Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Hollvinasamtaka Heilsustofnunar NLFÍ,
Hveragerði
verður haldinn á Heilsustofnun NLFÍ í Hvera-
gerði kl. 20.00 miðvikudaginn 26. júlí.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Hvetjum hollvini og áhugasama um Heilsu-
stofnunina til að mæta.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Fannagil 28, Akureyri, fnr. 227-4147 , þingl. eig. Axel Gunnar Vatnsdal
og Margrét Baldvinsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðju-
daginn 25. júlí nk. kl. 10:45.
Freyjunes 10, Akureyri, fnr. 229-8384 , þingl. eig.Teikn á lofti - ráðgjöf
og hönn, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Íslandsbanki hf.
og Sýslumaðurinn á Norðurlandi eys, þriðjudaginn 25. júlí nk. kl.
11:30.
Eyrarvegur 25, Akureyri, fnr. 214-6062 , þingl. eig. Sæbjörg Rut
Guðmundsdóttir og Ómar Valur Steindórsson, gerðarbeiðendur Akur-
eyrarkaupstaður og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 25. júlí nk. kl. 10:00.
Vættagil 32, Akureyri, fnr. 222-6608 , þingl. eig. Fanney Sigrún Ingva-
dóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Íbúðalánasjóður og
Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 25. júlí nk. kl. 11:15.
Sunnuhlíð 12, Akureyri, fnr. 215-1120 , þingl. eig. Ökuskólinn á Akur-
eyri ehf, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Húsfélagið Sunnu-
hlíð 12 og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 25. júlí nk. kl.
10:30.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
20. júlí 2017
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar/útskurður m./leiðb. kl. 9-16. Opið hús kl. 13-16.
Félagsstarfið er með opið í sumar frá kl. 8.30-15.45. Hádegismatur,
steikt lambakjöt, kl. 11.40-12.45. Kaffiveitingar á vægu verði kl. 15-
15.45. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Allir velkomnir nær og
fjær.
Dalbraut 18-20 Morgunsopi og dagblöð kl. 9, hádegismatur 11.30.
Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara í síma 617-
1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.45. Félagsvist í
Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 10-14. Prjónakaffi kl. 10-12.
Heitt á könnunni, allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9 Handavinna, kl. 20 Félagsvist FEBK.
Gullsmári Fjölsmiðja kl. 9, leikfimi kl. 10, ganga kl. 10,
Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir!
Hvassaleiti 56 -58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45. Matur kl. 11.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl.
13.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23 -
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Húsnæði óskast
Fjölskylda óskar eftir 4+herb
íbúð
Fimm manna fjölskyldu frá Akureyri
bráð vantar 4+ herb íbúð á
höfuðborgarsvæðinu. Reyklaus og
skilvirkum greiðslu heitið. Email:
55@55.is, S: 771 3455. Mbk, Sindri.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Tvær sumarhúsalóðir og tveir
hlutar í flugskýli til sölu.
Til sölu í kjarrivöxnu landi í Haukadal
á Rangárvöllum tveir hlutar í flugskýli
hvor um sig 80 fm seljast saman eða
hvor í sínu lagi. Auk þess til sölu tvær
sumarhúsalóðir á sama stað.
Tilvalið tækifæri fyrir hvort sem er
flugáhugafólk eða þá sem hafa
áhuga á góðu geymslurými fyrir hjól-
hýsi, tjaldvagna eða önnur tæki.
Allar nánari upplýsingar í símum
898 0626 og 899 2174
Ýmislegt
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Mér er það bæði
ljúft og skylt að
minnast föður míns
Þorsteins Bjarna-
sonar frá Borgar-
nesi við þessi tíma-
mót þegar eitt
hundrað ár eru liðin
frá fæðingu hans.
Pabbi heitinn var
fæddur á bænum
Sælingsdalstungu í
Hvammssveit í Döl-
um vestur þann 21. júlí árið
1917. Foreldrar hans voru hjón-
in Bjarni Guðbrandsson og
Kristín Sæmundsdóttir, sem þar
dvöldu í húsmennsku. Fyrir áttu
þau soninn Sæmund Bjarnason
sem fæddur var árið 1912. Með
þeim bræðrum voru miklir kær-
leikar alla tíð og gagnkvæm
væntumþykja.
Eins og tíðkaðist í þá daga
þegar aðstæður voru erfiðar var
börnum oft komið í fóstur til
vandalausra og varð það hlut-
skipti pabba að fara sem barn að
aldri í fóstur að Skarfsstöðum í
Hvammssveit hjá því fólki sem
þar bjó og átti hann þar góð ár í
skjóli Þórðar fóstra síns, sem
hann minntist alla tíð með mikilli
virðingu. Um unglingsár fór
hann síðan í fóstur að bænum
Svalhöfða í Laxárdal hjá þeim
hjónum Sigurjóni og Sigríði sem
þar bjuggu ásamt syni sínum
Gísla, sem var nokkru eldri,
kært var með þeim fóstbræðr-
um. Einnig naut hann þess að á
næsta bæ að Sólheimum bjó
frændi hans Eyjólfur Jónasson,
kunnur hestamaður og átti með-
al annars soninn Ingva, sem var
jafnaldri pabba og þegar hlé
varð frá dagsins önn voru þeir
Þorsteinn
Bjarnason
frændur óaðskiljan-
legir og nutu sam-
vista hvor við annan
í leik og starfi og
milli þeirra frænda
var djúp vinátta.
Um 17 ára aldur
fluttist pabbi að
bænum Fjósum í
Laxárdal til for-
eldra sinna sem þar
bjuggu og var hann
þar heimilisfastur.
Fékkst hann við eitt og annað,
refarækt, vegavinnu, akstur hjá
Kaupfélagi Hvammsfjarðar og
annað sem til féll. Hann flutti
síðan suður í Borgarnes árið
1946 þegar hann réð sig til
starfa sem bifreiðarstjóri og
skrifstofumaður hjá Verslunar-
félagi Borgarfjarðar. Var hann
þá heitbundinn móður minni,
Sigríði Helgu Aðalsteinsdóttur
frá Vígholtssöðum í Laxárdal, og
áttu þau þá soninn Unnstein,
sem fæddur var árið 1945. Hann
lést 1965. Móðir mín flytur síðan
í Borgarnes haustið 1949 og með
henni Unnsteinn og Sigurður,
fæddur 1949. Þau bjuggu sér
hlýlegt og fallegt heimili að Eg-
ilsgötu 8 í Borgarnesi og þar
fæddust þeim synirnir Bjarni
Kristinn, 1959, og Unnsteinn,
1965. Ekki var hægt að hugsa
sér betri foreldra en þau þar
sem við bræður ólumst upp við
mikið ástríki þeirra. Í uppeldi
okkar var mikið lagt upp úr því
að sýna öðrum manneskjum
virðingu og að taka alltaf mál-
stað þeirra sem voru minnimátt-
ar og áttu undir högg að sækja í
lífinu og leggja þeim ávallt lið.
Og vera alltaf áreiðanlegur, trúr
og vinnusamur.
Fljótlega eftir að pabbi flutti í
Borgarnes eignaðist hann
nokkrar kindur sér til skemmt-
unar og búdrýginda eins og al-
siða var þá í þorpum landsins og
í umgengni við skepnurnar sínar
naut hann sín vel og átti alla tíð
fallegt og vel hirt fé sem var
mjög elskt að eiganda sínum,
enda leitun að meiri dýravini en
honum. Einnig var hann veiði-
maður af lífi og sál og mjög
slunginn stangveiðimaður sem
lagði margan fallegan laxinn að
velli og fór víða um land til veiða.
Pabbi réð sig til starfa hjá Ol-
íuverslun Íslands í Brákarey ár-
ið 1969 og starfaði hjá því fyr-
irtæki til starfsloka. Eftir að
starfsævi hans hjá Olís lauk átti
hann afdrep í fjárhúsunum hjá
vinunum sínum góðu og tryggu.
Árið 1965 urðu foreldrar mínir
fyrir mikilli raun er þau misstu
frumburð sinn Unnstein af slys-
förum í desembermánuði það ár
og í sama mánuði sex dögum
seinna eignuðust þau son sem
skírður var Unnsteinn eftir látn-
um bróður sínum. Sonarmissir-
inn var þeim báðum gríðarþung
raun og byrgði pabbi það innra
með sér alla tíð og var ekki að
bera tilfinningar sínar á torg.
Árið 2002 lést síðan sonardóttir
hans Unnur Helga á unglings-
aldri eftir erfið veikindi, en þau
voru mjög elsk hvort að öðru og
tók pabbi lát hennar mjög nærri
sér og gat þess að fyrst svona
væri komið væri ekkert lengur
til að lifa fyrir og hrakaði heilsu
hans mjög upp frá því og fékk
hann hægt andlát á Dvalarheim-
ili aldraðra í Borgarnesi, 22. dag
desembermánaðar árið 2003 á
áttugasta og sjöunda aldursári,
umvafinn fjölskyldu sinni. Hann
var jarðsettur í Borgar-
neskirkjugarði.
Minningin lifir.
Vertu guði geymdur.
Þinn sonur,
Bjarni Kristinn Þorsteinsson.
Aldarminning
Fleiri minningargreinar
um Hrafnhildi Þorgríms-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Það er ótrúlegt
hvað tíminn líður,
en liðin eru 40 ár
síðan ég kynntist Habbý, Rabba
og börnum. Ég og Kiddi Rafn
sonur minn vorum nýflutt í
blokk í Seljahverfinu, ég sem
einstæð móðir og frekar ráðvillt
hvernig hægt væri að höndla
það. Það kom fyrir að ég var
sein úr vinnu og gat því miður
ekki sinnt fjölskyldu eins og ég
hefði viljað. Það var því kær-
komin guðsgjöf að kynnast
Habbý og Rabba, því Kiddi Rafn
gat alltaf leitað til þeirra. Það
kom fljótt á daginn að Habbý
var öll af vilja gerð til að aðstoða
þegar á þurfti að halda. Á þess-
um tíma var Habbý í barneign-
arfríi og sá hún til þess að Kiddi
Rafn fengi aðhald og aga sem
flest börn þurfa til að dafna. Á
tímabili þegar ég var á leið í
vinnuna þá hópuðust þau
Habbý, Rabbi og börn út í
glugga til að fylgjast með hvort
Skodinn sem ég átti færi í gang.
Þegar það gerðist ekki kom
Rabbi eins og kallaður og bjarg-
aði málum, annars var klappað
ef bifreiðin hrökk í gang.
Það kom að því að við fluttum,
en engu að síður héldum við allt-
af sambandi eins og fjölskylda.
Stuttu eftir að ég flutti kynntist
ég Má manninum mínum, sem
Hrafnhildur
Þorgrímsdóttir
✝ HrafnhildurÞorgrímsdóttir
(Habbý) fæddist 3.
mars 1949. Hún lést
6. júlí 2017.
Útför Hrafnhild-
ar Þorgrímsdóttur
fór fram 20. júlí
2017.
þau hjónin tóku
strax sem einum af
fjölskyldumeðlim-
um. Það mynduðust
fljótt hefðir sem
mér þykir mjög
vænt um og má þar
nefna t.d. skötu-
veislu á Þorlák,
spila brids sem
Habbý hafði ein-
staklega gaman af
ásamt fleirum o.fl. Í
tilefni af fimmtugsafmæli mínu
fórum við hjónin með Habbý og
Rabba um áramótin til Glasgow,
sem er ógleymanleg minning,
þar sem við fórum í heimsókn til
Möggu systur Rabba sem býr í
Manchester. Elsku Habbý mín,
kærar þakkir fyrir allar þær
góðu stundir sem þú veittir mér,
í blíðu sem og stríðu.
Það verður að segjast eins og
er að mér líður eins og ég hafi
misst náinn fjölskyldumeðlim,
sem var ekki aðeins góð vin-
kona, heldur var hún mér sem
systir. Elsku Rabbi, Ásdís, Óli
og fjölskyldur, við hjónin vottum
ykkur okkar dýpstu samúð og
megi guð vera með ykkur.
Ragnheiður og Már.
Ég var svo lánsamur að flytja
í blokk að Engjaseli 72 í Selja-
hverfi. Þar hófst mikill vinskap-
ur okkar móður minnar og fjöl-
skyldunnar á 2. hæð til vinstri,
þeirra Hrafnhildar, Rafns, Ás-
dísar og Ólafs. Þau Hrafnhildur
og Rafn kunnu strax vel við okk-
ur og veittu mér og móður minni
mikinn stuðning á mínum upp-
vaxtarárum. Það kom oft fyrir
að ég var einn heima og þá
hlupu þau undir bagga og sáu til
þess að drengurinn nærðist og
gerði það sem hann nennti helst
ekki að gera. Hver nema Hrafn-
hildur gat séð til þess að dreng-
urinn sem gat ómögulega setið
kyrr lengi lærði og já náði hrein-
lega 10 í kristinfræði, hver fær
10 í kristinfræði? Þetta eitt og
sér lýsir Hrafnhildi, hversu
magnaður kennari og karakter
hún var. Hún gat verið ströng,
stundum hvöss og gat skipað án
þess að vekja hræðslu en samt
svo ljúf. Hrafnhildur veitti öllum
alla þá athygli sem þeir þurftu,
það vantaði ekkert upp á það, og
horfði í augun á viðkomandi svo
hún næði örugglega sambandi.
Ég hef alltaf litið upp til þeirra
hjóna og þau hafa veitt mér og
móður minni mikinn stuðning í
gegnum lífið. Það var hvergi
eins gott að koma og heyra
Rabba kalla á ömmu gömlu og
segja að Kiddi kaldi væri kom-
inn og setjast inn í eldhús hjá
Habbý eins og hún var oftast
kölluð og þar hlustaði hún og gaf
góð ráð. Ég get engan veginn
þakkað nægjanlega fyrir það
sem þau hjónin hafa gert fyrir
mig og mína. Ekki má gleyma
því að ég og dætur mínar nutum
aðstoðar Habbýjar í ófáum
íslenskuáföngum og ritgerðayf-
irlestrum, sem við vissulega bú-
um vel að í dag.
Habbý mín, þú fórst allt, allt
of fljótt, en ég veit að þér líður
betur núna. Þakka þér fyrir all-
ar þær ógleymanlegu stundir
sem þú gafst mér og minni fjöl-
skyldu. Megi guð vera með ykk-
ur Rafn, Ásdís, Njáll, Ólafur,
Dögg og barnabörn. Hugur
minn er hjá ykkur.
Kristján Rafn Harðarson.