Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 29

Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 29
Við köllum það skort á sögu-skyni þegar menn gera mis-tök fyrir þá vandræðalegu sök að þeir virðast ekki þekkja hliðstæðar skyssur fyrri tíðar. Þetta gerðist t.d. þegar Banda- ríkjaþing aflétti gömlum hömlum af bönkum landsins fyrir og eftir aldamótin 2000 til að þóknast bankamönnum líkt og enginn á þinginu vissi lengur eða skildi hvers vegna hömlurnar höfðu verið leiddar í lög á kreppuár- unum eftir 1930. Enn vandræða- legri eru tilburðir Trumps forseta nú til að ráðast gegn lögbundnu eftirliti þar eð skortur hans á söguskyni virðist alger. Forsetinn efndi á dögunum til sýningar í Hvíta húsinu þar sem hann réðst með skærum að rauðum borða í kringum pappírshaug líkt og hann vissi ekki að svipuð mynd af bros- gleiðum bankamönnum að ráðast með keðjusög að lögum og reglum um banka varð að athlægi um allan heim eftir bankakreppuna 2007-2008. Forseti Bandaríkjanna birtist heiminum eins og maður sem skreytti sig með hakakrossi 1960. Saga er sagnfræði Saga er það sem sagnfræðingar hafa að segja um liðna tíð. Við notum á okkar máli sitt hvort orðið um sögu og sagnfræði, en það gera margar aðrar þjóðir ekki, t.d. hvorki Danir né Englendingar. Saga Íslands var lengi hlutdræg, lituð af stjórnmálum, bæði sagan sem kennd var í skólum og sagan sem flestir Íslendingar töldu sanna og rétta. Ein villan var að Dönum var kennt um allt sem aflaga hafði farið til að beina sjónum frá mistökum innlendra manna. Við sjáum sömu tilhneigingu nú þegar þeir sem mesta ábyrgð bera á hruninu reyna sumir að ljúga ábyrgðinni upp á útlendinga, en fáir sagnfræðingar fást til slíkra verka nú orðið. Sagnfræðingarnir hafa lyft af herðum sínum oki fortíðarinnar og ganga nú flestir óbundnir til skrifta. Fáir hópar innlendra fræðimanna standast þeim snúning. Sagnfræðing- arnir birta bók eftir bók um sögu Íslands, prýðileg verk, nú síðast Líftaug landsins – saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-2010, mikið rit eftir sex sagnfræðinga í Háskóla Íslands, Önnu Agnars- dóttur, Gísla Gunnarsson, Guð- mund Jónsson, Halldór Bjarnason (d. 2010), Helga Skúla Kjartansson og Helga Þorláksson. Kvíarnar færðar út Íslenzkir sagnfræðingar hafa einnig birt prýðilegar bækur um erlenda sögu. Hér skulu tvær nefndar. Mikill fengur er að bók Jóns Þ. Þór Bandaríkjaforsetar – Ævi- þættir allra forseta Bandaríkjanna frá George Washington til Baracks Obama sem kom út 2016. Sögu er hægt að segja með ýmsu móti. Gamla lagið var saga af sjónarhóli sigurvegara í styrjöldum þar sem kóngar og drottningar, prinsar og prinsessur voru í aðalhlut- verkum. Sagnfræðingar risu upp gegn þessum frásagnarmáta eftir miðja 20. öld og tóku þá sumir að rekja heldur söguna af sjónarhóli venjulegs fólks. Jón Þ. Þór slær tvær flugur í einu höggi. Hann segir sögu Bandaríkjanna með því að rekja ævir allra forseta landsins frá 1732 til okkar daga. Formúlan virkar m.a. vegna þess að flestir for- setar Bandaríkjanna voru það sem við köllum venjulegt fólk. Þeirra merkastur var trúlega Abraham Lincoln sem ólst upp á hrakhólum, lærði lögfræði á eigin spýtur, sagði margt viturlegt og bjargaði landinu frá klofningi í borgarastríðinu 1861-1865. Ef þrælahald er ekki rangt, sagði Lincoln, þá er ekkert rangt. Jón Þ. Þór fer hér svipaða leið og bandaríski sagnfræðipró- fessorinn Jonathan Steinberg fer í bók sinni Evrópusaga og evrópskar ævir 1715-1914 þar sem saga álfunnar í 200 ár er rakin í lifandi samhengi við ólíkar ævir áhrifa- manna á ýmsum sviðum. Hulduþjóðir Evrópu Mikill fengur er einnig að afar fróð- legri bók Þorleifs Friðrikssonar Hulduþjóðir Evrópu – Ferð um framandi samfélög frá 2016. Þor- leifur fer aðra leið. Hann dásamar fjölbreytni álfunnar með því að segja ævisögur 33ja evrópskra smáþjóða. Sumar þessara þjóða þekkjum við, t.d. Sama í nyrztu byggðum Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Við þekkjum einnig Bretóna og Korsíka í Frakklandi og Frísa sem ná meðfram ströndinni frá Hollandi um Þýzkaland til Danmerkur. Mörg okkar hafa þó aldrei fyrr heyrt getið t.d. um Fríúla, Sára, Kimbra og Ladína, fjórar smáþjóðir á Norður-Ítalíu og í Alpafjöllum. Allt eru þetta þjóðir eins og við, stoltar af sögu sinni, tungu og menningu, og berjast sumar fyrir auknu sjálfstæði líkt og við þurftum að gera, en þó yfirleitt af minni ákefð nú en áður. Á móti kemur aukin rækt við eigin þjóð- tungur sem eflast margar frekar en að fjara út. Þessi smálönd eiga það sam- merkt að fólkið sem byggir þau er yfirleitt hlynnt Evrópusamband- inu, m.a. vegna þess að sambandið býður vernd. Þorleifur lýsir þessu vel í kaflanum um Bretóna. Þjóð- ernisflokkur Bretóna setti fram strax 1928 hugmyndina um evr- ópskt sambandsríki. Þorleifur segir (bls. 144): „Rökin á bak við hug- myndina voru þau að aðeins innan slíks sambandsríkis væri hægt að standa vörð um réttindi minni- hlutahópa.“ Hann bætir við: „Á Íslandi voru hugmyndir af þessum toga viðraðar í blaðinu Dagsbrún, málgagni jafnaðarmanna, undir ritstjórn Ólafs Friðrikssonar. Ólafur gekk reyndar ekki svo langt að vilja sameina Evrópu … Hann lét sér nægja að dreyma um sameinuð Norðurlönd.“ Þetta var 1917. Um Fríúla segir Þorleifur (bls. 170): „Meginástæða þess að trúin á Evrópusambandið er svo almenn er líklega sú að hagsmunum Fríúla verði best borgið undir hlíf sam- einaðrar Evrópu. Með því losni þjóðin að nokkru leyti úr klóm landlægrar ítalskrar spillingar og óskilvirks skrifræðis.“ Kannast nokkur við það? Fríúlar byrjuðu að skrifa bækur á 12. öld, á undan Íslendingum. Þeir eru þrefalt fleiri en við. Tungan hefur bundið þá saman. Land þjóð og tunga: Kann- ast nokkur við það? Saga skiptir máli Þorvaldur Gylfason Í dag Við sjáum sömu tilhneig- ingu nú þegar þeir sem mesta ábyrgð bera á hruninu reyna sumir að ljúga ábyrgðinni upp á útlendinga, en fáir sagnfræðingar fást til slíkra verka nú orðið. Sagnfræð- ingarnir hafa lyft af herðum sínum oki fortíðarinnar og ganga nú flestir óbundnir til skrifta. www.ss.is PI PA R\ TB W A mjúkt, safaríkt og bragðmilt Jólin eru tími elskulegrar íhaldssemi þegar við viljum vera viss um að allt sé eins og það á að vera. Þess vegna velja tugþúsundir Íslendinga SS birkireykta hangikjötið á jólaborðið, því það er mjúkt, safaríkt og bragðmilt. Gleðileg jól! S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 29F i M M T u d a g u R 2 1 . d e S e M B e R 2 0 1 7 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -7 9 C 4 1 E 9 3 -7 8 8 8 1 E 9 3 -7 7 4 C 1 E 9 3 -7 6 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.