Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eitthvað fallegt og spennandi mun
gerast á heimilinu eða innan fjölskyldunnar í
dag. Mikilvæg reynsla fæst ekki alltaf án
sársauka.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki hanka þig á því að þú hafir
ekki unnið heimavinnuna þína. Leitaðu að
fegurðinni í lífinu því fagurt umhverfi er
raunveruleg heilsubót.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Leiktu, þjálfaðu og elskaðu; það er
hin fullkomna blanda. Nýjungar veita þér
frábært tækifæri til þess að hagnast örlítið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Veldu þér tjáskiptamiðil svo þú getir
komið skilaboðum áleiðis til eins stórs hóps
og mögulegt er. Tækifæri til þess að afla
tekna á stöðugan og öruggan máta eru fyrir
hendi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gefðu leiðbeiningar, segðu hvað þú ert
að hugsa og ekki bara skrifa minnismiða,
heldur láttu alla kvitta svo þú vitir að þeir
hafi lesið hann.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að læra að meta gildismat
tiltekinnar manneskju áður en þú getur látið
þér lynda við hana. Sýndu þínar bestu hlið-
ar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú gengur of hart fram kann svo að
fara að þú lendir í aðstöðu sem getur
reynzt þér ofviða. Tækifæri liggur í loftinu
og gefst þeim sem er tilbúnastur til að
grípa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er engin skoðun svo skot-
held að hún geti ekki breyst vegna nýrrar
vitneskju eða einhvers annars. Leyfðu þögn-
inni að leika um þig svona af og til.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sambönd sem líta vel út á blaði
en virka ekki eru jafnmikils virði og blað-
snepillinn sem þau virka vel á. Hvað sem þú
gerir skaltu hætta að vera reiður.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er engin ástæða til þess að
láta aðra sjá öll spilin sem þú hefur á hend-
inni. Litla röddin innra með þér er bara að
reyna að verja þitt brothætta hjarta.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki hætta við þótt verkið virðist
þér ofvaxið. Neistaflugið er það sem færir
þér það sem þú leitar að.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Græðgi er ljótur ávani. Þótt margir
hlutir séu eftirsóknarverðir ferst heimurinn
ekki þótt þú komir ekki höndum yfir þá.
Sjálfstraustið er í lagi.
Fyrir helgi sagði Sigurlín Her-mannsdóttir á Leirnum að „út-
sölur eru víst að byrja á fullu“:
Um Kringluna skoppaði í kasti
og kíkti í búðir í hasti
er þær fóru að loka
hún fyllti sinn poka;
því kengúran kasserar plasti.
Pétur Stefánsson skrifaði á Leir:
Eiga margir erfitt líf,
ýmsra magnast bræði.
Þeir sem elska vín og víf
veikja lífsins gæði.
Bakkus hefur marga menn
mæta lagt í fjötra.
Fjöldi þeirra eykst hér enn
sem ölið vilja sötra.
Margir þrá hér glaum og glys,
en gremju öðlast stóra.
Fegurð lífsins fara á mis
flestir sem að þjóra.
Hamingjunnar gatan greið
er glæst frá viðjum bölsins.
Veljum betri lífsins leið,
og lifum kát án ölsins.
Ingólfur Ómar bætti við:
Vínið getur vakið hryggð
valdið angri sálar.
Hindrað frelsi drepið dyggð
dregið menn á tálar.
Valdimar Gunnarsson blandaði
sér í málin:
Það er skjalfest skoðun mín
skynsamleg og nokkuð glögg:
Ef menn tala illa um vín
ættu þeir að fá sér lögg.
Og enn sagði hann:
Ennfremur er það meining mín
sem megið þið nú heyra:
Þeir sem yrkja illt um vín
ættu að fá sér meira.
Nú gat Sigrún Haraldsdóttir ekki
á sér setið:
Lífi gefur ljós og gildi,
lagar svita og þvag,
alls ekki ég vera vildi
vínlaus heilan dag ;)
(bara plat)
Þessari lotu lauk með því að
Sigurlín Hermannsdóttir orti „Í al-
gjöru ábyrgðarleysi“:
Vínið yljar vænni sál
vín er mörgum gikkur
vín er ekki vandamál
vín er bara drykkur.
Pétur Stefánsson orti á föstu-
dagskvöldið:
Stórgott veður úti er,
allt vill lífið skána.
Meðan þjóð í fríið fer
fæ ég mér í tána.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Útsölur og Bakkus gamli
Í klípu
„ÞVÍ STÆRRI SEM ÞEIR ERU, ÞVÍ ERF-
IÐARA ÁTTU MEÐ AÐ BORGA ÞÁ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐ KOSTAR AÐ FLEYGJA
ÞESSU Í SJÓINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga sér félaga
í húsverkunum!
ÞAÐ ER EINS
OG STJÖRN-
URNAR SÉU
ENDALAUSAR
ÞÆR ERU ÞAÐ, JÓN.
ÞÆR NÁ LANGT
UMFRAM ÞAÐ SEM
AUGAÐ EYGIR
VÓÓ… ÞANNIG AÐ ÞAÐ
GÆTU ALVEG VERIÐ
TIL HEILASJÚGANDI
HUMRAR ÞARNA!
ALLT
BÚIÐ Í
DAG
GAMLI HERTOGINN
SEGIR AÐ HANN EIGI
ENGAN PENING!
DEMANTAR PÓSTHÚS
SÖNNUNAR-
GÖGNIN SEGJA
AÐRA SÖGU!
HVAÐA
SÖNNUNAR-
GÖGN?
VILL LITLI KRÚTTPJATTINN
MINN AÐ ÉG BÍÐI EFTIR
HONUM INNI?
Víða verður ekki þverfótað fyrirÍslendingum og því sem íslenskt
er. Um liðna helgi var Víkverji í
Búdapest og fékk þar meðal annars
óvænta en skemmtilega fræðslu hjá
heimamanni um merkilega Íslend-
inga og mikilvæg íslensk málefni.
x x x
Á ferð um lítinn markað innanhússvöktu gamlar plötur og hljóm-
diskar athygli og sem Víkverji skoð-
aði safndisk með Bítlunum kom
sölumaðurinn, sagði frá tilurð disks-
ins, dró síðan fram fleiri diska með
sveitinni og rakti sögu hvers þeirra.
Þegar Víkverji sagðist ætla að
kaupa safndiskinn, sem Ringo Starr
og Paul McCartney stóðu að til
minningar um John Lennon og
George Harrison, spurði Ungverjinn
hvaðan gesturinn væri og þegar
hann heyrði Ísland nefnt varð hann
enn kátari en fyrr, rifjaði upp skák-
einvígi Friðriks Ólafssonar og Bent
Larsens og átti ekki til nógu sterk
orð til að lýsa hæfileikum íslenska
stórmeistarans.
x x x
Sölumaðurinn var ekki síður vel aðsér í heimi íslensku knattspyrn-
unnar og hrósaði íslenska karla-
landsliðinu í fótbolta fyrir frábæra
frammistöðu á Evrópumótinu í
Frakklandi í fyrra. Hann sagði það
hafa verið mesta gleðigjafa keppn-
innar og vonaði að það yrði með í úr-
slitakeppni HM í Rússlandi að ári.
Riðillinn væri samt strembinn og
ekkert sjálfgefið.
x x x
Þegar hér var komið sögu varmaðurinn kominn í ham og benti
á að allra augu væri á Íslandi á EM
kvenna í Hollandi. Ekki mætti búast
við sigri á móti Frökkum í fyrsta leik
en íslensku stelpurnar hefðu góðan
stuðning, gætu haft betur á móti
Sviss og Austurríki og tryggt sér
sæti í átta liða úrslitum.
x x x
Diskurinn kostaði 2.000 forintur,um 800 krónur. „Þið eruð með
krónur og hvorki Íslendingar né
Ungverjar þurfa á evrum að halda,“
sagði maðurinn og tók glaður við
forintunum. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn,
af öllu hjarta og tigna nafn þitt að ei-
lífu.
(Sálm. 86:12)
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is Veit á vandaða lausn
fastus.is
PRÓTEINRÍKUR
NÆRINGARDRYKKUR
MERITENE NÝTIST VEL Í TENGSLUM VIÐ:
• Þyngdartap
• Minnkaða matarlyst
• Uppbyggingu eftir veikindi
• Þreytu og þrekleysi vegna næringarskorts