Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Deadpool, ofurhetjumynd um
klúran, kjaftforan og ódrepandi
brjálæðing, er sú kvikmynd sem
flestar kvartanir bárust út af til
breska kvikmyndaeftirlitsins,
British Board of Film Classifica-
tion (BBFC), af þeim sem sýndar
voru í fyrra. Frá þessu er sagt á
vefsíðu The Guardian. BBFC sér
um að ákveða aldurstakmörk fyr-
ir bíómyndir. Í tilkynningu frá
eftirlitinu segir að kvartanir hafi
borist vegna 51 atriðis í mynd-
inni. Á eftir koma myndirnar Sui-
cide Squad með 30 kvartanir og
Miss Peregrine’s Home for Pe-
culiar Children með 20 kvartanir.
Tilkynningin
færði rök fyrir
ákvörðun nefnd-
arinnar um að
banna myndina
áhorfendum
yngri en fimm-
tán ára og var
sérstaklega
bent á ofbeld-
issenur, klúrt
orðbragð og
kynlífsatriði. Tilvísanir í kynlíf
og blótsyrði þóttu aðallega birt-
ast í formi klúrra brandara sem
ættu ekki heima í mynd fyrir
yngri áhorfendur.
Deadpool fékk flestar kvartanir
allra kvikmynda ársins 2016
Ofurhetjan klúra,
Deadpool.
Sala á listaverkum upp á meira en
10 milljónir punda hefur stóraukist
í breska uppboðshúsinu Christie’s.
Frá þessu er greint á vefsíðu The
Guardian. Á fyrstu sex mánuðum
ársins hafa 38 listaverk selst yfir
þessum verðmörkum, en aðeins 14
höfðu selst á þeim tíma í fyrra. Sala
hefur aukist hvarvetna en 35% sölu-
ágóðans koma frá bandarískum
kaupendum og 30% frá Evrópu,
Rússlandi, Mið-Austurlöndum og
Indlandi. Guillaume Cerutti, for-
maður Christie’s, segist ánægður
með árangurinn og hann vonist eft-
ir svipuðu út árið og á því næsta.
Væntanlegt uppboð úr einkasafni
leikkonunnar Audrey Hepburn
þykir líklegt til að vekja spennu.
Sala listaverka upp á milljónir fer á flug
AFP
Uppgangur Starfsmaður uppboðs-
hússins Christie’s hengir upp verk.
Andre og Maria Jacquemetton,
handritshöfundar og framleið-
endur bandarísku sjónvarpsþátt-
anna Mad Men, standa nú að gerð
nýrrar glæpaþáttaraðar, The
Apaches. Frá þessu er greint á
franskri vefsíðu fréttamiðilsins
Huffington Post. Fyrirtækið Ende-
molShine France framleiðir þætt-
ina en þeir verða teknir upp á
ensku þótt þeir gerist í Frakklandi.
Nicolas Copperman, formaður
EndemolShine France, segir að
þættirnir verði eins konar blanda
af myndunum Gangs of New York
eftir Martin Scorsese og Moulin
Rouge eftir Baz Luhrmann og muni
gerast á „Belle Époque“-tímabilinu
í Frakklandi, á milli stríðsins við
Prússland og fyrri heimsstyrjald-
arinnar.
Sagan gerist í París og fjallar um
uppgang glæpagengja sem kallast
„Apasar“ („les Apaches“) í höfuðið
á amerísku frumbyggjaættbálk-
unum. Slík glæpagengi voru algeng
í París á þessu tímabili og voru
þekkt fyrir að leyfa konum að taka
virkan þátt í starfsemi sinni og fyr-
ir frjálslynd viðhorf sem stungu
mjög í stúf við samtímavenjur. Cop-
perman segir að stefnt sé að „metn-
aðarfullri“ þáttaröð átta til tíu
þátta til að byrja með. Ekkert var
gefið upp um það hvenær þættirnir
eiga að koma út.
Höfundar Mad Men snúa sér til Parísar
Auglýsingamenn John Slattery og Jon Hamm í hlutverkum auglýsingamannanna
Roger Sterling og Don Draper í sjónvarpsþáttunum Mad Men.
Töðugjöld Helga og hljóðfæraleikaranna
fara fram á Græna hattinum á Akureyri í
kvöld og hefst gleðin kl. 22. „Loks er gegnd-
arlausum heyskap lokið og þá hefst hömlu-
laust rokk og ról. Á rokkið ennþá séns? Eru
morðingjar í útlöndum? Þessum spurn-
ingum verður svarað á Græna hattinum,“
segir um uppákomuna í tilkynningu.
Annað kvöld er svo komið að Eyjólfi
„Eyfa“ Kristjánssyni en hann hélt í byrjun
maí tónleika á Rosenberg í Reykjavík fyrir
fullu húsi og nefndust þeir „Kvöldstund með
Eyfa og gestum“. Á þeim flutti Eyfi lög af 30 ára ferli sínum ásamt hljóm-
sveit og gestum. Hann mun nú endurtaka leikinn norðan heiða og með hon-
um leika Jóhann Hjörleifsson á trommur, Haraldur Þorsteinsson á bassa,
Einar Örn Jónsson á hljómborð, Ingi G. Jóhannsson á gítar og hann syngur
einnig bakraddir ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur. Sérstakir gestir Eyfa
þetta kvöld verða söngvararnir Bergþór Pálsson og Sigrún Waage og ekki
útilokað að fleiri bætist í hópinn. Líkt og hjá Helga og hljóðfæraleik-
urunum hefjast tónleikar Eyfa kl. 22.
Töðugjöld og kvöldstund með Eyfa
Sing Street
Ungur drengur sem elst upp
í Dublin á níunda áratugnum
fer að heiman og stofnar
hljómsveit.
Metacritic 79/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 18.00, 20.00
Slack Bay
Gamanmyndin fjallar um
morðgátu á norðurströnd
Frakklands um 1910.
Metacritic 66/100
IMDb 6,1/10
Bíó Paradís 22.00
Velkomin til Noregs
Petter Primus er maður með
stóra drauma, sem verða
sjaldnast að veruleika.
IMDb 6,3/10
Bíó Paradís 17.30
Hrútar
Tveir sauðfjárbændur á sjö-
tugsaldri, bræðurnir Gummi
og Kiddi, búa hlið við hlið í
afskekktum dal á Norður-
landi. Þrátt fyrir að deila
sama landi og lífsviðurværi
þá hafa bræðurnir ekki tal-
ast við í fjóra áratugi.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.15
Hárið
Söngleikur sem gerist á
hippatímabilinu þegar Víet-
nam-stríðið var í algleym-
ingi.
Metacritic 68/100
IMDb 7,6/10
Bíó Paradís 20.00
Valerian 12
Valerian og Laureline eru
send til stórborgarinnar
Alpha, byggð af þúsundum
mismunandi, framandi vera.
Metacritic 52/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 16.20, 16.40,
19.20, 19.50, 22.15, 22.45
Háskólabíó 18.00, 21.00
Laugarásbíó 06.00, 16.00,
19.00, 22.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.40
Baby Driver 16
Baby er ungur strákur sem
hefur það hættulega starf að
keyra glæpamenn burt frá
vettvangi og er bestur í
bransanum.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 86/100
IMDb 8,3/10
Laugarásbíó 22.20
Smárabíó 20.00, 22.30
Háskólabíó 21.00
Transformers:
The Last Knight 12
Metacritic 28/100
IMDb 5,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.00,
22.00
Wonder Woman 12
Herkonan Diana, prinsessa
Amazonanna, yfirgefur
heimili sitt í leit að örlög-
unum.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 76/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.50
The House 16
Faðir sannfærir vin sinn um
að stofna ólöglegt spilavíti í
kjallaranum eftir að hann og
eiginkona hans eyða há-
skólasjóði dóttur sinnar.
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.40,
22.30
Sambíóin Akureyri 20.00
Baywatch 12
Morgunblaðið bbnnn
Metacritic 37/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 20.00
Ég man þig 16
Ungt fólk sem er að gera
upp hús á Hesteyri um miðj-
an vetur fer að gruna að þau
séu ekki einu gestirnir í
þessu eyðiþorpi.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 20.00
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 20.00
Pirates of the
Caribbean: Salazar’s
Revenge 12
Jack Sparrow skipstjóri á á
brattann að sækja enn á ný
þegar illvígir draugar.
Metacritic 39/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Kringlunni 16.50,
19.30
All Eyez on Me 12
Metacritic 38/100
IMDb 6,1/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Sambíóin Kringlunni 22.30
Sambíóin Akureyri 22.00
Aulinn ég 3 Gru hittir löngu týndan tví-
burabróður sinn, hinn
heillandi, farsæla og glað-
lynda Dru, sem vill vinna
með honum að nýju illvirki.
Metacritic 55/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 16.00, 18.00
Sambíóin Álfabakka 14.00,
15.00, 16.00, 17.00, 18.00,
19.00, 20.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Smárabíó 15.00, 15.20,
17.30
Háskólabíó 18.00
Borgarbíó Akureyri 18.00
Bílar 3 Leiftur McQueen þarf að
víkja fyrir nýrri kynslóð hrað-
skreiðra kappakstursbíla. Til
að fá að aftur að taka þátt í
leiknum þá þarf hann að fá
aðstoð hjá áhugasömum
tæknimanni sem er með sín-
ar eigin hugmyndir um
hvernig hægt er að vinna
kappaksturinn.
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 14.00,
14.50, 16.20
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 17.40
Sambíóin Akureyri 17.40
Sambíóin Keflavík 17.30
Hjartasteinn
Örlagarík þroskasaga sem
fjallar um sterka vináttu
tveggja drengja.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 17.30
Hinn ungi Peter Parker (sem við þekkjum öll sem
Spider-Man) birtist okkur fyrst í Captain America:
Civil War. Nú þarf hann að fóta sig í nýja ofurhetju-
hlutverki sínu í Spider-Man.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 73/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Keflavík 19.40
Smárabíó 17.00, 19.40, 22.30
Háskólabíó 21.10
Borgarbíó Akureyri 17.20, 20.00
Spider-Man: Homecoming 12
War for the Planet of the Apes 12
Í þriðja kaflanum í hinni vinsælu seríu neyðast Caesar og ap-
arnir til að fara í blóðugt stríð við her manna, undir stjórn
Colonel.
Metacritic 82/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 18.00, 21.00
Sambíóin Egilshöll 18.00,
19.45, 22.35
Sambíóin Keflavík 22.20
Smárabíó 17.00, 19.50, 22.50
Háskólabíó 17.50, 20.50
Borgarbíó Akureyri 22.40
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Dunkirk 12
Myndin fjallar um Operation
Dynamo árið 1940, þegar 340
þúsund hermenn bandamanna
voru frelsaðir úr sjálfheldu.
Metacritic 96/100
IMDb 9,2/10
Sambíóin Álfabakka 15.20, 17.40, 20.00, 21.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 21.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 18.00, 20.20, 22.10, 22.40
Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.20
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna