Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.01.2018, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 05.01.2018, Qupperneq 2
Veður Fremur hæg norðaustanátt og skýjað með köflum í dag, en dálítil él úti við norður- og austurströndina. Gengur í allhvassa sunnanátt og fer að snjóa vestanlands seint í kvöld. sjá síðu 18 Aftur í rútínuna Daglegt líf flestra Íslendinga er nú að færast aftur í eðlilegt horf eftir jóla- og áramótafrí. Grunnskólar og framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu byrja flestir aftur í dag eða í gær. Börnin í Ísaksskóla mættu til að mynda í gær og nutu þess að hitta hvert annað í frímínútum. Fréttablaðið/Vilhelm YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA Á ÚTSÖLUNNI � Stærð: 149 x 110 x 60 cm Útsölunni lýkur á morgun Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Grillbúðin 25-50 afsláttur Opið virka daga 11-18 - Laugardag 11-16 www.grillbudin.is % LögregLumáL Tveimur Leica- myndavélum, fjórum linsum sömu gerðar og ýmsum öðrum mynda- vélabúnaði var stolið af indverskum ljósmyndara við Hallgrímskirkju 30. desember. Maðurinn kom með fjölskyldu sína til Íslands til að mynda tónlistarhátíð Sigur Rósar, Norður og niður. Hann metur tjónið á 2,7 milljónir króna og segist ekki vera tryggður. Atvikið átti sér stað þar sem fjöl- skyldan bjó sig undir að ganga um borð í flugrútu vestan við kirkjuna. Dökkklæddur maður vatt sér þá upp að ljósmyndaranum Koushik Sarkar, rétti honum snjallsíma og bað hann um að taka af sér mynd. Á meðan virðist félagi hans hafa látið til skarar skríða og tekið tvær töskur úr barnakerru án þess að hjónin yrðu þess vör. Þetta gerðist öðrum hvorum megin við klukkan fjögur. Fréttablaðið hefur undir höndum myndir af vettvangi og afrit af lög- regluskýrslu sem maðurinn gaf í kjölfarið. Það var ekki fyrr en í fluginu, þegar Sarkar fór að skoða myndir sem hann tók á síma á meðan þau biðu eftir flugrútunni, sem upp fyrir honum rann hvernig í pottinn var búið. Mennirnir virðast hafa fylgst með fjölskyldunni drykk- langa stund. Á flestum myndunum snúa þeir sér þó undan síma Sarkars eða reyna að hylja andlit sín. „Ég á myndir á myndbandi af þess- um mönnum og gæti borið kennsl á þá ef ég sæi þá aftur,“ segir Sarkar, sem komið hefur myndunum til lög- reglu. Þar á bæ er málið í skoðun að sögn aðalvarðstjóra. Sarkar, sem fór í ferðina í sjálf- boðavinnu, segir að þau hjónin séu miklir aðdáendur Sigur Rósar, enda hafi þau gagngert ferðast yfir hálfan hnöttinn til að fylgjast með hljóm- sveitinni. „Við fórum með börnin okkar á tónleika sveitarinnar fyrsta daginn, svo þau myndu átta sig á hvaðan tónlistin, sem þau hafa alist upp við að hlusta á, er komin,“ segir hann en allar myndir af hátíðinni eru tapaðar. „Allan þennan búnað er mögulegt að eignast aftur en augnablikin sem ég festi á filmu koma aldrei aftur. Ég sé mest eftir þeim.“ Á meðal þess sem var í töskunum voru tvær myndavélar (týpur M8 og ME) og fjórar linsur (28, 35, 50 og 90 mm) af gerðinni Leica. Í tösk- unum var einnig Apple MacBook Air titanium fartölva, framleidd 2016, og 64 GB iPhone 5, með indversku Vodafone-símkorti, svo eitthvað sé nefnt. baldurg@frettabladid.is Bíræfnir þjófar að verki við Hallgrímskirkju Koushik Sarkar kom með fjölskylduna frá Indlandi til að mynda og upplifa tónlistarhátíð Sigur Rósar. Þjófar við Hallgrímskirkju beittu þekktri aðferð til að stela öllum búnaði hans. Sarkar er ótryggður og metur tjónið á 2,7 milljónir. eiginkona Sarkars og börn eru í forgrunni. að baki þeim sjást tveir menn fylgjast með fjölskyldunni. annar þeirra gaf sig á tal við Sarkar. mynd/Sarkar Allan þennan búnað er mögulegt að eignast aftur en augna- blikin sem ég festi á filmu koma aldrei aftur. Ég sé mest eftir þeim. Koushik Sarkar, ljósmyndari Viðskipti Stjórnendur Icelandair Group hafa ákveðið að innleiða nýtt skipurit vegna áherslubreytinga sem verið er að gera hjá fyrirtækinu. Starfsemi félagsins verður skipt í tvennt; annars vegar alþjóðaflug- starfsemi og hins vegar fjárfestingar. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að flugstarfsemi félagsins vegi þyngst í rekstri og afkomu sam- stæðunnar og það sé mikilvægt að uppbygging félagsins endurspegli þá staðreynd. Icelandair Group hafði áður til- kynnt þann 15. nóvember síðast- liðinn að rekstur og starfsemi Ice- landair Group og Icelandair yrði samþætt með þeim hætti að einn forstjóri verði yfir báðum félögum og fjármálasvið félaganna eru sam- einuð. Þá verða IGS og Icelandair Cargo hluti af Icelandair eftir breytingarn- ar. Innanlandsflugið mun tilheyra fjárfestingarhlutanum.  Markmiðið með breytingunum er að einfalda reksturinn og auka hagkvæmni. Framkvæmdastjórum samstæðunnar hefur verið fækkað um fjóra á undanförnum mánuðum vegna breytinganna. Framkvæmdastjóri Fjármálasviðs verður Bogi Nils Bogason, Elísabet Helgadóttir verður framkvæmda- stjóri mannauðssviðs, Jens Þórðar- son verður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og Birna Ósk Einars- dóttir verður framkvæmdastjóri stefnumótunar- og viðskiptaþró- unarsviðs. Þá verður Guðmundur Óskarsson framkvæmdastjóri yfir sölu- og markaðssviði. – jhh Framkvæmda- stjórum hefur fækkað um fjóra uppLýsingamáL Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki tekið afstöðu til lögbanns sem eig- endur Lagardére Travel Retail fóru fram á í desember að yrði sett á afhendingu Isavia á gögnum sem varða forval um leigu á aðstöðu fyrir veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2014. Kaffihúsið Kaffitár fékk ekki aðstöðu í flugstöðinni í forvalinu en forsvarsmenn fyrirtækisins hafa í hálft fjórða ár reynt að fá aðgang að forvalsgögnunum. Kaffitár telur að ranglega hafi verið staðið að forval- inu og að Isavia, sem rekur flugstöð- ina á Keflavíkurflugvelli, hafi skapað sér skaðabótaskyldu vegna þess. Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi og stjórnarformaður Kaffitárs, segir að lögfræðikostnaður vegna þeirrar viðleitni fyrirtækisins að fá gögnin afhent frá Isavia, nálgist tíu milljónir króna. – bg Bíða enn eftir sýslumanninum björgólfur Jóhannsson, forstjóri icelandair Group 5 . j a n ú a r 2 0 1 8 F ö s t u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 9 -B 6 B 4 1 E A 9 -B 5 7 8 1 E A 9 -B 4 3 C 1 E A 9 -B 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.