Morgunblaðið - 25.07.2017, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017
Ég hef verið að ferðast töluvert og var allan veturinn í Mið- ogSuður-Ameríku, meðal annars til að læra spænsku. Ég heim-sótti tólf lönd allt frá Mexíkó til Síle,“ segir Halldór Friðrik
Þorsteinsson, sem á 50 ára afmæli í dag.
Í haust ætlar Halldór Friðrik að gefa út bók, ferðasögu, um Afríku-
ferð sem hann fór fyrir fjórum árum. „Þetta var sex mánaða ferð um
fjórtán lönd sunnan Sahara, vestur frá Senegal, austur til Eþíópíu og
suður til Suður-Afríku. Þetta var litrík ferð á framandi slóðum og
vonandi næ ég að miðla henni í þessari bók minni. Þetta verður fyrsta
bókin mín en hugurinn hefur lengi staðið til skrifta og vonandi fæ ég
tækifæri til að gera meira af því í framtíðinni.“
Halldór Friðrik var eigandi H.F. Verðbréfa um tólf ára skeið en
seldi fyrirtækið fyrir tveimur árum. Nú er hann einn af þremur hlut-
höfum í hugbúnaðarhúsinu Stokki, en fyrirtækið sérhæfir sig í að
gera öpp, eða smáforrit, fyrir snjallsíma. „Okkar aðalvara í dag er at-
vinnuleitarappið Alfreð sem nýtur vaxandi vinsælda.“
Auk ferðalaga bæði hér innanlands og erlendis les Halldór Friðrik
mikið. „Ég er með góðan stafla á náttborðinu og var að byrja á bók
sem er nýkomin út í kilju og heitir Mannsævi, eftir Robert Seethaler.
Hún gerist í Ölpunum og lofar góðu. Ég les allt nema sakamálasögur
og er mikill ævisögumaður, unnustan er að lesa Veröld sem var, sem
er ein af mínum uppáhalds.“ Hún heitir Steindóra Gunnlaugsdóttir og
er kennari í Austurbæjarskóla. Börn Halldórs Friðriks eru Þorsteinn
Friðrik, f. 1992, Magnús Friðrik, f. 1999, og Sigrún Ásta, f. 2002.
Halldór Friðrik ætlar að eyða deginum með fjölskyldunni. „Svo er
ég að fara í hálendisgöngu á fimmtudaginn meðfram Langasjó og
endar hún með fagnaði í Hólaskjóli.“
Í Gvatemala Halldór Friðrik ásamt konu á förnum vegi í borginni
Antigua, en hún seldi honum handprjón.
Gefur út ferðasögu
um Afríkuferð í haust
Halldór Friðrik Þorsteinsson er fimmtugur
H
rönn fæddist í Reykja-
vík 25.7. 1977 og ólst
þar upp, fyrst við
Flókagötuna við
Klambratún, en síðan
í Fossvoginum, Kópavogs megin, frá
sex ára aldri:
„Klambratúnið var nú ekkert tún
þegar ég man fyrst eftir mér. Þar
voru Kjarvalsstaðir komnir og
skrúðgarður og búið að skíra upp
pleisið sem hét nú Miklatún. Nú er
víst búið að taka aftur upp gamla
nafnið sem ég notaði alltaf.
Fossvogurinn var svo líka dásam-
legur. Við fluttum í fyrsta húsið við
götuna, og við krakkarnir höfðum
allan þennan dal fyrir okkur og lék-
um okkur í hálfbyggðum húsum.“
Hrönn byrjaði fimm ára í Ísaks-
skóla og var síðan í Snælandsskóla
frá níu ára aldri. Hún var í MR og
lauk stúdentsprófi þaðan 1997:
„Ég útskrifaðist frá fornmáladeild
MR, lærði því latínu og las Gamla
testamentið á grísku. Þetta kann að
hljóma nördalegt, en þegar ég var í
MR flutti fjölskyldan á Bergstaða-
stræti 7 í 101, ég varð plötusnúður á
ýmsum skemmtistöðum og snéri
jafnvel plötum í útlöndum. Ég var
því ekki hefðbundið málanörd þó að
ég væri í fornmáladeild.“
Hrönn hafði einnig verið að vinna
tónlistarmyndbönd, byrjaði síðan á
RÚV og 1998 var hún, ásamt Árna,
bróður sínum, með fastan sjónvarps-
þátt á RÚV: Kolkrabbann: „Á þess-
um tíma hafði skapast tækifæri til að
taka upp á stafrænar myndavélar og
klippa myndefnið sjálfur í tölvu.
Þetta var því fyrsti þátturinn sem
dagskrárgerðarmenn unnu alveg
sjálfir. Skjár einn varð svo til upp úr
þessu og við fórum fljótlega að fram-
leiða þætti fyrir þau.“
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíós Paradísar – 40 ára
Í sumarfríi Fjölskyldan við́ Lake Michigan . Fr.v.: Steven, Úrsúla Sigrún, Nina Þyri, Mía Margrét og Hrönn.
Allt í sólarátt með
rekstur Bíós Paradísar
Bíómæðgur Mía Margrét og Hrönn
á barnasýningu í Bíó Paradís.
Reykjavík Stefán Ólafur
Stefánsson fæddist 25.
júlí 2016 og á því eins árs
afmæli í dag. Hann vó
3.600 g og var 51 cm
langur. Foreldrar hans
eru Stefán Ólafur Stef-
ánsson og Guðbjörg
Guttormsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Baðvörur frá
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Sturtusett
4.590,-
Sturtuhaus
1.690,-
Stutubarki
1.590,
Eigum ávalt úrval
af sturtuhengjum
og öðrum
baðfylgihlutum
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16