Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 11

Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 11
Ljósmynd/Marinetraffic.com M/V Viking Saga Skipið er skráð í Bergen í Noregi og flutti seiði. Norska flutningaskipið M/V Viking Saga var sett í farbann á Bíldudal 30. júní sl., en við hafnarríkiseftirlit kom í ljós að fjölmörg vottorð og skírteini skipsins skorti. Skipið taldist hæft til siglinga, að öðru leyti en því að skírteinin sjálf vantaði. Fékk það því heimild til tak- markaðra athafna innan Patreks- fjarðar og Arnarfjarðar, en skipið flutti til landsins lifandi farm, seiði. Farbanni hefur verið aflétt enda hefur verið greitt úr málum skipsins er varða vottorð og skírteini. Kyrrsett á Bíldudal FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Talsverðar breytingar hafa að undanförnu verið gerðar á starf- semi ferðaþjónustunnar á Hvera- völlum. Í aðalbyggingunni á svæð- inu hefur gistiaðstöðu í opnu rými verið breytt í rúmgóðan veitingsal og útbúin hefur verið hótelálma með sex þriggja manna her- bergjum. Með slíku er verið að koma til móts við óskir ferða- manna um betri aðstöðu á gisti- stöðum. „Áhugi fólks fyrir að gista í fjallakofum; svefnpokaplássi í flat- sæng, verður æ minni. Sú rómantík er að hverfa, þó svo við séum áfram með 30 pláss í gamla skál- anum hér sem Ferðafélag Íslands átti lengi,“ segir Pétur Gíslason, staðarhaldari á Hveravöllum. Árlega koma þúsundir ferða- manna á Hveravelli, þar sem er ágæt aðstaða sem bætt hefur verið á undanförnum árum. Vilji for- svarsmanna Hveravallafélagsins ehf. hefur staðið til þess að koma upp enn betri aðstöðu á svæðinu, það er veitinga- og gistiaðstöðu sem stæði nokkru ofar og norðar en núverandi hús á svæðinu. Þar stóð einnig til að koma upp góðri hreinlætisaðstöðu. Skipulags- stofnun var hins vegar á móti þeim fyrirætlunum og þar við situr. Dragi úr umhverfisálagi „Menn vildu bæta ásýnd staðar- ins og geta sinnt ferðamönnum enn betur með góðri þjónustubygg- ingu. Bílastæðin yrðu þá 200 til 300 metrum fjær hverasvæðinu en nú er, en allt ætti þetta að draga úr umhverfisálagi við hverina,“ segir Pétur. Hann hefur staðið vaktina á Hveravöllum nokkur undanfarin ár og hefur sterk tengsl við svæðið eftir ferðalög um hálendið mörg undanfarin ár. Bæta aðstöðuna en ný- byggingar ekki heimilar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hveravellir Pétur Gíslason staðarhaldari við þjónustubygginguna sem talsverðar breytingar hafa verið gerðar á. Ólafur Arnarson sagði í gær af sér sem formaður Neytendasamtak- anna. Töluverður styr hefur staðið um störf Ólafs undanfarna mánuði en hann var kjörinn formaður á þingi samtakanna í október. Stefán Hrafn Jónsson varaformaður tekur við starfi formanns tímabundið. Hann segir helstu verkefni stjórnarinnar að snúa rekstrinum við en samtökin hafa verið rekin með tapi um hríð. Lög Neytendasamtakanna gera ráð fyrir að kosið sé til formanns á tveggja ára fresti en ekki er sérstak- lega getið til um hvernig bregðast skuli við afsögn formanns. Stefán á þó von á að þingi samtakanna verði flýtt og kosið um formann á næsta ári. Hann segir vilja fyrir því að breyta kosningafyrirkomulagi þann- ig að kjósa megi um formann raf- rænt. Þannig gefist félagsmönnum af landsbyggðinni betri kostur á að taka þátt í starfinu þótt þing séu haldin í Reykjavík. Stjórn samtakanna lýsti yfir van- trausti á störf Ólafs í maí og sagði í kjölfarið upp ráðningarsamningi hans. Var það að sögn gert vegna óhóflegra útgjalda formannsins og samráðsleysis við stjórn. alexander@mbl.is Ólafur segir af sér formennsku  Þingi Neytendasamtakanna líklega flýtt Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Dæmi: AULIKA TOP Frábær kaffivél fyrir meðalstór fyrirtæki Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is Sængu rveras ett HOTELREKSTUR ALLT Á EINUM STAÐ Fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús, veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl. Útsala Útsala 40-50% afsláttur Bæjarlind 6, sími 554 7030 | Við erum á facebook Það tekur enga stund að rétta nágrönnum okkar og vinum á Grænlandi hjálparhönd. Hringdu í 907 2003 og leggðu til 2.500 krónur í hjálparstarfið. Söfnunarreikningur Hjálparstarfs kirkjunnar: 0334-26-056200, kennitala 450670-0499. TIL SÖLU Fasteignin að Fiskislóð 61-65, Reykjavík. Alls 2.791 m2. Húsið er í góðu ástandi og hefur fengið gott viðhald. Í dag er rekin fiskvinnsla í húsinu en fjölbreyttur atvinnurekstur er í næsta nágrenni og miklir möguleikar sem felast í eigninni. Afhending eignar yrði skv. samkomulagi við eiganda sem hefur alla eignina í notkun í dag. Áhugasamir kaupendur geta haft samband við Pál Kristjánsson, hdl. í síma 849-5870 eða í gegnum netfangið pall@krst.is Tryggvagata 11 | 101 Reykjavík | krst@krst.is | 551-6412 Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.