Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Alexander Gunnar Kristjánsson
alexander@mbl.is
Hvalaskoðunarferðir hófust á
Hólmavík 15. júní. Að sögn Más
Ólafssonar skipstjóra á bátnum
Láka var ákveðið að hefja þessar
ferðir þar sem Láki var verk-
efnalaus í Ólafsvík. Fyrirtækið
Láki Tours sér um hvalaskoðunina
en það heldur einnig úti hvala-
skoðun frá Snæfellsnesi. Farnar
eru þrjár ferðir á dag og hefur
hvalur sést í hverri ferð. „Þetta
gengur bara fínt. Það er nóg af
hval á svæðinu. Það var aðallega
að það vantaði ferðamenn til að
byrja með, en það er allt að koma
til,“ segir Már.
Lítil yfirbygging er utan um
starfsemina en skipstjórinn og
einn leiðsögumaður fara í ferð-
irnar. Að sögn Más sjást að jafnaði
6-10 dýr í hverjum túr en stundum
fleiri.
Mest er um grindhvali, en þeir
sjást í hverri ferð. Einstaka hrefn-
ur og höfrungar hafa einnig gert
vart við sig. Ekki þarf að leita
langt út til að sjá hvalina og raun-
ar nægir oft að standa á bryggj-
unni í Hólmavík til að sjá glitta í
þá. Már segir eitthvað um að Ís-
lendingar komi með í ferðir þó
langflestir gestir séu erlendir
ferðamenn.
Hvalaskoðun hefur notið vax-
andi vinsælda síðustu árin sam-
hliða fjölgun ferðamanna. Í fyrra
fóru um 350.000 manns í hvala-
skoðun á Íslandi en það er tvöföld-
un frá árinu 2012.
Hvalur í hverri ferð á Hólmavík
Morgunblaðið/Alexander
Hvalaskoðun Már og Láki tilbúnir í hvalaskoðun við Hólmavíkurhöfn.
Hvalaskoðunarferðir á Hólmavík hófust í síðasta mánuði
Þrjár ferðir á dag Um 6-10 hvalir í hverri ferð
Snemma í gærmorgun barst lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu til-
kynning um karlmann sem lá í
fastasvefni á kjallaragangi hótels í
miðborginni. Lögregla kom á stað-
inn, vakti manninn og í ljós kom að
hann var ekki gestur á hótelinu, en
hafði engu að síður lagst til svefns á
þessum stað.
Engar kröfur voru gerðar af
hálfu hótelsins á hendur næturgest-
inum og var honum vísað á brott.
Óboðinn gestur svaf
vært í hótelkjallara í
miðborginni
Morgunblaðið/Kristinn
Lögregla Verkefni hennar geta ver-
ið bæði mörg og margvísleg.
Brúðubíllinn mun heimsækja Ár-
bæjarsafn nk. mánudag, 24. júlí, kl.
14. Aðgangur er ókeypis meðan á
sýningunni stendur.
„Lilli er í essinu sínu því póst-
urinn kemur með stóran kassa til
hans. En hvað er í kassanum? Það
er frændi hans frá Afríku og verður
nú aldeilis fjör hjá þeim frændum
með hjálp Dúsks. Svo sjáum við
söguna um Moldvörpuna sem var
svo óheppin að einhver skeit á
hausinn á henni og hún verður að
komast að því hver gerði það. Eftir
það hreinsum við og þrífum, syngj-
um og dönsum með hjálp Dúsks,“
segir m.a. í fréttatilkynningu.
Brúðubíllinn mætir
í Árbæjarsafnið
Brúðubíllinn Árbæjarsafn í Reykjavík
verður vettvangur sýningar 24. júlí.
Undirritaður
verður samn-
ingur í dag á
milli Garða-
bæjar, Toyota á
Íslandi, Urr-
iðaholts ehf.,
Landgræðslu
ríkisins og Bygg-
ingarfélags
Gylfa og Gunn-
ars um endur-
heimt votlendis við Urriðavatn í
Garðabæ. Meðal viðstaddra við
undirritunina verður Björt Ólafs-
dóttir umhverfisráðherra, sem mun
taka fyrstu skóflustunguna að upp-
fyllingu skurða. Markmið verkefn-
isins er að færa land í átt til fyrra
horfs og skapa lífsskilyrði fyrir
gróður og dýralíf sem áður ríkti.
Endurheimta vot-
lendi við Urriðavatn
Björt
Ólafsdóttir
Þvottavél sem sannarlega
stendur vel í stykkinu.
Við bjóðum hina eftirsóttu Bosch-þvottavél,
WAT 284B9SN,nú á einstöku tilboðsverði.
WAT 284B9SN er búin öllum þeim kostum og eiginleikum sem menn
þurfa á að halda í dagsins önn. Tekur 9 kg og hefur íslenskt stjórnborð.
1400 sn./mín.Orkuflokkur A+++. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn
mótor með 10 ára ábyrgð.Dropalaga tromla („VarioDrum“) sem fer
einstaklega vel með þvottinn. 15 mín. hraðþvottakerfi. Skyrtukerfi.
Tromluhreinsun.Mjög stöðug og hljóðlát.
Tilboðsverð:
74.900 kr.
Fullt verð: 109.900 kr.
WAT 284B9SN
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
Gildir til og með 24. júlí eða meðan birgðir endast. Takmarkað magn.
9
kg
A
Ariel fljótandi
þvottaefni fylgir
öllum þvottavélum.