Fréttablaðið - 20.12.2017, Side 22
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang visir.is
Fjárfestingafélagið B2B, í eigu Birgis
Þórs Bieltvedt, mun fá greitt árlega
um 500 þúsund evrur, jafnvirði 62
milljóna króna, fyrir ráðgjafarstörf
fyrir Domino’s í Bretlandi (Domino’s
Pizza Group, DPG). Birgir mun sam-
kvæmt nýju samkomulagi veita DPG
ráðgjöf varðandi rekstur og frekari
uppbyggingu pitsukeðjunnar hér
á landi út maí 2024, tveimur árum
skemur í Noregi og Svíþjóð, og fyrir-
hugaða útrás til Finnlands og Eystra-
saltsríkjanna.
Þetta kemur fram í nýrri hlut-
hafakynningu DPG, sem er skráð í
bresku kauphöllinni, en það keypti
í síðustu viku 44,3 prósent til við-
bótar í íslenska einkahlutafélaginu
Pizza Pizza, eiganda og sérleyfishafa
Domino’s á Íslandi, Noregi og Sví-
þjóð. Samkvæmt henni telur stjórn
DPG mikilvægt að Birgir komi áfram
að uppbyggingu vörumerkisins í ljósi
reynslu hans og tengsla við sérleyfis-
hafann á heimsvísu, Domino’s Pizza
International Franchising (DPIF).
Því hafi félagið samið við Birgi þann
14. desember síðastliðinn um að
hann haldi áfram ráðgjafarstörfum
og vinni í samstarfi við DPG að því að
tryggja sérleyfissamning fyrir Finn-
land og Eystrasaltsríkin fyrir júní
2021.
Fari svo að Birgir landi þeim
samningi við DPIF verða tvö ný
dótturfélög stofnuð utan um útrás-
ina. DPG mun eiga 90 prósenta hlut
en Birgir eða félag á hans vegum hin
tíu prósentin. Fjárfestirinn mun þá
fá greiddar 500 þúsund evrur í ráð-
gjafarþóknun sem geta einungis
farið upp í kaup hans á hlutafénu í
dótturfélögunum tveimur. Þá mun
Birgir einnig eiga kauprétt á fimm
prósentum til viðbótar í báðum
félögunum.
Kynningin inniheldur einnig
upplýsingar um rekstur Domino’s
á Íslandi á fyrri helmingi þessa árs.
Tekjur félagsins námu þá 2,7 millj-
örðum króna samanborið við 2,4
milljarða á sama tímabili í fyrra.
Rekstrarhagnaður (EBITDA) batnaði
um fjórðung milli ára og nam 382
milljónum. Þá var hagnaður félagsins
eftir skatta tæplega 300 milljónir og
jókst um 38 prósent en pitsustöðum
keðjunnar fjölgaði milli áranna úr
19 í 22. Þá er bent á að veltan jókst
um 260 prósent milli 2010 og 2016.
Domino’s á Íslandi státi þar að auki
af mestri sölu per fermetra (e. sales
density) af öllum þeim löndum þar
sem pitsur Domino’s séu bakaðar, en
þau eru alls 91.
Samkvæmt fréttatilkynningu síð-
asta fimmtudag um kaup DPG á 44,3
prósenta hlut í Pizza Pizza greiðir
fyrirtækið jafnvirði 3,7 milljarða
króna fyrir bréfin. Breska félagið á
nú 95,3 prósenta hlut en það keypti
upphaflega 49 prósent haustið 2016,
á 4,2 milljarða króna á þáverandi
gengi. Bætti það svo við öðrum
tveimur prósentum í mars síðast-
liðnum og greiddi 180 milljónir fyrir
hlutinn. Birgir steig þá niður úr stóli
stjórnarformanns og með nýjustu
sölunni hverfur fjárfestingarfélagið
Eyja, í eigu Birgis og eiginkonu hans,
Eyglóar Kjartansdóttur, út úr hlut-
hafahópnum ásamt Högna Sigurðs-
syni.
Aðalfundur DPG verður haldinn
11. janúar og kaupsamningurinn, og
þar af leiðandi nýi ráðgjafarsamn-
ingurinn við Birgi, verður þá borinn
undir hluthafa breska félagsins. Það á
einnig rekstur keðjunnar í Bretlandi,
17 pitsustaði í Sviss og þriðjungshlut
í þýskum sérleyfishafa Domino’s.
haraldur@frettabladid.is
Pitsurisi greiðir Birgi
62 milljónir fyrir ráðgjöf
Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt fær greiddar um 500 þúsund evrur á ári frá
Domino’s í Bretlandi fyrir ráðgjafarstörf. Samningsbundinn út maí 2024. Hagn-
aður Domino’s á Íslandi, Pizza Pizza, jókst um 38 prósent á fyrri árshelmingi.
Domino’s í Bretlandi á nú 95 prósent í rekstrinum hér á landi en hér eru 22 pitsustaðir. FréttaBlaðið/Eyþór
Birgir þór
Bieltvedt
fjárfestir.
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Lagast að þínum þörfum
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
Samkeppniseftirlitið varði í fyrra
hátt í 35 prósentum af ráðstöfunar-
tíma sínum í málefni sem tengjast
samgöngu- og ferðamörkuðum.
Engir aðrir markaðir hlutu eins
mikla athygli starfsfólks eftirlitsins.
Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu
Samkeppniseftirlitsins til Efnahags-
og framfarastofnunarinnar, OECD.
Starfsmenn eftirlitsins, sem voru
24 talsins í lok síðasta árs, vörðu
um 25 prósentum af tíma sínum
í að skoða málefni sem tengjast
umræddu mörkuðunum tveimur
árin 2014 og 2015 en hlutfallið
hækkaði hins vegar í tæplega 35
prósent í fyrra.
Þá fóru hátt í 20 prósent af tíma
starfsfólksins á síðasta ári í mál sem
varða matvörumarkaðinn, en það
er svipað hlutfall og undanfarin
ár. Þegar kemur að málefnum sem
tengjast fjármálaþjónustu nam
hlutfallið tæplega 10 prósentum.
Aðrir markaðir, svo sem olíu- og
fjarskiptamarkaðirnir, fengu minni
athygli.
Í skýrslunni er auk þess bent á að
starfsfólk Samkeppniseftirlitsins
verji stórum hluta vinnutímans,
eða ríflega 25 prósentum, í að
skoða mál sem tengjast misnotkun
á markaðsráðandi stöðu fyrirtækja.
Ástæðan sé fyrst og fremst smæð
hagkerfisins og að fákeppni ríki á
mörgum mörkuðum. Mestur tími
fer þó í athuganir á ólögmætu sam-
ráði.
Málum sem koma til kasta Sam-
keppniseftirlitsins hefur fækkað
verulega á síðustu árum. Í nóvem-
bermánuði voru aðeins 59 mál á
borði eftirlitsins en þau voru 129
talsins í byrjun árs 2016, að því er
fram kemur í skýrslunni. – kij
Mestur tími fer í samgöngur og ferðamál
Stjórn Almenna leigufélagsins hefur
samþykkt að gefa út skuldabréf á
markaði fyrir allt að 30 milljarða
króna. Stefnir félagið, sem er í eigu
sjóðs í rekstri GAMMA Capital
Management, að því að gefa út bréf
fyrir allt að 6 til 12 milljarða króna
í fyrsta útboði, að því er fram kemur
í nýrri kynningu félagsins fyrir fjár-
festa.
Tilgangur skuldabréfaútgáfunnar
er meðal annars að einfalda fjár-
mögnun félagsins og lækka fjár-
magnskostnað með því að endur-
fjármagna núverandi skuldir og
auka fjölbreytileika í fjármögnun.
Er jafnframt gert ráð fyrir að frekari
útgáfa skuldabréfa verði nýtt til að
stækka eignasafn félagsins. Fyrir-
tækjaráðgjöf Landsbankans og Lög-
menn Lækjargötu veittu félaginu
ráðgjöf við gerð útgáfurammans
og grunnlýsingar.
Almenna leigufélagið átti
1.214 íbúðir, samtals að stærð
110 þúsund fermetra, í lok júní-
mánaðar síðastliðins en heildar-
virði þeirra nam þá 39,1 milljarði
króna samkvæmt verðmati KPMG.
Um helming eigna félagsins má
finna í Reykjavík og 17 prósent í
nágrannasveitarfélögum innan
höfuðborgarsvæðisins. Er um 91
prósent af eignasafninu í langtíma-
leigu.
Stefnt er að skráningu félagsins á
hlutabréfamarkað á næstu 18 til 24
mánuðum, en í fjárfestakynningunni
er tekið fram að undirbúningur að
henni sé þegar hafinn. Felst hann
meðal annars í endurfjármögnun
skulda, hagræðingu í rekstri og flutn-
ingi félagsins í nýjar höfuðstöðvar að
Suðurlandsbraut. – kij
Hyggst gefa út skuldabréf
fyrir allt að 30 milljarða
39,1
milljarður var heildarvirði
eignasafns almenna leigu-
félagsins um mitt þetta ár.
Stefnt er að skráningu
almenna leigufélagsins á
hlutabréfamarkað í
kauphöllinni á næstu 18 til
24 mánuðum.
2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m I Ð V I K u d a g u r2 markaðurinn
2
0
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
E
-3
C
0
0
1
E
8
E
-3
A
C
4
1
E
8
E
-3
9
8
8
1
E
8
E
-3
8
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K