Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 30

Morgunblaðið - 11.07.2017, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2017 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Viðtökurnar fóru í raun fram úr okkar björtustu vonum. Það gekk náttúrlega á ýmsu með sýninguna hér heima eins og frægt er orðið og allt í góðu lagi með það,“ segir Gísli Örn Garðarsson um viðbrögð áhorf- enda þegar Óþelló í uppfærslu Þjóð- leikhússins og Vesturports var sýnd- ur í Þjóðleikhúsinu í Bratislava á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Euro- kontext í Slóvakíu fyrir skemmstu. „Þetta var í fyrsta sinn sem við sýndum verkið fyrir utan landstein- ana. Sýningarnar voru tvær og bið- listi á þær báðar. Mónólógar Hall- gríms Helgasonar um rasima í sýningunni vöktu mikla lukku, enda hafa Slóvakar sýnt rasisma í verki með því að loka landamærum sínum alfarið fyrir flóttafólki. Þannig að þetta var mjög góð upplifun og áminning um það hvað Evrópa er ólík.“ Í vetur bárust fréttir af því að Óþelló hefði líka verið boðið á alþjóð- lega leiklistarhátíð í Bogotá í Kólum- bíu. Hvenær farið þið? „Hátíðin fer fram í mars/apríl 2018. Í ljósi þeirra verkefna sem framundan eru hjá okkur Nínu [Dögg Filippusdóttur] verður að ráð- ast hvort við getum farið á hátíðina,“ segir Gísli og vísar þar til frumsýn- ingar þeirra og Borgarleikhússins á People, places & things eftir Duncan Macmillan sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, en við komum nánar að því síðar í viðtalinu. „Það væri ekki í fyrsta sinn sem við höfum þurft að afboða komu okk- ar á hátíðina í Bogotá. Við sýndum Hamskiptin þar fyrir um áratug og var í framhaldinu boðið að sýna Woyzeck. Ég held að ég hafi þegið boð fimm sinnum og jafnoft þurft að afboða komu Woyzeck af því að þetta er á svo óheppilegum tíma. En þetta er geggjuð hátíð, enda stærsta leik- listarhátíð í heimi. Þarna eru sýndar um 400 leiksýningar víðs vegar að úr heiminum á þremur vikum.“ Er aldrei neitt mál að taka sýn- ingar Vesturports upp aftur? „Leikmyndin er alltaf geymd. Ég held að ég sé með tíu fulla Eimskips- gáma niðri á höfn fulla af öllum leik- myndum Vesturports,“ segir Gísli og tekur fram að Eimskip hafi verið sterkur bakhjarl Vesturports um áraraðir. „Þess vegna eigum við allar leikmyndirnar okkar enn og því geta sýningar okkar lifað svona lengi.“ Bjóst ekki við slíkum viðtökum Í vetur sem leið frumsýndi Vestur- port í samvinnu við Borgarleikhúsið Elly sem sýnd var fyrir fullu húsi á Nýja sviðinu 54 sinnum og komust færri að en vildu. Hvernig lögðust góðar viðtökur í þig? „Ég bjóst ekki við að viðtökurnar yrðu svona rosalegar, en maður veit auðvitað aldrei. Mér finnst frábært að sýningin hafi náð svona vel til áhorfenda, því þetta er menningar- og þjóðfélagssaga okkar Íslendinga. Við erum að eðlisfari frekar lokuð þjóð og tölum ekki um hlutina. Fæst- ir vita hvernig líf Ellyjar var og hvað það var mikið mál að lifa af sem lista- maður í hennar sporum. Mér fannst mikilvægt að varpa ljósi á það,“ segir Gísli sem gengið hafði með hugmynd- ina lengi í maganum, en fannst að hann gæti ekki beðið mikið lengur með að koma henni á svið. „Elly til- heyrir kynslóð sem fædd er í kring- um 1930 og margir af þeirri kynslóð eru farnir. Þeim fer fækkandi sem voru henni samferða og þess vegna setti ég þetta í gang svo það væri hægt að fá sögurnar frá fyrstu hendi,“ segir Gísli og tekur fram að hann sé sannfærður um að sýningin muni njóta sín vel á Stóra sviðinu þangað sem hún færist í haust vegna mikillar eftirspurnar. „Ég hefði ekki viljað flytja sýn- inguna yfir á Stóra sviðið nema vegna þess að ég er sannfærður um að hún muni njóta sín þar og það verður enginn afsláttur gefinn. Sætin eru betri, þau eru númeruð og ég held að áhorfendur muni njóta sýn- ingarinnar í botn.“ Leikhúsið varpar ljósi á meinið Í gær var upplýst að næsta leik- stjórnarverkefni þitt verður upp- færsla á People, places & things eftir Macmillan annars vegar í Þjóðleik- húsinu í Osló í febrúar 2018 og á Litla sviði Borgarleikhússins í mars/ apríl, en Nína Dögg Filippusdóttir, eigin- kona þín, fer með aðalhlutverkið í ís- lensku uppfærslu verksins. Hvers vegna varð þetta leikrit fyrir valinu? „Ég var að leika í sjónvarpsseríu í Englandi 2015 þegar verkið var frumsýnt og sá það á sviði. Inntak þess kveikti í mér. Þetta er verk sem er því miður mjög nálægt okkur Nínu. Það er hræðilegur alkóhólismi í fjölskyldum okkar, sérstaklega Nínu megin. Þetta er viðfangsefni sem er mjög nálægt okkur og hefur verið í alltof langan tíma. Það eru því miður margir Íslendingar að glíma við alkóhólisma og afneitun eða með- virkni í lífi sínu. Það er stór fylgi- fiskur samfélagsins í kringum okkur og leikhúsið er mjög góð leið til að skoða þetta mein í tilteknu sam- hengi.“ Leikritið segir frá leikkonu sem eftir hneykslanlegt atvik á leiksviði samþykkir loks að fara í meðferð vegna áfengis- og fíkniefnavanda. Ekki er annað að sjá en að hún sé viljug til að takast á við vanda sinn, en hún notar hins vegar það hversu klár og meinfyndin hún er til að vefja fólki um fingur sér. Með hlutverk leikkonunnar fer Nína, en í öðrum hlutverkum eru Björn Thors, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Jóhann Sigurðarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Sig- rún Edda Björnsdóttir. „Þetta er mjög gott verk fyrir sterkan leikhóp að takast á við. Þó að Nína sé í titluðu aðalhlutverki sé ég leikritið fyrst og fremst sem en- semble verk,“ segir Gísli og rifjar upp að góð hópvinna hafi ávallt verið mikilvægt leiðarstef í starfi Vestur- ports. „Þetta sést skýrt í Faust þar sem við gerðum Mefistós að þremur djöflum til að búa til fleiri spennandi hlutverk.“ Of stór skammtur af einveru En hvers vegna langaði þig að setja leikritið upp í tveimur löndum nánast samtímis? Verður nálgunin sú sama eða reiknar þú með að gera tvær gjörólíkar sýningar? „Það er góð spurning. Ég hef ekki prófað þetta áður, þannig að ég hef ekki hugmynd um hver útkoman verður, en það er það sem er áhuga- vert. Kannski verða þetta tvær alveg eins sýningar eða gjörólíkar. Það fer örugglega eftir því hvernig fyrsta sýningin tekst til og hvort mér hafi fundist ég finna essens eða kjarna verksins. Ég er alltaf að reyna að búa til samstarf á milli leikhúsa og lista- manna frá ólíkum löndum, þannig að við getum haft áhrif hvert á annað og veitt hvert öðru innblástur,“ segir Gísli sem verður með sama listræna teymi í báðum löndum, Börkur Jóns- son hannar leikmynd og Þórður Orri Pétursson lýsingu, en búningahönn- uður, tónskáld og kóreograf koma frá Noregi. Þú hefur áður unnið svona fjöl- þjóðlega sýningu, þ.e. Bastarðar. Eru einhver líkindi þarna á milli? „Það sem ég áttaði mig á eftir á með Bastarða var að það flókna í því samstarfi fólst í því að þar kom hug- myndin um samstarf fyrst og síðan var reynt að semja verk fyrir leikar- ana, sem áttu að tala þrjú mismun- andi tungumál. Þannig að það varð eins og gestaþraut að finna lausnina á því. Það var einhvern veginn alltaf skakkt. Það náði tæpast organískri lendingu. Ferlið núna er miklu ein- faldara. Vonandi leiðir það til hug- mynda um frekara samstarf, eins og Bastarðar áttu að gera. Hjá leikhús- unum á Norðurlöndunum er sífellt verið að leita leiða til að vinna saman, en auðvitað er tungumálið ákveðinn þröskuldur sem og kostnaðurinn. En þetta er bara ein tilraun í þessa átt.“ Þið Nína hafið unnið mikið saman undir merkjum Vesturports sem þið stofnuðuð í samstarfi við fleiri á sín- um tíma og sýnt úti um allan heim. Hvernig gengur að púsla því saman við fjölskyldulífið, því þið eigið tvö börn sem eru 10 og fimm ára? „Það var ekkert mál að ferðast og sýna erlendis meðan börnin voru yngri. Núna er dóttir okkar orðin tíu ára, komin í skóla og með sjálfstæðan vilja og nennir ekki að fara með okk- ur út. Ég hef farið einn utan til að leika í sjónvarpsþáttum og kvik- myndum. Í fyrra dvaldi ég átta mán- uði í Newcastle við tökur á Brjólfs- kviðu meðan Nína var ein heima með börnin. Það var glatað fyrir mig því mér fannst ég missa af mjög miklu. Þetta var langur tími og ég var langt í burtu. Það fylgdi þessu ákveðinn tómleiki eftir því sem á leið. Það hreinlega dó eitthvað innra með mér. Ég fékk alltof stóran skammt af ein- veru í þessari löngu útgerð. Auk þess bætti ekki úr skák að verkefnið nærði mig of lítið þannig að það hefur verið blanda af þessu tvennu. Fyr- irfram hljómaði verkefnið mjög spennandi, en það náði ekki flugi og ég fann mig ekki í því. Strax við heimkomuna lék ég í Eiðnum hjá Baltasar og það var æðislegt og nærði mig. Sama má segja um Varg- inn sem ég lék í hjá Berki Sigþórs- syni,“ segir Gísli og tekur fram að hann sé með aldrinum og reynslunni orðinn betri í því að hafna tilboðum erlendis frá um prufur og verkefni sem kalla á langa fjarveru frá fjöl- skyldunni. Fyrst og fremst leikhúsmaður Sjáið þið Nína hlutina oft frá sama sjónarhorni í listrænu samstarfi ykk- ar eða takist þið hart á? „Í vinnuferlinu erum við oft með mjög ólíkar skoðanir. Hún, eins og aðrir leikarar, virðir það að leikstjór- inn er með ákveðna sýn. Maður reyn- „Forréttindi að fá að starfa í  Gísli Örn Garðarsson er nýkominn heim frá Slóvakíu með Óþelló  Ætlaði að leikstýra Hamlet hjá Globe  Mun leika Ríkarð III undir stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar Morgunblaðið/Ásdís » „Síðan vorum viðkomin á gott skrið með að ætla að bjóða fleiri íslenskum leik- stjórum að setja upp sýningar í Globe.“ Fjölhæfur Gísli Örn Garðarsson er með mörg járn í eldinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.