
C
1
E
9
3
-7
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K