Morgunblaðið - 21.07.2017, Side 6

Morgunblaðið - 21.07.2017, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017 Það var heldur betur líf og fjör þegar Þórður Arnar Marteinsson dró fram nikkuna á hinu ár- lega Nikkuballi Ungmennaráðs Seltjarnarness sem haldið var við smábátahöfnina á Nesinu. Að vanda var vel mætt og gátu viðstaddir, ungir sem aldnir, dillað sér við ljúfa tóna harm- onikkunnar, en Þórði Arnari til aðstoðar var hljómsveitin Stjúpmæður og tók hún nokkur vel valin lög á skemmtuninni. Hið árlega Nikkuball Ungmennaráðs Seltjarnarness Morgunblaðið/Hanna Nikkan dregin fram við sjávarsíðuna Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Framkvæmdum á Bakka við Húsa- vík við kísilmálmverksmiðju PCC Bakka Silicon hf. miðar samkvæmt áætlun, að sögn Snæbjörns Sigurðs- sonar, verkefnisstjóra Norðurþings. „Það er ótrúlegur gangur þessa dagana og liggur við að hægt sé að sjá mun frá degi til dags. Það má segja að verkefnið sé á lokametr- unum,“ sagði Snæbjörn í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir að á fimmta hundrað manns starfi á Bakka núna í upp- byggingunni. Stefnt sé að gangsetn- ingu verksmiðjunnar í desember á þessu ári og ekkert bendi til annars en þær áætlanir PCC muni stand- ast. Einhverjir verkhlutar gætu orðið eitthvað á eftir áætlun en aðr- ir á undan, en þegar allt er sam- antekið eigi áætlanir að geta stað- ist. „Nú er verið að vinna jarðvinnu; það er verið að reisa stálgrindar- hús; það er verið að steypa und- irstöður undir hús; það er verið að setja saman ofnana sjálfa sem verða í verksmiðjunni og það er verið að setja upp reykræstikerfið. Það má því segja að verið sé að vinna á öll- um vígstöðvum,“ sagði Snæbjörn. Lengja einn hafnarkantinn Aðspurður um framkvæmdir við höfnina á Bakka og gangagerðina sagði Snæbjörn: „Göngin eru klár að því undanskildu að einhverri raf- magnsvinnu í þeim er ólokið. Það er búið að leggja malbik á allan veginn alveg frá Bakkalóð og niður að hafnarkanti. Nú er verið að vinna í því að klára að steypa þekju til þess að lengja einn hafnarkantinn og það er töluverð vinna eftir í þeim efn- um. Svo er hafin vinna við frágang á hafnarsvæðinu, gámasvæðum og at- hafnasvæðum. Þessari vinnu á að vera meira og minna lokið í október, samkvæmt áætlunum eins og þær líta út nú.“ Snæbjörn sagði að jarðvinna vegna raðhúsanna sem reisa á fyrir starfsfólk PCC væri mjög langt komin. Þar væru ljósastaurar og allar lagnir komnar, auk þess sem vegagerð væri langt komin. „Þar gætu farið að birtast húsgrunnar á allra næstu dögum og því fyllsta ástæða til bjartsýni hér í sólinni og blíðunni,“ sagði Snæbjörn að lokum. Framkvæmdir á Bakka á áætlun  Snæbjörn Sigurðsson, verkefnisstjóri Norðurþings, telur að áform um gangsetningu fyrir áramót muni standast Bakki Kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka er langt komin og framkvæmdin á áætlun. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Barnavernd Reykjavíkur hefur lokið könnun á máli stuðningsfulltrúa og skólastjóra Barnaskólans í Reykja- vík, á vegum Hjallastefnunnar, á grundvelli tilkynninga um að mögu- lega hafi viðkomandi starfsmenn ekki brugðist rétt við börnum í erfiðum að- stæðum innan skólans. Barnavernd- arnefnd ákvað ekki að senda málið áfram til lögreglu. Athuga réttarstöðu sína Stuðningsfulltrúi skólans mun ekki koma aftur til starfa að sögn Mar- grétar Pálu Ólafsdóttur, stofnanda Hjallastefnunnar. Í niðurstöðum Barnaverndar kom í ljós að ásakanir gagnvart skólastjóranum voru ekki á rökum reistar. Málið gegn skólastjór- anum var fellt niður og hefur skóla- stjórinn hafið störf að nýju. Aðspurð hvort skólastjórinn muni skoða rétt- arstöðu sína segir Margrét að allir eigi rétt á að skoða sín mál. „Núna hafa allir þriggja mánaða ráðrúm til að meta hvort þeir kæri á einhvern hátt niðurstöðu Barnaverndar. Allir hafa rétt á að skoða sín mál. Bæði for- eldrarnir sem tilkynntu viðkomandi sem og starfsfólk sem hefur jafnvel fyrir misskilning verið á síðum fjöl- miðla og öldum ljósvakans.“ Miður að málið fór í fjölmiðla Margrét harmar að málið hafi farið í fjölmiðla áður en niðurstaða Barna- verndarnefndar lá fyrir. „Ég harma það, því það er réttast að bíða eftir könnun barnaverndar- nefndar. Það er barnavernd sem met- ur hvort málið sé kæranlegt til lög- reglunnar,“ segir Margrét en hún telur að málið gæti opnað á umræðu meðal skólafólks. „Ég held að þetta mál opni fyrir það hvað við skólafólk, alls staðar í öllum skólum, erum ber- skjölduð og í erfiðri stöðu þegar svona mál koma upp.“ Mál Barnaskólans lagt niður  Ásakanir gegn skólastjóranum ekki á rökum reistar Morgunblaðið/Ómar Frumkvöðull Margrét Pála stofnaði Hjallastefnuna ehf. árið 2000. „Það er þónokk- ur straumur þarna og þótt áin virðist lygn á þessari mynd leynir hún á sér,“ segir Sigurjón Valgeir Haf- steinsson, sem sá tvo ferðamenn baða sig við Hrefnutanga í Ölfusá um níuleytið í gærmorgun. Sigurjón var við veiðar í ánni ásamt frænda sínum er þeir sáu ferða- mennina vaða út í ána. „Þeir voru ofan í ánni í næstum því mínútu,“ segir Sigurjón, sem myndi síður mæla með því að menn böðuðu sig í Ölfusánni, sem er vatns- mesta fljót á Íslandi og víða straum- hörð. Baðferð mannanna tveggja verður því að teljast stórvarasöm. Sigurjón og frændi hans íhuguðu að tilkynna athæfi mannanna til lög- reglunnar, en baðinu lauk þó snögg- lega, þar sem vatnið virtist of kalt fyrir ferðamennina. Ferðamenn fóru í morgunbað í Ölfusá Ölfusá Tveir menn baða sig í ánni. Maðurinn sem lést í vinnuslysi í Hafnarfirði á mánudag hét Einar Ólafur Steinsson. Í tilkynningu frá lögreglunni seg- ir að Einar Ólafur, sem var 56 ára, láti eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn. Einar Ólafur lést eftir fall úr byggingarkrana á vinnusvæði í Hafnarfirði. Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.