Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 64

Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 Útilegur og útivist GLÆSILEGAR BORGIR Í AUSTUR-EVRÓPU Miðaldaborg frá 12 öld. Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands og þó víða væri leitað. Saga hennar nær aftur til ársins 997. Þetta er borg með mikla sögu en hún var helsta vígi Hansakaupmanna í Evrópu. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir hafa gert borgina við flóann að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum ogmörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar semmargar eru áminjaskrá Unesco, fornamenningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérs- taka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Verð frá 85.000 kr. DÆMI UM BORGIR WWW.TRANSATLANTIC.IS .................................................................................................................................... .................................................................................................................................... .................................................................................................................................... .................................................................................................................................... SÍMI: 588 8900 Vikuferðir sumarið 2017, frá 137.000 kr. per mann í 2ja manna herb. BÚDAPEST GDANSK Í PÓLLANDI RIGA Í LETTLANDI Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Fyrsti frisbígolfvöllurinn var settur upp hér á landi árið 2002 og því ekki nema 15 ár síðan íþróttin nam hér land. Í sumar eru 15 nýir frisbí- golfvellir á áætlun hér á landi og þar af eru 12 nú þegar tilbúnir. Það verða því alls 45 vellir á landinu í lok sumars, að sögn Birgis Ómars- sonar en hann er formaður Íslenska frisbígolfsambandsins. Nýju vell- irnir erumeðal annars í Kópavogi, Grafarholti, Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka, Höfn í Hornafirði, Hrafnagili í Eyjafirði, Dalvík, Reykhólum og Búðardal, og dreif- ingin um landið orðin býsna góð. Íþrótt sem hentar öllum Birgir var á sínum tíma við nám í Bandaríkjunum og kynntist frisbígolfinu þar. „Síðustu 18-19 ár- in hef ég verið að vinna í því að kynna þetta sport fyrir Íslend- ingum og það er því ákaflega ánægjulegt að sjá að nú stefnir í að í lok sumars verði komnir 45 vellir upp víðsvegar um landið, sá síðasti á Hellu og Hvolsvelli,“ útskýrir hann. „Það sem er líka svo gaman að sjá er að alls staðar þar sem frisbígolfvöllur er settur upp mynd- ast í kjölfarið hópur iðkenda þegar fólk á staðnum kveikir á þessari íþrótt. Það kviknar einhver stemn- ing í kringum þetta.“ Hann bætir því við að iðkend- urnir sem mæta séu alls ekki allir einhverjar grjótharðar íþróttatýpur heldur allskonar fólk: „Það mæta heilu fjölskyldurnar með börnin, margir sem eru ekki að neinu öðru leyti í íþróttum og einstaklingar á öllum aldri,“ bætir Birgir við og bendir á að um leið og börn fari að ganga um tveggja ára aldurinn og geti farið að kasta einhverju séu þau klár í leikinn. Aldur iðkenda er svo allt upp á efri ár og það er ljóm- andi góða hreyfingu að fá í frisbí- golfi fyrir eldri borgarana, að sögn Birgis. „Sem dæmi um vinsældirnar þá var ég á ferðinni með mót fyrir norðan um helgina. Á svæðinu kringum Akureyri eru alls 7 frisbí- golfvellir og sá vinsælasti þeirra var einfaldlega stappfullur af fólki allan tímann, og það sem meira er, fullur af allskonar fólki.“ Ódýrt að hefja leik í frisbígolfi Aðspurður segir Birgir stofn- kostnaðinn við að hefja iðkun í frisbígolfi afskaplega lítinn og ætti að sögn ekki að standa í vegi fyrir því að prófa. „Ef þú kaupir þér einn disk þá færðu fínan disk fyrir 2.000 krónur. Ef þú vilt svo fá byrjendapakka, sem í eru þrír diskar – einn „pút- ter“, einn „mid-range“ diskur og einn „driver“ – þá er verðið á hon- um yfirleitt í kringum 5.000 krónur. Með slíkan pakka í fórum þínum má segja að þú sért góður í næstu tvö til þrjú árin, jafnvel lengur. Svo þetta verður seint talið mjög dýrt sport. Sem fyrr sagði var fyrsti frisbí- golfvöllurinn settur upp hér á landi árið 2002. Árið 2010 er sjöundi völl- urinn settur upp á Klambratúni og árið 2013 eru vellirnir orðnir 10 talsins. Á þeim fjórum árum sem síðan eru liðin hafa þeir farið úr 10 í 45 sem segir sitt um útbreiðslu og vinsældir þessarar nýju íþróttar. „Það hefur orðið alger spreng- ing í þessu,“ samsinnir Birgir og hann neitar því ekki að það sé í senn gaman og gefandi fyrir þann sem hefur staðið í stafni við út- breiðslu frisbígolferindisins að sjá vöxtinn og áhugann sem við blasir. „Það eina sem er ekki eins gef- andi er að vera ekki lengur bestur í frisbígolfi á landinu,“ bætir hann við og hlær. „Fyrstu árin vann ég öll mót og annað sem ég kom ná- lægt, enda hafði ég forskot frá ár- unum mínum í Bandaríkjunum, en nú er öldin önnur. Að öllu gamni slepptu þá er auðvitað frábært að sjá vinsældirnar og fjölgunin hjá krökkum sem eru að koma inn í þetta er alveg meiriháttar. Krakk- arnir eru náttúrlega svo fljót að til- einka sér alla nýja hluti að þau eru enga stund að ná ótrúlegri færni í þessu. Til marks um það eru tveir efnilegustu spilarar landsins. Annar er ellefu ára og hinn er fjórtán, og eru þeir í raun alveg ótrúlegir. Sá eldri stefnir á Íslandsmeistaratit- ilinn í sumar í opnum flokki enda hættur að keppa í barnaflokki. Nú keppir hann bara við þá stóru.“ Vellir víðsvegar um landið Eins og framar greindi eru frisbígolfvellirnir nú á fimmta tug talsins hér á landi og þá má finna í flestum landshlutum. Þó segir Birg- ir að sumstaðar sé enn að finna svæði þar sem dregist hefur að setja upp velli. „Nýverið var settur upp völlur á Höfn í Hornafirði og ennfremur bæði á Hellu og Hvolsvelli. Það er því að lokast ágætlega, landið, hvað vallaruppsetningu varðar, og hægt að fara með frúnni í fríið, keyra hringinn og taka einn hring nánast hvar sem staldrað er við,“ segir Birgir og kímir við. „En þó eru enn svæði þar sem verk er að vinna hvað þetta varðar. Annars vegar eru það Austfirðir, þar sem aðeins er að finna finna tvo velli, einn í Neskaupstað og annan lítinn á Eg- ilsstöðum, og svo eru það Vestfirð- irnir og Norðvesturland. Það er engan völl að finna við Skagafjörð- inn, til dæmis. Það er völlur á Flat- eyri en annars eru Vestfirðir enn óplægður akur.“ Að öðru leyti segir Birgir dreifinguna vera býsna góða um land allt, svo áhugafólk geti staldr- að við og spilað víðast hvar. „Það er meira að segja kominn heill frisbígolfvöllur á Möðrudals- öræfum og Grímseyingar eru búnir að safna fyrir einum slíkum og þangað fer mannskapur á vegum Frisbígolfsambandsins í næstu viku til að hanna völlinn. Það er ákaflega gaman að sjá þessa útbreiðslu, sem ekki sér fyrir endann á,“ segir Birgir, en þess má geta að þegar er velli að finna í Hrísey og Vest- mannaeyjum. Frisbígolfið er því fráleitt bundið við fasta landið! Árið um kring – frisbígolf Nú þegar eru hérlendis flestir frisbígolfvellir í heimi miðað við hina títtnefndu höfðatölu; við Ís- lendingar sláum ekki slöku við frek- ar en fyrri daginn. „Það sem mér finnst líka svo ánægjulegt er hve mikil ástundunin er,“ segir Birgir. „Þegar ekið er framhjá vellinum sem er á Klambratúni þá skiptir árstíminn ekki máli, það er nánast alltaf einhver að spila þar. Í vetur, á jóladag, ók ég þarna framhjá og var að skutla ömmu minni heim sem býr þar í næsta nágrenni. Þá sá ég að einhver hafði spilað fyrr um dag- inn því nýleg fótspor voru í snjón- um, og það sem meira er, það var allan hringinn. Fólk sleppir því varla degi úr þegar það er á annað borð komið á bragðið – það er spil- að alla daga.“ Áhugasamir geta nálgast upp- lýsingar um velli, diska og fleira inni á vefsvæðinu www.folf.is. Spilað alla daga ársins  Frisbígolf er tiltölulega ný íþrótt hér á landi  Þátttak- endum í þessu sporti hefur fjölgað mikið  Á Íslandi er að finna heimsins flesta frisbígolf-velli, miðað við höfðatölu Morgunblaðið/Golli Aðdráttarafl „Það kviknar einhver stemning í kringum þetta,“ segir Birgir Ómarsson um frisbígolfið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.