Morgunblaðið - 25.07.2017, Síða 31
Morgunblaðið/Hanna
AF LISTUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Herbie Hancock er einn afhelstu fánaberum djassinsog orðinn goðsögn í lifanda
lífi. Hann hefur verið að í rúmlega
hálfa öld og óhræddur farið eigin
leiðir á ferðalagi sínu um heima
tónlistarinnar. Hancock er orðinn
77 ára gamall, en það var augljóst á
tónleikum hans í Hörpu á fimmtu-
dag að aldurinn er honum ekki til
trafala. Hann er léttur í spori og
fingurnir þjóta fumlaust upp og
niður nótnaborðið á leiftrandi
hraða.
Hancock var undrabarn á pí-
anó og lék Mozart með sinfóníu-
hljómsveitinni í Chicago þegar
hann var 11 ára. Djassinn heillaði
hins vegar og hann var í þeim hópi
framúrskarandi tónlistarmanna,
sem Miles Davis kallaði til liðs við
sig þegar sköpunargleði hans var
hvað mest á sjöunda áratugnum.
Plöturnar sem hann lék á með Dav-
is telja hátt á annan tug. Samhliða
gaf hann út fjölda platna undir eig-
in nafni þar sem hann markaði sér
bás með afgerandi hætti. Tímamót
urðu þegar hann gaf út plötuna
Head Hunters árið 1973 þar sem
hann braust út fyrir raðir djass-
áhugamanna og stimplaði sig inn í
vitund mun stærri hóps. Á þessum
tíma fannst Hancock hann vera orð-
inn fullháfleygur og þungur í til-
raunastarfsemi sinni og vildi kom-
ast niður á jörðina. Á plötunni
sækir hann í fönk- og sálartónlist
og hrærir saman við þær tilraunir,
sem hann hafði verið að gera í
djassinum svo úr verður mergjaður
kokteill. Head Hunters er meðal
mest seldu djassplatna allra tíma og
verða áhrif þeirrar plötu seint of-
metin.
Á ferli sínum hefur Hancocktekið margar sveigjur og
óvænta snúninga. Hann hefur feng-
ið ein Óskarsverðlaun og 14
Grammy-verðlaun. Einnig hefur
hann leikið í kvikmyndum og á
Í fjölskrúðugum tónheimi Hancocks
meira að segja sprett í einni, Valeri-
an, sem sýnd er um þessar mundir í
kvikmyndahúsum landsins.
Hancock var með frábæra spil-
ara sér til fulltingis á tónleikunum í
Hörpu. Vinnie Colaiuta er einn af
þekktari farandtónlistarmönnum
úr stétt trommuleikara. Það er til
marks um færni hans að hann hlaut
náð fyrir augum Franks Zappa,
eins kröfuharðasta tónlistarmanns
rokksögunnar, lék inn á nokkrar
plötur og spilaði með honum á tón-
leikaferðum. Colaiuta fór á kostum
á tónleikunum, lék af innlifun og
nákvæmni.
James Genus átti gott kvöld á
bassanum og náðu hann og Colaiuta
vel saman. Genus spilar um þessar
mundir með hljómsveitinni í grín-
þættinum Saturday Night Live og
hefur leikið með mörgum þekkt-
ustu djössurum samtímans.
Lionel Louke er slyngur gítar-
leikari. Hann ólst upp í Benín og
haft er fyrir satt að þegar hann sleit
strengi í gítarnum hafi hann þurft
að nota bremsuvír úr reiðhjóli í
staðinn því að nýir strengir lágu
ekki á lausu. Louke gerði margt vel
og er mjög fær í að spila á gítar án
þess að hann hljómi eins og gítar,
en fékk kannski að leika sér full-
mikið.
Terrace Martin spilaði á saxó-
fón og hljómborð. Martin er ým-
islegt til lista lagt, rappar, syngur
og semur og hefur verið upp-
tökustjóri rappara á borð við Kend-
rick Lamar og Snoop Dogg. Hann
átti fína spretti og hefði mátt fá að
blása aðeins meira í lúðurinn.
Hljómsveitin fór úr einu í ann-að á tónleikunum og lék yf-
irleitt sem einn maður og þegar hún
einu sinni hikstaði baðst Hancock
afsökunar á að hafa gleymt sér og
komið of seint inn í tvígang. Hann
bætti við að nú yrði hann sektaður.
Höfuðpaurinn var í góðu skapi
og fagnaði því að vera kominn til Ís-
lands á ný. Hann rifjaði upp þegar
hann kom hingað fyrst 1986 þegar
hann lék einleik á Broadway. Bætti
við að þá hefði verið mikið drukkið
og slengdi svo fram þeirri mótsögn
að drykki hann enn svona mikið
stæði hann ekki á sviðinu heldur
lægi nokkrum metrum neðar í
jörðu.
Á löngum ferli hefur Hancockekki alltaf hitt í mark, en þeg-
ar honum hefur tekist vel til standa
fáir honum á sporði. Á tónleikunum
bar hann fram brot af því besta. Un-
un var að heyra hljómsveitina spila
Actual Proof og hún fór á kostum í
hinu grípandi Cantaloupe Island.
Hann rifjaði upp söngtilþrif sín
af plötunni Sunlight þar sem hann
tileinkaði sér sönggervlatæknina
og söng í gegnum vocoder í laginu
Come Running to Me. Þetta popp-
aða tímabil hjá Hancock er ekki í
uppáhaldi hjá skrifara, en sessu-
nautur hans hafði á orði að nú væri
ljóst hvert franski rafdúettinn Daft
Punk hefði fengið sótt innblástur
og áhrif.
Eftir uppklappið drundi þéttur
takturinn í laginu Chameleon af
plötunni Head Hunters sem áður er
nefnd. Það var opinberun að heyra
þetta lag í fyrsta skipti á sínum tíma
og það hefur í engu glatað áhrifa-
mætti sínum þótt tæp 44 ár séu liðin
frá útkomu þess.
Hancock sýndi mikil tilþrif á
tónleikunum, hringsnerist á milli
hljómborða og hengdi meira að
segja blending af píanói og gítar
um háls sér, svokallaðan pítar, og
stökk fram á svið. Í sólóum lék hann
af slíkri innlifun að unun var á að
hlýða og sýndi að hann hefur engu
glatað þegar kemur að snerpu og
tilfinningu.
» Í sólóum lékhann af slíkri inn-
lifun að unun var á að
hlýða og sýndi að
hann hefur engu glat-
að þegar kemur að
snerpu og tilfinningu.
Goðsögn í lifanda lífi Fór á kostum á nótnaborðinu í ferðalagi í gegnum hálfrar aldar feril
Áhrifavaldur Herbie
Hancock hefur í áratugi
verið í fremstu röð
djasspíanista og sýndi
hvers hann er megnugur
á tónleikum sínum í Eld-
borg í Hörpu.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2017
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á allt
Rúmlega 40 kvenkyns þáttastjórn-
endur hjá Breska ríkisútvarpinu
hafa sent útvarpsstjóranum Tony
Hall opið bréf þar sem þær hvetja
hann til að grípa strax til aðgerða
„til að leiðrétta“ launamun kynjanna
hjá fyrirtækinu sem „vitað hafi verið
af árum saman“, en upplýst var um
launamuninn í síðustu viku. Þar kom
fram að 60% þeirra þáttastjórnenda
sem fá greitt meira en 150 þúsund
pund í árslaun eru karlar. Frá þessu
greinir á vef BBC.
Justine Greening, menntamála-
ráðherra Breta sem ber ábyrgð á
jafnréttismálum, segir „erfitt að
verja“ launamuninn á meðan
Jeremy Corbin, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, segir misræmið í
launagreiðslum „stjarnfræðilegt“.
Meðal þeirra sem undirrita bréfið
eru Sue Barker, Fiona Bruce og
Alex Jones. Þær benda á að nýleg
úttekt hafi varpað ljósi á „það sem
margar okkar hefur grunað árum
saman … að konur hjá BBC fengju
minna borgað en karlar fyrir sömu
störf. […] Samanborið við margar
konur og karla þá erum við lánsöm
og í vel launuðum störfum. Engu að
síður lifum við á tímum jafnréttis og
BBC er stofnun sem státar sig af
gildum sínum. Þú hefur sagt að þú
hyggist leiðrétta launamun
kynjanna fyrir 2020, en stjórnendur
hafa vitað af launamuninum árum
saman. Af þeim sökum köllum við
eftir því að þú bregðist umsvifalaust
við vandanum,“ segir m.a. í bréfinu
til Tony Hall.
Clare Balding segist hafa orðið
mjög hugsi yfir launamun kynjanna
hjá BBC þegar árið 2010 er hún
gerði sér grein fyrir að hún fengi
40% lægri laun en aðrir þáttastjórn-
endur í sambærilegum þáttum.
Að sögn Tony Hall er þegar „hafin
vinna“ við að minnka launamun
kynjanna. Segist hann taka ábend-
ingum bréfritara fagnandi og vonast
eftir breiðu samstarfi. „Þegar önnur
fyrirtæki birta upplýsingar um
launamun kynjanna innan sinna vé-
banda á næsta ári stefni ég að því að
BBC verði meðal þeirra fyrirtækja
sem standi sig best í samanburð-
inum. Auk þess stefni ég að því að að
þremur árum liðnum verði litið á
BBC sem fyrirmynd þegar komi að
kynjamálum og fjölbreytileika.“
Fiona Bruce Sue Barker
Skora á útvarpsstjóra að
leiðrétta stöðuna strax