Fréttablaðið - 20.12.2017, Qupperneq 14
Spánn Síðasti dagur kosningabarátt-
unnar í Katalóníu var í gær en kosið
er til héraðsþings á morgun. Búist er
við því að kosningarnar verði æsi-
spennandi.
Samkvæmt meðaltali skoðana-
kannana sem El País tekur saman
er búist við því að Vinstri-Repúbl-
ikanar (ERC) fái flest sæti, 33 talsins
af 135. Borgaraflokkurinn mælist
næststærstur og spáir El País honum
32 þingsætum. Flokkur fyrrverandi
héraðsforsetans Carles Puigdemont,
JxCat, má búast við 27 þingsætum.
Þá mælist Sósíalistaflokkurinn með
20 þingsæti. Aðrir flokkar fá færri en
tíu sæti samkvæmt El Pais.
Ef spár El País reynast réttar verða
aðskilnaðarsinnar með nauman
meirihluta á þinginu. Alls yrðu þeir
þrír flokkar sem styðja sjálfstæði
með 68 þingmenn á móti 67 þing-
mönnum annarra flokka. Munurinn
gæti ekki verið minni.
Boðað var til kosninga í október-
lok. Hafði Katalónía þá lýst yfir sjálf-
stæði eftir kosningar sem spænskir
dómstólar úrskurðuðu ólöglegar.
Mariano Rajoy, forsætisráðherra
Spánar, rak héraðsstjórnina í kjölfar
yfirlýsingarinnar, leysti upp þingið
og boðaði til nýrra kosninga í von
um að draga úr sjálfstæðisbarátt-
unni.
Kosningabaráttan nú hefur mikið
til snúist um sjálfstæðisspurning-
una. Hefur hún verið sérstök fyrir
þær sakir að Oriol Junqueras, for-
maður ERC, er í fangelsi á Spáni og
fyrrnefndur Puigdemont er í sjálf-
skipaðri útlegð í Belgíu. Báðir hafa
þeir verið sakaðir um uppreisn
gegn spænska ríkinu og gætu átt yfir
höfði sér fangelsisdóma.
Alls hafa 13 aðskilnaðarsinnar
úr katalónskum stjórnmálum
verið sakaðir um slík brot. Í viðtali
við Radio Catalunya í gær sagðist
Puigdemont viss um að Katalónar
myndu ekki lögfesta „aftöku“ ríkis-
stjórnarinnar. Spáði hann því að
niðurstöður kosninganna myndu
sýna að aðferðir Rajoy hefðu ekki
borið árangur.
„Ef aðskilnaðarsinnar vinna
kosningarnar og Spánverjar neita
samt að fella ákærur sýnar niður
sýnir það vanvirðingu þeirra fyrir
lýðræðinu,“ sagði Puigdemont enn
fremur.
Hin skörpu skil á milli aðskiln-
aðar- og sambandssinna sáust vel
í kappræðum mánudagskvöldsins.
Sagði Inés Arrimadas, úr sam-
bandssinnuðum Borgaraflokki, að
aðskilnaðarsinnarnir ættu að koma
sér út úr „lýðveldisbúbblu“ sinni.
„Aðskilnaðarsinnar hafa eyðilagt
Katalóníu,“ sagði Arrimadas.
En það er þó ekki bara skotið
á milli fylkinga. Átökin eru einn-
ig á milli flokka innan sömu fylk-
ingar. Þannig skaut Junqueras á
Puigdemont í gær vegna flótta hins
síðarnefnda til Belgíu. „Ég er í fang-
elsi til þess að taka afleiðingum
gjörða minna. Ég flý þær ekki.“
thorgnyr@frettabladid.is
Mjótt á munum og korter í kosningar
Ef spár El País ganga eftir fá aðskilnaðarsinnar eins manns meirihluta á katalónska þinginu. Boðað var til kosninga eftir að forsætisráð-
herra Spánar leysti upp héraðsþingið vegna sjálfstæðisyfirlýsingar. Aðskilnaðarsinnar skjóta föstum skotum hverjir á aðra í baráttunni.
„Puigdemont, okkar forseti,“ stendur á þessu plakati í Barcelona, höfuðborg Katalóníu. Gengið verður til kosninga á
morgun og er mjótt á munum á milli aðskilnaðarsinna og sambandssinna í spænska héraðinu. NordicPhotos/AFP
Sádi-ArAbíA Hernaðarbandalagið
sem Sádi-Arabar eru í forsvari fyrir
gegn Hútum, uppreisnarmönnum
í Jemen, skaut niður eldflaug sem
stefndi á Riyadh, höfuðborg Sádi-
Arabíu, í gær. Frá þessu greindu
ríkismiðlar þar í landi. Engan sakaði
en sjá mátti fjölda mynda af reykjar-
mekkinum á samfélagsmiðlum.
Eldflaugin stefndi á fund sádi-
arabískra leiðtoga í al-Yamama-
höll, að því er sjónvarpsstöð Húta,
al-Masirah TV, greindi frá. Á meðal
þeirra sem sóttu fundinn var krón-
prinsinn Mohammed bin Salman
en í al-Yamama eru skrifstofur kon-
ungsfjölskyldunnar.
Um var að ræða eldflaug af gerð-
inni Burkan-2 og sagði sjónvarps-
stöðin frá því að skotið væri „svar
við svívirðilegum glæpum sem
Bandaríkjamenn og Sádi-Arabar
hafa framið í Jemen“.
Talsmaður ríkisstjórnar Sádi-
Arabíu sagði eftir árásina að hún
sannaði áframhaldandi stuðning
íranskra stjórnvalda við Húta. Sá
stuðningur bryti gegn samþykktum
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
og ógnaði stöðugleika og friði á
svæðinu.
Íranar og Sádi-Arabar eiga í eins
konar köldu stríði. Borgarastyrj-
öldin í Jemen er talin leppstríð þar
sem Sádi-Arabar og bandamenn
þeirra berjast við Húta sem njóta
stuðnings íranskra stjórnvalda.
Íranar hafa þó neitað því að þeir sjái
Hútum fyrir vopnum.
Aðgerðir hernaðarbandalagsins
gegn vopnasmygli til Jemens voru
hertar eftir svipað eldflaugaskot
þann 4. nóvember síðastliðinn.
Sameinuðu þjóðirnar hafa þó varað
við aðgerðunum þar sem þær hamla
matvælaflutningum til landsins.
Jemen er nefnilega á barmi hungurs-
neyðar sem gæti orðið sú mesta og
alvarlegasta í heiminum í áratugar-
aðir.
Að minnsta kosti 8.670 hafa látið
lífið frá því borgarastyrjöldin hófst
árið 2015 og 49.960 hafa særst sam-
kvæmt SÞ. – þea
Hútar skutu eldflaugum á Sádi-Arabíu
Ef aðskilnaðar-
sinnar vinna
kosningarnar og Spánverjar
neita samt að fella ákærur
sínar niður sýnir það van-
virðingu þeirra fyrir lýð-
ræðinu.
Carles
Puigdemont,
formaður JxCat
hart hefur verið barist í Jemen undanfarin tvö ár. FréttABlAðið/EPA
bAndAríkin Dow Jones-hlutabréfa-
vísitalan hefur hækkað um 5.000
stig á einu ári í fyrsta skipti í 121 árs
sögu vísitölunnar. Þessu fagnaði
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, innilega á Twitter í gær.
„Dow hækkar um 5.000 stig á
sama ári í fyrsta skipti í sögunni.
Gerum Bandaríkin stórkostleg á ný,“
tísti Trump, í hástöfum þó. Sagði
hann jafnframt að virði hlutabréfa
myndi halda áfram að aukast eftir
að skattalagafrumvarp hans verður
samþykkt.
„Mesta skattalækkun og umbætur
SÖGUNNAR. Njótið, og skapið
Fagnar mestu hækkun í sögu Dow Jones-vísitölunnar
donald trump, forseti Bandaríkj-
anna. NordicPhotos/GEtty
fjölda gullfallegra starfa,“ hélt for-
setinn áfram.
Á mánudag hafði vísitalan aldrei
verið hærri og var það í sjötugasta
skipti á árinu sem það met er slegið.
– þea
5.000
stiga hækkun, rúmlega,
hefur verið á Dow Jones á
árinu.
LESUM UM DÝRIN
OG HEYRUM ÞAU TALA
Hvað segir köּמurinn?
Og hvað segir krummi?
Þessi skemmtilega bók gerir börnunum kleiﬞ
að lesa um dýrin og heyra þau tala á sinni eigin tungu.
2 0 . d e S e m b e r 2 0 1 7 m i Ð V i k U d A G U r14 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A Ð i Ð
2
0
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
E
-0
5
B
0
1
E
8
E
-0
4
7
4
1
E
8
E
-0
3
3
8
1
E
8
E
-0
1
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K