Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 2
Veður
Í dag róast veðrið þegar dregur
úr vestanáttinni og éljunum. Það
kólnar og verður komið nokkurra
stiga frost undir kvöldið. sjá síðu 46
Jólastund
Það er ekki seinna vænna að fara að huga að því að kaupa jólatré ef sá gállinn er á manni, enda aðeins þrír dagar til jóla. Þessir feðgar áttu saman
góða stund þegar þeir völdu sér hið fullkomna tré til að fara með heim og munu án efa eiga aðra eins gæðastund við að skreyta það. Fréttablaðið/Ernir
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
Opið alla
daga til jóla
Niðurfellanleg
hliðarborð
JÓLATILBOÐ
59.900
FULLT VERÐ 74.900
afslátt
ur
20%
Jólatilboð
JÓLATILBOÐ
4.990
VERÐ ÁÐUR 6.990
Þráðlaus
kjöthitamælir
neytendur „Við gátum ekki sannað
að ísinn væri framleiddur af ást,“ segir
Gunnar Logi Malmquist, eigandi
ísbúðarinnar Ísleifs heppna. Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvaði
á dögunum dreifingu á rjómaís frá
fyrirtækinu, á þeim forsendum að
fyrirtækið skorti framleiðsluleyfi til
að selja ís í verslanir. Þá gerði eftir-
litið athugasemdir við fullyrðingar
á umbúðum sem fyrirtækið gat ekki
fært sönnur á. Á meðal þeirra fullyrð-
inga var að ísinn væri „framleiddur af
ást“.
Gunnar Logi Malmquist Einarsson,
einn stofnenda fyrirtækisins, segir að
aðgerðir heilbrigðiseftirlitsins hafi
komið þeim á óvart og málið hafi
komið upp á erfiðum tíma fyrir fyrir-
tækið, sem opnaði ísbúð 19. ágúst síð-
astliðinn. „Þetta hafði mikil áhrif og
kom á mjög leiðinlegum tíma,“ segir
hann. Vegna þessa hafi þurft að farga
tæplega 50 lítrum af rjómaís.
Aðalástæðan, að sögn Gunnars,
fyrir því að ísinn var innkallaður var
að fyrirtækið hafði ekki leyfi til að
framleiða í ísbúðinni ís til að selja í
verslanir. „Núna notum við tilrauna-
eldhúsið hjá MATÍS og framleiðum
þar ísinn fyrir verslanirnar,“ segir
hann.
Þær upplýsingar fengust frá fulltrúa
hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
að kjarninn í reglum um merkingar
á umbúðum sé að þær séu ekki vill-
andi fyrir neytendur. Umrætt fyrir-
tæki hafi ekki getað fært sönnur á
þær fullyrðingar sem fram komu á
umbúðunum. Þar eigi aðeins að birta
staðreyndir um vörur, svo neytendur
geti kynnt sér innihald þeirra. Um sé
að ræða reglugerð á vegum Evrópu-
sambandsins sem innleidd hafi verið
hér. Fullyrðingin um ástina væri ein
og sér ekki tilefni til að stöðva dreif-
ingu á vörunnar.
Á límmiða, sem límdur er á
umbúðir íssins, var gerður saman-
burður á ísnum frá Ísleifi heppna
og „hefðbundnum ís“. Á honum
kom fram að í hefðbundinn ís væru
oft notuð E-efni, mjólkurduft væri
notað í stað lífrænnar mjólkur Ísleifs
heppna og að oft væri ekki notaður
rjómi í rjómaís. Það gerði Ísleifur
heppni hins vegar. „Við sögðum frá
því að við notum salt frá Saltverki á
meðan aðrir nota borðsalt. Svo var
fullyrt að ísinn væri framleiddur af ást
á meðan hefðbundinn ís væri fjölda-
framleiddur,“ útskýrir Gunnar.
Ísleifur heppni er fjölskyldufyrir-
tæki sem starfrækir ísbúð á Hlemmi
og selur ís í Fjarðarkaupum, Mela-
búðinni og Frú Laugu. Gunnar rekur
fyrirtækið með föður sínum en þrjár
systur hans eru einnig í eigendahópn-
um. Gunnar, sem er matreiðslumað-
ur, segir að rjómaísinn frá fyrirtækinu
njóti þeirrar sérstöðu að vera frystur
með fljótandi köfnunarefni. Í honum
sé miklu minna loft en í ís sem sé
frystur á hefðbundinn máta. Ísinn sé
bæði þéttari og bragðmeiri fyrir vikið.
Hann segir mikilvægt fyrir rekstur
fyrirtækisins að selja ís í búðum, sér-
staklega yfir vetrarmánuðina.
baldur@frettabladid.is
Mega ekki fullyrða að
ísinn sé gerður af ást
Heilbrigðiseftirlitið stöðvaði dreifingu á rjómaís frá Ísleifi heppna, sem ekki var
framleiddur í þar til bæru eldhúsi. Þá voru á umbúðunum ýmsar fullyrðingar
sem ekki var hægt að færa sönnur á. Stofnandi segir málið koma sér á óvart.
Gunnar logi Malmquist segir að stöðvunin hafi komið sér illa fyrir fyrirtækið,
sem framleiður nú ísinn fyrir búðir hjá MatÍS. Fréttablaðið/Eyþór
Hér má sjá merkingarnar sem Ísleifur
heppni má ekki nota á ísinn sinn.
GrÆnLAnd Þorláksmessa er anna-
samasti dagur ársins hjá lögreglunni
á Grænlandi. Þá þarf lögreglan víða
að skerast í leikinn vegna drykkju og
heimilisofbeldis.
Grænlenska útvarpið hefur það
eftir Linu Davidsen vaktstjóra að
misnotkun áfengis sé greinilegust í
desember. Mesta annríkið hjá lög-
reglunni hefjist á Þorláksmessukvöld
og standi fram á aðfangadagsmorgun.
Sorglegt sé að börn þurfi að verða vitni
að drykkjunni og ofbeldinu.
Lögreglan kveðst ekki hafa skýr-
ingar á því hvers vegna lætin byrji
23. desember. Mögulega sé það
vegna þess að margir fái útborguð
laun 22. desember. Fulltrúi Barna-
heilla á Grænlandi kveðst viss um
að það sé ástæðan. Að borga út laun
á þessum tíma eyðileggi jólagleði
margra barna. – ibs
Jóladrykkjan
bitnar illa á
börnunum
FrAmkvÆmdir Grindavíkurbær
stefnir að því að taka í notkun nýtt
íþróttahús snemma árs 2019. Þetta
segir Ármann Halldórsson, sviðsstjóri
skipulags- og umhverfissviðs bæjar-
ins. Undirbúningur hefur staðið yfir
í þrjú ár en Batteríið arkitektar hefur
nú lokið við að hanna húsið. Á næstu
dögum verður verkið boðið út. Vonir
standa til að framkvæmdir hefjist sem
fyrst á nýju ári.
Ármann segir að um verði að ræða
rúmlega tvö þúsund fermetra hús sem
samanstendur af bardagasal, klefum
og íþróttasal. Ármann segir að húsið
verði töluvert stærra en gamla Röstin.
Það rúmi til að mynda tvo körfubolta-
velli í fullri stærð.
Rými ætti að verða fyrir umtalsvert
fleiri áhorfendur í nýja húsinu en því
gamla en Grindavík teflir fram sterku
liði í efstu deild karla í körfuknatt-
leik, svo dæmi sé tekið. „Grindavík
er mikill íþróttabær og við leggjum
mikið upp úr íþróttamenningunni,“
segir hann. – bg
Byggja nýtt
íþróttahús
HeiLbriGðismáL Árlega glíma um
fjörutíu börn við varanlegar afleið-
ingar heilaáverka hér á landi en
aðeins eitt til þrjú þeirra fá viðeigandi
greiningu og meðferð. Börnin fá oft
ranga greiningu um ADHD. Fagfólk
í heilbrigðiskerfinu afhenti ráðherra
áskorun í dag vegna þarfar á bættri
þjónustu við fólk með heilaskaða.
Árlega hljóta um 1.000 til 1.500
manns höfuðáverka á Íslandi og
helmingur er börn undir 19 ára aldri.
Stór hluti fær ákominn heilaskaða
sem hefur varanlegar afleiðingar á
heilastarfsemina, svo sem persónu-
leikabreytingar eða minnisskerðingu.
Einungis brot af þeim fjölda, sem
þarf sérhæfða meðferð, fær slíka með-
ferð. – ngy
Oft ranglega
greind með
ADHDH
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t u d A G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-5
C
2
4
1
E
9
3
-5
A
E
8
1
E
9
3
-5
9
A
C
1
E
9
3
-5
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K