Morgunblaðið - 20.07.2017, Page 81

Morgunblaðið - 20.07.2017, Page 81
MENNING 81 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 ingu eða skilning til að segja frá. Þær voru þó á öðru máli, þær vildu að þessar sögur yrðu sagðar, að þeirra raddir fengju að heyrast. Stundum gerðu þær athugasemdir við sumt sem ekki mátti segja frá opinberlega og stundum vildu þær ekki vera nefndar með fullu nafni. Svo hefur eitt af því sem veitt hef- ur mér hvað mesta gleði vegna bók- arinnar verið að ungar konur í Bandaríkjunum hafa haft samband við mig eftir að bókin kom út og sagt að hún hafi orðið þeim innblástur til að segja sjálfar frá,“ segir Zoepf. Stjórnir gamalla karla - Eitt af því sem er merkilegt þeg- ar maður lítur til Mið-Austurlanda er að átta sig á hve stór hluti íbú- anna er ungur, nærfellt helmingur er undir 15 ára aldri í sumum þeirra og mikill meirihluti yngri en þrí- tugur. „Því miður stýra gamlir karlar flestum þessum löndum og það á ýmislegt eftir að ganga á áður en það breytist, en krafan um breyt- ingar verður æ háværari. Mjög fjöl- mennar kynslóðir eru að sækja sér menntun og til að mynda útskrifast fleiri konur úr háskólum en karlar í löndunum við Persaflóa og margar konur kjósa að stunda nám til að losna við að giftast mönnum sem þær kæra sig ekki um; einhverjum sem fjölskyldan hefur valið.“ - Annað sem vefst fyrir okkur á Vesturlöndum er hve afstaða fólks til trúarinnar, til íslams, er breytileg milli landa, eins og má meðal annars lesa í bókinni. „Það er gríðarmikill munur á því hvernig íslam er túlkað á milli landa og líka mikill munur innan landa, á milli landshluta og jafnvel á milli ættbálka.“ Hitti fyrir yngri útgáfur af mér - Í inngangi að bók sinni um Sádi- Arabíu, On Saudi Arabia, nefnir Karen Elliott House, fyrrverandi ritstjóri The Wall Street Journal, hve henni hafi fundist menning- arlegt umhverfi kunnuglegt við komuna til landsins, enda hafi hún alist upp í smábæ í Texas þar sem trúin var ráðandi í samfélaginu og öldungar kirkjunnar réðu því sem þeim sýndist. Í bókinni þinni kemur einnig fram að þú fékkst mjög kristilegt uppeldi, upplifðir þú það sama? „Ég fann ekkert sérstaklega fyrir því í Sádi-Arabíu, en ég upplifði það oft fyrstu árin mín fyrir botni Mið- jarðarhafs að ég var að tala við tán- ingsstúlkur sem voru að upplifa það sama og ég hafði gengið í gegnum á sínum tíma, hitti fyrir yngri útgáfur af sjálfri mér, stúlkur sem elskuðu fjölskyldur sínar, en voru að átta sig á því að þær langaði ekkert endilega til að lifa lífi sínu á sama hátt og for- eldrar þeirra eða höfðu aðrar hug- myndir um trúna en þau. Ég átti líka eldri bróður sem naut meiri réttinda en ég vegna þess að hann var strákur og í ljósi trúar- innar sem ég var alin upp við þurfti að gæta stúlkna sérstaklega. Kannski varð það til þess að mér fannst ég ekki eins mikill útlend- ingur þegar ég talaði við þær og aðr- ir vestrænir blaðamenn upplifa hugsanlega. Það að vera alin upp í trúarlegu umhverfi auðveldaði mér líka að spyrja um trúarleg atriði og ná lengra í þeim spurningum en blaða- menn sem ekki hafa fengið trúarlegt uppeldi og eiga því erfiðara með að setja sig í fótspor trúaðra.“ Réttindi kvenna byggjast á gæslumanni þeirra - Við höfum rætt um konur í Sádi- Arabíu, en hvað með karlana? Telur þú að sádi-arabískir karlar séu al- mennt sáttir við stöðu kvenna þar í landi? „Ég hitti fjölmarga í Sádi-Arabíu sem kenndu konum sínum að keyra bíl, sem hvöttu þær til að leita sér menntunar og sem fluttu með þeim milli borga til að komast nær skóla sem hentaði þeim. Vandamálið við Sádi-Arabíu er að öll réttindi kvenna byggjast á gæslumanni þeirra. Ef sá gæslumaður er fram- sýnn og frjálslyndur nýtur konan réttinda og frelsis og jafnvel áþekkra möguleika og konur í Bandaríkjunum eða á Íslandi. Margar þeirra kvenna eru líka sátt- ar við samfélagið, finnst þær njóta nógra réttinda og eru sáttar við að mega ekki keyra eða vera einar á ferð, enda áttum við okkur oft ekki á því sem við njótum fyrr en það hverfur. Svo eru dæmi eins ung kona sagði mér um frænku sína. Frænkan var þekktur skurðlæknir og fór víða um heim á ráðstefnur til að afla sér þekkingar. Þegar eiginmaður henn- ar lést skyndilega varð sextán ára sonur hennar gæslumaður hennar og hann var að ganga í gegnum heit- trúartímabil, eins og er mjög al- gengt með unga karlmenn á gelgju- skeiðinu í Sádi-Arabíu, þeir verða ekki uppreisnargjarnir, þeir verða trúaðir, og hann bannaði henni að vinna og ferðast. Á Vesturlöndum byggjum við allt á réttindum einstaklingsins og leggjum mikið á okkur til að vernda þau réttindi, eins og ég nefndi áðan, en í Mið-Austurlöndum, og þá sér- staklega í Persaflóaríkjunum, er lagaumhverfi allt öðruvísi, það er hannað til að tryggja réttindi ætt- bálksins og það skapar mikla erf- iðleika fyrir þá sem standa höllum fæti, fátæka karla og allar konur,“ segir Zoepf. AFP Vandamál Sádi-arabísk stúlka les Kórarinn. Öll hennar réttindi byggjast á gæslumanni hennar og undir honum komið hvort hún muni njóta frelsis. Lög í landinu setja mjög ákveðnar reglur um klæðaburð kvenna. Senuþjófur Lyanna Mormont er ekki há í loftinu en sannar það aftur og aftur að hún er harðari en granít. kannski ekki að finna við það að horfa á fjölda manns æla eigin blóði og kafna. Gæsahúðin sem ég fékk við orð Aryu Stark entist allt byrjunarstefið. Norðrið man. Ég þyrfti heila opnu til að ræða allt sem gerðist í þættinum en það eru nokkrir hlutir sem mig langar að einbeita mér að. Kven- persónurnar í þáttunum styrkjast með hverri seríu og í raun má segja að núorðið séu það konurnar sem ráði öllu. Cersei er krýnd drottning konungsríkjanna sjö, þó Jaime bendi henni góðfúslega á að hún ráði í besta falli þremur kon- ungsríkjum eins og staðan sé. Ég þarf ekki að minnast á dreka- drottninguna sem virðist stefna á heimsyfirráð. Ellaria hefur tekið ráðin í Dorne í sínar hendur og Yara hefur alla burði til þess að taka Járneyjarnar aftur. Sansa Stark er sú persóna sem hefur vaxið hvað mest í gegn- um þættina og nú er hún loks komin í ákveðna valdastöðu. Það læðist alltaf að mér uggur þegar Litlifingur gjóar til hennar aug- unum, fullviss um að hann muni ná til hennar og fá hana til að svíkja bróður sinn. Verst fannst mér þeg- ar Sansa ýjaði að því að Jon líktist Joffrey og sagðist sjálf hafa lært margt frá Cersei. Þetta veit ekki á gott. Það þarf ekki að ræða Aryu í þessu samhengi, baráttuvilji henn- ar er löngu orðinn áhorfendum kunnugur. Ég held að það sé óhætt að segja að senuþjófur þessa þáttar hafi verið hin unga Lyanna Mormont. Hún var kynnt til sögunnar með trompi í síðustu seríu þegar hún ákvað að vera trygg Stark-fjölskyldunni í barátt- unni um Winterfell. Eftir sigurinn var hún sú fyrsta til að lýsa Jon konung norðursins. Í nýja þætt- inum skipar Jon öllum á aldrinum 10 til 60 ára að byrja að þjálfa sig fyrir stríðið mikla. Ákvörðun hans um að hafa kvenmenn ekki und- anskilda er mótmælt en lafði Mor- mont er ekki lengi að stinga upp í sér margfalt eldri menn. Hún kveðst ekki ætla að prjóna við eld- inn á meðan karlmenn berjast fyr- ir hana og lofar að hefja þjálfun allra manna, kvenna, drengja og stúlkna á Bjarnareyju undir eins. Stemningin í þættinum kom mér örlítið í opna skjöldu. Ég hef ekki hlegið mikið að þáttunum hingað til en höfundunum tókst að læða þarna inn hverjum brand- aranum á fætur öðrum. Hundurinn að gera grín að Thoros fyrir að reyna að hylja skallann með því að binda hárið í snúð. Euron að sann- færa Cersei um ágæti sitt með sín- um tveimur góðu höndum. Svo mætti telja nokkuð áfram. Þetta minnti mig svolítið á þegar ég sá Harry Potter og blendingsprinsinn í fyrsta sinn. Allt í einu voru þau farin að lauma inn lúmskum bröndurum. Mögulega til þess að geðjast aðdáendahópi sem eltist eftir því sem leið á myndirnar. Ég er ekki að segja að húmorinn geri þættina verri en ég spyr mig samt hvort hann sé nauðsynlegur. Það voru fleiri atriði sem minntu á galdrastrákinn fræga. Þarna var Slughorn mættur sem æðsti „Maester“ og ekki bætti úr skák að Sam vildi ólmur komast á bannaða hluta bókasafnsins, rétt eins og Harry. Nú tekur við nokkurra daga bið eftir næsta þætti. Ég mun ef- laust horfa a.m.k. einu sinni enn á þann nýjasta í millitíðinni. Það geta nefnilega ótal smáatriði farið framhjá manni við fyrsta áhorf. Tókuð þið eftir því að bókin sem Sam var að skoða geymir hugs- anlega lækningu fyrir „greyscale“ sjúkdóminn sem hrjáir Jorah? » „Undrun mínbreyttist í ánægju á örskotsstundu. Ánægju sem maður ætti kannski ekki að finna við það að horfa á fjölda manns æla eigin blóði og kafna. Gæsahúðin sem ég fékk við orð Aryu Stark ent- ist allt byrjunarstefið. Norðrið man.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.