Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 38

Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 38
Handbolti Þegar 12 umferðir eru búnar af Olís-deild kvenna í hand- bolta situr Valur á toppnum með 22 stig, þremur stigum á undan Hauk- um og sex stigum á undan Íslands- meisturum Fram. Valskonur eru enn taplausar í Olís-deildinni; hafa unnið 10 leiki og gert tvö jafntefli. Nokkuð óvæntur árangur í ljósi þess að Val var spáð 4. sæti og liðið olli miklum vonbrigðum í fyrra. Síðasta tímabil endaði ekki vel hjá Val. Hlíðarendaliðið tapaði átta af síðustu níu leikjum sínum, endaði í 6. sæti Olís-deildarinnar og komst ekki í úrslitakeppnina. Vals- konur fengu 16 stig í Olís-deildinni í fyrra, sex stigum færra en liðið er með núna. „Við erum öll sátt. Þetta hefur komið okkur á óvart,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hennar. Hún segir að árangurinn það sem af er tímabili sé framar vonum. „Ég myndi segja það, þannig séð. Ég veit ekki hvort það er hægt að skrifa það á að hin liðin séu ekki að standa sig eins vel og þau ætluðu og við kannski á pari.“ Svipaður mannskapur Litlar breytingar urðu á liði Vals fyrir tímabilið. Kjarninn í liðinu er sá sami en tveir nýir markverðir, Chantal Pagel og Lina Rypdal, bættust í hópinn sem og Hildur Björnsdóttir og Ólöf Kristín Þor- steinsdóttir sem komu frá Fylki. Þá tók Ágúst Jóhannsson, fyrr- verandi þjálfari íslenska kvenna- landsliðsins, við sem þjálfari Vals af Alfreð Finnssyni sem var látinn taka pokann sinn áður en síðasta tíma- bil kláraðist. Ágústi til aðstoðar er Sigurlaug Rúnarsdóttir, fyrrverandi leikmaður Vals. „Við vildum vera í einu af efstu fjórum sætunum. Það er eitthvað sem maður ætlar sér. Tilgangurinn er að komast í úrslitakeppnina,“ sagði Kristín aðspurð um væntingar Vals fyrir tímabilið. „Við ætluðum að gera það í fyrra og fannst við vera með lið í það. Það var margt sem fór úrskeiðis. Það var ágætt að fara inn í mótið sem óskrifað blað og með frammistöðu síðasta tímabils á bakinu var pressan minni.“ Andlegi hlutinn fór með þetta En hvað hefur breyst hjá Val frá því á síðasta tímabili? „Mjög margt og fullt af hlutum sem maður vill ekkert tjá sig um. Sjálfstraustið er meira, fólki líður betur og hver og einn hefur meiri trú á sér. Andlegi hlutinn fór með okkur í fyrra, það var ekki hand- boltageta,“ segir Kristín sem viður- kennir að andrúmsloftið í Val hafi verið mjög þungt á síðasta tímabili. „Þegar fór að ganga illa komu vonbrigðin og manni finnst maður geta gert meira. Svo var þjálfarinn látinn fara. Þetta var skrítinn vetur. En við vissum að við gætum betur og höfum sýnt fram á það með jöfnum og yfirveguðum leik.“ Kristínu finnst Valur ekki vera með neitt yfirburðalið í Olís-deild- inni. Frammistaðan í vetur hafi hins vegar verið nokkuð jöfn og liðið sýnt styrk með því að vinna jafna leiki. Litlar sveiflur „Mér finnst við ekki skara fram úr þannig séð. Við höfum bara haldið jöfnum leik. Við höfum kannski átt tvo rosalega flotta leiki og 1-2 lélega en þar höfum við lent gegn lakari andstæðingi og verið heppnar. Það hafa ekki verið miklar sveiflur, heldur svipuð frammistaða frá leik til leiks,“ segir Kristín. Hún kveðst ánægð með störf þjálfarateymisins hjá Val, þeirra Ágústs og Sigurlaugar. „Ef le ik mö nnum og þjálfara mislíkar hvorum við aðra ganga hlutirnir yfir- leitt ekki. Hann hefur mikla trú á okkur og ungu stelpunum. Hann gefur öllum séns og þá líður engum eins og hann sé út undan. Ungu stelpurnar hafa fengið séns sem aðrir þjálfarar eru hræddir við að gefa,“ sagði Kristín. Virka vel saman „Þau eru gott teymi. Það er stutt síðan Silla var í þessu. Hún veit hvað okkur finnst skemmtilegt og hvernig æfing- ar við viljum hafa. Hann er búinn að vera lengi í þessu og þau vega hvort annað vel upp. Ég held að það sé mikilvægt að þjálfari og aðstoðar- þjálfari þori að gagnrýna og hrósa hvort öðru. Þá ganga hlutirnir betur.“ Kristín hefur verið lengi að og býr yfir gríðarlega mikilli reynslu. Hún segir að yngri leikmenn megi ekki taka því að fá að æfa sína íþrótt við góðar aðstæður sem sjálfsögðum hlut. Stundum fýkur í mann „Stundum er gott að heyra hvernig þetta var í gamla daga. Það er ekkert sjálfgefið að fá búninga og töskur og allt saman. Stundum fýkur í mann þegar manni finnst allir taka þessu sem sjálfsögðum hlut. En ég get líka spólað til baka. Ég man þegar ég var 16-17 ára og manni fannst að það ætti að gera allt fyrir mann. Ég held að það sé rosa fínt fyrir þær að láta minna sig á að maður þarf að bera virðingu fyrir klúbbnum, þeim sem standa fyrir utan þetta, sjálf- boðaliðum sem gera okkur kleift að stunda okkar íþrótt,“ sagði Kristín sem vonast til að geta orðið yngri leikmönnum að liði. „Við eldri erum líka fljótari að greina ef einhverjum líður illa og sjálfstraustið er lítið og getum sett okkur í þau spor. Við munum þegar við vorum að æfa, vorum í prófum og þetta var ægilega erfitt. En í dag erum við með fjölskyldur og börn og það er stundum erfitt að mæta en við teljum það vera forréttindi.“ ingvithor@365.is Gott að heyra hvernig þetta var áður Valur er jólameistari í Olís-deild kvenna. Mikil breyting hefur orðið á leik Vals frá því í fyrra og Kristín Guðmundsdóttir, reyndasti leik- maður liðsins, segir andrúmsloftið í hópnum léttara. Hún getur sett sig í spor yngri leikmanna og minnir þá á að vera þakkláta. Kristín Guðmundsdóttir og stöllur hennar í Val hafa komið á óvart í vetur. Valskonur eru með þriggja stiga forskot á toppi Olís-deildar kvenna í jólafríinu. FréttAbLAðið/AntOn Duttu í stærsta útlend- ingalukkupottinn Litháíska skyttan Diana Sat- kauskaite er markahæsti leik- maður Vals í vetur með 77 mörk í 12 deildarleikjum. Diana er á sínu öðru tímabili með Val en hún spilaði einnig afar vel í fyrra. „Hún er náttúrutalent. Þetta er stelpa sem hefur aldrei lyft en er samt í geggjuðu formi og gríðar- lega sterk. En ég hugsa stundum að ef hún væri með góðan einka- þjálfara og æfði tvisvar á dag yrði hún örugglega sjúk,“ segir Kristín um Diönu sem er afar viðkunnanleg. „Hún er svo mikið gæða- blóð. Við duttum í stærsta útlendingalukkupott sem ég hef orðið vitni að hérna á Íslandi. Hún fellur svo vel inn í hópinn, er alltaf glöð og kát og brosandi. Svo gerir hún bara það sem henni er sagt.“ Kristín segir að það þurfi stundum að hvetja Diönu áfram og stappa í hana stálinu. „Maður þarf að peppa hana upp og hún virðist ekki vita hversu góð hún er. Henni finnst hún alla- vega ekki vera eins góð og okkur finnst hún vera. Hún er einstök stelpa og alveg ótrúleg,“ sagði Kristín. Eftir 12 umferðir í Olís-deild kvenna í vetur er Valur kominn með 22 stig. Liðið fékk bara 16 stig í 21 leik á síðasta tímabili. 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d a G U r38 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð spOrt 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 9 3 -B 9 F 4 1 E 9 3 -B 8 B 8 1 E 9 3 -B 7 7 C 1 E 9 3 -B 6 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.