Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 18

Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ FormaðurborgarráðsReykjavík- ur tjáði sig seint og illa um viðbjóðinn sem bíað hafði út strandlengjur höfuðborg- arinnar vikum saman, án þess að fólkið, borgarbúarnir, væri látið vita og gæti gætt sín og barna sinna. Fjöldi starfsmanna borgarinnar á veitusviði og heil- brigðissviði vissi um vandræðin og um ógnina sem af þeim staf- aði. Það eru sumardagar. Margir borgarbúar eru í sumarfríi og strandlengjan fagra heillar. Vikur liðu og engar aðvaranir bárust frá þeim sem ástæða var til að ætla að stæðu vaktina. Loks kvörtuðu borgarbúar í fjölmiðlana. Af hverju ekki við borgaryfiröld? Af því að þeir vissu sem var að borgaryfir- völdin hlutu að hafa vitað af þessu. Ekkert í málinu gert og vísvitandi þagað yfir því við og gjörsamlega brugðist fólkinu sem greiðir þeim launin. Þegar formaður borgarráðs komst ekki undan að standa fyr- ir málinu, fyrst hvergi náðist í borgarstjórann, sem er þó endranær fjölmiðlaglaðasti maður landsins. þá kom lítið og ónýtt tíst. Hann sagðist telja að það hefði verið „heppilegra“ ef borgaryfirvöld og þær mörgu stofnanir borgarinnar sem að komu hefðu látið í sér heyra. Engin iðrun, engin beiðni um forlát og fyrirgefningu. Það hefði verið „heppilegra“ var orðið sem sökudólgarnir sjálfir höfðu um alvarleg afglöp sín gagnvart borgarbúum. Það hefði sjálfsagt verið „heppi- legra“ fyrir þá sjálfa að standa ekki berstrípaðir í áliti gagnvart borgarbúum í stórmáli eins og þessu. Þeir sem sendir voru til svara voru ekki borgaryfirvöldin sem glenna sig meira en góðu hófi gegnir við öll önnur tækifæri. Það voru embættismenn sem enginn kannast við að hafa heyrt eða séð nokkru sinni áður sem voru látnir taka skömm- ustulegir við hrópandi spurn- ingum. Þeir komust ekki vel frá því. Að mati embættismann- anna voru það „verkferlar“ sem brugðust vikum saman. Þessir verkferlar hafa ekki sést eða heyrst áður. En embættismenn- irnir sögðust búnir að gera upp við sig að skoða þessa verkferla. Hvaða óráðshjal er þetta eig- inlega? Strendur borgarinnar eru útbíaðar í saur og viðbjóði vik- um saman og það eru „verkferl- ar“ sem hafa ákveðið að almenn- ingur sé ekki varaður við! Síðustu árin hefur stjórnkerfi borgarinnar margoft verið splundrað í allar áttir. Sífellt fleiri og óljósari „svið“ hafa ver- ið stofnuð um verk sem áður lutu ljósri ábyrgð. Málaflokkar hafa hvað eftir annað verið hlutaðir í sundur og ólíkum þáttum skeytt sam- an, þótt enginn ávinningur hafi verið af því. Afleiðingin er ekki aðeins sú að borgaryfirvöldin sjálf hafa tapað þræði. Þau máttu ekki við því. Eftir því sem samhengi stjórnsýslunnar hefur orðið óljósara hefur þjónustan við borgarbúa versnað jafnt og þétt um leið og kostnaður við hana hefur farið úr böndum. Embættisheiti sem borgar- búar nauðaþekktu var fargað án skynsamlegra skýringa en tekin upp í staðinn ógagnsæ heiti þar sem verksviðið deildist á svo margar hendur að algjörlega óljóst varð hvar ábyrgðin lá í einstökum tilvikum. Þetta er uppskrift að upplausn. Þetta voru allt óþarfar breytingar, gerðar breytinganna vegna, og fúlgum fjár fórnað í vasa „ráð- gjafa“ sem lágu yfir hverri löngu vitleysunni af annarri. Jafnvel gömul og gróin götu- heiti voru lögð af vegna til- gerðarþarfar meirihluta borgarstjórnar með tilheyrandi óhagræði og útgjöldum fyrir borgarbúa og fyrirtæki þeirra. Í áratugi hitti borgarstjórinn tuttugu æðstu embættismenn sína, sem höfðu þræði um allt borgarkerfið, tvisvar í viku, árið um kring. Stjórnskipulag borg- arinnar var öfundarefni, ekki síst fyrir ríkið. Það hefði engum embættismanni dottið í hug að láta stórmál, eins það sem hér var nefnt, ónefnt á fundi með borgarstjóra. Og þeir borgar- stjórar sem tóku starf sitt alvar- lega hefðu á sama fundi lagt drög að viðbragðsáætlun sem birt hefði verið ekki seinna en strax. Núverandi borgaryfirvöld halda að borgin snúist um þá sjálfa. Reykjavíkurborg á að gæta að því umfram allt annað að veita borgarbúum fullkomna þjónustu með hagkvæmum hætti, tryggja hreinlæti, snyrti- mennsku, öryggi og framtíð, svo sem með lóðaframboði og öfl- ugri þjónustu fyrir unga sem aldna. Það tekst ekki á meðan stór hluti fjármunanna sem úr er að spila hverfur í óráðsíu og æðstu menn borgarinnar hafa ekki áhuga á öðru en gervi- vandamálum sem snerta ekki borgarbúa beint. Hneykslið, sem borgarbúar hafa þurft að horfa upp á og fundið fnykinn af að undanförnu er til komið vegna þess að yfirvöldin í borg- inni þekkja hvorki verkefni sitt né vitjunartíma og myndu ekki valda því, þótt hin einfalda mynd rynni upp fyrir þeim. Slíka menn þarf að finna í fjöru sem fyrst. Það er ekki kræsilegt en hjá því verður ekki komist. Ástandið í fjörunni er lýsandi fyrir yfirvöldin} Brugðust borgarbúum T alsvert hefur verið ritað og rætt um stöðu ferðamála hér á landi með hliðsjón af þeim vaxtar- verkjum sem greinin (og landið sjálft, að mér heilum og lifandi) hefur fundið fyrir. Því verður ekki neitað að gullgrafaraháttur hefur látið á sér kræla – eins og hjá alræmdum hr. Ciabatta og svo 500 króna tepokanum – og eins verður skortur á salernum vart liðinn mikið lengur; ef svo fer sem horfir verður ferðamennska á Íslandi einna þekktust í formi erlendra vindjakka á víðavangi með allt niðrum sig. Bókstaflega. Landinn er líka misjafnlega ánægður með fjölgun fólks á þeim stöðum á landinu sem færri vita um og fólk situr eitt að. Við hjónin vorum til dæmis á göngu í dásamlegu fjalla- landslagi í uppsveitum Suðurlands ásamt vin- ahjónum okkar um nýliðna helgi. Fátt var þar á ferli þó að veðrið væri með ólíkindum gott, líkast til af því að færri þekkja staðinn. Fyrst mættu vinahjónin þremenn- ingum, og þegar við hjónin mættum þeim buðu þau góð- an dag en einn þriðji tautaði ólundarlega: „Það er bara traffík hérna …“ Þó var ekki aðra að sjá en okkur – alls sjö talsins – svo langt sem augað eygði. Það var ekki laust við að maður upplifði sig sem uppáþrengjandi þarna í óbyggðum víðáttunum. Að lokinni göngu sem tók alls á áttundu klukkustund afréðum við að borða kvöldmatinn þar í nágrenninu, enda liðið framyfir kvöldmatartíma, á nafntoguðum stað sem bauð, að því er við höfðum heyrt, upp á lostætan mat í veitingasal sem gefur kost á því að horfa inn í fjós staðarins. Engu var um þetta logið, maturinn einkar gómsætur, þjónustan prýði- leg og verð í samræmi við það sem keypt var. Enginn gullgröftur, bara gæði, snyrti- mennska, þjónustulund og frumleg framsetn- ing. Staðurinn lagði sig meira að segja fram við að bera fram bjór í almennilegum glösum, en enn þann dag í dag ber nokkuð á því að veitingamenn gerist sekir um handvömm og fúsk þegar kemur að bjórglösum og beri fram tiltekinn bjór í glasi merktum einhverju allt öðru. Það er hreint óverjandi frammistaða. Mér datt reyndar í hug hvort fastagestir umrædds staðar skimuðu niður í fjósið úr veitingasalnum, brostu við og segðu með til- hlökkun: „Sérðu þessa skjöldóttu kusu þarna? Hún verður hamborgarinn minn hinn daginn, á minn sann!“ Minnir á skondið atriði úr stór- myndinni The Giant, þar sem börnin á búgarðinum ving- uðust við gæfan kalkúna; gáfu fuglinum nafn og hentu í hann fuglakorni af mikilli íþrótt. Verra var þó að blessað ungviðið fékk skiljanlega áfall þegar fuglinn var borinn fram ásamt margvíslegu meðlæti á þakkargjörð. Þá vötnuðu þau músum meðan þau virtu vininn fyrir sér, stríðalinn og steiktan í hel. En þannig gengur þetta jú fyrir sig, nema hvað. Lýkur þar með pistlaþríleik þess- um um landsbyggðina enda er ég kominn aftur til vinnu eftir framúrskarandi skemmtilegt sumarfrí, þökk sé ekki síst landsbyggðinni, kostum hennar og undrum. jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason Pistill Fjós og firnindi á landsbyggðinni STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Snemmsumars gaf Umhverfis-stofnun út tilmæli um um-gengni ferðamanna á Horn-ströndum. Þar segir að veruleg hnignun hafi átt sér stað á ástandi nokkurra gönguleiða í frið- landinu. Því er beint til ferðaþjón- ustufólks að takmarka fjölda ferða- manna í skipulögðum ferðum þegar landið er viðkvæmt og að göngustafir séu ekki notaðir innan friðlandsins nema brýna nauðsyn beri til. „Við höfum haft af því nokkrar áhyggjur að menn séu að fara þarna inn á svæðið þegar svæðið er ekki í stakk búið til að taka á móti fólki, eft- ir miklar rigningar til dæmis,“ segir Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun. Hann segir samstarf hafa verið afar gott við þá ferðaþjóna sem fara í skipulagðar ferðir frá Bolungarvík og Ísafirði. Öllu erfiðara sé að fylgjast með komum skemmtiferðaskipa inn á friðlandið, en töluverð fjölgun hefur verið á siglingum svokallaðra „ex- cursion“-skipa á síðustu árum. Slík skip eru fremur lítil og geta siglt inn í víkur og firði. „Landeigendur hafa ekki verið mjög áfjáðir í að fá skemmtiferðaskip inn í friðlandið, enda má segja að með því breytist heilmikið eðli og ásýnd friðlandsins.“ Ekki ástæða til að óttast Ólafur segir að ekki sé sérstök ástæða til að hafa áhyggjur af skemmtiferðaskipunum, þó að smá hræðsla hafi gripið þá sem sjá um verndun friðlandsins er skemmti- ferðaskipin fóru að venja komur sínar inn í firðina. Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, upplýsingafulltrúi Ísafjarðarbæjar, tekur í sama streng. „Þetta hefur far- ið miklu betur en við óttuðumst. Menn urðu svolítið hræddir fyrir nokkrum árum þegar þetta byrjaði og sáu fyrir sér að það yrði kannski stórkostleg aukning í þessu og að skipin yrðu yfir nótt í fjörðunum. Það hefur sem betur fer ekki gerst, svo sú hræðsla hefur minnkað,“ segir Hálf- dán. Annars sé umgengni innan frið- landsins almennt góð. „Það hefur komið fyrir í gegnum árin að einn og einn hópur hefur kannski ekki gengið nógu vel um. Þó að það sé talsverður ferðamannastraumur er þetta gríðar- lega stórt svæði, þó að þéttast sé af ferðamönnum í Hornvík. En dreif- ingin er það góð að álagið hefur ekki valdið neinum skaða, þannig séð,“ segir Hálfdán. Hann segir að oftast sé um óviljaverk að ræða, er jarðrask verði á svæðinu. Göngustígar verði stund- um ógreinilegir og því geri fólk þau mistök að ganga utan þeirra. Vanbúnir ferðamenn Að sögn Hálfdáns kemur það fyrir að ferðamenn séu vanbúnir til ferða um friðlandið. „Það mætti kannski setja kröfur um einhvern lágmarksbúnað fólks sem fer inn á svæðið. Við höfum lent í því að þrátt fyrir að ferðaþjónar sem eru að selja ferðir inn á svæðið hafi ráðlagt fólki að fara ekki, fundist það of illa búið til að fara í ferð, þá hefur fólk samt ætlað að fara.“ Enginn getur bannað fólki að fara vanbúið á Horn- strandir, en Hálfdán segir að kannski megi velta því upp að setja kröfur um lágmarks- útbúnað ferðamanna, út frá öryggissjónar- miðum. „Þetta er stórt svæði og oft mjög langt í næstu hjálp og erfitt að láta vita af sér.“ Almennt vel gengið um Hornstrandir Morgunblaðið/Árni Sæberg Hesteyri Umgengni í friðlandinu á Hornströndum er almennt góð, en svæðið er víða viðkvæmt og stórir hópar ferðamanna geta valdið jarðraski. „Sumarið hefur farið hægar af stað en oft áður. Það hefur verið ágætlega bókað í hópferðir en minni lausatraffík,“ segir Díana Jóhannsdóttir, markaðsfulltrúi hjá Markaðsstofu Vestfjarða. Hún segir að umgengni sé al- mennt góð í friðlandinu. „Þetta er samt svæði með nær engum innviðum, svo að stórir hópar, þó að þeir séu bara að rölta þarna um og njóta, þeir geta al- veg haft áhrif.“ Engar aðgangsstýringar eru að friðlandinu. „Margir hafa haft þann draum að það væri bara einhver passi sem myndi gilda inn á svæðið eða að bara væri hægt að fara með leiðsögumanni. En þetta er í rauninni bara land í einka- eigu, svo það eru engar svoleiðis reglur sem hægt er að setja,“ segir Díana. Sumarið fór hægt af stað VIÐKVÆMT SVÆÐI Díana Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.