Morgunblaðið - 20.07.2017, Síða 76
76 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017
Magnús Gylfason, framkvæmdastjóri og fyrrv. knattspyrnuþjálf-ari, á 50 ára afmæli í dag. Hann þjálfaði m.a. Víking frá Ólafs-vík, enda er Magnús Ólsari, lengst samt með ÍBV og síðast
með Val árið 2014.
„Nú er ég kominn í stjórn KSÍ og fór inn í stjórnina þegar Guðni
Bergsson var kjörinn formaður í vor. Þetta eru mjög spennandi tímar,
landsliðin okkar eru að gera frábæra hluti á öllum vígstöðvum og núna
er maður límdur við skjáinn að fylgjast með stelpunum okkar á EM.
Þetta voru gríðarleg vonbrigði, úrslitin í síðasta leik, að fá þetta mjög
svo vafasama víti í lokin eftir að þær höfðu staðið sig frábærlega.“
Magnús er framkvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækisins Svalþúfu sem
hann stofnaði ásamt föður sínum og bróður árið 1995. „Við erum í svo-
kölluðum aukaafurðum í fiskvinnslu, erum bæði að þurrka og salta,
seljum þurrkaðar afurðir til Nígeríu og saltaðar afurðir til Spánar og
Portúgals. Það kom slæmt tímabil í eitt og hálft ár í sölunni til Nígeríu
en það hefur verið að batna allt þetta ár og selst allt sem við erum að
þurrka núna. Það er gengið sem er að trufla okkur núna.“ Um 35
manns vinna hjá Svalþúfu sem er til húsa í Hafnarfirði.
Fótbolti er eins og gefur að skilja mikið áhugamál hjá Magnúsi. „Svo
er maður í hestum, golfi og brids. Ég er fíkill á flestar íþróttir, en að-
allega þessar.“
Sambýliskona Magnúsar er Halldóra Sjöfn Róbertsdóttir, hársnyrtir
og eigandi Skala hárgreiðslustofu. Dóttir þeirra er Dagný Dís, fædd
1988, rekstrarverkfræðingur. Hún býr í París um þessar mundir og er
að læra frönsku í Sorbonne.
Blásið verður til veislu í tilefni af afmæli Magnúsar í dag milli klukk-
an 18 og 20 í húsnæði KSÍ.
Situr í stjórn KSÍ Magnús fylgist grannt með gengi stelpnanna okkar á
EM í fótbolta í Hollandi, en næsti leikur þeirra verður á laugardaginn.
Fylgist vel með
gangi mála á EM
Magnús Gylfason er fimmtugur í dag
D
óra S. Bjarnason fædd-
ist á Snorrahátíðinni
20. júlí 1947, í Tjarn-
argötu 18 í Reykjavík.
„Ég fæddist með silf-
urskeið í munni, en pabbi slasaðist
þegar ég var á níunda ári og dó þegar
ég var 11 ára og það breytti öllu. Því
fylgir þroski að missa foreldri sitt
svona ungur, en einnig kröfur sem
koma of snemma.“
Dóra gekk í Landakotsskóla og
var ári á undan í skóla, fór eitt ár í
Hagaskóla en tók landspróf frá
Kvennaskólanum í Reykjavík. „Þar
og í Menntaskólanum eignaðist ég
mína bestu vini. Sú vinátta verður æ
dýrmætari eftir því sem á líður
ævina.“
Dóra varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík og kenndi síð-
an í Hagaskóla í eitt ár. „Eftir stutta
viðkomu í sagnfræði og ensku við
Háskóla Íslands lá leið mín til Man-
chester á Englandi að læra félags-
fræði. Þar var ég í hópi með fleiri ís-
lenskum nemendum eins og Vil-
mundi Gylfasyni og íslensk pólitík oft
í brennidepli. Námið var skemmti-
legt og ég á enn vini úr þeim hópi.“
Dóra lauk BA-gráðu í félagsfræði
við Háskólann í Manchester 1971,
MA-gráðu við Keele-háskóla á Eng-
landi 1974 og hóf að skrifa doktors-
ritgerð um íslenska athafnamenn.
„Sem ég lauk ekki við. Löngu síðar
varði ég svo doktorsritgerð við Osló-
arháskóla um hugmyndir fatlaðra
ungmenna um það að verða fullorðin.
Loftur Guttormsson réð mig, 23
ára gamla, sem stundakennara við
nýstofnaðan Kennaraháskóla. Síðan
hef ég verið viðloðandi kennara-
menntun og fékk fasta stöðu 1980.“
Dóra varð prófessor við Kennara-
háskólann 2004 og er prófessor em-
erita við Háskóla Íslands frá og með
deginum í dag.
Sonurinn og starfið
„Þetta starf hefur ásamt syni mín-
um verið uppspretta minnar lífsham-
ingju. Það eru forréttindi að vinna
með ungu fólki og frábærum koll-
egum við kennslu og rannsóknir. Ég
hef skrifað mest um menntamál og
Dóra S. Bjarnason, prófessor emerita við Háskóla Íslands – 70 ára
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Tjarnargötu Dóra er komin aftur á bernskuslóðirnar, en hún býr núna sunnar í Tjarnargötunni.
Ný tækifæri og nýjar
áskoranir á leiðinni
Vinkonur Dóra, Ástríður Guð-
mundsdóttir, Ingibjörg Briem og
Ólöf Eldjárn á ferð til Vínarborgar í
tilefni af 65 ára afmæli þeirra.
Reykjavík Arngunnur Vala
Jónsdóttir fæddist 6. októ-
ber 2016 kl. 13.27. Hún vó
4.760 g og var 55 cm löng.
Foreldrar hennar eru Gerð-
ur Guðmundsdóttir og Jón
Pétur Jónsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
KRINGLU OG SMÁRALIND
DÖMUSKÓR
SKECHERS NEWWAVE DÖMUSANDALI
MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
STÆRÐIR 36-41
VERÐ ÁÐUR 7.995
VERÐ NÚ 5.596
30%
AFSLÁTTUR