Morgunblaðið - 11.07.2017, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 11.07.2017, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er óþarfi að stökkva upp á nef sér, þótt samstarfsmönnum verði eitthvað á. Reyndu að sýna eins mikinn sveigjanleika og þér er unnt. 20. apríl - 20. maí  Naut Ekki er allt sem sýnist og það er þitt verk að komast að hinu sanna. Marseraðu fram með þá valkosti sem færa þér það sem þú vilt – og innri andstæðingurinn heldur sig til baka. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér verður hrósað mikið fyrir ár- angur þinn í starfi og átt það svo fyllilega skil- ið. Ekki aðeins veistu nákvæmlega hvað þú vilt heldur veistu líka hvernig þú átt að fá því framgengt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú lendir í þeirri aðstöðu að yfirráð þín eru dregin í efa. Stattu á þínu og þá sýnir sig að andstæðingurinn hefur engin tromp á hendi. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert sérstaklega sannfærandi í sam- ræðum þínum við samstarfsfélaga og ætt- ingja. Ef þú ert bæði kallaður og útvalinn skaltu ekki skorast undan. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Veltu vandlega fyrir þér því máli sem nú hefur verið lagt í þinn dóm. Enginn sagði að samstarf væri auðvelt, en þú kaust þetta af vissri ástæðu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Taktu málin í þínar hendur og rannsak- aðu þau ofan í kjölinn. Nú er heppilegt að ljúka samningaviðræðum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að fá útrás fyrir sköp- unarþrá þína svo þú kafnir ekki. Fólk breytist aðeins ef það hefur fyrir því sjálft. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það tekur meiri tíma að undirbúa atburð en atburðurinn sjálfur tekur – miklu, miklu lengur. Einhver gefur þér tækifæri til þess að láta ljós þitt skína. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft bara að nefna það að þú eigir í vanda og sérfræðingar í honum skjóta upp kollinum. Njóttu þess og haltu áfram á sömu braut. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er góð regla að hugsa áður en maður talar og hún á ekkert síður við þig en aðra. Gættu þess bara að ofmetnast ekki og leyfðu samstarfsmönnum þínum að njóta með þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það eru gerðar miklar kröfur til þín, jafnvel svo að þér finnst nóg um. Ef þú þarft að láta í minni pokann skaltu gera það með reisn. Ekki fer á milli mála að sambander á milli sjúkdóma og matar- æðis, en hversu mikil áhrif hefur það, sem við látum í okkur, á líðan okkar? Þetta er viðfangsefni heim- ildarmyndar, sem nefnist What the Health eða Hver heilbrigður eftir Kip Anderson og Keegan Kuhn. Í myndinni fær bandarískur mat- vælaiðnaður rækilega á baukinn. Þá eru teknar fyrir ýmsar við- teknar hugmyndir um hollustu. Lyfjafyrirtækin fá sinn skammt og sömuleiðis heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum fyrir að einblína á að halda niðri einkennum í staðinn fyrir að ráðast að rót sjúkdóma. Í leiðinni er flett ofan af tvískinnungi hinna ýmsu samtaka, sem rekin eru til að berjast gegn sjúkdómum á borð við sykursýki, krabbamein og hjartasjúkdóma og bent á að þau séu svo háð matvæla- og lyfja- framleiðendum um peninga að þau ýti jafnvel undir óhollustu í stað þess að vara við mat, sem eykur líkur á krabbameini, hjartasjúk- dómum og sykursýki. x x x Ekki var laust við að Víkverjayrði um og ó við að horfa á þessa ágætu mynd og vakti hún með honum meiri ugg en flestar hrollvekjur. Þó var ekki laust við að honum þætti fært í stílinn þegar kom að því að hampa ágæti þess að neyta aðeins grænmetis. Í mynd- inni var rætt við tvo einstaklinga, sem lengi höfðu átt við veikindi að stríða og höfðu verið látnir bryðja fleiri lyfjategundir en Víkverji kann að nefna. Fólk þetta gat sig varla hreyft fyrir krankleika þegar kvikmyndagerðarmennina bar að garði, en eftir að hafa einskorðað sig við grænmeti í tvær vikur var það orðið bráðhresst, hætt á öllum lyfjum og komið á kreik á ný. Sömuleiðis komu fram nokkrir ein- staklingar, sem höfðu breyst úr meðalskussum í ofurmenni við það eitt að gerast grænmetisætur. Vík- verji ætlar ekki að bera brigður á hollustu grænmetisfæðis, en þetta fannst honum heldur ósennilegt. Þó hvarflaði að honum að reyna í þeirri von að hann yrði farinn að fljúga um með skikkju um hálsinn klæddur sokkabuxum innan tveggja vikna – eða í mesta lagi þriggja. vikverji@mbl.is Víkverji BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 SUMARÚTSALA -30% verð áður kr . 316 .300 Lu ig i tungusóf i með st i l lanlegum hnakkapúðum verð nú kr . 221 .400 Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum á röltinu fyrir helgi. Það hafði borið til tíðinda að skolpið rann viðstöðulaust í sjóinn við Faxaskjól, en fjölmiðlar náðu ekki í borgarstjóra til að spyrja hverju sætti. Þetta barst í tal á milli mín og karlsins, en hann var einmitt að koma sunnan að. Hann velti vöngum og tautaði: Við Faxaskjól var svartur sjór af saur svo fólki ofbauð slíkt. – Borgarstjórinn í felur fór. Finnst það kerlu honum líkt. Magnús Halldórsson hefur orð á því á Boðnarmiði að „borgar- stjóri, formaður borgarráðs og borgarritari fréttu fyrst um málið í fjölmiðlum“: Sjaldan málin ganga greitt, gagnslitlir oft megum híma. Því okkur sagt er aldrei neitt, utan bara í fréttatíma. Síðan bætti Magnús við, að „við erum svo heppin hérna á Hvols- velli að „burgmeister“ okkar kemur í morgunsundið, þar frétt- ir hann eiginlega allt sem máli skiptir. Borgarstjóri Reykjavíkur segist fyrst hafa frétt af skólp- mengun við Faxaskjól í fjöl- miðlum, þótt skólpdælukerfi borg- arinnar hafi verið bilað dögum saman:“ Þar er allt á fullri fart sem fólkið heftir, svo Dagur fréttir dáldið margt, daginn eftir. Gylfi Þorkelsson orti: Aumur larfur, ætíð hvarf, engum þarfur, blauður. Alger skarfur, andlegt svarf, eins og karfi rauður. Og fékk að bragði þessa spurn- ingu frá Jóni Val Jenssyni: „Ertu að lýsa borgarstjóranum, sem „ætíð hvarf“, þegar spyrja þurfti út í skolpræsaflóðið?“ Gylfi Þorkelsson kvað svo ekki endilega vera, – gæti eins verið sjálfsmynd. – „En sem sagt, hverj- um er frjálst að spyrða vísuna að eigin þörfum.“ Gestur Jóhannsson orti í Vest- urheimi laust fyrir aldamótin 1900 og virðist aldarfarið lítið hafa breyst: Hér ég staldra hugsandi hreint mér taldist svarið. Hví svo skjaldan skynsemi skapar aldarfarið? Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af svörtum sjó og sam- bandsleysi borgarstjóra Í klípu „LÁTTU MIG FÁ TÍÐINDIN – ALGJÖRLEGA ÓFEGRUÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HEYRÐU, SJÉFFI! ÞESSI KRÚTTLEGI HÉRNA VILL VITA HVERS VEGNA VIÐ HÖFUM EKKI BORGAÐ AF BÍLALÁNINU OKKAR Í ÞRJÚ ÁR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... heitar varir! ÞRYKK! HRÓLFUR, MAMMA ER ENN ÓÁNÆGÐ EFTIR ÖLL ÞESSI ÁR MEÐ AÐ ÉG HAFI GIFST ÞÉR! TENNIS Í SJÓNVARPINU GAT ÉG BREYTT ÞVÍ AÐ HÚN VAR ÞEGAR GIFT? Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Sálm. 46:2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.