Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017 Það borgar sig að kynna sér málið Myndir segja eitt – upplifunun á staðnum segir allt Við fylgjum þér í hverju skrefi í ferlinu Íslenskir tengiliðir alla leið Euromarina er 45 ára byggingarfélag og fasteignasala sem þú getur treyst 100% Hótel Hafnarfjörður Reykjarvíkurvegur 72 KYNNINGARFUNDUR 22.JÚLÍ KL.13 -16 KÍKTU TIL OKKAR Á HÓTEL HAFNARFJÖRÐ Sölufulltrúar Euromarina og lögfræðingur frá Pellicer&Heredia í samvinnu við Garðatorg eignamiðlun munu útskýra kaupferlið á nýjum eignum á Spáni og fara yfir öll helstu atriði sem mikilvægt er að hafa í huga varðandi kaup á nýrri fasteign. Við munum sýna þér úrval eigna á Costa Blanca svæðinu og hjálpa þér að finna drauma eignina. Í boði er þriggja nátta gisting á Hótel La laguna og skoðunarferð um svæðið fyrir hugsanlega kaupendur. 21. júlí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 102.57 103.05 102.81 Sterlingspund 133.62 134.26 133.94 Kanadadalur 81.26 81.74 81.5 Dönsk króna 15.934 16.028 15.981 Norsk króna 12.669 12.743 12.706 Sænsk króna 12.382 12.454 12.418 Svissn. franki 107.45 108.05 107.75 Japanskt jen 0.9146 0.92 0.9173 SDR 143.34 144.2 143.77 Evra 118.52 119.18 118.85 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.5921 Hrávöruverð Gull 1236.55 ($/únsa) Ál 1906.0 ($/tonn) LME Hráolía 48.7 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Ársverðbólgan hækkaði úr 1,5% í 1,8% í júlí, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,02% milli mánaða í júlí, sem er í nokkru samræmi við spár markaðsaðila. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,27% á milli júní og júlí. Án húsnæðis hefur verið 3,1% verð- hjöðnun undanfarna tólf mánuði. Í Markaðspunktum Arion banka segir að hækkun húsnæðisverðs og flugfar- gjalda til útlanda hafi sérstaklega knúð áfram verðbólguna í júlí en á móti vegi áhrif vegna sumarútsala. Telur bankinn að sjá megi fyrstu skýru vísbending- arnar um betra jafnvægi á fasteigna- markaði í formi vægari hækkunar vísi- tölu íbúðarverðs milli mánaða í júní. Verðbólgan mælist 1,8% síðustu 12 mánuði STUTT BAKSVIÐ Gísli Rúnar Gíslason gislirunar@mbl.is Markaðsaðilar sem Morgunblaðið ræddi við sögðu að undanfarið hefði talsvert borið á áhuga á skráningu á First North og að allir væru að líta í kringum sig hvað fjármögnunarleiðir varðar. Það einskorðist ekki við ferðaþjónustu heldur einnig nýsköp- unarfyrirtæki, fjármálafyrirtæki og önnur félög í vexti. Þó eru einungis þrjú félög nú skráð á markaðstorgið hér á landi. „Það getur vel verið að margir ann- að hvort viti ekki af First North markaðstorginu eða sjái ofsjónir yfir ferlinu, sem er í sjálfu sér mun ein- faldara en flestir gera sér grein fyrir. Markaðstorgið er góður fjármögnun- arkostur fyrir fyrirtæki í vexti,“ segir Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallarinnar. Betur nýtt á Norðurlöndum First North er markaðstorg fjár- málagerninga þar sem allar reglur eru einfaldari og kostnaður lægri. Þá eru gerðar minni kröfur til rekstrar- sögu, markaðsvirðis og fleiri atriða heldur en í Kauphöllinni. Markaðs- torgið er gjarnan notað sem stökk- pallur inn í Kauphöllina en getur jafn- framt verið fjármögnunarkostur fyrir fyrirtæki í vexti og er í raun ekki mik- ið flóknara ferli en að taka bankalán, að sögn Magnúsar. „Það er mjög athyglisvert að bera stærð félaga á First North markaðs- torgum á Norðurlöndunum saman við íslenska markaðstorgið. Mestur fjöldi félaga er skráður á First North markaðstorgið í Stokkhólmi, en þar er helmingur félaganna undir tveggja milljarða króna markaðsvirði og markaðsvirði ríflega 70% félaganna er innan við 5 milljarðar króna. Á ís- lenska markaðstorginu er aftur á móti aðeins eitt félag sem er undir 5 milljörðum króna að markaðsvirði,“ segir Magnús. Þau þrjú félög sem eru skráð á First North markaðstorgið í dag eru Hampiðjan, Icelandic Seafood og Sláturfélag Suðurlands. „Mengið er kannski ekki alveg marktækt þar sem það eru bara þrjú félög á markaðnum en þetta sýnir okkur að það er mjög lítið af vaxtarfyrirtækjum sem sækja á íslenska markaðstorgið í saman- burði við Norðurlöndin.“ Betrumbætt umhverfi Sögulega hafa mjög fá fyrirtæki verið skráð á First North markaðs- torgið hérlendis. Undanfarin ár hefur umhverfið þó vænkast umtalsvert, en það er einna helst vegna hærri þrösk- ulda fyrir lýsingar sem geta verið kostnaðarsamar og krafist talsverðr- ar vinnu. „Ríkisstjórnin á hrós skilið fyrir að hækka þröskuldinn á undan- þágunni frá lýsingum. Það skiptir verulegu máli vegna þess að það eru mjög mörg smærri félög sem eru kannski að leita sér að 200-250 milljón króna fjármögnun og geta það nokk- uð auðveldlega á First North eftir breytinguna. Þá hafa fjárfestingar- heimildir lífeyrissjóðanna varðandi First North félög verið rýmkaðar,“ segir Magnús. Settu skráninguna á bið Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa íhugað skráningu á markaðstorg er Alp, sem rekur fjórar bílaleigur. Hjálmar Pétursson forstjóri fyrir- tækisins staðfestir að félagið hafi ver- ið í undirbúningi fyrir skráningu á First North en sett ferlið í biðstöðu vegna „óvissu í efnahagsmálum, óró- leika í ferðaþjónustu og ömurlegrar ríkisstjórnar“. Nokkur félög sögð íhuga skráningu á First North First North Kauphöll telur markaðstorgið vannýtt og lítur til ferðaþjónustu. Horfa til ferðaþjónustu » Kauphöllin telur að mörg ferðaþjónustufélög gætu haft hag af skráningu og að þau gætu nýtt skráninguna til að vaxa og kaupa önnur fyr- irtæki. » Nokkur félög hafa íhugað skráningu á First North Mark- aðstorgið á árinu.  Leiðin á First North einfaldari en margir halda  Markaðstorgið talið vannýtt Fjármálaeftirlitið hefur sett reglur sem hámarka leyfilegt veðsetningar- hlutfall nýrra fasteignalána. Sam- kvæmt reglunum skal veðsetningar- hlutfall vera að hámarki 85% af markaðsverði fasteignar, en allt að 90% af markaðsverði þegar um er að ræða fjármögnun kaupa á fyrstu fasteign. Frá þessu var greint á vef fjármálaráðuneytisins í gær. Tilgangur reglnanna er að sögn FME sá „að varðveita fjármálastöð- ugleika og treysta viðnámsþrótt lán- veitenda og lántaka gagnvart mögu- legum viðsnúningi á fasteignaverði, nú þegar vaxandi spennu gætir á húsnæðismarkaði“. Í tilkynningu FME segir að raun- virði íbúðahúsnæðis hafi hækkað umtalsvert síðustu misseri og hafi ársvöxtun þess reynst 21,2% í júní síðastliðnum. Vísbendingar séu um að áfram verði þrýstingur á fast- eignaverð. Hækkun húsnæðisverðs fram að miðju ári 2016 var að miklu leyti í samræmi við áhrifaþætti húsnæðis- verðs, svo sem laun og bygginga- kostnað. Undanfarin misseri hafa orðið frávik frá þessari þróun og vax- andi misvægis hefur gætt milli hús- næðisverðs og þessara undirliggj- andi þátta. FME segir gögn stofnunarinnar sýna að lánastofnanir hafi slakað á lánaskilyrðum að undanförnu sam- hliða aukinni samkeppni á fasteigna- lánamarkaði. Vöxtur útlána til heim- ila hefur þó verið hóflegur. Eftirlitið ítrekar að reglurnar séu einkum settar til að tryggja að lán- veitendur slaki ekki frekar á lána- skilyrðum í ljósi harðnandi sam- keppni á fasteignalánamarkaði nú þegar hækkanir á verði íbúðarhús- næðis séu mjög miklar, vextir fari lækkandi og misvægis gæti milli verðþróunar og þeirra efnahags- þátta sem jafnan skýra þróun hús- næðisverðs. FME hyggst endurskoða reglur um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda reglulega með hliðsjón af þróun á íbúða- og fasteignalánamarkaði. Morgunblaðið/Styrmir Kári Eftirlit FME hefur sett hámark á veðsetningarhlutfall fasteignalána. FME setur reglur um veðsetningu  Veðsetningarhlut- fall allt að 85% en 90% fyrir fyrstu eign

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.