Morgunblaðið - 25.07.2017, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA
INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum,
heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó,
Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
KRISTÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
„Ég heiti Kristín
og var ráðlagt að
prófa geosilica
vegna hármissis. Fékk nokkra skallabletti líklegast
vegna áfalls og að vera 23 með skalla var ekki
drauma aðstæðurnar! Fyrst leit þetta ekkert
svakalega vel út þar sem hárið virtist ekki ætla að koma til baka. Ég byrjaði að taka
þetta inn á hverjum degi og viti menn. Hárið byrjaði að vaxa á ógnarhraða!
Ég er svo ánægð að þetta gerðist svona fljótt því læknarnir sögðu að kannski kemur
það aftur kannski ekki og ekki til eitthvað úrræði sem er betra en annað.
En geosilica fékk allavega hárið til þess að vaxa!
Hér er smá fyrir og eftir myndir. “
• Styrkir bandvefinn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Gísli Rúnar Gíslason
gislirunar@mbl.is
Undanfarin ár hefur Valitor þróast
mikið og einbeitt sér í auknum mæli
að hugbúnaðarlausnum og erlendum
mörkuðum og hefur erlend velta Val-
itor aukist úr 18% af heildarveltu í
byrjun árs 2013 í um 70% í dag.
Fyrirtækið er í samstarfi við stór
erlend fyrirtæki sem nýta hugbúnað-
arlausnir Valitor í ýmsum tilgangi.
„Yfirleitt er það þannig að þessir að-
ilar sem við erum í samstarfi með sjá
um sölu og markaðssetningu og við
sköffum tæknina. Fyrirtækið hefur
breyst gríðarlega mikið frá því að það
hét Visa Iceland og var fyrst og
fremst í kortaútgáfu,“ segir Viðar
Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Hálf milljón gjaldeyriskorta
Meðal erlendra verkefna Valitor er
útgáfa svokallaðra gjaldeyriskorta
fyrir hönd breska fyrirtækisins Cax-
ton FX, en auglýsingar um kortið
hafa birst á erlendum sjónvarps-
stöðvum hér á landi. „Við höfum verið
í samstarfi við Caxton FX í fjögur ár
og það hefur gengið mjög vel. Við er-
um í dag með vel yfir 400 þúsund kort
þar sem okkar hlutverk er að sjá um
alla tæknina og útgáfu kortanna.
Caxton FX er einn af þremur stærstu
aðilunum í Bretlandi sem bjóða neyt-
endum upp á gjaldeyriskort en það er
mikil hefð fyrir þeim í Bretlandi og
stór markaður.“
Þrátt fyrir að gjaldeyriskort séu
ekki sérstakt breskt fyrirbæri hafa
slík kort náð mestri útbreiðslu þar í
landi. Hugmyndin að baki gjaldeyr-
iskortunum er sú að einstaklingar eða
fyrirtæki geti fengið sérstakt fyrir-
framgreitt greiðslukort til að halda
utan um gjaldeyri á ferðalögum sín-
um. Þannig geta ferðalangar
skammtað sér ákveðinni fjárhæð fyr-
ir ferðalagið og haldið almenna
greiðslukortinu sínu aðskildu. „Það
er ákveðin sparnaðarhugsun á bak
við þetta fyrirkomulag. Notkun kort-
anna endurspeglar það að þessi kort
eru mest notuð í fríum þar sem notk-
unin er mest yfir helstu sumarleyf-
ismánuðina,“ segir Viðar.
Í boði fyrir ferðamenn á Íslandi
„Það hefur komið til tals að mark-
aðssetja gjaldeyriskort hérlendis en
gjaldeyrishöftin stóðu kannski helst í
vegi fyrir því. Aflétting haftanna býð-
ur náttúrlega upp á það að svona kort
verði markaðssett hérlendis. Arion
banki hefur verið að bjóða upp á
svona kort í Leifsstöð fyrir erlenda
ferðamenn, sem velja þá ákveðna
fjárhæð til að hafa á greiðslukorti og
nota það bara í fríinu.“
Gjaldeyriskort hafa verið í mikilli
sókn undanfarið en kortin sem Val-
itor og Caxton FX gefa út í samein-
ingu byggjast á svokölluðu fjölmynta-
veski (e. multi currency e-wallet) sem
er hannað af Valitor og er rafrænt
veski sem veitir eigandanum raun-
tímayfirlit yfir verðmæti heildarinn-
eignar og stöðu gjaldmiðla í veskinu.
„Svo gott sem öll vinna af okkar
hálfu í tengslum við þessi kort fer
fram hérlendis. Það er stór hópur
fólks að þróa hugbúnað og greiðslu-
miðlunarlausnir. Starfsemi okkar í
dag byggist að miklu leyti á hugbún-
aðarþróun og rekstri á upplýsinga-
tæknikerfum. Við erum með sölufólk
í Bretlandi, en hjá okkur starfa um
það bil 100 af 370 starfsmönnum við
hugbúnaðarþróun. Meginþorri þeirra
er í skrifstofum okkar að Dalshrauni í
Hafnarfirði en síðan erum við með
teymi í Danmörku. Í dag erum við
örugglega eitt stærsta hugbúnaðar-
hús á Íslandi.“
Fleiri verkefni í gangi
Meðal annarra stórra alþjóðlegra
verkefna Valitor má nefna samstarf
við kanadíska fyrirtækið Hyper-
wallet, sem er umsvifamikið í Norð-
ur-Ameríku. Þá vinnur Valitor í sam-
starfi við Wex að stóru verkefni þar
sem ferðaskrifstofur nýta tækni frá
Valitor til að sjá um allar greiðslur við
bókun flugsæta. „Ferðaþjónustu-
verkefnið hjá Wex er mjög stórt og
sennilega eitt það stærsta á sínu sviði
í Evrópu,“ segir Viðar.
Hugbúnaðarlausnir
Valitor í sókn í Bretlandi
Greiðslumiðlun Valitor leggur aukna áherslu á hugbúnaðarþróun
Hafa gefið út hátt í hálfa milljón gjaldeyriskorta í samstarfi við Caxton FX
vinnustundar fyrir fasta samsetn-
ingu vinnutíma.
Aukist um 17% á tveimur árum
Kaupmáttur launa heldur því
áfram að hækka þótt heldur hafi
dregið úr hraða hækkunarinnar
frá mánuðinum á undan, en kaup-
máttur jókst um 3,0% í maí sem
var mesta hækkun á milli mánaða í
sex ár. Síðastliðin tvö ár hefur
kaupmáttur launa hækkað um tæp
17%, samkvæmt vísitölunni.
Hafa þarf í huga að kaupmáttur
launa er annar en kaupmáttur ráð-
stöfunartekna, en Hagstofan birtir
einnig upplýsingar um kaupmátt
ráðstöfunartekna þar sem tekið er
tillit til heildarlauna, annarra
tekna og tilfærslna, svo sem barna-
og vaxtabóta, að frádregnum
sköttum.
Kaupmáttur launa hefur aukist um
5,6% síðastliðna 12 mánuði, sam-
kvæmt nýjum tölum á vef Hag-
stofu Íslands. Vísitala kaupmáttar
launa hækkaði um 1% í júní frá
fyrri mánuði, en vísitalan byggist
á launavísitölu og vísitölu neyslu-
verðs.
Launavísitalan hækkaði einnig
um 1% í júní og hefur launa-
vísitalan hækkað um 7,3% síðast-
liðna tólf mánuði, samvæmt tölum
Hagstofunnar. Launavísitala er
verðvísitala sem byggist á gögnum
úr launarannsókn Hagstofu Ís-
lands og sýnir breytingar á verði
Kaupmátturinn heldur áfram að aukast
Laun hafa hækkað um 7,3% síðasta árið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Innkaup Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,6% síðastliðna 12 mánuði.
● Fjöldi kaupsamninga á höfuðborgar-
svæðinu var 1.834 á öðrum fjórðungi
ársins. Þar af voru 439 vegna fyrstu
kaupa eða 24%. Þetta kemur fram í
nýjum tölum sem birtar eru á vef Þjóð-
skrár Íslands. Ef þetta er borið saman
við sama ársfjórðung í fyrra námu
kaupsamningar þá 2.209 og voru fyrstu
kaup þá einnig 24% eða 524 talsins.
Alls var fjöldi kaupsamninga á land-
inu öllu 2.941 á öðrum ársfjórðungi og
var fjöldi þeirra sem voru að kaupa sína
fyrstu íbúð 708 eða 24%. Á sama fjórð-
ungi í fyrra var fjöldi kaupsamninga alls
3.283 og voru 813 vegna fyrstu kaupa,
eða 25%.
Fjórðungur kaupsamn-
inga vegna fyrstu kaupa
25. júlí 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 102.57 103.05 102.81
Sterlingspund 133.62 134.26 133.94
Kanadadalur 81.26 81.74 81.5
Dönsk króna 15.934 16.028 15.981
Norsk króna 12.669 12.743 12.706
Sænsk króna 12.382 12.454 12.418
Svissn. franki 107.45 108.05 107.75
Japanskt jen 0.9146 0.92 0.9173
SDR 143.34 144.2 143.77
Evra 118.52 119.18 118.85
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.5921
Hrávöruverð
Gull 1255.85 ($/únsa)
Ál 1900.5 ($/tonn) LME
Hráolía 49.33 ($/fatið) Brent
Þótt ýmis merki séu uppi um að
breytingar kunni að vera í vændum
á fasteignamarkaði er ekki hægt að
slá neinu föstu um hvort svo sé í
raun og veru, að mati hagfræði-
deildar Landsbankans. Í Hagsjá
bankans er fjallað um málið og bent
á að það taki langan tíma að auka
framboð húsnæðis og því mun
spennuástand á markaðnum vara
eitthvað áfram.
Verulega dró úr hækkunum á
fasteignaverði á höfuðborgarsvæð-
inu í júní miðað við fyrri mánuði,
samkvæmt nýlegum tölum Þjóð-
skrár Íslands. Fasteignaverð á
höfuðborgarsvæðinu hækkaði um
0,2% í júní, þar af hækkaði verð á
sérbýli um 1,6% en verð á fjölbýli
lækkaði um 0,2%. Hækkun fast-
eignaverðs nú í júní er sú minnsta
síðan í ágúst 2015 og hefur fjölbýli
ekki lækkað í verði síðan í júní 2015.
Landsbankinn telur að of snemmt
sé að segja nokkuð um hvort mark-
aðurinn sé að kólna eða ekki, enda
sé sumarið oft rólegur tími í fast-
eignaviðskiptum. Þar að auki megi
ætla að framboð hafi ekki enn auk-
ist nægilega til þess að hafa áhrif á
verðþróun.
Sölutími hefur lengst
Landsbankinn segir tölur sýna að
auglýstum fasteignum hafi fjölgað
eilítið á allra síðustu mánuðum eftir
að hafa verið í lágmarki nú í vor. Þá
bendir bankinn á að sölutími íbúða
hafi lengst nokkuð eftir að hafa ver-
ið í sögulegu lágmarki á fyrstu mán-
uðum ársins.
Verðbólga hefur verið lítil og
stöðug síðustu misseri og því hefur
raunverð fasteigna hækkað mun
meira en ella, segir í Hagsjánni.
Raunverð fasteigna hefur þannig
hækkað um um það bil fjórðung á
einu ári.
Merki um breytingar á markaði
Ekki hægt að slá
neinu föstu um þróun
fasteignaverðs
Morgunblaðið/Ófeigur
Íbúðir Hækkun fasteignaverðs í júní
er sú minnsta frá ágúst 2015.
● Segja má að
sumarbragur sé á
Kauphöll Íslands
um þessar mundir,
en heildarvelta
með hlutabréf nam
tæplega 554 millj-
ónum króna í gær,
mánudag, og ein-
ungis 298 millj-
ónum króna á
föstudaginn.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,2% í
gær og hefur vísitalan hækkað um sam-
tals 4,25% frá áramótum. Mest hækk-
uðu bréf í Högum um 0,9% í 55 millj-
óna króna viðskiptum. Mest viðskipti
voru með hlutabréf í Marel, fyrir 161
milljón króna, og hækkaði gengi bréf-
anna um tæplega 0,6%.
Rólegt á hlutabréfa-
markaði þessa dagana
Hlutabréf Lítil við-
skipti þessa daga.
STUTT