Morgunblaðið - 21.07.2017, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2017
✝ Heiðar Orri Þor-leifsson fæddist
14. júlí 1986. Hann
lést 14. júlí 2017.
Foreldrar Heiðars
eru Þorleifur Ingi
Einarsson frá Felli í
Breiðdal, f. 1961, og
Hulda Linda Stef-
ánsdóttir, f. 1960.
Heiðar lætur eftir sig
soninn Stefán Bent, f.
9. ágúst 2013. Móðir
hans er Arna Ýr Arnardóttir, f.
1983. Systir Heiðars er Arna Rut,
f. 7. júlí 1981. Sambýlismaður
hennar er Bjarki Magnúsarson, f.
1979. Börn þeirra eru Ari, f. 2013
og Silva, f. 2015.
Fyrstu æviár Heiðars bjó fjöl-
skyldan á Fáskrúðsfirði en flutti
til Reykjavíkur árið 1989 þar sem
hún bjó síðan. Heiðar hóf grunn-
skólagöngu sína í
Árbæjarskóla en
fjölskyldan flutti
síðar í Grafarvog-
inn í Reykjavík.
Hugur Heiðars
stóð til frekara
náms í hesta-
mennsku eða garð-
yrkju en hann
hafði áhuga á
hvoru tveggja.
Hann átti um tíma
nokkur hross og bjó yfir natni og
lagni við hvers kyns ræktun.
Heiðar stundaði ýmis störf, meðal
annars vöruútkeyrslu hjá Víf-
ilfelli, lagerstörf og við dyra-
vörslu. Síðustu vikurnar vann
hann á vélaverkstæði í Grímsey.
Útför Heiðars Orra fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, 21. júlí
2017, og hefst athöfnin kl. 11.
Hann Heiðar Orri er týndur.
Ákall sem fyrst berst til fjölskyldu
og vina, svo á samskiptamiðlum,
loks með formlegum hætti frá lög-
reglu. Hvernig getur ungur mað-
ur nánast horfið af yfirborði jarð-
ar? Við tekur tími vonar og ótta.
Dagarnir líða en vonin lifir. Svo
kemur höggið; hann er fundinn,
en látinn. Við tekur vanmáttur
gagnvart hinu óafturkræfa og
sorgin sem nagar. Fjölskyldan
þjappar sér saman. Það er vissu-
lega huggun í samkenndinni, en
tómið er myrkt.
Já, hann Heiðar Orri bróður-
sonur minn týndist, ekki síst sjálf-
um sér. Fyrst hægt og hljótt þeg-
ar brestir komu í sálina, svo komu
fíkniefnin til sögunnar. Þetta
tvennt er erfitt föruneyti þegar
saman spinnst. Að því kom að lífið
bar hann ofurliði og hann kaus að
hverfa að fullu. Svo sárt, af því allt
virtist á góðri leið síðustu mánuð-
ina.
Það verður ekki séð á ungum
dreng hvaða vef skapanornirnar
munu spinna honum og hvernig
honum nýtast vöggugjafirnar.
Dreng sem nýtur áhyggjuleysis
bernskunnar og ástar og um-
hyggju foreldra. Áræðið, uppá-
tækjasemin, ákafinn í því sem
hann tók sér fyrir hendur, hesta-
mennskunni, mótorhjólatíma-
bilinu, ljósmyndatímabilinu eða
gæludýra- og ræktunaráhuga-
num. Allt var teygt til hins ýtr-
asta. Handlagnin sem kom svo vel
í ljós þegar fjölskyldan tók íbúðina
í Unufelli í gegn í vetur; þúsund-
þjalasmiður sem gat gengið í öll
verk og dró ekki af sér.
Hugur okkar er hjá Tolla bróð-
ur mínum og Huldu. Aðdáun á
henni sem hefur sýnt ómældan
styrk í ýmsum erfiðleikum í lífinu.
Við vitum hvað í þau er spunnið.
En nú reynir á sem aldrei fyrr.
Foreldrar eiga ekki að þurfa að
sæta þeim þungbæru örlögum að
standa yfir moldum barna sinna.
Það er því miður samt hlutskipti
þeirra sumra.
Hugurinn er líka hjá Örnu Rut,
sem sér á bak eina systkininu, og
fjölskyldu hennar. Stefáni Bent
sem mun einungis muna föður
sinn á fjölskyldumyndum og í fjöl-
skyldusögum. En hann á góða að
og verður umvafinn ást og um-
hyggju. Hjá Oddnýju sem kveður
barnabarn sitt.
Þeirra bíður að ná tökum á
sorginni og læra að lifa með henni.
Glíma við knýjandi spurningarnar
sem engin svör fást við; skilnings-
leysið sem verður að viðurkenna
og hina endanlegu niðurstöðu sem
verður að virða. Þeirra bíður líka
að vinna bug á biturðinni yfir
getuleysi og úrræðaleysi geðheil-
brigðiskerfisins sem brást Heiðari
Orra eins og mörgum fleirum. Það
reyndi á foreldra hans og systur í
glímu hans við sálina og fíknina.
Ávallt stóðu þau samt við bakið á
honum og reyndu hvað þau gátu
til þess að útvega aðstoð sem ekki
var auðfengin. Minningarnar
verða ekki teknar frá þeim, sumar
sárar, aðrar ljúfar. Þær ljúfu
munu taka yfir og varða veginn
framundan.
Það var kátt hjá Heiðari Orra
og frændsystkinum hans í að-
ventusamkvæmi fjölskyldunnar á
síðasta ári hjá okkur á Torginu
þar sem hópmyndatakan í jóla-
peysunum varð að meiriháttar
skemmtiatriði. Í þeim hópi gat
hann notið sín þótt það væri hon-
um oft erfitt, stundum ofviða, að
vera úti á meðal fólks. Næst verð-
ur sætið hans autt en þá munum
við hve gott var að sjá hann glaðan
og sáttan með hópnum síðast.
Árni Einarsson.
Elsku dýrmæti Heiðar Orri,
föstudaginn 14. júlí, á 31 árs af-
mælisdaginn þinn, féllust mér
hendur. Ég er enn að reyna að
átta mig á þessu og hef hugsað
mikið um seinustu skipti sem ég
hitti þig. Það er erfitt að sætta sig
við það að eitt af seinustu skipt-
unum sem ég hitti þig gekk ég
með dóttir mína, ég var þreytt og
ólétt og utan við mig og náði að-
eins að spjalla við þig í stutta
stund. Mér finnst eins og við eig-
um eftir að ræða svo margt og
deila svo miklu um seinustu árin,
börnin okkar og allt það sem lífið
hefur upp á að bjóða.
Í dag er orðið allt of langt síðan
ég sá þig og talaði við þig og ég
trúi ekki að ég eigi aldrei eftir að
gera það aftur. Í kjölfar frétta sem
fylltu mig af sorg og óteljandi
spurningum heyrði ég í yndislegu
fólki sem deilir með mér fallegum
minningum um þig og tíma þar
sem við vorum bara vitlausir ung-
lingar og krakkakjánar.
Þegar ég kynntist þér fannst
mér þú vera svo ótrúlega hug-
rakkur, svona manneskja sem
væri ekki hrædd við neitt. Ég var
varkár og hrædd við flesta hluti,
þótt ég reyndi mikið að láta það
líta öðruvísi út. En þú, þú óðst
áfram tilbúinn að prufa allt og sjá
allt, mér þykir það enn í dag virki-
lega aðdáunarverður kostur. Ég
lærði margt af þér og hef enn ekki
kynnst neinum sem á jafn mörg
áhugamál og þú. Það tók mig bara
nokkur ár en 28 ára fékk ég loks-
ins bílpróf, þú hefðir verið stoltur
af mér að þora loksins að keyra
bíl. Enda oft búinn að reyna að
sanna fyrir mér skemmtanagildi
þess að keyra bíla, krossara og allt
annað með mótor.
Seinustu daga hef ég rifjað upp
minningar um tíma sem við áttum
saman og hlustað á aðra gera slíkt
hið sama. Það sem mér þykir hvað
merkilegast og lýsandi fyrir þig er
að flestir sem ég hef talað við tala
um þig sem besta vin sinn. Þú varst
besti vinur allra, strákurinn sem
dró hópinn saman, leyfðir öllum að
vera með og passaðir upp á vini
þína. Á mótandi tímum lífs míns
varstu líka minn besti vinur. Þú
varst góðhjartaður, stríðinn,
sjarmerandi, opinn og skemmtileg-
ur og svo ótrúlega uppátækjasam-
ur að allir drógust að þér. Þú hafðir
engan tíma fyrir vangaveltur og
vesen, vildir bara hafa gaman og að
allir væru vinir. Þannig hef ég allt-
af og mun alltaf hugsa til þín.
Lífið leiddi okkur í ólíkar áttir
en alltaf þegar maður rakst á þig
fékk maður risaknús. Þú varst
sannur vinur sem var alltaf gaman
að sjá og þegar við hittumst var
eins og þú hefðir alltaf verið
þarna.
Elsku Heiðar minn, maður hitt-
ir alls konar fólk á lífsleiðinni en
sumir skilja eitthvað mikilvægt
eftir sem oft er erfitt að útskýra.
Það er svo mikilvægt að muna og
minna á hversu dýrmætt fólkið
manns er. Fyrir mér varst þú dýr-
mætur. Ég vona að þú finnir það
og vitir að þú átt alltaf sérstakan
stað í hjarta mínu og svo margra.
Ég næ ekki utan um það að ég
muni aldrei hitta þig aftur en ég
vona að þú sért á góðum stað hvar
sem þú ert.
Elsku Hulda, Þorleifur, Arna
Rut, Stefán Bent og aðrir að-
standendur, ég votta innilega
samúð um leið og ég vil segja takk
fyrir mig elsku Heiðar.
Þín vinkona
Hafdís.
Heiðar Orri
Þorleifsson
✝ GuðmundurÞórhallsson
bókbindari fæddist
á Akureyri 2. des-
ember 1926. Hann
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 8. júlí
2017.
Foreldrar hans
voru Þórhallur
Bjarnason prentari,
fæddur í Hléskóg-
um á Grýtubakka í
S-Þing. 21. júlí 1881, d. 27. ágúst
1961, og Jónína Eyþóra Guð-
mundsdóttir, fædd í Tjarnarkoti
á Miðnesi 3. júní 1893, d. 30. mars
1986. Systkini Guðmundar voru:
Sigurleif, f. 1917, d. 1984, Svein-
björn, f. 1922, d. 1983, og Guð-
ríður, f. 1930, d. 2016. Guð-
mundur giftist Björk
Guðjónsdóttur, f. 25. júlí 1930, d.
urbjörg, f. 1958, gift Þorgrími
Guðmundssyni, f. 1955, þeirra
börn eru: a) Guðmundur Bjarki,
f. 1982, b) Björk, f. 1984, c) Davíð
Þór, f. 1992. 3) Þórhallur, f. 1961.
Fyrir átti Guðmundur Magneu, f.
1951, móðir hennar var Erla
Hjördís Gísladóttir, f. 1926, d.
1983. Magnea er gift Kjartani
Ólafssyni, f. 1949, þeirra börn
eru: a) Sverrir, f. 1969, d. 1989, b)
Erla Hjördís, f. 1974, d. 1975, c)
Ólafur, f. 1977, eiginkona hans er
Hugrún Ösp Reynisdóttir, f.
1978, og eru börn þeirra Sverrir
Ragnar, f. 2010, Karitas Erla, f.
2012, og Elín Hulda, f. 2015. d)
Hjördís, f. 1982, d. 2004. Guð-
mundur hóf bókbandsnám í Bók-
felli 1943, og fékk meistarabréf
1953. Hann fór í framhaldsnám
til Kaupmannahafnar og vann
þar einnig hjá Petersen & Pet-
ersen. Lengst af sínum starfsferli
vann hann í Bókfelli, en síðustu
starfsárin vann hann í prent-
skiladeild Landsbókasafnsins.
Útför Guðmundar fer fram frá
Garðakirkju í dag, 21. júlí 2017,
og hefst athöfnin klukkan 13.
9. mars 2017, þann
29. maí 1954. For-
eldrar hennar voru
Guðjón Baldvins-
son, fæddur á
Grund í Svarf-
aðardal 7. mars
1892, d. 24. desem-
ber 1947, og Snjó-
laug Jóhann-
esdóttir, fædd á
Göngustöðum í
Svarfaðardal 16.
mars 1888, d. 13. febrúar 1974.
Börn Bjarkar og Guðmundar
eru: 1) Guðjón, f. 1954, kvæntur
Elísabetu Sigurðardóttur, f.
1955, sonur þeirra er Sigurður, f.
1978, í sambúð með Jónínu Að-
alsteinsdóttur, f. 1984, þeirra
dóttir er óskírð, f. 25. júní 2017,
fyrir á Jónína Evu Rut Tryggva-
dóttur, f. 2006. 2) Rannveig Sig-
Veturinn 1995 bjó ég um nokk-
urra mánaða skeið hjá afa og
ömmu í Gnoðarvogi. Sá tími er
mér dýrmætur þar sem ég fékk að
kynnast þeim á annan og nánari
hátt en áður. Sambúðin gekk vel
þó umgengni unglingsins hefði
ekki alltaf verið til fyrirmyndar.
Þau skutu svo aftur yfir mig skjól-
húsi nokkrum árum síðar þegar
ég las fyrir stúdentsprófin í
Gnoðarvoginum.
Þegar ég var í menntaskóla var
afi að vinna á Landsbókasafninu á
Hverfisgötu eftir áratugastarf
sem bókbindari. Ég heimsótti
hann oft eftir skóla og fékk þá að
heyra margar skemmtilegar sög-
ur milli þess sem afi spurði frétta
af mér og náminu og grúskað var í
mismerkilegum prentskilum.
Afi hafði gaman af að segja sög-
ur og var góður sögumaður. Hann
hafði farið víða og það kom
skemmtilegt blik í augun þegar
hann rifjaði upp ferðir, hvort sem
var frá strætum stórborga eða af
háskaför um Siglufjarðarskarð.
Afi var af kynslóð sem hrósaði
ekki mikið. Hann fylgdist hins
vegar vel með og gladdist innilega
yfir afrekum og sigrum afkom-
enda með sínum hætti. Hin síð-
ustu ár fylgdist hann stoltur með
langafabörnunum dafna. Í síðustu
heimsókn fjölskyldunnar prúttaði
hann við elsta langafabarnið um
tanngjald milli þess að hann gauk-
aði að þeim smá sælgæti og gladd-
ist yfir atlæti ungviðisins.
Í lok síðasta árs ágerðust veik-
indi ömmu og í kjölfarið fór afi á
Hrafnistu. Honum líkaði vistin vel
en eftir að amma dó í mars var
hann dapur og blikið í augunum
var horfið. Söknuðurinn leyndi sér
ekki og núna hefur hann fylgt í
kjölfar hennar.
Ég kveð með þakklæti. Minn-
ing um góðan afa lifir.
Ólafur Kjartansson.
Hann hefur farið höndum um
síðustu bókina. Strokið kápu,
skoðað áferð, efnisval, kjöl og lím-
ingu, handleikið af næmni. Lífs-
bókinni er nú lokið aftur, um-
fangsmikið verk að baki, gott
handbragð, vandað band. Líf vinar
míns, Guðmundar Þórhallssonar,
var vandað. Hann var bókbindari
af lífi og sál, metnaðarfullur fag-
maður. Hann og föðursystir mín,
Björk Guðjónsdóttir, og fjölskyld-
an öll skipaði stóran sess í lífi okk-
ar systkinanna á Akureyri. Þetta
var fjölskylda okkar í Reykjavík,
þeim ókunna ævintýraheimi sem
borgin var á æskuárunum. Þau
leiddu okkur fyrst inn í þennan
heim og kynntu okkur borgina,
sýndu okkur það markverðasta og
fræddu. Þau fylgdust síðan óslitið
með vegferð okkar allra og sýndu
okkur mikla alúð og umhyggju.
Fyrir það verð ég alltaf þakklátur.
Guðmundur var borgarmaður,
menningarlega þenkjandi og
fylgdist vel með straumum og
stefnum sem og í stjórnmálum, en
hann hafði róttækar skoðanir á
samfélagsmálum og var verka-
lýðssinni. Fjölskyldufyrirtækið
Bókfell varð hans starfsvettvang-
ur og það var upplifun fyrir ungan
dreng og jafnan síðar að koma þar
í heimsókn. Þjóðkunn ritverk urðu
þar að bókum og virðingin fyrir
bókinni, bæði innihaldi og hand-
verki, lá í loftinu. Ósjaldan áskotn-
aðist mér eintak úr hendi Guð-
mundar með hvatningu um að
lesa. Allt þetta jók mér heldur víð-
sýni og þekkingu á veröldinni.
Guðmundur unni lífinu og fegurð-
inni, hann hafði yndi af að um-
gangast fólk, var kíminn. Glettið
og stríðnislegt augnaráð lifir í
huganum. Þau hjónin voru sam-
hent, lifðu í fallegu og kærleiks-
ríku hjónabandi alla tíð. Þær eru
dýrmætar í minningunni sumar-
heimsóknir þeirra norður, þau
höfðu mikið að gefa af fróðleik og
frásögnum. Guðmundur komst oft
á ágætt flug í aristókratískri um-
ræðu, ekki síst ef búið var að
dreypa á gullnum veigum kvöld-
stund. Það lýsir eiginleikum Guð-
mundar vel að allt frá því að þau
hjónin kynntust opnaði hann dyr
fyrir ömmu sem bjó hjá þeim á efri
árum. Hann sagði sjálfur að það
hefði ekki í eitt einasta sinn fallið
styggðaryrði þeirra á milli. Ég
minnist þess að Guðmundur var sá
fyrsti sem ræddi alvarlega við mig
um erfið mál eins og fullorðinn
mann, jafningja. Minningin er
skýr og lifandi þegar við tveir
stóðum um bjarta, stillta sumar-
nótt á bökkum Eyjafjarðarár við
fjölskyldubústað okkar í Vaðla-
heiði, töluðum og þögðum, veiði-
stöng var með og rauðvínskútur í
tágakörfu. Hann fór þá með fal-
legt ljóð eftir Sigurð Sigurðsson
frá Arnarholti sem ég mun ævin-
lega tileinka honum:
Sól stattu kyrr þó að kalli þig sær
til hvílu. Ég elska þig heitar.
Þú blindar mín augu, en þú ert mér svo
kær.
Og eins hvort þú skín eða bæn minni
neitar.
Ég sæki þér nær, þótt þú færir þig
fjær.
Þótt þú fallir í djúpið mitt hjarta til geisl-
anna leitar.
Engin sól stendur kyrr og sól
míns trausta vinar og velgjörðar-
manns er hnigin til viðar. Björk
frænka mín lést fyrir fjórum mán-
uðum og hver veit nema hann
flytji henni ljóðið góða við kæra
endurfundi. Blessuð sé minning
þeirra beggja. Við Dýrfinna send-
um fjölskyldunni, okkar kæru vin-
um innilegustu samúðarkveðjur.
Guðjón Svarfdal Brjánsson.
Rétt fyrir miðja síðustu öld
varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi
að komast á námssamning í bók-
bandi hjá Aðalsteini Sigurðssyni
bókbandsmeistara í Bókfelli í
Reykjavík. Guðmundur Þórhalls-
son sem hér er kvaddur í dag var
þá að ljúka sínu bókbandsnámi
þar, en hann var mágur Aðal-
steins, en systir Guðmundar var
Sigurleif Þórhallsdóttir, Bjarnar-
sonar prentara. Síðan eru liðin 70
ár. Á þessum tíma var erfitt að
komast í iðnnám og það giltu viss-
ar reglur um töku nema. Það fór
eftir sveinafjölda hvað nemarnir
máttu vera margir. Ég var búin að
reyna mikið til að komast að ann-
ars staðar en öll sund virtust lok-
uð. Þá opnaðist allt í einu þessi
möguleiki, feður okkar Guðmund-
ar voru gamlir vinir og þetta ein-
hvern veginn small saman. Guð-
mundur lauk námi í október 1947
og ég byrjaði í nóvember. Þetta
voru skemmtilegir tímar, mikill
uppgangur í bókaútgáfunni og
mikil vinna, sérstaklega fyrir jólin.
Bókfell var á þessum árum lík-
lega stærsta og nýtískulegasta
bókbandið á landinu og þar unnu
um 30 manns. Guðmundur var
fyrsti lærlingurinn í Bókfelli, en
ég var sá þriðji. Helgi Hrafn
Helgason var á milli okkar
Mumma en hann lést fyrir aldur
fram 48 ára gamall. Guðmundur
gerðist brátt meðeigandi mágs
síns Aðalsteins og tók við verk-
stjórastarfinu af honum og seinna
varð hann formaður stjórnar fyr-
irtækisins og aðalstjórnandi þess
ásamt Kristjáni, syni Aðalsteins,
sem varð framkvæmdastjóri 1969
þegar faðir hans lést.
Á öllum þessum uppgangs- og
umbrotatímum störfuðum við Guð-
mundur mjög náið saman. Hann
var skemmtilegur félagi og gott að
vinna með honum. Hann tók mjög
fljótt að sér að vélgylla allt sem
þurfti að gylla fyrir fyrirtækið og
það var unun að fylgjast með hon-
um leysa málin þegar vanda bar að
höndum. Mér er minnisstætt þeg-
ar Bókfell tók að sér að binda Guð-
brandsbiblíu 1956, en hún er með
stærstu bókum sem bundnar hafa
verið hér á landi. Þá kom það í hans
hlut að gylla og þrykkja bindin sem
voru eiginlega alltof stór fyrir gyll-
ingarvélina, en Guðmundur leysti
það verk hugvitssamlega af hendi.
Guðmundur átti því láni að fagna
að giftast góðri konu, Björk Guð-
jónsdóttur, frá Skáldalæk í Svarf-
aðardal. Hún lést í mars á þessu
ári. Þau byrjuðu búskap í heimabæ
Bjarkar, Akureyri, þar sem Guð-
mundur vann um tíma í bókbandi
POB. Ein minning hefur lengi lifað
í hugskoti mínu síðan þá. Sumarið
1954 gerðum við félagarnir
Tryggvi Sveinbjörnsson og Skúli
Alexandersson víðreist um landið
og veiddum silung á heimleið í Mý-
vatni, nema hvað. Þá fannst okkur
upplagt að heimsækja nýgiftu
hjónin og fá þau til að sjóða fyrir
okkur þennan nýveidda silung sem
þau og gerðu. Þetta varð eftir-
minnileg máltíð sem seint gleym-
ist. Blessuð sé minning þeirra
allra.
Ég vil að lokum þakka þeim
hjónum, Guðmundi og Björk, fyrir
samfylgdina á liðnum árum og all-
ar skemmtilegu stundirnar. Við
Ragna sendum öllum aðstandend-
um samúðarkveðjur.
Svanur Jóhannesson.
Guðmundur
Þórhallsson
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG RINGSTED
viðskiptafræðingur,
lést þriðjudaginn 18. júlí á heimili sínu í
faðmi fjölskyldu.
Valmundur Pétur Árnason
Baldvin Ringsted Svandís Jóhannsdóttir
Árni Már Valmundarson Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
Pétur Örn Valmundarson Hlín Ólafsdóttir
Stefán Ernir Valmundarson Ragnheiður Emilía
Auðunsdóttir
og barnabörn