Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 4

Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 Gerum við hedd og erum einnig með ný hedd á flest allar vélar Er heddið bilað? Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Við erum sérfræðingar í heddum Orri Vigfússon, stofnandi og formaður NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna, var borinn til grafar í gær að lokinni útför frá Hallgrímskirkju. Líkmenn voru Árni Jörgensen, Noel Carr, Krist- ín Róbertsdóttir, Mortan A. Carlsen, Marc Adrien Marcellier, Jón Helgi Björnsson, Hólmsteinn Hólmsteinsson og Hafsteinn Orri Ingvason. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, jarðsöng. Morgunblaðið/Hanna Útför Orra Vigfússonar gerð frá Hallgrímskirkju Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Við endurskoðun áforma um nýja jarðvarmavirkjun í Bjarnarflagi í Mývatnssveit horfa starfsmenn Landsvirkjunar til minni virkjunar en áður var gert ráð fyrir, eða 50 megavatta virkjunar í stað 90 MW sem gert var ráð fyrir í umhverfis- mati sem staðfest var á árinu 2004. Ekki liggur fyrir hvenær formlegt ferli við endurskoðun umhverfismats virkjunarinnar hefst. Bjarnarflagsvirkjun er í nýtingar- flokki í rammaáætlun. Landsvirkjun rekur þar litla virkjun, Gufustöðina í Bjarnarflagi, sem hefur verið rekin í tæpa hálfa öld. Hún er minnsta stöð- in í eigu Landsvirkjunar og jafn- framt sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Hún nýtir gufu jarðhita- svæðisins við Námafjall. Uppsett afl rafstöðvarinnar er 3 megavött en auk þess sér hún hitaveitu Skútu- staðahrepps fyrir varmaorku, veitir gufu til iðnaðarnota og sér Jarðböð- unum fyrir jarðhitavatni. Stöðin er því mikilvæg fyrir samfélagið í Mý- vatnssveit. Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir mikilvægt að Gufustöðin sé rekin áfram, þar til ný virkjun hefur verið reist. Komið sé að endurnýjun á búnaði og hefur verið unnið að und- irbúningi þess að skipta út vélbún- aði. Forsendur hafa breyst Landsvirkjun gerði á árunum 2003 og 2004 umhverfismat fyrir allt að 90 MW jarðvarmavirkjun í Bjarn- arflagi og tengingu hennar með há- spennulínu við Kröflu og var það staðfest af Skipulagsstofnun. Þegar tíu ár voru liðin frá umhverfismatinu óskaði Skútustaðahreppur eftir ákvörðun um endurskoðun matsins. Í ákvörðun Skipulagsstofnunar frá árinu 2014 var mælt fyrir um endur- skoðun matsins í mörgum og veiga- miklum atriðum, meðal annars vegna reynslu sem fengist hefur af rekstri annarra jarðvarmavirkjana og vegna nálægðar virkjunarinnar við Mývatns- og Laxársvæðið sem verndað er með sérstökum lögum. Í því sambandi var einnig horft til stóraukins ferðamannastraums um áhrifasvæði Bjarnarflagsvirkjunar. Magnús Þór segir að ekki hafi ver- ið ákveðið hvenær ferli fyrir nýtt mat á umhverfisáhrifum Bjarnar- flagsvirkjunar hefjist. Landsvirkjun hafi verið að vinna að endurskoðun virkjanaáforma. Þau feli í sér að horft er til minni virkjunar en áður, eða allt að 50 megavatta í stað 90 MW. Magnús Þór segir að auk þess verði horft til ýmissa annarra þátta, eins og lágmörkun áhrifa á umhverf- ið. Samsvarar fyrri notkun Nýting í þágu allt að 50 MW jarð- varmavirkjunar er ekki langt frá þeirri nýtingu sem var á meðan Kís- iliðjan var og hét en þá var nýttur jarðhitavökvi sem svarar til allt að 45 MW raforkuframleiðslu. Horft til helmingi minni virkjunar  Landsvirkjun endurskoðar áform um Bjarnarflagsvirkjun  50 MW uppsett afl í stað 90 MW  Ekki hefur verið ákveðið hvenær endurskoðun umhverfismatsins frá árinu 2004 fer í formlegt ferli Morgunblaðið/RAX Á Námafjalli Jarðhitinn undir Námafjalli nýtist fyrir virkjun í Bjarnarflagi. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Isavia mun annast öryggisleit í sam- ræmi við auknar kröfur sem banda- rísk yfirvöld hafa gert um flugvernd á þeim flugvöllum sem eru síðustu við- komustaðir áður en flogið er til Bandaríkjanna. Áður leit út fyrir að flugfélögin myndu annast hið aukna eftirlit, en Isavia hefur nú boðið verkið út og mun Öryggismiðstöðin sinna því. Að sögn Guðna Sigurðssonar, upp- lýsingafulltrúa Isavia, munu flug- félögin greiða fyrir þjónustuna. „Það var stuttur fyrirvari og eftir samráð flugfélaganna og Isavia var niðurstaðan sú að Isavia sér um þessa leit og fær undirverktaka til að fram- kvæma hana,“ segir hann. Leitin fer fram við brottfararhlið, en Guðni kveðst lítið mega tjá sig um hvernig hún verði framkvæmd vegna alþjóðlegra flugvarnarreglna. Valið verður af handahófi og aðeins hluti farþega. Áður hefur komið fram að hún feli m.a. í sér að raftæki farþega verði skönnuð við brottför. Fellur vel að forskoðun Aðspurður segir Guðni að hið aukna eftirlit hafi ekki áhrif á áætl- anir um að hefja á flugvellinum for- skoðun vegna flugferða til Bandaríkj- anna. Forskoðunin felst í því að toll- og vegabréfsskoðun yrði framkvæmd hér á landi, en ekki vestanhafs líkt og nú. Hafa Bandaríkjamenn sýnt því áhuga að hefja forskoðun á Íslandi, en nú er aðeins starfrækt forskoðun á flugvellinum í Dublin á Írlandi. Isavia auk innan- og utanríkisráðuneytis kanna nú möguleika á forskoðun hér- lendis, m.a. hvort skoðun lengi tengi- tíma flugs. „Þessi breyting felur það í sér að forskoðunin verður í raun áhugaverð- ari kostur. Þarna er verið að taka upp eftirlit sem er í raun hluti af forskoð- uninni. Þessar nýju ráðstafanir hafa ekki áhrif á þá flugvelli sem eru með forskoðun því þetta er hvort eð er til staðar,“ segir hann. Isavia annast hert eftirlit með farþegum til Bandaríkjanna  Öryggismiðstöðin undirverktaki  Flugfélögin greiða fyrir Mótorhjólamað- ur lenti í árekstri við lítinn fólksbíl sunnan við Höfðabakkabrú í Reykjavík á fjórða tímanum í gær og var hann fluttur á sjúkra- hús. Var hann að sögn Slökkviliðsins á höfuðborgar- svæðinu hugsanlega fótbrotinn. Tveir voru í fólksbílnum en þeim varð ekki meint af að sögn slökkvi- liðs. Umtalsvert tjón varð þó á bíl þeirra. Veginum var lokað í stutta stund á meðan slökkvilið og sjúkra- flutningamenn athöfnuðu sig á slys- stað. Mótorhjólamaður var fluttur á sjúkra- hús eftir árekstur „Það verður áfram þokkalega hlýtt og gott veður. Hlýjast inn til lands- ins,“ segir Haraldur Eiríksson, veð- urfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hitinn var hæstur á Hellu í gær en þar mældist 20,3 stiga hiti. Har- aldur segir að það sem af er sumri hafi hitinn ekki náð 20 stigunum á jafn mörgum stöðum á landinu og í gær. Hins vegar er ekki víst að hit- inn geti náð 20 stigunum í dag líkt og í gær en hann verður þó nálægt 20 stigunum. Hitinn heldur áfram að leika við Ísland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.