Morgunblaðið - 25.07.2017, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 25.07.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Fyrstu kökurnar, sem égkom færandi hendi með ívinnuna, voru alls ekki fal-legar. Þær áttu að vera eins og uglur, en ein samstarfskona mín, afskaplega hreinskilin mann- eskja, spurði hvort þetta væru mauraætur,“ rifjar Karen Kjart- ansdóttir upp og skellihlær. Uglur eða mauraætur, gilti einu, kökurnar voru borðaðar með bestu lyst. Æf- ingin skapar meistarann og hún lét ekki slá sig út af laginu. Núna, fjór- um árum síðar, velkist ábyggilega enginn í vafa um hvaða glassúrfíg- úrur prýða stórar sem smáar kökur Karenar. Fíngerð og frumleg mynstrin á öðrum eru svo kapítuli út af fyrir sig. Karen er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir að mennt í 80% starfi á næturvöktum á Landakoti. Hún á frí aðra hverja viku og veit þá fátt skemmtilegra en að dunda sér við kökugerð í eldhúsinu heima hjá sér eða bútasaum í sauma- og hobbí- herberginu sínu. Þar segir hún flæða upp úr öllum skúffum og skápum. Nýjasta handverkið er hvít ball- ettmús í tjullpilsi og með kórónu sem Karen saumaði til að gleðja litla son- ardóttur sína. Aðallega fyrir barnabörnin „Kökugerðin er bara tóm- stundagaman til að gera lífið skemmtilegra, kalla fram bros og gleðja fólk, aðallega þó barnabörnin mín,“ segir Karen, sem ennþá gæðir félögum sínum á næturvaktinni ann- Kökur sem gleðja og kalla fram bros Karen Kjartansdóttir, sem er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir að mennt, vinnur á næturvöktum á Landakoti og á frí aðra hverja viku. Þá situr hún ekki auðum höndum heldur bakar kökur, sem hún skreytir af hjartans lyst og gefur stundum samstarfsfólki sínu að smakka. Kökurnar segir hún þó aðallega gerðar fyrir barnabörnin sín, sem séu himinlifandi að bjóða upp á köngulóarmanninn og aðr- ar eftirlætis ævintýrahetjur sínar í afmælisveislum. Morgunblaðið/Hanna Vinnustofan Karen saumar og undirbýr kökugerð í hobbíherberginu sínu. Veislugestir Köngulóarmaðurinn og Poppí, drotting lukkutröllanna. Hið árlega peppkvöld Druslugöng- unnar verður haldið annað kvöld, kl. 20, miðvikudaginn 26. júlí. Fagnaður- inn stendur fram yfir miðnætti í Bryggjunni Brugghúsi, Grandagarði 8. Alls konar drusluvarningur verður á boðstólum inni á staðnum sem og við innganginn og fyrir utan ef veður leyfir. Þar sem viðburðurinn er hald- inn á vínveitingastað er 20 ára ald- urstakmark. Druslugangan var fyrst farin í apríl árið 2011 í Torontó í Kanada og hafa druslugöngur síðan verið farnar víða um heim. Fyrsta druslugangan var farin nokkrum mánuðum síðar sama ár í Reykjavík og er nú orðin að föst- um punkti þar sem samfélagið rís upp gegn kynferðisofbeldi og stend- ur með þolendum. Gangan hefur orð- ið fjölmennari með hverju árinu sem líður. Markmiðið er að uppræta fordóma varðandi klæðaburð og ástand þeirra sem verða fyrir kynferðisofbeldi og vekja athygli á því að það eru ger- endur sem bera ábyrgð. Slagorðið er: Færum skömmina þangað sem hún á heima. Druslugangan í Reykjavík verður farin frá Hallgrímskirkju klukkan 14.00, laugardaginn 29. júlí. Gengið verður niður Skólavörðustíg, Banka- stræti og mun gangan enda á Aust- urvelli þar sem við taka fundahöld og tónleikar. Peppkvöld í Bryggjunni Brugghúsi fyrir Druslugönguna Morgunblaðið/Árni Sæberg Skrautlegar Fólk á öllum aldri og í alls konar múnderingum tók þátt í Druslu- göngunni í fyrra. Druslugangan var fyrst farin í Reykjavík árið 2011. Endalaus drusluást og stemning Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek í 60 ár Arctic Trucks Kletthálsi 3 110 Reykjavík sími 540 4900 info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is EXPLORE WITHOUT LIMITS ® Vandaðar plasthlífar á flestar gerðir bifreiða sem hlífa bílnum gegn grjótkasti og varna lakkskemmdum. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er! • Húddhlífar • Gluggavindhlífar • Ljósahlífar PLASTHLÍFAR Þeir sem hafa gaman af að dansa hafa undanfarin þriðjudagskvöld margir hverjir notað tækifærið og brugðið sér í Dansverkstæðið, Skúla- götu 30, þar sem boðið hefur verið upp á Dans í dimmu í tæplega þrjú ár. Ljósin eru slökkt og kveikt á dúndr- andi tónlist, nýju mixi í hvert sinn og leikin tónlist af alls kyns toga. Í kvöld kl. 19.30-22, þriðjudag 25. júlí, verður Dans í dimmu í síðasta sinn í þeirri mynd sem verið hefur. Dansglöðum til hugarhægðar skal tekið fram að þráðurinn verður tek- inn aftur upp í haust og verða breyt- ingarnar kynntar innan tíðar. Tíminn í kvöld verður tvöfaldur með stuttu hléi á milli. Öllum er velkomið að koma og dansa af hjartans lyst. Tím- inn er ekki leiddur og hver og einn er frjáls í myrkrinu og dansar einfald- lega eins og honum er einum lagið. Tvöfaldur danstími í Dansverkstæðinu Frelsi Í dimmunni dansar hver og einn eins og honum einum er lagið. Dansinn dunar í dimmunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.