Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Fyrirbyggir exem
• Betri og sterkari
fætur
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Sonur Donalds Trump, forseta Bandaríkj-
anna, hefur viðurkennt að hafa komið á fundi
tveggja af helstu aðstoðarmönnum Trumps í
kosningabaráttunni á síðasta ári með rúss-
neskum lögfræðingi sem er talinn tengjast
stjórnvöldum í Kreml. Forsetasonurinn skipu-
lagði fundinn eftir að honum var sagt að lög-
fræðingurinn „kynni að hafa upplýsingar sem
gætu verið gagnlegar í kosningabaráttunni“
gegn Hillary Clinton, forsetaefni demókrata.
Fundurinn var haldinn 9. júní 2016, tveimur
vikum eftir að ljóst varð að Trump yrði for-
setaefni repúblikana, að sögn dagblaðsins The
New York Times. Fundinn sátu sonur forset-
ans, Donald Trump yngri, Jared Kushner,
tengdasonur og einn af helstu ráðgjöfum for-
setans, og Paul Manafort, sem var þá kosn-
ingastjóri Trumps. Sonur forsetans segist
hafa komið fundinum á fyrir milligöngu
„kunningja“ sem hann hafi kynnst í tengslum
við fegurðarsamkeppnina Ungfrú alheimur
árið 2013. Donald Trump yngri kveðst ekki
hafa sagt þeim Kushner og Manafort frá efni
fundarins áður en hann var haldinn.
Manafort sagði af sér sem kosningastjóri
um tveimur mánuðum eftir að fjölmiðlar birtu
fréttir um að hann hefði tengst úkraínskum
stjórnmálamönnum sem nutu stuðnings ráða-
mannanna í Kreml. Bandarísk yfirvöld eru að
rannsaka hvort Manafort hafi gerst sekur um
brot á lögum með tengslum sínum við erlend
hagsmunaöfl.
Donald Trump yngri sagði í yfirlýsingu að
rússneski lögfræðingurinn Natalía Veselnít-
skaja hefði sagt á fundinum að hún hefði upp-
lýsingar um að menn, sem tengdust Rúss-
landi, hefðu styrkt landsnefnd Demó-
krataflokksins fjárhagslega og stutt Hillary
Clinton í kosningabaráttunni. „Fullyrðingar
hennar voru óljósar, margræðar og það var
engin skynsemi í þeim. Ekki voru lagðar fram
neinar upplýsingar sem studdu þær. Fljótlega
kom í ljós að hún var ekki með neinar mik-
ilvægar upplýsingar,“ sagði í yfirlýsingu for-
setasonarins.
Trump yngri segist hafa slitið fundinum
þegar lögfræðingurinn hafi farið að tala um
refsiaðgerðir Bandaríkjanna gegn rússnesk-
um embættismönnum sem talið er að séu við-
riðnir mannréttindabrot. Bandaríkjaþing
samþykkti refsiaðgerðirnar árið 2012 og
Rússar svöruðu með því að banna ættleið-
ingar rússneskra barna til Bandaríkjanna. Ve-
selnítskaja hefur starfað fyrir menn og fyrir-
tæki sem talið er að tengist rússneskum
stjórnvöldum.
Óupplýstur forseti
Þetta er í fyrsta skipti sem staðfest er að
nánir aðstoðarmenn Donalds Trump hafi átt
fund með rússneskum ríkisborgara í kosn-
ingabaráttunni, að sögn The New York Times.
Talsmaður lögfræðinga forsetans sagði að
Trump hefði ekki vitað af fundinum.
Ásakanir um að samstarfsmenn Donalds
Trump í kosningabaráttunni hafi verið í leyni-
makki við Rússa hafa varpað skugga á fyrstu
fimm mánuðina í forsetatíð hans. Nokkrar
þingnefndir og sérstakur saksóknari eru að
rannsaka ásakanirnar og meintar tilraunir
Rússa til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum í nóvember síðastliðnum.
Bandarískar leyniþjónustustofnanir hafa kom-
ist að þeirri niðurstöðu að rússneskir hakk-
arar, sem talið er að tengist leyniþjónustu og
her Rússlands, hafi brotist inn í tölvupósta
landsnefndar Demókrataflokksins og kosn-
ingastjóra Hillary Clinton og lekið þeim í því
skyni að koma höggi á hana í kosningabarátt-
unni. Bandarísku leyniþjónustustofnanirnar
telja að Pútín hafi fyrirskipað tölvuinnbrotin
til að reyna að hafa áhrif á niðurstöðu forseta-
kosninganna. Trump hefur neitað því að sam-
starfsmenn hans í kosningabaráttunni hafi
verið í leynimakki við Rússa og hefur dregið
niðurstöður leyniþjónustumannanna í efa.
Forsetinn ræddi málið við Pútín á fundi 20
helstu iðnríkja heims í Hamborg um helgina.
Trump tísti á Twitter á sunnudag að hann
hefði þjarmað tvisvar sinnum að Pútín til að fá
svar við því hvort Rússar hefðu reynt að hafa
áhrif á kosningarnar og Pútín hefði neitað því.
Heimskuleg tillaga
Þingmenn úr röðum demókrata og repú-
blikana gagnrýndu Trump fyrir að hafa ekki
gengið nógu hart að Pútín á fundinum. Þeir
sögðu að Trump hefði getað mótmælt tölvu-
innbrotum Rússa með kröftugri hætti og virt-
ist vera of viljugur til að leiða ásakanirnar á
hendur þeim hjá sér, að sögn The Wall Street
Journal.
Þingmennirnir gagnrýndu einnig yfirlýs-
ingu Trumps eftir fundinn um að þeir Pútín
hefðu rætt um að koma upp sameiginlegri net-
öryggissveit, meðal annars til að hindra tölvu-
innbrot.
„Þetta er ekki heimskulegasta hugmynd
sem ég hef heyrt en kemst harla nálægt því,“
sagði repúblikaninn og öldungadeildarþing-
maðurinn Lindsey Graham.
Tillögunni var m.a. líkt við það að þjófur,
sem staðinn væri að innbroti, byðist til að taka
þátt í stofnun nefndar um innbrot.
Ræddu við Rússa um Clinton
Nánir aðstoðarmenn Trumps í kosningabaráttunni áttu fund með rússneskum lögfræðingi sem teng-
ist stjórnvöldum í Kreml Kvaðst geta veitt þeim upplýsingar sem gætu verið gagnlegar í baráttunni
AFP
Bandamenn? Vladimír Pútín og Donald
Trump takast í hendur í Hamborg.
Netöryggissveit hafnað
» Donald Trump hefur dregið í land með
þá tillögu að Bandaríkjamenn og Rússar
komi á fót sameiginlegri netöryggissveit
til að hindra tölvuinnbrot.
» Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokks-
ins höfnuðu tillögunni algerlega, sögðu
hana heimskulega og óframkvæmanlega.
» Trump skýrði frá tillögunni í tísti á
Twitter á sunnudag og utanríkisráðherra
og varnarmálaráðherra hans reyndu að
útskýra hana.
» Nokkrum klukkustundum síðar dró
forsetinn í land með tillöguna á Twitter.
„Sú staðreynd að við ræddum
netöryggissveit þýðir ekki að hún geti
orðið að veruleika. Hún getur það ekki,“
tísti hann.
Börn taka þátt í „Litla nautahlaupinu“ (Encierro Txiki) á San Fermin-
hátíðinni í Pamplona á Norður-Spáni. Hátíðin er haldin árlega og stendur í
viku. Hundruð þúsunda manna sækja hana þótt alþjóðleg dýraverndar-
samtök hafi gagnrýnt hana vegna illrar meðferðar á nautum.
AFP
Börn í nautahlaupi
Talið er að um
300.000 manns
hafi sýkst af kól-
eru í Jemen á
síðustu tíu vik-
um, að sögn Al-
þjóðaráðs Rauða
krossins.
Ástandið heldur
áfram að versna
vegna stríðsins sem geisar í land-
inu og um 7.000 ný tilvik eru
greind á hverjum degi. Vitað er
um rúmlega 1.700 dauðsföll vegna
kólerufaraldursins, að sögn emb-
ættismanna Sameinuðu þjóðanna.
Sjúkdómseinkennin eru í flestum
tilvikum væg en kólera getur
valdið miklum vatnskenndum
niðurgangi og uppköstum. Bráð
sýking getur leitt til blóðþrýst-
ingsfalls og dauða á mjög skömm-
um tíma.
JEMEN
Um 300.000 manns
sýkt af kóleru