Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Franska söngkonan Barbarba Wel-
dens lést nýlega á miðjum tón-
leikum í bænum Gouldron í suðvest-
urhluta Frakklands. Frá þessu er
sagt á vefsíðu breska ríkisútvarps-
ins, BBC. Weldens var upprennandi
söngkona sem hafði gefið út sína
fyrstu hljómplötu fyrr á árinu og
unnið til verðlauna unglistamanna.
Hún var 35 ára þegar hún steig á
svið í kirkju í Gourdon og hneig
niður. Óvíst er hvernig dauða henn-
ar bar að en samkvæmt einni til-
kynningu er talið líklegt að hún
hafi fengið raflost.
Raflost Barbara Weldens hneig niður á
miðjum tónleikum, líklega vegna raflosts.
Söngkona dó á
miðjum tónleikum
Breska ríkis-
útvarpið birti ný-
lega fordæma-
lausan lista
hæstlaunaðra
starfsmanna
sinna. Listinn
hefur vakið all-
nokkra hneyksl-
an því launamun-
ur kynjanna
þykir mikill á honum. Frá þessu er
greint á vefsíðu The Guardian.
Hæstlaunaði karl í starfi hjá BBC
er Chris Evans, sem fær um 2,2
milljónir punda í árslaun, en hæst-
launaða konan, Claudia Winkle-
man, fær aðeins um fimmtung
þeirrar upphæðar. Aðeins ein önn-
ur kona, Alex Jones, fær greitt
meira en 400.000 pund í árslaun en
tólf menn fá greitt meira en það.
„Ég held að í dag höfum við séð
að BBC borgar konum minna en
karlmönnum í sömu störfum,“
sagði Theresa May forsætisráð-
herra um málið.
Launamunur BBC
vekur hneykslan
Chris Evans
Myndlistarmaðurinn Joris Radema-
ker opnar í kvöld kl. 19 sýningu í
galleríinu Kaktusi á Akureyri og
verður sýningin opin um helgina
frá kl. 14 til 17.
Joris útskrifaðist árið 1996 úr
myndlistarskólanum AKI í Ensc-
hede í Hollandi, hefur haldið yfir
40 einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga á ferli sínum. Í
janúar sl. sýndi hann í Berlín og
mun taka þátt í samsýningu í Lista-
safni Reykjavíkur í október.
Joris sýnir nýja skúlptúra, frá
síðustu tveimur árum, í Kaktusi og
er efnisval hans mjög fjölbreytt, að
því er fram kemur í tilkynningu. Í
verk sín notar hann annars vegar
efni sem hann finnur í náttúrunni,
t.d. greinar, hvönn, bein, fjaðrir,
rekavið, og hins vegar efni sem
hann kaupir í verslunum og má þar
nefna tréskó, reipi og keramíkegg.
„Oft er efnið sjálft uppspretta hug-
mynda að listaverki. Tengsl nútíma
mannsins við náttúrulegt umhverfi
er orðið ansi flókið. Það vantar oft
virðingu fyrir náttúrunni í okkar
neyslusamfélagi, eins og frum-
byggjarnir gerðu, notuðu bara það
sem þeir þurftu, hvorki meira né
minna. Þeir upplifðu sig hluta af
náttúrunni en ekki aðskilin,“ segir
í tilkynningunni og að í verkum
Joris vakni oft spurningar hjá
áhorfandanum um listfræði, heim-
speki og einnig umhverfismál og
samfélagsfræði. Aðalviðfangsefni
Joris mun vera tilvist mannsins í
tengslum við tíma, rými hreyfingu
og efnið.
Sýning Joris Rademaker í Kaktusi,
Hafnarstræti 73 á Akureyri.
Generalprufa í
galleríinu Kaktusi
Joris Rademaker opnar sýningu
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Við vorum að heimsækja móður-
skipið,“ segir Guðmundur Felixson
leikari um heimsókn leikhópsins
Improv Ísland á spunahátíðina Del
Close Marathon í New York í sum-
ar. „Þetta er fæðingarstaður spun-
ans – allt byrjaði þarna í þessu leik-
húsi. Það var ótrúlega mikil reynsla
að koma út í þennan spunaheim og
gaman fyrir okkur að sjá og læra
aðeins af því hvernig þau gera þetta
og taka okkur það til fyrirmyndar.“
Guðmundur segir það einkum
hafa verið skrýtið að ganga inn í
heim þar sem leikhússpuni nýtur
eins mikilla almennra vinsælda og í
New York. „Á Íslandi erum við bara
nördar í svona jaðarleiklist, sem er
að vísu að stækka, en að fara út og
vera umkringdur spunaleikurum í
risastóru samfélagi þar sem fólk
dýrkar þetta er alveg ótrúlegt. Við
fluttum auðvitað sýningu á ensku
fyrir fólkið á hátíðinni í mjög flottu
leikhúsi á góðum tíma.
Það er alltaf gott að stækka
reynslubankann og prófa að sýna
fyrir utan landsteinana. Það er allt-
af aðeins erfiðara að sýna á ensku
því það er náttúrlega ekki fyrsta
mál neins í hópnum. Ég held að
maður verði aðeins skrýtnari fyrir
vikið af því að það er svo mikið af
stereótýpum á ensku, svo mikið af
hreimum og skrýtnum karakterum
sem maður dettur óvart í. Svo lend-
ir maður oft í því að maður man
ekki rétta orðið og segir þá eitt-
hvert vitlaust orð og þá verður það
mjög skrýtið. Manni hættir til að
verða aðeins undarlegri á ensku.“
Leikhópurinn lætur það þó ekki
stöðva sig og ætlar að flytja tvær
sýningar á ensku í Tjarnarbíói, þá
fyrri í kvöld og þá seinni á fimmtu-
daginn. „Við reynum að hafa þetta
þannig að þegar leikárið er í gangi
sýnum við eins og venjulegt leikhús,
á íslensku, en þegar leikhúsið fer í
sumarfrí höfðum við til fólks á Ís-
landi sem hefur áhuga á spuna en
kann bara ekki íslensku. Svo geta
spunaáhugamenn á Íslandi komið
og séð sýningu hjá okkur á ensku, –
það skilja nú allir ensku.
Það var ansi góð æfing fyrir okk-
ur að fara út til New York. Við er-
um alltaf að verða betri og betri í
því. Við þróum okkur áfram með
alls konar tilraunum í þessu. Síðasta
vor vorum við með sýningar á barn-
um á Húrra en núna ætlum við að
prófa að vera í leikhúsrými. Við er-
um alltaf að prófa okkur áfram og
ég held að það verði bara stemning
fyrir fólk að kíkja, fá sér bjór og
setjast síðan með okkur eftir á og
ræða spunann.“
Fyllt í gat á markaðnum
Guðmundur segir leikhópinn hafa
verið starfræktan í um eitt og hálft
ár og hann sé í stöðugri endurnýj-
un. „Hópurinn telur núna u.þ.b.
tuttugu manns sem hafa allir æft
spuna í tvö, þrjú ár. Á þessum sýn-
ingum bætast við nokkrir sem voru
ekki með okkur í haust. Þá vorum
við bæði með sýningarhóp og svo-
kallaðan æfingarhóp. Þar er alltaf
nýtt fólk að læra meira og meira og
komast inn til að geta sýnt með
okkur. Nú eru að bætast við tíu nýir
leikarar sem hafa lagt hart að sér í
æfingarhópnum. Fólk úr þeim hópi
getur komið í prufu og út frá pruf-
unum uppfærum við reglulega sýn-
ingarhópinn. En maður lærir þetta
ekki og er svo bara kominn með
þetta. Við erum alltaf að æfa okkur.
Þetta er eins og að æfa íþróttir; við
þurfum að halda okkur í formi og
æfum alveg reglulega. Jafnvel þeg-
ar við erum að sýna einu sinni í viku
æfum við samt allavega einu sinni
eða tvisvar fyrir hverja sýningu. Ég
held að það sé bara að skila sér; við
erum alltaf að verða betri og betri.
Það var Dóra Jóhannsdóttir sem
stofnaði þennan leikhóp,“ heldur
Guðmundur áfram. „Hún sá það
sem hægt var að gera úti í New
York. Þar eru margar spunasýn-
ingar á hverjum degi og alltaf röð
út úr dyrum. Hún sá þetta, vissi að
það var ekkert svona á Íslandi og að
þetta var gat í markaðnum. Við vor-
um svo sannarlega sammála því
þegar hún kom hingað heim og
fannst þetta fáránlega gaman. Ég
held að það sé einmitt ástæðan fyrir
því hvað þetta er orðið vinsælt; öll-
um sem mæta á þetta finnst þetta
fáránlega gaman. Við dýrkum þetta
öll og erum ástfangin af þessu leik-
formi.“
Fyrri sýning Improv Ísland verð-
ur kl. 20.30 í kvöld í Tjarnarbíói. Sú
síðari verður á sama tíma og stað
fimmtudaginn 27. júlí.
„Ástfangin af þessu leikformi“
Spunaleikhóp-
urinn Improv
Ísland sýnir í tví-
gang í Tjarnarbíói
Morgunblaðið/Hanna
Eldhress Fimm meðlimir Improv Ísland eldhressir að lokinni æfingu í vikunni. Frá vinstri Fannar Guðmundsson,
Guðmundur Felixson, Sunna Björg Gunnarsdóttir, Adolf Smári Unnarsson og Vala Kristín Eiríksdóttir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Svampþvottastöð
Afkastamikil sjálfvirk
þvottastöð sem getur þvegið
allt að 50 bíla á klukkustund.
Opið virka daga kl. 8 -19
helgar kl. 10 – 18.