Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Dulúð Snæfellsnes leynir á sér og þar er ákveðinn kraftur, sem ýmist er augljós og allt að því áþreifanlegur eða safnast fyrir í skýjunum og þokunni og bíður eftir að leysast úr læðingi.
RAX
Tilvist guðs hefur
verið lærðum og leik-
um deiluefni um aldir.
Sérstaklega hafa lærð-
ir menn mikillar rök-
hyggju kveðið fast að
orði í efasemdum sín-
um um tilvist guðs.
Sagt er að franski
heimspekingurinn og
stærðfræðingurinn
René Descartes hafi
tekið rimmu um tilvist guðs við efa-
hyggjumann. Skynsemishyggju-
maðurinn Descartes leiddi út með
langri stærðfræðilegri sönnunar-
aðferð einhvern vísdóm, sem var að
sönnu fagur, en sagði svo að niður-
staðan væri til sönnunar á tilvist
guðs, „Dieu existe“. Andstæðingur
Descartes gat ekki hrakið þessa
sönnun!
Víst er að margt er fallegt í
stærðfræðinni. Þannig er regla
Pýþagórasar af Samos fegurðin ein
í einfaldleika sínum, A2 + B2 = C2.
Þetta er hið fullkomna jafnvægi í
þríhyrningnum.
Á sama hátt er það fegurð að
hlutfall samliggjandi tveggja talna í
Fibonacci-röð er 1,6180, sem er fyr-
ir guðsglettni „Hið gullna hlutfall“
eða gullinsnið, en það er gegnum-
gangandi í húsagerðarlist allra alda.
Gluggarnir í Skálholts-
dómkirkju
Listakonan Gerður Helgadóttir
hannaði gluggana í Skálholts-
dómkirkju. Hún virðist byggja
táknhyggju sína á kenningum
tveggja heimspekinga, Rene Gilles,
en rit hans heitir „Le Symbolisme
dans l’art religieux“, og Lanza Del
Vasto, en rit hans heitir „Comment-
ario de l’evangile“.
Listakonan segir réttilega að all-
ar tölur eigi sitt raunverulega form
í náttúrunni, sam-
hverfa laufblaða, eða
sexhyrningur stuðla-
bergsins sem er tákn
hins fullkomna jafn-
vægis og lágmarks
orkuástands. Og
gleymum ekki blómi
liljunnar.
Talan þrír er sú
fyrsta sem hægt er að
byggja á lokað form,
sem er þríhyrning-
urinn. Þannig er þrí-
hyrningurinn tákn
heilagrar þrenningar þegar eitt
hornið snýr upp en afneitun sann-
leikans og hins helga ef eitt hornið
snýr niður.
Í tölunni fjórir kemur fram
krossformið, tákn kirkjunnar eftir
krossfestingu frelsarans.
Í gluggum Skálholtskirkju koma
fyrir geometrísk form frá þríhyrn-
ingi upp í átthyrning auk tólfhyrn-
ings. Og auðvitað krossinn.
Kirkjusagan og frásagnir
Hinnar helgu bókar
Gluggar Skálholtskirkju eru hver
og einn helgaðir ákveðnu efni.
Þannig eru tveir gluggar helgaðir
þeim feðgum Gissuri hvíta, Ísleifi
biskupi, syni hans og Gissuri bisk-
upi, sonarsyni. Þessir feðgar lögðu
grunn að kristni og kirkju með því
að gera Skálholt að biskupsstóli og
síðar að hlúa að kristni í öllu land-
inu með því að Gissur Ísleifsson
stofnaði biskupsstól á Hólum.
Þorlákur helgi Þórhallsson er
verndardýrlingur Íslands og Ís-
lensku þjóðarinnar. Heilagur Þor-
lákur er jafnframt verndardýr-
lingur hinnar heilögu Péturskirkju í
Skálholti en hann var svo heilagur
að hann drakk aldrei vatn heldur
neytti aðeins víns.
Þrír gluggar kirkjunnar eru helg-
aðir heilögum Þorláki. Það eru þeir
gluggar sem næstir eru altarinu í
kirkjuskipinu og stafnglugginn yfir
kirkjudyrum.
Að auki fá þeir biskuparnir
Klængur og Páll sína glugga. Um
glugga Páls biskups er vísað til
sögu hans. Þar segir: „Ok þá er
hann kom út til Íslands, þá var
hann fyrir öllum mönnum öðrum að
kurteisi lærdóms síns, versagerð og
bóklist. Hann var svo mikill radd-
maður og söngmaður, að af bar
söngur hans og rödd öðrum mönn-
um, þeim er voru honum samtíða.“
Í glugga margfaldast ljósbrotið í
sexhyrningi, sem er tákn hins full-
komna jafnvægis og samræmis sem
„svarar til starfsemi Páls biskups
er hann prýddi kirkjuna í hvívetna“.
Í kórnum eru samtals átta
gluggar í tveimur einingum. Þeir
vísa til sköpunarsögunnar: „Þá
sagði guð verði ljós og þá varð
ljós.“ Þar er sjöhyrningurinn sem
tákn sköpunarinnar. Þessum glugg-
um er valinn staður beggja vegna
kórsins. Í mannshjartanu er bæði
hið góða og hið illa sem eilíft brjót-
ast um í mannverunni. Í mannlífinu
er sköpun og sundrung.
Jafnframt eru gluggar sem vísa
til frásagna í guðspjöllum Matteus-
ar, Markúsar og Jóhannesar auk
Opinberunarbókar Jóhannesar.
Þannig segir um einn gluggann:
„Og allir neyttu og urðu mettir.“
Hið bjarta og ávala form, sem sam-
einast því dökkrauða, táknar brauð-
ið og vínið.
Í þeim glugga er vísað er til
Opinberunarbókar Jóhannesar: „Ég
er Alfa og Ómega, hann sem er og
var og kemur, hinn alvaldi.“ Þar er
krossinn aðalformið. Jafnframt er í
glugganum tólfhyrningur sem vísar
til postulanna tólf.
Í gluggum í efri röð kirkjuskips-
ins eru 10 tákn úr kristindómnum
færð í mynd. Að sjálfsögðu er þar
fiskurinn, sem er tákn Jesú Krists,
kaleikur, sem tákn kvöldmáltíð-
arinnar og þyrnikórónan, sem
Kristur bar við krossfestinguna.
Allir bera gluggarnir litafegurð
vitni.
Skálholtshátíð
Um þessa helgi er haldin Skál-
holtshátíð, sem ætíð er haldin á
sunnudegi sem næst vígsludegi
Skálholtsdómkirkju og Þorláks-
messu á sumri. Skálholt var höf-
uðstaður þjóðarinnar um margar
aldir en verður það aldrei aftur.
Engu að síður skipar staðurinn
ætíð hefðarsess í huga þjóðarinnar.
Vígslan árið 1963 var mikil hátíð.
Þá sagði biskup Íslands: „Skálholt
er meira en minningin og hærra en
sagan.“ Víst er að vígslan vísaði til
annars og meira en einnar kirkju.
Niðurlægingu Skálholts eftir móðu-
harðindi var lokið. Ísland var orðið
sjálfstætt lýðveldi og aðeins sigrar
framundan. Skálholtsstaður var
færður kirkjunni að gjöf til að hafa
þar forræði um starfsemi og fram-
kvæmdir.
Velunnarar kirkjunnar færðu
henni gjafir. Norðmenn gáfu gólf-
efni. Danskir velunnarar færðu
kirkjunni glugga Gerðar Helgadótt-
ur. Altaristafla Nínu Tryggvadótt-
ur, þar sem frelsarinn birtist mann-
inum úr tóminu, kom síðar.
Þegar kirkjan og þjóðin hafa
eignast gersemar þarf að varðveita
þær. Nú hafa veður og máttarvöld
unnið á gluggum og altaristöflu.
Það er enginn nema þjóðin sem
getur staðið undir því sem gera
þarf.
Þjóðin á ýmsar gersemar. Það er
meira en þegar Jón Hreggviðsson
hjó niður klukku sem hékk í stafni
Lögréttuhússins á Þingvöllum. Þá
átti þjóðin aðeins eina sameign.
Þessum gersemum verður að
huga svo vel að og viðhalda, að
ókomnar kynslóðir fái notið þeirra
eins og þjóðin í dag.
Eftir Vilhjálmur
Bjarnason »Heilagur Þorlákur er
jafnframt verndar-
dýrlingur hinnar heil-
ögu Péturskirkju í Skál-
holti en hann var svo
heilagur að hann drakk
aldrei vatn heldur neytti
aðeins víns.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur er alþingismaður
Táknmál trúar og stærðfræði
Ljósmynd/Bóas Kristjánsson
Listaverk Hin nýja Jerúsalem.