Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 1. J Ú L Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 174. tölublað 105. árgangur
SIGRÍÐUR LÁRA
LÆTUR FINNA
FYRIR SÉR
ART DIAGONALE
ÍSLENSKA OG
BARNAMENNING
HJARTANS MÁL
KORPÚLFSSTAÐIR 31 BARNABÆKUR 12EM Í FÓTBOLTA ÍÞRÓTTIR
„Það er ótrúlegur gangur þessa
dagana og liggur við að hægt sé að
sjá mun frá degi til dags. Það má
segja að verkefnið sé á lokametr-
unum,“ sagði Snæbjörn Sigurðsson,
verkefnastjóri Norðurþings, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær og vísar
í máli sínu til framkvæmda á Bakka
við Húsavík við kísilmálmverk-
smiðju PCC Bakka Silicon hf.
Snæbjörn sagði að á fimmta
hundrað manns störfuðu nú á
Bakka í uppbyggingunni, en nú er
verið að vinna jarðvinnu. „Það er
verið að reisa stálgrindarhús; það
er verið að steypa undirstöður und-
ir hús; það er verið að setja saman
ofnana sjálfa sem verða í verk-
smiðjunni og það er verið að setja
upp reykræstikerfið,“ sagði Snæ-
björn og bætti við að verið væri að
vinna „á öllum vígstöðvum“. »6
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bakki Framkvæmdir ganga nú vel við kís-
ilmálmverksmiðju PCC við Húsavík.
Unnið á öllum víg-
stöðvum á Bakka
við Húsavík
Tæplega 4.000 manns bíða spennt-
ir eftir hringmyrkva sem vænt-
anlegur er árið 2048 ef marka má
fésbókarsíðuna Sólmyrkvi 2048.
Umræður sem fram fara á síðunni
lýsa vel áhyggjum fylgjenda. Ein-
hverjir hafa áhyggjur af því að
verða uppteknir fimmtudaginn 11.
júní 2048, milli 11.20 og 14.15 þegar
hringmyrkvans er að vænta í
Reykjavík, en ætla að gera ráðstaf-
anir til þess að geta mætt. Aðrir von-
ast til þess að verða á lífi.
Ingvi Gautsson, forsvarsmaður
síðunnar, hlakkar til efri áranna. »8
Stemning fyrir sól-
myrkva árið 2048
Röskun á ferðum Herjólfs til
Landeyjahafnar á háannatíma
veldur ferðaþjónustuaðilum í
Vestmannaeyjum miklu tjóni.
Gísli Matthías Auðunsson, einn
eigenda veitingastaðarins Slipps-
ins í Vestmannaeyjum, og Kristín
Jóhannsdóttir, safnstjóri Eld-
heima, segja ótryggar samgöngur
rýra traust á ferðaþjónustuaðilum.
Tekjutap sem Slippurinn varð
fyrir vegna ótryggra ferða Herj-
ólfs nýverið er að mati Gísla Matt-
híasar tvær og hálf milljón króna.
Ferðaþjónustan hafi tapað á slipp-
töku skipsins í maí. Hann telur
fólk orðið langþreytt á ótryggum
samgöngum en bjartsýni verði að
ríkja.
Gunnlaugur Grettisson,
rekstrarstjóri Herjólfs, segir að
það eina sem bætt geti stöðuna nú
sé að dýpka Landeyjahöfn og það
sé verkefni Vegagerðarinnar.
Dýpkunarskipin Galilei og Dísa
séu bæði í slipp. »11
Þreytt á ótryggum ferðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Samgöngur Ótryggar ferðir Herj-
ólfs eru ferðaþjónustunni erfiðar.
Milljónatap Dýpkunarskip í slipp Bíða nýrrar ferju Heilbrigðisráðherra hefur sentbréf þar sem óskað er eftir tilnefn-
ingum í samráðsvettvang um vímu-
efnamál, skv. tillögu „Skýrslu heil-
brigðisráðherra um mótun stefnu
til að draga úr skaðlegum afleið-
ingum og hliðarverkunum vímu-
efnaneyslu, til aðstoðar og verndar
neytendum efnanna og félagslegum
réttindum þeirra, aðstandendum og
samfélaginu í heild“. Alþingi lýsti
árið 2014 með ályktun vilja sínum
til að endurskoða stefnu í vímu-
efnamálum og er skýrslan og fram-
kvæmd tillagna hennar í samræmi
við þá viljayfirlýsingu. »18
Samráðsvettvangur
um vímuefnamál
Eins konar brennsluveisla fór fram í Hafnarfirði
þegar fólk fjölmennti í fjörugan zúmba-tíma í
Suðurbæjarlaug. Þegar ljósmyndara bar að
garði voru þátttakendur í miklu stuði, dilluðu
mjöðmum og lyftu upp höndum, en hátt í 100
manns skelltu sér í laugina af þessu tilefni.
Morgunblaðið/Hanna
Dilluðu mjöðmunum í lauginni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ríkissjóður mun að óbreyttu þurfa
að kaupa kolefniskvóta fyrir millj-
arða króna á næsta áratug. Ástæðan
er losun gróðurhúsalofttegunda um-
fram markmið stjórnvalda um 20%
minni losun 2020 en árið 2005.
Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í
umhverfisráðuneytinu, segir óvíst
hversu mikil losunin verði umfram
spár. Hún verði gerð upp í einu lagi
fyrir árin 2013-2020. Síðan taki að
óbreyttu við frekari kaup á kvóta. Sá
kvóti verði keyptur á hnattrænum
markaði innan Kýótó-bókunarinnar.
Þau kaup fari hugsanlega fram í
gegnum þróunaraðstoð sem miðar
að minni losun í þróunarríkjum.
Hugi segir ekki hafa verið gert ráð
fyrir svo örum vexti ferðaþjónust-
unnar í loftslagsáætlunum. Næsti
áratugur verði tími aðlögunar.
„Við höfum haft ákveðið forskot.
Við erum með endurnýjanlega orku
fyrir rafmagn og hitun og höfum
kannski ekki fundið fyrir miklum
þrýstingi til þessa. Það er að breyt-
ast. Þetta eru alvöruskuldbindingar
og við munum tvímælalaust finna
fyrir því og jafnvel miklu frekar í
miklum hagvexti,“ segir Hugi.
Meðal markmiða aðgerðahóps
stjórnvalda var að losun frá sam-
göngum yrði 23% minni 2020 en
2008. Til samanburðar áætlar Vega-
gerðin að umferðin verði 31% meiri á
hringveginum í ár en 2008. Fjölgi
ferðamönnum frekar eykst umferð.
Milljarðar í kolefniskvóta
Ríkissjóður mun að óbreyttu fá milljarða reikning vegna losunar á næsta áratug
Gríðarleg aukning bílaumferðar er þvert á markmið stjórnvalda um minni losun
Aukist eða staðið í stað
» Að sögn Huga hefur losun
frá landbúnaði staðið í stað,
minnkað í sjávarútvegi en bíla-
umferð aukist umfram spár.
» Með hagvexti aukist losunin.
» Skv. Parísarsamningnum á
að draga úr losun um 35-40%
fyrir 2030, miðað við 2005.
MLosunin eykst … »10
„Við vorum
með sextíu
manns að leita,“
segir Gunnar
Ingi Widnes
Friðriksson,
stjórnandi að-
gerða björg-
unarsveita við
Gullfoss, en
björgunarmenn
leituðu í allan
gærdag árangurslaust að erlendum
karlmanni sem fór í fossinn sl. mið-
vikudag. Fengu leitarmenn m.a. að-
stoð frá þyrlusveit Gæslunnar.
Búið er að strengja net þar sem
Hvítá rennur undir Bræðratungu-
brú og munu björgunarmenn halda
leit áfram í dag. »2
Leit að manninum
haldið áfram í dag
Leit Bátar hafa
m.a. verið notaðir.