Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
EM KVENNA Í FÓTBOLTA 2017
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Treyjusalan hefur aukist mjög,
bæði í aðdraganda mótsins og núna
þegar það er farið í gang,“ segir
Þorvaldur Ólafsson, eigandi Errea
á Íslandi, um treyjusölu í kringum
Evrópumót kvenna. Þegar Morg-
unblaðið spjallaði við Þorvald var
hann önnum kafinn við það að út-
búa búninga fyrir íslenska stuðn-
ingsmenn á leið til Hollands.
„Það er búið að vera alveg
brjálað að gera hjá okkur, sumrin
eru auðvitað okkar vertíð enda
sumarmótin og EM í gangi. Þetta
er bara fjör, okkur finnst þetta
mjög skemmtilegt.“
Salan hefur dreifst jafnt
Hann segir söluna ekki jafn-
mikla og í kringum Evrópumót
karla síðasta sumar en hún sé
talsvert meiri en í kringum fyrri
stórmót stelpnanna. „Það er ekki
hægt að líkja þessu við söluna í
kringum karlaliðið í fyrra enda
var æðið alveg svakalegt þá. Salan
hefur þó verið miklu betri en á
síðustu stórmótum stelpnanna og
aukist mjög mikið.“
Spurður hvaða merking hafi
selst best aftan á treyjurnar segir
Þorvaldur það hafa dreifst jafnt.
„Þetta eru aðallega hópar og fjöl-
skyldur sem hafa keypt treyjur en
ég get ekki sagt að einhver ein
standi upp úr. Ég held að á heild-
ina litið sé þetta nokkuð jafnt.“
Þorvaldur segir að Errea á Ís-
landi selji allan varning sem teng-
ist íslenska landsliðinu. „Við erum
með allt sem tengist landsliðinu;
markmannsbúninga, landsliðs-
treyjur, háskólapeysur, derhúfur
og margt fleira,“ segir Þorvaldur
og bætir við að auk þess að selja
varning sjái fyrirtækið landsliðinu
fyrir búnaði meðan á Evrópu-
mótinu stendur. „Við sjáum um
búnað hjá öllum landsliðum Ís-
lands. Evrópumótið í sumar er
engin undantekning, við sjáum
um allt frá undirfatnaði til vind-
jakka,“ segir hann en á mótið í ár
tók landsliðið með sér um 7.000
hluti.
Þorvaldur segir að þegar haldið
er á eins stórt mót og Evrópumót
kvenna er séu teknar með að lág-
marki 138 keppnistreyjur. Treyj-
urnar eru allar sérmerktar og
teknar með í handfarangri starfs-
manna KSÍ.
„Við dreifðum þessu á þrjár
flugferðir. Starfsmenn KSÍ tóku
með sér treyjurnar í handfarangri
svo þær kæmust örugglega á
áfangastað enda mjög mikilvægt
að þær komist þangað. Treyjurnar
eru allar sérmerktar hverjum leik
og leikmanni. Þetta gekk allt mjög
vel og treyjurnar komust örugg-
lega til Hollands,“ sagði Þorvaldur
að lokum.
Salan aukist frá fyrri stórmótum
Sala á búnaði tengdum landsliðinu hefur aukist mikið í aðdraganda EM og eftir að mótið hófst
Sérmerktar treyjur landsliðsins teknar með í handfarangri Stelpurnar tóku 7.000 hluti með sér
Morgunblaðið/Kjartan Þorbjörnsson
Þorvaldur Eigandi Errea á Íslandi segir sölu á búnaði tengdum landsliðinu hafa aukist mikið í kringum EM kvenna.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Emil Atlason, knattspyrnumaður og bróðir
Sifjar Atladóttur, er á leiðinni til Hollands og
mun styðja stelpurnar það sem eftir lifir móts.
„Fjölskyldan er að fara út og ég ætla mér að
fara ásamt henni til Hollands,“ segir Emil sem
hefur leikið 12 landsleiki fyrir U21 árs landslið
Íslands ásamt því að vinna fjölda Íslands- og
bikarmeistaratitla hér á landi. Hann segir
mikla spennu ríkja innan fjölskyldunnar fyrir
mótinu í sumar. „Það er mikil tilhlökkun hjá
okkur fjölskyldunni en stelpurnar hafa nú
þegar sýnt það og sannað hversu góðar þær
eru. Nú er bara spurning um að njóta þess að
spila og vinna Sviss og Austurríki,“ segir Emil
og bætir við að hann hafi mikla trú á að stelp-
urnar komist langt í mótinu þrátt fyrir erfiða
byrjun. „Ég held að þær vinni til einhverra
verðlauna. Þær hafa alveg klárlega viljann og
getuna í það.“
Sif er mikill sprellari
Þegar Emil er beðinn að rifja upp sögu af
þeim systkinum segir hann eina sögu frá
æskuárum þeirra standa upp úr. „Ég man eftir
einu atviki, þegar ég fór í klippingu til Sifjar á
mínum yngri árum. Ég var kominn með mikið
hár og var búinn að þurfa að fara í klippingu í
dágóðan tíma, Sif bauðst til þess að klippa mig
sem ég þáði. Ég get ekki sagt að ég hafi verið
mjög ánægður með klippinguna því hún
heppnaðist ekki betur en svo að ég leit út eins
og Susan Boyle,“ segir Emil og bætir við að að
margar skemmtilegar sögur séu til af Sif.
„Sif er mikill sprellari og dansari, ég man
eftir því að þegar hún var yngri tók hún alltaf
upp MTV myndböndin hjá Backstreet Boys.
Hún horfði síðan á myndböndin og dansaði
með, til þess eins að reyna að læra dansa
hljómsveitarinnar,“ segir Emil.
Stuðningsnet systkinanna mjög sterkt
Sif hefur undanfarin ár leikið með sænska
liðinu Kristinstad í Svíþjóð en á sama tíma hef-
ur Emil leikið með liðum á Íslandi. Emil segir
að þrátt fyrir að hafa búið í mismunandi lönd-
um heyrist þau reglulega og gefi hvort öðru
góð ráð. „Við systkinin tölum saman vikulega
og höfum alltaf hjálpað hvort öðru, sama
hvort það er í fótboltanum eða bara lífinu. Mér
finnst alltaf rosalega þægilegt að tala við Sif
enda erum við mjög lík.“
Hann segir Sif hafa stutt vel við bakið á hon-
um í gegnum tíðina. „Stuðningsnet okkar
systkinanna er mjög sterkt og við stöndum
með hvort öðru í blíðu og stríðu.“
Spurður um helstu kosti Sifjar segir Emil að
hún gefist aldrei upp. „Þegar Sif tekur að sér
verkefni þá klárar hún það og gefst aldrei
upp. Það skilar sér inn á völlinn enda er hún
leikmaður sem fórnar sér fyrir liðið og er al-
gjör leiðtogi inn á vellinum.“
Standa saman í blíðu og stríðu
Bróðir Sifjar Atladóttur segir kvennalandsliðið geta farið langt á EM
Systkini Emil og Sif Atlabörn á góðri stund.
Meðlimir Tólfunnar áttu í erfið-
leikum með að fá leyfi fyrir því að
taka trommu sveitarinnar með inn
á völlinn í Tilburg þegar íslenska
liðið mætti því franska á þriðjudag-
inn. Arnar Friðriksson, trommari
Tólfunnar, segir verði við völlinn
hafa meinað þeim inngöngu með
trommuna. „Þegar við mættum
vissi enginn þeirra varða sem stóðu
við hlið vallarins um leyfið sem
heimilaði okkur að taka með
trommur á völlinn. Við lágum í sím-
anum og náðum á endanum í skott-
ið á öryggisfulltrúa KSÍ sem kom
okkur inn með dótið 20 mínútum
fyrir leik. Tæpara mátti það ekki
standa en allt fór þetta vel að lok-
um.“
aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Tólfan Sveitin stóð fyrir sínu á leiknum
gegn Frökkum í Tilburg á þriðjudaginn.
Vesen með trommu
Tólfunnar í Tilburg