Fréttablaðið - 20.12.2017, Page 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Gleymum því
heldur ekki
að það er vel
hægt að halda
í sína guðstrú,
iðka hana og
rækta, þótt
þjóðkirkjan
hafi verið yfir-
gefin.
Húsnæðismál hafa verið nokkuð í umræð-unni að undanförnu, einkum staða þeirra sem verst standa í þeim efnum, fólks sem
er beinlínis á götunni. Hópur fólks, líklega 30-40
manns hefur hafst við á tjaldstæðinu í Laugardal
við misjafnar aðstæður auk þeirra einstaklinga
sem flækjast á milli gistiskýla eða fá inni hjá
vinum eða ættingjum um skamma hríð eða langa.
Aðstæður þessa hóps eru algerlega óviðunandi.
Við sem samfélag getum ekki horft á þessa stöðu
aðgerðalaus. Núverandi félagsmálaráðherra hefur
sagt að mál þessa hóps séu forgangsmál hjá ráðu-
neyti hans en fleira þarf að koma til.
Örugg búseta og framfærsla heyra undir
sveitarfélögin og er ein af frumskyldum þeirra.
Öll sveitarfélög bjóða upp á búsetu í félagslegum
íbúðum en afar misjafnt er hversu margar slíkar
eru í boði á vegum hvers sveitarfélags. Á höfuð-
borgarsvæðinu hafa sveitarfélög tekið á þessum
vanda með mismunandi hætti, þ.e. bæði með
félagslegum íbúðum, en einnig með skamm-
tímaúrræðum í gistiskýlum eða íbúðakjörnum,
stundum í samvinnu við félagasamtök.
Vandinn er hins vegar ekki vandamál eins
sveitarfélags eða fárra, hann er vandi þeirra allra
og þau verða að koma öll að lausninni. Ég tel að
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ættu að
koma sér saman um úrræði til handa því fólki
sem á í mestum vanda, er beinlínis á götunni.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH)
hafa með sér samstarf um margs konar þjónustu
við íbúana, og ég tel að hér sé tækifæri fyrir þau
til slíks. Það getur ekki verið óyfirstíganlegt að
leysa bráðasta vandann í sameiningu. Það er ekki
ásættanlegt að sveitarfélögin í kringum borgina
sitji hjá, þau eiga öll að leggja sitt af mörkum,
kostnaðarskiptingamódelin eru þegar til í öðrum
félögum. Sveitarfélög sem geta komið sér saman
um rekstur skíðasvæða geta áreiðanlega komið sér
saman um lausn á bráðasta húsnæðisvandanum.
Koma svo SSH!
Koma svo SSH!
Ólafur Þór
Gunnarsson
þingmaður VG
í Suðvestur
kjördæmi
Sveitarfélög
sem geta
komið sér
saman um
rekstur
skíðasvæða
geta áreiðan-
lega komið
sér saman um
lausn á
bráðasta
húsnæðis-
vandanum.
Vinir kvaddir
Lögregla og tollayfirvöld greindu
frá einu stærsta fíkniefnabrota-
máli á blaðamannafundi í fyrra-
dag. Árangurinn var afrakstur
af löngu samstarfi íslenskra
lögreglu- og tollayfirvalda við
löggæslustofnanir í Evrópu.
Greinilegt er að þeir Íslendingar
sem komu að verkefninu una vel
sínum hag, því þegar fréttastofa
365 hafði samband við lögreglu-
embættið á höfuðborgarsvæðinu
í gær til að fá frekari upplýsingar
um málið, fengust þau svör að
eftir langan dag hefðu þeir
lögreglumenn sem komu að
aðgerðinni kvatt erlenda sam-
starfsmenn sína í fyrrakvöld og
hugsanlega yrði ekki unnt að ná í
þá fyrr en á hádegi næsta dag.
Harði pakkinn til biskups
Það var rausnarlegt af ríkis-
stjórninni að samþykkja að veita
samtals 4,6 milljónir króna í
viðbótargreiðslur til hælisleit-
enda og hjálpa þeim að halda
gleðileg jól. Gjöfin er þó ekki jafn
rausnarleg og gjöfin sem Agnes
Sigurðardóttir, biskup Íslands,
fékk frá kjara ráði. Nýr úrskurður
kjararáðs hljóðar upp á nær 18
prósenta hækkun launa hennar.
Hækkunin er afturvirk um eitt ár
og fær biskup rúmar 3,3 milljónir
í eingreiðslu. Rúmlega tvo þriðju
af því sem 518 hælisleitendur
fengu samanlagt í tilefni af jól-
unum. Vonandi getur Agnes nú
haldið gleðileg jól.
jonhakon@frettabladid.isJárn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hringhurðir, hurðir og
gluggakerfi ásamt
uppsetningu og viðhaldi
á búnaði.
Áratuga reynsla.
Það er einhver grundvallarvitleysa í til-veru, starfsemi og ákvörðunum kjara-ráðs. Eitthvað sem gengur ekki upp og veldur því að himinn og haf eru á milli þjóðarinnar sem borgar launin sem kjara ráð ákvarðar og þeirra sem
þau þiggja. Kjararáð er sjálfstætt ráð en skipað af
þeim stéttum sem síðan þiggja þau laun sem ráðið
ákvarðar. Laun æðstu embættismanna ríkisins,
stjórnmálamanna og svo einnig kirkjunnar vegna
þess að hún er víst enn þá ríkisstofnun þrátt fyrir
allt. Í þessu fyrirkomulagi samtryggingar liggur
hundurinn grafinn.
Þetta er dálítið eins og starfsfólk fyrirtækis setti á
laggirnar kjararáð á meðal starfsmanna og annarra
sem það treysti til þess að ákveða kaup sitt og kjör
en eigendur og rekstraraðilar fengju ekkert um það
að segja. Hlutverk þeirra væri að borga launin sem
ráðið væri á því að þau teldust sanngjörn fyrir alla
þessa vinnu og ábyrgð, svona auk þess að halda
jólaboð og passa upp á móralinn. Það er hætt við að
slíkur rekstur færi ekki vel.
Og nú er komið að kirkjunnar þjónum að fá sitt.
Fá launahækkun sem er langt umfram það sem
gengur og gerist á almennum vinnumarkaði og af
einhverjum óskiljanlegum ástæðum splæsir kjar-
aráð eins og svo oft áður í að hafa þetta afturvirkt.
Þannig fær biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir,
launahækkun upp á 271.000 kr. á mánuði eða sem
nemur umtalsvert meira en mánaðargreiðslu lífeyr-
isþega sem býr einn. Kjarabótin er afturvirk um eitt
ár og því á biskup von á eingreiðslu upp á 3.252.000
kr. fyrir skatt. Þetta slagar upp í sömu upphæð og
ríkisstjórnin er svo kát með að vera búin að redda
öllum hælisleitendum á Íslandi. Enn eru ótaldar
allar hinar hækkanirnar og heildarkostnaðurinn.
Dýrt er drottins orðið segir í Sögu Ólafs hins helga
í Biskupasögum og það stendur greinilega ekki til
að gefa neinn afslátt þrátt fyrir að sífellt fleiri segi
sig úr þjóðkirkjunni. Hvað þá að hafa í huga að
kannanir benda til þess að meirihluti þjóðarinnar
vill aðskilnað ríkis og kirkju. Kirkjunnar fólk og
kjararáð ættu kannski að hafa í huga að þeim mun
færri sem eru innan safnaðarins, þeim mun færri
standa straum af þessum kostnaði og þar með eykst
hlutur þeirra sem vilja ekkert með þjóðkirkjuna
hafa. Gleymum því heldur ekki að það er vel hægt
að halda í sína guðstrú, iðka hana og rækta, þótt
þjóðkirkjan hafi verið yfirgefin.
Fjölmargir Íslendingar hafa einmitt valið að yfir-
gefa þjóðkirkjuna á síðustu árum og þá ekki síst
á þeim forsendum að þetta ríkisfyrirkomulag sé
bullandi tímaskekkja og breikkandi gjá sé á milli
siðferðisvitundar þeirra og stjórnenda kirkjunnar.
Það er erfitt að verjast þeirri hugsun að kjararáð
standi frammi fyrir viðlíka afstöðu þjóðarinnar
enda löngu tímabært að gjörbreyta skipan þess og
starfsemi. Því þessi sjálftaka ráðandi embættisstétta
er ekki lengur þjóðinni bjóðandi eða á vetur kjara-
samninga á almennum launamarkaði setjandi.
Tímaskekkja
2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m I Ð V I K U d A G U r16 s K o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
0
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
E
-0
0
C
0
1
E
8
D
-F
F
8
4
1
E
8
D
-F
E
4
8
1
E
8
D
-F
D
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K