Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Verð 10.950.000 + vsk Nýskráður í janúar 2017 ekinn aðeins 6 þ. km, svartur á litinn, sérinnréttaður með lúxusfyrirkomulagi fyrir 16 farþega, leiðsögumann og ökumann alls 18 sæti. Bíllinn er innréttaður í Póllandi með ákaflega fallegri og vandaðri innréttingu og eru sætin sérlega þægileg. Ábyrgð er á bílnum frá Mercedes Benz. Bíllinn er með 3,0l, 191 hestafla díselvél, sjálfskiptur, hiti er í framrúðu, stórar dökkar rúður á hliðum og panoramaframrúða. Niðurtekið farangursrými og rafdrifin rennihurð farþegamegin. Einnig er akgreinavari, dráttarkrókur, tveir rafgeymar, ökuriti ogWebasto olíumiðstöð. Krómaðir hjólkoppar á öllum hjólum. Farþegarými: leðursæti, tveir stórir tv-skjáir í loftinu, loftkæling við hvert sæti. Hátalarar við hverja sætaröð, USB-tengi við öll sæti, 230V tengill í annarri hverri sætisröð. Lesljós eru við hvert sæti. Daglýsing er í farþegarými en einnig hægt er að breyta lit á ljósum. Þægileg blá næturlýsing er í lofti.Wifi kerfi er í bílnum. Leiðsögumaður: Tvöfalt guide kerfi, þráðlaus míkrafónn og einnig snúrutengi. Samskiptagræjur með: útvarpi, CD, USB, SD Card, Bluetooth. M.BENZ SPRINTER 519VIP LUXURY 16+1+1manna Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Indriða Jónsson, s. 567-4840/771-8900 eða indridi@bilo.is Raqa-borg í Sýrlandi naut eitt sinn góðs af því að vera við Efrat-fljót en mikill skortur á drykkjarvatni í borginni hefur nú orðið til þess að borgarbúar hafa þurft að hætta lífi sínu til að verða sér úti um vatn. Borgin hefur verið án stöðugs rennandi vatns í nokkrar vikur vegna skemmda sem urðu á vatns- leiðslum í hörðum sprengjuárásum, meðal annars loftárásum herflug- véla frá nokkrum löndum undir for- ystu Bandaríkjanna. Loftárásirnar eru gerðar til stuðnings arabískum og kúrdískum hersveitum sem sækja að borginni í baráttunni gegn öfgasamtökunum Ríki íslams. Raqa er enn að mestu á valdi vígamanna samtakanna. Vatnsskorturinn hefur orðið til þess að borgarbúar þjást af vessa- þurrð í sumarhitanum og sumir hætta lífi sínu til að sækja vatn í brunna sem hafa verið grafnir í grennd við borgina. Þessar ferðir geta verið lífshættulegar vegna átakanna. Verða fyrir árásum Fréttaveitan AFP hefur eftir ein- um borgarbúanna sem hafa sótt drykkjarvatn að þeir hafi þurft að flýja frá brunnum vegna stórskota- árása. „Sprengikúla lenti 50 metra frá mér,“ sagði hann. AFP hefur einnig eftir Raqa- búum að þeir hafi orðið fyrir skot- árásum leyniskyttna Ríkis íslams. Að sögn borgarbúa hafa að minnsta kosti 27 manns beðið bana í loft- árásum þegar þeir reyndu að sækja drykkjarvatn í Efrat eða nálæga brunna. Talið er að um 70.000 manns séu enn í Raqa. Íbúar borgarinnar voru rúmlega 220.000 samkvæmt mann- tali árið 2004 og hún var þá sjötta stærsta borg Sýrlands. bogi@mbl.is AFP Íbúarnir hætta lífi sínu fyrir vatn Skortur á drykkjarvatni í Raqa, höfuðvígi öfgasamtakanna Ríkis íslams í Sýrlandi, vegna harðra átaka um borgina síðustu vikur Á vígaslóð Ungir Sýrlendingar með asna á tengivagni nálægt Raqa. Átök hafa geisað um borgina síðustu vikur. Stjórnvöld í Kína hafa hert rit- skoðunina á netinu og fyrirskipað stærstu tæknifyrirtækjum landsins að loka síðum á samfélagsmiðlum þar sem „slæmar upplýsingar“ séu birtar. Ritskoðarar kínversku einræðis- stjórnarinnar hafa einnig lagt áherslu á að koma í veg fyrir að fólk geti vottað minningu andófsmanns- ins Liu Xiaobo virðingu sína á net- inu. Liu var sæmdur friðarverðlaun- um Nóbels árið 2010 og lést úr lifrarkrabbameini á sjúkrahúsi í Shenyang í vikunni sem leið. Honum var sleppt úr fangelsi í síðasta mán- uði vegna sjúkdómsins en kínversk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki leyft honum að leita sér lækninga erlendis. Yfirvöldin hafa reynt að koma í veg fyrir að hægt sé að birta myndir eða nota leitarorð sem tengjast Liu Xiaobo á stærstu samfélagsmiðlum Kína, að því er fréttaveitan AFP hef- ur eftir sérfræðingum. Þeir segja að ritskoðunin í tengslum við Liu hafi stóraukist eftir að hann lést. Kínversk stjórnvöld hafa komið upp neteftirlitskerfi, sem hefur verið kallað Eldveggurinn mikli, til að rit- skoða efni sem birt er á netinu og koma í veg fyrir gagnrýni á einræðisstjórnina á samfélagsmiðl- um. Kínverskir andófsmenn hafa þó notað svonefndar VPN-veitur til að sneiða hjá eldveggnum og vottað minningu Liu virðingu sína á Twitter og Facebook á síðustu dögum, að sögn AFP. Stefnan sögð rangtúlkuð Yfirvöld hafa gripið til fleiri að- gerða til að herða ritskoðunina á net- inu. AFP hafði í gær eftir kínversk- um embættismönnum að þeir hefðu rætt við yfirmenn kínverskra tækni- fyrirtækja til að fyrirskipa þeim að bæta úr brotum á reglum um net- eftirlitið og loka síðum þar sem „slæmar upplýsingar“ væru birtar. Á meðal brota sem embættismenn- irnir nefndu voru meintar rangtúlk- anir á stefnu stjórnvalda, dreifing rangra upplýsinga, rangfærslur um sögu kínverska kommúnistaflokks- ins, birting mynda án leyfis ljós- myndara og birting efnis sem talið er ógna allsherjarreglu. bogi@mbl.is AFP Askan afhent Bróðir Liu Xiaobo (t.v.) og ekkja hans taka við ösku hans. Ritskoðun á netinu hert  Aukið eftirlit með netmiðlum í Kína Hertar reglur » Samkvæmt reglum, sem tóku gildi í Kína 1. júní, þurfa samfélagsmiðlar á netinu að fá leyfi til að birta fréttir eða greinar um málefni sem varða ríkisstjórnina, efnahag lands- ins, herinn, utanríkisstefnuna og samfélagsmál. » Yfirvöldin hafa einnig lokað tugum bloggsíðna og hert regl- ur um birtingu myndskeiða. Dönsk yfirvöld hafa komið á sérstöku eftirlitssvæði í Kaupmannahöfn til að leita að vopnum vegna harðn- andi átaka milli glæpagengja. Viðbúnaður lögregl- unnar verður sérstaklega mikill á svæðinu, sem nær til hverfanna Nørrebro, Husum, Brønshøj og Tingbjerg. Lögreglan hefur heimild til að leita á öllu fólki á svæð- inu, í töskum þess og bílum. Heimildin á að gilda til 3. ágúst, að sögn Politiken. Haft er eftir talsmanni lög- reglunnar að gerðar hafi verið fimm alvarlegar hnífa- eða skotárásir í Kaupmannahöfn frá 12. júlí. Yfirvöldin gripu til samskonar aðgerða í Árósum í síðasta mánuði vegna harðnandi átaka milli glæpa- gengja í borginni. „Skotárásir í Árósum eru með öllu óviðunandi,“ sagði yfirlögregluþjónninn Klaus Arboe Rasmussen í viðtali við danska ríkissjónvarpið. DANMÖRK Eftirlit lögreglu aukið vegna átaka glæpagengja Bandaríski öldungadeildarþing- maðurinn John McCain hefur greinst með illkynja æxli í heila. Þingmaður- inn gekkst undir skurðaðgerð vegna blóðtappa í auga í vikunni sem leið og rannsókn leiddi í ljós að hann tengdist illkynja æxli í heila, að sögn lækna hans. Æxlið sem greindist er meðal þeirra illvígustu sem þekkjast. Öldungadeildarþingmaðurinn Ted Kennedy lést af völdum samskonar krabbameins árið 2009. McCain er áttræður. Hann hefur nokkrum sinnum greinst með húðkrabbamein á síðustu áratugum, m.a. illkynja sortuæxli árið 2000. BANDARÍKIN John McCain greindist með illkynja æxli í heila John McCain

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.