Fréttablaðið - 21.12.2017, Blaðsíða 38
Handbolti Þegar 12 umferðir eru
búnar af Olís-deild kvenna í hand-
bolta situr Valur á toppnum með 22
stig, þremur stigum á undan Hauk-
um og sex stigum á undan Íslands-
meisturum Fram. Valskonur eru
enn taplausar í Olís-deildinni; hafa
unnið 10 leiki og gert tvö jafntefli.
Nokkuð óvæntur árangur í ljósi þess
að Val var spáð 4. sæti og liðið olli
miklum vonbrigðum í fyrra.
Síðasta tímabil endaði ekki vel
hjá Val. Hlíðarendaliðið tapaði
átta af síðustu níu leikjum sínum,
endaði í 6. sæti Olís-deildarinnar og
komst ekki í úrslitakeppnina. Vals-
konur fengu 16 stig í Olís-deildinni
í fyrra, sex stigum færra en liðið er
með núna.
„Við erum öll sátt. Þetta hefur
komið okkur á óvart,“ sagði Kristín
Guðmundsdóttir, leikmaður Vals,
þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til
hennar. Hún segir að árangurinn
það sem af er tímabili sé framar
vonum.
„Ég myndi segja það, þannig séð.
Ég veit ekki hvort það er hægt að
skrifa það á að hin liðin séu ekki að
standa sig eins vel og þau ætluðu og
við kannski á pari.“
Svipaður mannskapur
Litlar breytingar urðu á liði Vals
fyrir tímabilið. Kjarninn í liðinu er
sá sami en tveir nýir markverðir,
Chantal Pagel og Lina Rypdal,
bættust í hópinn sem og Hildur
Björnsdóttir og Ólöf Kristín Þor-
steinsdóttir sem komu frá Fylki.
Þá tók Ágúst Jóhannsson, fyrr-
verandi þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins, við sem þjálfari Vals af
Alfreð Finnssyni sem var látinn taka
pokann sinn áður en síðasta tíma-
bil kláraðist. Ágústi til aðstoðar er
Sigurlaug Rúnarsdóttir, fyrrverandi
leikmaður Vals.
„Við vildum vera í einu af efstu
fjórum sætunum. Það er eitthvað
sem maður ætlar sér. Tilgangurinn
er að komast í úrslitakeppnina,“
sagði Kristín aðspurð um væntingar
Vals fyrir tímabilið. „Við ætluðum
að gera það í fyrra og fannst við vera
með lið í það. Það var margt sem fór
úrskeiðis. Það var ágætt að fara inn
í mótið sem óskrifað blað og með
frammistöðu síðasta tímabils á
bakinu var pressan minni.“
Andlegi hlutinn fór með þetta
En hvað hefur breyst hjá Val frá því
á síðasta tímabili?
„Mjög margt og fullt af hlutum
sem maður vill ekkert tjá sig um.
Sjálfstraustið er meira, fólki líður
betur og hver og einn hefur meiri
trú á sér. Andlegi hlutinn fór með
okkur í fyrra, það var ekki hand-
boltageta,“ segir Kristín sem viður-
kennir að andrúmsloftið í Val hafi
verið mjög þungt á síðasta tímabili.
„Þegar fór að ganga illa komu
vonbrigðin og manni finnst maður
geta gert meira. Svo var þjálfarinn
látinn fara. Þetta var skrítinn vetur.
En við vissum að við gætum betur
og höfum sýnt fram á það með
jöfnum og yfirveguðum leik.“
Kristínu finnst Valur ekki vera
með neitt yfirburðalið í Olís-deild-
inni. Frammistaðan í vetur hafi hins
vegar verið nokkuð jöfn og liðið
sýnt styrk með því að vinna jafna
leiki.
Litlar sveiflur
„Mér finnst við ekki skara fram úr
þannig séð. Við höfum bara haldið
jöfnum leik. Við höfum kannski átt
tvo rosalega flotta leiki og 1-2 lélega
en þar höfum við lent gegn lakari
andstæðingi og verið heppnar.
Það hafa ekki verið miklar
sveiflur, heldur svipuð
frammistaða frá leik til
leiks,“ segir Kristín.
Hún kveðst ánægð með
störf þjálfarateymisins
hjá Val, þeirra Ágústs og
Sigurlaugar.
„Ef le ik mö nnum
og þjálfara mislíkar
hvorum við aðra
ganga hlutirnir yfir-
leitt ekki. Hann hefur
mikla trú á okkur og
ungu stelpunum.
Hann gefur öllum séns
og þá líður engum eins og
hann sé út undan. Ungu
stelpurnar hafa fengið
séns sem aðrir þjálfarar
eru hræddir við að gefa,“
sagði Kristín.
Virka vel saman
„Þau eru gott teymi.
Það er stutt síðan Silla
var í þessu. Hún veit hvað okkur
finnst skemmtilegt og hvernig æfing-
ar við viljum hafa. Hann er búinn að
vera lengi í þessu og þau vega hvort
annað vel upp. Ég held að það sé
mikilvægt að þjálfari og aðstoðar-
þjálfari þori að gagnrýna og hrósa
hvort öðru. Þá ganga hlutirnir betur.“
Kristín hefur verið lengi að og býr
yfir gríðarlega mikilli reynslu. Hún
segir að yngri leikmenn megi ekki
taka því að fá að æfa sína íþrótt við
góðar aðstæður sem sjálfsögðum
hlut.
Stundum fýkur í mann
„Stundum er gott að heyra hvernig
þetta var í gamla daga. Það er ekkert
sjálfgefið að fá búninga og töskur og
allt saman. Stundum fýkur í mann
þegar manni finnst allir taka þessu
sem sjálfsögðum hlut. En ég get líka
spólað til baka. Ég man þegar ég var
16-17 ára og manni fannst að það
ætti að gera allt fyrir mann. Ég held
að það sé rosa fínt fyrir þær að láta
minna sig á að maður þarf að bera
virðingu fyrir klúbbnum, þeim
sem standa fyrir utan þetta, sjálf-
boðaliðum sem gera okkur kleift að
stunda okkar íþrótt,“ sagði Kristín
sem vonast til að geta orðið yngri
leikmönnum að liði.
„Við eldri erum líka fljótari að
greina ef einhverjum líður illa og
sjálfstraustið er lítið og getum sett
okkur í þau spor. Við munum þegar
við vorum að æfa, vorum í prófum og
þetta var ægilega erfitt. En í dag erum
við með fjölskyldur og börn og það er
stundum erfitt að mæta en við teljum
það vera forréttindi.“
ingvithor@365.is
Gott að heyra hvernig þetta var áður
Valur er jólameistari í Olís-deild kvenna. Mikil breyting hefur orðið á leik Vals frá því í fyrra og Kristín Guðmundsdóttir, reyndasti leik-
maður liðsins, segir andrúmsloftið í hópnum léttara. Hún getur sett sig í spor yngri leikmanna og minnir þá á að vera þakkláta.
Kristín Guðmundsdóttir og stöllur hennar í Val hafa komið á óvart í vetur. Valskonur eru með þriggja stiga forskot á toppi Olís-deildar kvenna í jólafríinu. FréttAbLAðið/AntOn
Duttu í stærsta útlend-
ingalukkupottinn
Litháíska skyttan Diana Sat-
kauskaite er markahæsti leik-
maður Vals í vetur með 77 mörk
í 12 deildarleikjum. Diana er á
sínu öðru tímabili með Val en hún
spilaði einnig afar vel í fyrra.
„Hún er náttúrutalent. Þetta er
stelpa sem hefur aldrei lyft en er
samt í geggjuðu formi og gríðar-
lega sterk. En ég hugsa stundum
að ef hún væri með góðan einka-
þjálfara og æfði tvisvar á dag
yrði hún örugglega sjúk,“ segir
Kristín um Diönu sem er afar
viðkunnanleg.
„Hún er svo mikið gæða-
blóð. Við duttum í stærsta
útlendingalukkupott
sem ég hef orðið vitni
að hérna á Íslandi.
Hún fellur svo vel inn í
hópinn, er alltaf glöð og
kát og brosandi. Svo gerir
hún bara það sem henni
er sagt.“
Kristín segir að það
þurfi stundum að hvetja
Diönu áfram og stappa í
hana stálinu.
„Maður þarf að peppa
hana upp og hún virðist
ekki vita hversu góð hún
er. Henni finnst hún alla-
vega ekki vera eins góð og
okkur finnst hún vera. Hún
er einstök stelpa og alveg
ótrúleg,“ sagði Kristín.
Eftir 12 umferðir í
Olís-deild kvenna í vetur er
Valur kominn með 22 stig.
Liðið fékk bara 16 stig í 21
leik á síðasta tímabili.
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d a G U r38 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
spOrt
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-B
9
F
4
1
E
9
3
-B
8
B
8
1
E
9
3
-B
7
7
C
1
E
9
3
-B
6
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K