Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 82

Morgunblaðið - 20.07.2017, Side 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 AF MYNDASÖGUM Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Það hefur orðið talsverð aukning í myndasöguútgáfu á Íslandi síðast- liðin ár og er þar einkum að þakka Froski útgáfu. Froskur hefur tekið upp keflið þar sem bókafélagið Ið- unn skildi við það fyrir mörgum ár- um og hefur fyrirtækið verið kröft- ugt í þýðingu og útgáfu erlendra myndasagna á íslensku; aðallega af fransk-belgíska myndasögumark- aðnum. Þaðan þekkjum við helst myndasöguhetjur líkt og Tinna, Sval, Ástrík og Lukku-Láka en Froskur hefur gætt þess að höggva ekki bara aftur í sama knérunninn og hefur gætt þess að birta nýjar og fjölbreyttar bækur samhliða því sem þeir kynna Íslendinga á ný fyr- ir gömlu, sígildu efni. Hér ætla ég að líta á fáeinar bækur sem Froskur gaf nýverið út. Heimsendi frestað Meðal bókanna er fimmta sag- an í bókaflokknum Tímaflakk- ararnir eftir Zep, Stan og Vince. Bækurnar fjalla um systkinin Soffíu og Snorra sem nota tímavél til að ferðast á milli tímabila í mannkyns- sögunni, yfirleitt af fremur létt- vægum ástæðum eins og til að koma í veg fyrir að skólinn sé fundinn upp eða að útvega sér þræl frá fornöld til að vinna hús- verkin fyrir þau. Í þessari bók, sem kom út á frum- málinu á hinu víðfræga ári 2012, ferðast Soffía og Snorri aftur í tíma til að hitta spámanninn Nostrada- mus og Maya-ættbálkinn til að segja þeim að færa yfirvofandi heimsendi á einhverja aðra tímasetningu. Þetta gera þau til þess að heimsend- irinn hrófli ekki við skólaleikriti þar sem Soffía á að leika aðalatriðið og vill nota til að heilla draumaprins- inn sinn upp úr skónum. Eins og þessi útdráttur kann að gefa til kynna er Tímaflakkararnir ekki bókaröð sem ætti að taka of al- varlega. Skopskyn bókarinnar er kjánalegt en þó sniðugt, skemmti- legt og fullt af ímyndunarafli. Hér er um að ræða hreingerðustu grín- bókina af þeim sem komu út hjá Froski að þessu sinni og er teikni- stíllinn í samræmi við það. Lóa tekst á við breytingar Lóa: Laser Ninja er fimmta bókin í bókaröð Julien Neel sem kemur út á íslensku. Af þeim bókum sem Froskur gaf út í ár er hún lík- lega sú sem höfðar til elstu lesend- anna – vegna skopskyns bók- arinnar, tilvísana í dægurmenningu og kynferðis held ég að hún myndi Þrjú Froskskvök í myndasögum helst höfða til ungra táninga og upp úr. Bókin tekur upp þráðinn þar sem fyrri bækur skildu við Lóu, fjórtán ára stúlku sem er nýbúin að missa heimili sitt í elds- voða. Um leið kemst hún að því að móðir hennar er ólétt að barni Ríkarðs, stjúp- föður Lóu. Í bókinni tekst Lóa á við þessar breytingar í lífi sínu sam- hliða því sem við sjáum glefsur úr umbrotatímum frá yngri árum móð- ur hennar. Ég vil byrja á að segja að bókin er mjög fyndin. Skopskyn höfund- arins er mjög hnyttið og sér- staklega er hin sérvitra móðir Lóu sprenghlægileg persóna. Andrúms- loftið í sögunni er rólegt en þó til- finningaþrungið og nær fram nokk- urri alvörugefni þótt bókin sé að mestu gamansöm. Teiknistíllinn er einfaldur og býsna stílfærður en það fer sögunni vel. Þetta er fimmta bókin í seríunni og ég mæli ekki með því að hún sé keypt án þess að hafa lesið hinar fyrri. Bækurnar segja saman nokkuð heilsteypta sögu af því sem drífur á daga Lóu og verður gaman að sjá fleiri bækur í flokknum koma út á íslensku. Leitin að „herra Duló“ Dagbækur Rakelar: Dýragarð- ur hugans eftir Joris Chamblain og Aurélie Neyret skarar fram úr sem langbest teiknaða bókin af þeim sem Froskur gaf út í þetta sinn. Teiknistíllinn er litríkur og afar fallegur auk þess sem persónurnar eru svipmiklar og viðkunnanlegar. Bókin er hin fyrsta í bókaflokki um Rakel, unga stúlku sem dreymir um að verða rithöfundur. Einn daginn kemur hún auga á dularfullan gamlan mann þakinn málningu úti í skógi og unnir sér ekki hvíldar fyrr en hún og vinkonur hennar komast að því hver „herra Duló“ er og hvað hann er að gera. Andrúms- loftið í bókinni er rólegt og sagan hugljúf en þó er einnig spennandi að sjá Rakel leysa úr ráðgát- unni sem höfundurinn setur upp. Ef ég yrði að finna eitthvað að bókinni væri það helst að úrlausn sögunnar í lokin er heldur skyndileg og að bókin reiðir sig aðeins um of á texta upp úr dagbók Rakelar í stað myndasöguramma til að ljúka sög- unni. Ef til vill er þetta smekks- atriði en persónulega finnst mér að myndasöguformið ætti að standa á eigin fótum og ekki grípa um of til frásagnar í hreinum texta líkt og sagan gerir í lokin. Auk þess er teiknistíll Aurélie Neyret svo falleg- ur að mann blóðlangar til þess að sjá sem mest af honum. En til þess eru væntanlega framhöldin, og hef ég það beint frá ritstjóra Frosks að þau séu væntanleg. Ég myndi fyrst og fremst mæla með bókinni fyrir börn á bilinu 8 - 12 ára. Þó tel ég að eldri lesendur geti líka haft gaman af henni því bókin talar ekki niður til manns þótt hún reyni að höfða til barna. Ég hvet líka foreldra sem eiga stráka í réttum aldurshópi til að útiloka ekki bókina vegna þess að hún sé „stelpubók.“ Ungir strákar eiga til að sniðganga bækur og kvikmyndir þar sem aðalpersónurnar eru stelp- ur og þykir mér það miður. Að neita að samsama sig persónum ólíkum sjálfum sér lokar ýmsum dyrum, dregur úr samúðarhæfni og lætur mann missa af mörgum góðum sög- um. Jean Posocco, ritstjóri Frosks, greindi mér frá því í viðtali fyrir stuttu að bækur eins og Dagbækur Rakelar og Lóa hefðu verið valdar til prentunar til þess að víkka les- endahóp myndasagna til stelpna en þó tók hann fram að hann teldi stráka einnig hafa gaman af þeim. Þar er ég honum sammála – ekkert við þessar bækur skiptir þeim í „stelpu-“ eða „strákabækur“ svo lengi sem þær eru vel gerðar og skemmtilegar, hver sem að- alpersónan kann að vera. »Ekkert við þessarbækur skiptir þeim í „stelpu-“ eða „stráka- bækur“ svo lengi sem þær eru vel gerðar og skemmtilegar. Dýragarður hugans Myndasagan er að mati blaðamanns sú best teiknaða af þeim sem Froskur var að gefa út. Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta. www.kjaran.is | sími 510 5520

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.