Morgunblaðið - 11.07.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017
Tækni í þína þágu
hitataekni.is
Bjóðum upp á fjölbreyttan
búnað svo sem loftræsingar,
hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi
sem og stjórnbúnað
og stýringar.
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
1.259.000
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Verð frá
m. vsk
Ljósmynd/Aðsend
Hugmyndaríkar Frá vinstri: Sigrún Hulda Jónsdóttir leikskólastjóri, Íris
Ósk Kjartansdóttir íþróttakennari og Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir, lista-
kona og sagnaþula. Þessar þrjár eru konurnar á bak við klifurvegginn.
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
Í
þróttakennarinn okkar
hérna í Urðarhóli átti hug-
myndina að þessu,“ segir
Sigrún Hulda Jónsdóttir,
leikskólastjóri í leikskól-
anum Urðarhóli í Kópavogi, en þar
hefur verið komið upp stærðar-
innar klifurvegg fyrir krakkana í
leikskólanum til að njóta. Veggur-
inn var formlega tekinn í notkun
11. maí síðastliðinn, á afmælisdegi
Kópavogsbæjar, og hefur hann nú
hlotið nafnið Ævintýraveggur.
„Við erum heilsuleikskóli og
eitt af okkar meginmarkmiðum er
hreyfing, ásamt næringu og sköp-
un. Klifurveggurinn ýtir svolítið
undir þessar áherslur skólans, að
auka samhæfingu, jafnvægi, kraft
og þor. Þarna sameinast það allt
saman í þessum klifurvegg,“ segir
Sigrún en leikskólinn Urðarhóll
hefur meðal annars hlotið YAP-
viðurkenningu frá Special Olymp-
ics á Íslandi vegna hreyfiþjálfunar
barna frá 2ja ára aldri með mögu-
leg frávik á hreyfiþroska. Þá segir
á heimasíðu leikskólans að hann
miði að því að auka gleði og vellíð-
an barnanna með áherslu á nær-
ingu, hreyfingu og listsköpun í
leik.
Innblástur í gömul ævintýri.
Klifurveggurinn skartar fal-
legum myndum sem gleðja augað,
en allt eru það tilvísanir í hin og
þessi ævintýri sem unnið er með í
leikskólanum. „Við fengum smiði
Kópavogsbæjar með okkur í lið og
svo erum við með konu hjá okkur
Gömul ævintýri fá
nýtt líf í Kópavogi
Svokallaður Ævintýraveggur var tekinn í notkun í leikskólanum Urðarhóli í
Kópavogi 11. maí síðastliðinn, en um er að ræða klifurvegg sem skreyttur hefur
verið með myndum sem vísa í hin ýmsu ævintýri á borð við Geiturnar þrjár,
Krummi í klettagjá og fleiri sögur sem Íslendingar þekkja vel. Veggurinn nýtur nú
þegar mikilla vinsælda hjá börnunum í Urðarhóli.
Sagnaþula Listamaðurinn Ingibjörg Ásdís, eða Imma eins og hún er kölluð,
ein af hugmyndasmiðum Ævintýraveggsins, stendur hér stolt við hann.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið að
huga að hvað börnin geta gert sér
til gagns og gamans í næsta mán-
uði, eða síðustu dagana áður en al-
vara lífsins tekur við í skólanum.
Heimilisiðnaðarfélagið í samstarfi
við Árbæjarsafn stendur fyrir hand-
verksnámskeiðum fyrir 8 - 15 ára
börn í ágúst. Námskeiðin eru annars
vegar fyrir 8 til 12 ára og hins vegar
fyrir 13 til 15 ára og standa til boða
dagana 8. - 11. ágúst og 14. - 18.
ágúst.
Fátt jafnast á við að skapa fallega
og gagnlega hluti með eigin hönd-
um í góðum félagsskap og notalegu
umhverfi. Á námskeiðinu læra börn-
in margt skemmtilegt svo sem að
tálga, vefa, mála, gera sultu, jurta-
lita og margt margt fleira. Verkefnin
eru við allra hæfi, fjölbreytt og
skemmtileg. Kennararnir eru hand-
verks- og listafólk sem vant er að
vinna með börnum. Við efnisval er
lögð áhersla á náttúruleg efni og
endurvinnslu sem setur svip á hin
sönnu listaverk.
Nánari upplýsingar um verð,
systkinaafslátt og fleira á vefsíðu
Heimilisiðnaðarfélags Íslands,
www.heimilisidnadur.is.
Vefsíðan www.heimilisidnadur.is
Morgunblaðið/Eyþór
Gott Á handverksnámskeiðinu læra börnin meðal annars að búa til sultu.
Tálgað, ofið, málað, sultað og
jurtalitað í góðum félagsskap
fjórir, Tristan Auer, Chahan Minassi-
an, Cyril Vergniolsem og Karl
Lagerfeld, sem hún hafði sér til
fulltingis. Sá síðarnefndi er reyndar
betur þekktur sem tískuhönnuður,
og reyndar heimsfrægur sem slíkur.
D’Amman var allsendis óhrædd við
að fara ótroðnar slóðir, jafnvel
brjóta niður veggi ef því var að
skipta. Hún mun þó hafa farið var-
lega í sakirnar í þeim efnum og ekki
hreyft við marmaranum, speglunum
og herbergjunum sem hafa ótvírætt
menningarsögulegt gildi.
Rétti maðurinn
Lagerfeld tók sér árs umhugs-
unartíma þegar d’Amman fór þess á
leit að hann legði Crillon-verkefninu
lið. „Ég vissi að hótelið þyrfti að
Hið glæsilega Hotel de Crillon í Par-
ís var opnað með pompi og pragt í
liðinni viku eftir fjögurra ára gagn-
gerar endurbætur og breytingar. Að
vonum var ekkert til sparað og
hvergi kastað til höndum. Eigend-
urnir fólu Aline d’Amman, hjá Cult-
ure in Architecture, arkitektastofu
með aðsetur í Líbanon og París, að
hafa yfirumsjón með verkinu. Henni
var vissulega vandi á höndum, enda
jafnan viðkvæmt að ráðast í breyt-
ingar á sögulegum verðmætum, en
hluta byggingarinnar hannaði Ange-
Jacques Gabriel, einn nafntog-
aðasti arkitekt Frakklands, árið
1753.
Á vefsíðunni www.architectural-
digest.com er d’Amman rómuð í há-
stert sem og innanhússhönnuðirnir
hafa sterk tengsl við 18. öldina en
jafnframt að spegla franska nú-
tímalist, lífsgleði og nýsköpun. Lag-
erfeld var rétti maðurinn til að ná
þeim áhrifum,“ sagði d’Amman í
viðtali við fyrrnefnda vefsíðu.
Lagerfeld fékk þann starfa að
hanna tvær stórar svítur með út-
sýni yfir Concorde-torgið og einnig
lúxusherbergi sem hann tileinkaði
Birman-kettinum sínum, Choupette.
Veggirnir í Choupette-herberginu
eru með svörtum og hvítum röndum
og mynstrið á gólfteppinu innblásið
af kattaklóri.
Svíturnar eru í björtum gráum,
beinhvítum, ferskju- og ljós-
purpurarauðum litum.
Lagerfeld kveðst hafa tilfinn-
ingaleg tengsl við Crillon-hótelið,
Hotel de Crillon í París fær andlitslyftingu
Svítur og kattarherbergi að hætti Karls Lagerfelds
Choupette Í herberginu sem tileinkað er Choupette er bæði bók um læðuna frægu og risastór mynd á vegg.
AFP
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.