Fréttablaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 35
KYNNINGARBLAÐ 17 F Ö S T U DAG U R 5 . ja n úa r 2 0 1 8 SKóLAR oG NámSKeIÐ
elínrós gekk vel í náminu hjá mími og leið vel á námstímanum þótt námið hafi verið krefjandi. mYND/eRNIR
Sjálfstraustið jókst til muna. Ég var ótrúlega stolt af sjálfri mér,“ segir Elínrós Hjartar-
dóttir, sem lauk Menntastoðum hjá
Mími. Námið er fyrir þá sem stefna í
háskóla eða að öðru formlegu námi
og býðst einstaklingum 23 ára og
eldri.
Elínrós frétti af Menntastoðum
þegar hún sá auglýsingu frá Mími um
að þar væri hægt að nálgast náms- og
starfsráðgjafa sér að kostnaðarlausu
til að skoða möguleika á framhalds-
námi.
„Eftir samtal við ráðgjafa ákvað ég
að slá til og fara í raunfærnimat því
ég vildi sjá hvernig ég stæði gagn-
vart því að fá metnar einingar upp í
námið sem mig langaði í út frá þeirri
starfsreynslu sem ég hafði.“
Elínrós segir raunfærnimatið ekki
hafa reynst erfitt ferli.
„Mér þótti það miklu frekar
áhugavert og það kom mér á óvart
hvaða þekkingu ég hafði þrátt fyrir
að hafa ekkert sérstaklega hugsað
um það né nýtt mér þá þekkingu í
starfi.“
Þegar Elínrós skráði sig til náms í
Mími hafði hún lokið grunnskóla-
prófi og tekið nokkrar framhalds-
skólaeiningar í fjarnámi og stað-
námi.
„En ég var búin að eyða allt of
miklum tíma í að dunda mér við
það,“ segir hún og brosir. „Mér gekk
mjög vel í náminu hjá Mími. Auð-
vitað voru þar einhver fög sem ég
var slök í en á móti var ég mjög góð
í öðrum. Stærðfræðin fannst mér
alveg hrikaleg í fyrstu, en kennslan
var sem betur fer mjög góð og átti
eftir að skila sér margfalt í frekara
námi.“
margt gott í mími
„Samnemendur mínir og sam-
heldnin, utanumhald frá kennurum
og námsráðgjafarnir voru til fyrir-
myndar. Mér leið mjög vel á náms-
tímanum þó svo að námið hafi verið
krefjandi,“ segir Elínrós.
Eftir útskrift úr Menntastoðum
hjá Mími skráði Elínrós sig strax í
fjarnám í Háskólabrú Keilis.
„Það tók mig ekki langan tíma
að ákveða að halda áfram námi og
undirbúningurinn hjá Mími auð-
veldaði mér ákvörðunina,“ segir
hún.
En hvernig upplifun var það
fyrir Elínrós að vera í námi í Mími
í samanburði við grunnskóla eða
framhaldsskóla?
„Mér þótti gott að yfirbyggingin
er ekki stór hjá Mími og hæfilegur
fjöldi nemenda var í bekknum.
Þannig varð nándin meiri og
kennslan markvissari. Mér finnst
það vera stærsti plúsinn við Mími.“
Menntastoðir eru vinsæl námsleið
hjá Mími. Hún hefur veitt fjölda fólks
ný tækifæri í námi og eru nemendur
mjög vel undirbúnir fyrir áframhald-
andi nám. Námið samanstendur af
eftirtöldum námsgreinum: íslensku,
stærðfræði, ensku, dönsku, náms-
tækni, tölvu- og upplýsingatækni og
lýkur með lokaverkefni.
Hægt er að velja um fjórar mis-
munandi leiðir í Menntastoðum;
fullt staðnám þar sem kennt er alla
virka daga frá 8.30 til 15 og nem-
endur ljúka námi á einni önn, hálft
staðnám þar sem kennt er alla virka
daga frá 8.30 til 12.10 og nemendur
ljúka námi á tveimur önnum, dreif-
nám þar sem kennt er tvö kvöld í
viku og annan hvern laugardag, og
fjarnám þar sem nemendur ljúka
námi á tveimur önnum.
Menntastoðir eru kenndar sam-
kvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar
atvinnulífsins og hefur Mennta-
og menningarmálaráðuneytið
samþykkt að meta megi námið til
framhaldsskólaeininga. Námið er
niðurgreitt af Fræðslusjóði.
Mímir er á Höfðabakka 9. Sími
580 1800. nánari upplýsingar á
mimir.is.
Stolt og full sjálfstrausts
Menntastoðir hjá Mími er vinsæl námsbraut sem veitt hefur fjölda fólks ný tækifæri í námi. Elín-
rós Hjartardóttir lét draum um háskólanám verða að veruleika eftir útskrift úr Menntastoðum.
STYTTU NÁMIÐ MEÐ RAUNFÆRNI
Skimunarviðtal við
náms- og starfsráðgjafa.
Sérfræðingur hjá Mími fer
yfir niðurstöður færni-
matsins með einstaklingi
og veitir ráðgjöf um þá
möguleika sem það gefur.
Náms- og starfsráðgjafi
veitir einstaklingum aðstoð
við að skrá þekkingu,
reynslu og færni sem
viðkomandi býr yfir.
Matsviðtöl fara fram þar
sem farið er yfir viðkomandi
færni til móts við námsbraut
og/eða starf.
Sjálfsmat með aðstoð
náms- og starfsráðgjafa.
Á döfinni er raunfærnimat í
• Verslun og þjónustu
• Almennum bóklegurm greinum (íslenska, enska, danska, stærfræði)
• Almennri starfshæfni
Bókaðu tíma hjá ráðgjafa (radgjof@mimir.is)
til að skoða stöðu þína og næstu skref.
MENNTASTOÐIR
Hafðu
samband núna
!
sími: 580 1800
Nám fyrir fullorðna
Taktu fyrsta skrefið í að ljúka framhaldsskóla.
Menntastoðir eru vinsæl námsbraut sem hefur veitt fjölda fólks
ný tækifæri í námi og eru nemendur mjög vel undirbúnir fyrir
áframhaldandi nám.
Staðnám, fjarnám og dreifnám í boði.
Hafðu
samband núna
!
sími: 580 1800
0
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
9
-F
B
D
4
1
E
A
9
-F
A
9
8
1
E
A
9
-F
9
5
C
1
E
A
9
-F
8
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K