Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
BAKSVIÐ
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Danski tækniháskólinn DTU hefur
óskað eftir samstarfi við íslenska fyr-
irtækið FIBRA ehf. um að finna
heppilega útveggi fyrir íbúðar-
húsnæði á Grænlandi. Sérfræðingar
frá DTU, Martin Kotol og Aaron
Cooke, eru hérlendis að heimsækja og
kynna sér starfsemi fyrirtækisins,
sem framleiðir ferköntuð hús úr gler-
og koltrefjum með kjarna úr steinull.
Stjórn FIBRA ehf. hefur ákveðið að
láta þeim í té lítið tilbúið tilraunahús
úr þessum tiltekna efniviði til að prófa
á Grænlandi. Verkefnið bíður nú þess
að fá afhenta skriflega tækniumsögn
Nýsköpunarmiðstöðvar, en bygg-
ingatækni FIBRA hefur staðist allar
prófanir fram að þessu.
Tilraunaverkefni með útveggi
Martin segir að þeir hjá DTU hafi
frétt af FIBRA í gegnum íslenskt-
grænlenskt fyrirtæki á Grænlandi sem
skólinn er í samstarfi við. DTU sé að
gera stórt tilraunaverkefni með út-
veggi mannvirkja við heimskautaað-
stæður. „Við erum að láta prófa efnivið
í útveggi frá 6 aðilum og FIBRA er
einn af þeim, og könnum eiginleika
eins og rakaviðbrögð, þéttni, líkur á
rakaskemmdum, loftgæði, endingu,
hvernig yfirborðið bregst við sterku
sólskini og miklum kulda, einangrun
og viðhald,“ segir Martin. Niðurstaðan
úr þessum prófunum eigi að liggja fyr-
ir á næsta ári. Að auki verði lítið til-
raunahús, sem FIBRA ætlar að út-
vega þeim aukalega, prófað í 3-4 ár.
„Við erum mjög spenntir að sjá hvað
gerist, enda er ýmsum spurningum
enn ósvarað. Kostirnir við FIBRA hús
virðast vera fljót samsetning og þétt
efni, þetta er tækni sem lofar góðu,“
segir Martin að lokum.
Slæm hús á Grænlandi
„Raki, mygla og rakaskemmdir eru
enn stærra vandamál á Grænlandi en
hérlendis,“ segir Regin Grímsson, einn
eigenda FIBRA ehf. „Það er mjög
dýrt að kynda á Grænlandi og kuldinn
getur farið niður í mínus 20-40 gráður á
veturna. Þessvegna skiptir fólk ógjarn-
an um loft í húsunum með því að opna
glugga eða dyr og mjög dýrt er að
kynda óþétt húsnæði,“ heldur Regin
áfram. Það valdi því að raki og mygla og
óheilsusamlegt loft sé alvarlegt og við-
varandi vandamál í grænlenskum híbýl-
um. Svipaðar aðstæður sé jafnframt að
finna á fleiri byggðum svæðum nálægt
heimskautinu. „Mygla er ekki vanda-
mál í FIBRA húsunum þar sem raki
safnast hvergi fyrir, hvorki innan eða
utan á húsinu, né inni í veggeiningunum
sem eru lokaðar“, segir Regin.
Hugmyndin úr bátasmíði
Regin kveðst hafa fengið hugmynd-
ina að verkefninu eftir 40 ára reynslu af
því að smíða báta úr trefjaplasti, m.a.
Gáskabátana og Færeyingana, „Ég
framleiddi yfir 400 báta sem endast vel
og menn eru enn að þakka mér fyrir,“
segir Regin sem segir að þar með hafi
öld trébátanna liðið undir lok. Hann
kynntist trefjaplasthúsum fyrst í
Þýskalandi. Þau hafi þó ekki verið ein-
angruð með steinull eins og FIBRA
húsin sem henti vel til að halda hvort
sem er hita inni eða kulda úti. „Húsin
eru einstaklega þétt og lekafrí, en lok-
að er fyrir samskeyti með sömu tækni
og notuð eru á skipsdekk,“ segir Regin.
Húsin geti verið með allt að því 15 m
breið rými án þess að það þurfi burð-
arveggi og þau megi setja saman á alla
mögulega vegu, sem gefi arkitektum
ákveðið frelsi við útlit, samsetningu og
stærð rýma. FIBRA frumkvöðlaverk-
efnið fór af stað árið 2014 á Sauð-
árkróki, en Nýsköpunarmiðstöð,
Kaupfélag Skagfirðinga og Sveitarfé-
lagið Skagafjörður veittu hugmynd-
inni verðlaun, það vann verðlaun í
þáttaröð hjá RÚV og Tækniþróun-
arsjóður styrkti það um 70 milljónir
króna.
FIBRA hús prófað á Grænlandi
Danski tækniháskólinn DTU í samstarfi við FIBRA ehf. um prófanir á efniviði í hús við heim-
skautaaðstæður Raki, mygla, þungt loft og hár húshitunarkostnaður vandamál á Grænlandi
Ljósmynd/Regin Grímsson
FIBRA hús Frá vinstri Haraldur Ingvarsson arkitekt, Matrin Kotol, verkfræðingur hjá DTU á Grænlandi, Regin
Grímsson og Aaron Michal Cooke, arkitekt hjá DTU Grænlandi, í höfuðstöðvum FIBRA í Vogunum.
FIBRA er nýsköpunarverkefni
sem hlotið hefur styrki til þess
að þróa nýja gerð húsa og
mannvirkja úr trefjaplasti með
kjarna úr steinull. Bygging-
areiningarnar geta verið með
slithúð og ýmiskonar yfirborð.
Einingarnar eru léttar og húsin
eru ódýr og einföld í uppsetn-
ingu, þau má stækka og minnka
og ekki er nauðsynlegt að
steypa grunn fyrir þau.
Húsin hafa þolað prófanir
mjög vel, t.d. jarðskjálfta- og
eldvarnaprófanir, myglusveppur
þrífst ekki í þeim, þau leka ekki
og eru vel einangruð. Lykt og
eiturefnum hefur verið eytt úr
efnunum með herðingu og hús-
in eru mús- og rottuheld. Sjá
nánar á www.fibra.is.
Viðhaldsfrí
mannvirki
NÝSKÖPUNARVERKEFNI
Ljósmynd/Regin Grímsson
Vindprófun Verið er að álagsprófa FIBRA-húsið fyrir vindstyrk. Á mynd-
inni er Regin Grímsson frumkvöðull í bátasmíði og mannvirkjagerð.
Nýjar vörur í hverri viku
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Eikjuvogur 29 Opnunartími:
104 Reykjavík - S:781-5100 Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
ÚTSALA!
Atvinnublað
alla laugardaga
mbl.is