Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.07.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Hljómsveitina Madonna + Child um- lykur mikil dulúð. Meðlimirnir eru tvær stúlkur sem koma ekki fram undir nafni og hylja andlit sín. Blaða- maður náði í stúlkurnar í gegnum síma, en þær segjast vera hvor sinn helmingurinn af sömu manneskjunni svo ekki skipti máli hvor þeirra tekur til máls. Hverjar eruð þið og hvaðan komið þið? „Í rauninni veit það enginn. Madonna + Child birtust bara ein- hvers staðar, upp úr þurru, og eng- inn veit hvaðan, hvar eða hvers vegna. “ Spurðar hvort þær séu í öðrum tónlistarstörfum þar sem þær komi fram undir nafni segja þær það vera mögulegt en enginn viti það. Um val sitt að vera nafnlausar segja þær: „Í rauninni skiptir þetta eiginlega ekki máli, hver er hver, hvor er hvað eða hver hvað. Við erum bara sama manneskjan því við erum það, við er- um báðar Madonna og báðar Child. Ekkert skiptir máli.“ Hvernig tónlist spilið þið? „Við notum drungalegar melódíur og tölvuteknóbít sem við blöndum saman. Sum lögin eru sorgleg og sum eru skrýtin. Það er misjafnt. Það fer Syngja um dauða, kisur og kanínur Nafnlausar „Í rauninni skiptir þetta eiginlega ekki máli, hver er hver.“ bara eftir sálinni. Við syngjum um dauðann og dráp og kisur og kanínur. En þetta er samt eiginlega bara ein- hvern veginn svona draumadauða- heimurinn okkar. Við sköpuðum svona heim í kring um Madonnu + Child og sérstakt andrúmsloft. Fólk sem skilur, það skilur.“ Þær segjast búnar að vera í pásu í svolítinn tíma en í síðustu viku komu þær fram í Mengi þar sem þær voru með listsýningu, gjörninga, bóka- útgáfu og tónleika. „Síðan erum við með útgáfutónleika á Húrra 26. júlí kl. 20 ásamt Panos from Komodo og dj. flugvél og geimskip og DJ Harry Knuckles.“ En þetta er ekki beint venjuleg út- gáfa hjá Madonnu + Child því þær eru að gefa út kassettu. Hvers vegna kassettu? „Okkur bauðst það í rauninni bara. Við gefum út hjá útgáfufyrirtæki sem heitir Lady Boy Records og þeir gefa út alls konar blandaðar stefnur. Það var það fyrsta sem bauðst og það hljómaði bara nokkuð vel.“ Eruð þið ekkert hræddar um að fólk eigi ekki kassettutæki? „Þá kaupir það sér bara kassettu- tæki. Þau eru til í Kolaportinu.“ thorgerdur@mbl.is  Madonna + Child er dulúðug hljóm- sveit  Kassettuútgáfutónleikar á Húrra Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Við erum alveg í startholunum fyr- ir þessa skemmtilegu ferð,“ segir Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri Hamrahlíðarkórsins sem er á leið í tónleikaferð til Skotlands. Af því til- efni ætlar kórinn að halda tónleika í Háteigskirkju annað kvöld, miðviku- dagskvöld, kl. 20, þar sem hann mun flytja sýnishorn af þeim efnisskrám sem hann tekur með í ferðina. Hamrahlíðarkórinn fékk boð um að taka þátt í Alþjóðlegu listahátíð- inni fyrir ungt fólk í Aberdeen í Skotlandi sem stendur yfir frá 28. júlí til 7. ágúst. Þorgerður segir æfingaferlið hafa verið stíft og þau hafi nær ekki feng- ið neitt sumarfrí. „Við tókum líka að okkur verkefni með Björk sem við höfum nýlega lokið við. Hópurinn samanstendur af 53 söngvurum sem eru annaðhvort út- skrifaðir frá MH eða langt komnir í Ekki fengið neitt sumarfrí Ljósmynd/Hrefna Björg Gylfadóttir Þjóðleg Þorgerður segir ekki alla hafa ratað í myndatökuna í Elliðaárdalnum í síðastliðinni viku. Stúlkurnar verða í þjóðbúningum sem margar hafa fengið hjá langömmum sínum en of dýrt var að leigja búninga á strákana. náminu þar. Við verðum í 10 daga í Skotlandi, dagskráin er mjög þétt og við verðum a.m.k. með 11 tón- leika.“ Þorgerður segir að á hátíðina veljist fólk af ólíku þjóðerni sem skarað hefur fram úr. Allir þátttak- endur eru á aldrinum 16 til 26 ára. „Eins og krakkarnir hjá mér myndu segja þá eru engir gamlingjar þarna nema einhverjir stjórnendur eins og ég,“ segir hún og hlær. Fulltrúar Íslands á hátíðinni „Við munum koma fram á tón- leikum í kirkjum, köstulum og öðr- um tónleikahúsum bæði í Aberdeen og í öðrum bæjum og borgum. Þá verðum við með í blandaðri dagskrá með öðrum þátttakendum hátíð- arinnar, t.d. hljóðfæraleikurum og dönsurum,“ segir Þorgerður. Kórinn tekur með sér yfirlitsefn- isskrá sem gefur hugmynd um sögu kórsins og þá tónlist sem hann flyt- ur. „Við erum fulltrúar Íslands á há- tíðinni og leggjum áherslu á að kynna íslenska tónlist. Meðal annars verðum við með þjóðlagasyrpu sem Hafliði Hallgrímsson tónskáld gerði og tileinkaði mér fyrir allmörgum árum, en hann bjó lengi í Skotlandi og er þekktur þar.“ Þorgerður nefn- ir einnig að þau flytji meðal annars verk eftir Jón Nordal, Þorkel Sig- urbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Huga Guð- mundsson og Gunnar Andreas Kristinsson. „Við förum víða og flytjum fjölbreyttar efnisskrár og einnig eldri tónlist, til dæmis eftir Pál Ísólfsson.“ „Við hlökkum mikið til og það er glaður hugur í okkur. Þetta er búið að vera mjög ánægjulegur undir- búningur. Ég dáist að krökkunum þegar allir eru að fara í útilegurnar en við erum hér að æfa jafnvel á laugardags- og sunnudagskvöldum. Það þarf að leggja á sig, það er lög- málið mikla, úthald og góður vilji,“ segir hún að lokum.  Hamrahlíðarkórinn fer í tónleikaferðalag til Skotlands  Verður með tónleika í Háteigskirkju annað kvöld kl. 20 Lífið – stórkostlegt drullumall úr smiðju leikhússins 10 fingur verður sýnt í Shanghai í Kína alls 24 sinn- um á þriggja vikna leikferðalagi leikhópsins um þessar mundir. Leiksýningin var frumsýnd hér- lendis 2015 og hlaut Grímuna sem Besta barnasýningin og Sproti árs- ins. Charlotte Bøving og Helga Arnalds leikstýra og Sveinn Ólafur Gunnarsson og Sólveig Guðmunds- dóttir leika, en öll eru þau höf- undar verksins. „Lífið er sýnt í A.S.K eða Art Space for Kids, sem er öflug einka- rekin barnamenningarstofnun í Shanghai,“ segir í tilkynningu frá hópnum og á það bent að mikið sé lagt upp úr því að upplifun leik- húsgesta verði sem eftirminnileg- ust. „Þannig er börnunum t.d. boð- ið að snerta moldina og leika sér í drullumalli eftir sýninguna sem virðist ekki vera eitthvað sem þau fá að upplifa dags daglega. Það hefur verið einstaklega skemmti- legt að fylgjast með viðbrögðum áhorfenda við sýningunni sem eru einlæg og sterk og óhætt að segja að sýningin hafi haft djúp áhrif á áhorfendur. Í tengslum við sýn- inguna var einnig boðið upp á nám- skeið í skuggaleikhúsi sem Helga Arnalds stýrði og voru mjög vel heppnuð.“ Leikhópnum 10 fingur hefur ver- ið boðið með sýninguna á leiklist- arhátíð á Möltu í nóvember. Gleði Áhorfendur fagna því að mega drullumalla að lokinni sýningu. Lífið – stórkostlegt drullumall í Kína

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.