Fréttablaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 34
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
16 KYNNINGARBLAÐ 5 . jA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RsKóLAR oG NámsKeIÐ
svavar Knútur er menntaður frá söngskólanum í Reykjavík og lætur vel af náminu og skólastarfinu. mYND/sTeFáN
Söngvaskáldið Svavar Knútur er meðal þeirra fjölmörgu sem stundað hafa nám við
Söngskólann í Reykjavík. „Ég lærði
ótrúlega margt í þessum skóla,
jafnt söng, tón- og hljómfræði
auk fleiri þátta. Námið var mér
dýrmætt. Ég var alltaf með undir-
leikara og lærði heilmikið af þeim
í sambandi við gítarleik, til dæmis
hvernig undirleikur virkar í sam-
hengi við röddina. Ég fylgdist alltaf
vel með undirleikurum og naut
sambandsins við þá. Þeir fluttu
mikið af klassískri og sígildri tón-
list, músík sem hefur verið lengi í
þróun,“ segir Svavar Knútur.
Kennari hans var Már Magnús-
son en undirleikarar voru Ólafur
Vignir Albertsson, Hólmfríður
Sigurðardóttir og Kristinn Örn
Kristinsson. „Með því að vinna
með þeim gat ég þróað eigin tón-
listartækni til að koma fram einn.
Sem söngvaskáld er ég mikið einn
á sviði,“ bætir hann við.
Svavar Knútur var kominn
undir þrítugt þegar hann hóf
námið sem er óvenju seint. „Ef
maður vill bæta sig í lífinu, verða
betri í einhverju og læra nýjar
leiðir til að gera hlutina er eðlilegt
að fara í viðeigandi nám. Við það
verður maður miklu betri tón-
söngnámið
var mér
dýrmætt
Söngskólinn í Reykjavík heldur upp á
45 ára afmæli sitt á þessu ári en hann
var stofnaður árið 1973 af Garðari
Cortes óperusöngvara. Skólinn hefur
útskrifað marga af þekktustu söngv-
urum þjóðarinnar.
Umboðsmaður
barna á englandi
segir að skólar
eigi að kenna
börnum á sam-
félagsmiðla.
NoPRDIC PHoTos/
GeTTY
Anne Longfield, umboðsmað-ur barna á Englandi, hefur óskað eftir skyldunámi í
grunnskólum til að hjálpa börnum
að höndla þrýstinginn sem fylgir
samfélagsmiðlum.
Longfield vill að skólar, foreldrar
og samfélagsmiðlafyrirtæki hjálpi
börnum að búa sig undir andleg
áhrif samfélagsmiðla og það þurfi
að bæta við kennslu í hvernig skuli
eiga við samfélagsmiðla. Slíkt nám
eigi að vera skylda fyrir 10 og 11
ára börn. Þannig eigi skólar að
hafa stærra hlutverk í að undirbúa
börn fyrir notkun samfélagsmiðla.
Annars sé hætta á að miðlarnir hafi
neikvæð áhrif á félags- og tilfinn-
ingaþroska barnanna.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
umboðsmaðurinn gaf út á fimmtu-
dag og ber titilinn „Life in likes“.
Skýrslan byggir á rannsóknum
á hópum barna á aldrinum átta til
tólf ára. Þar kom meðal annars fram
að vinsælustu samfélagsmiðlarnir
séu Snapchat, Instagram, Musical.
ly og WhatsApp, þrátt fyrir að
þessir miðlar séu bannaðir innan
13 ára. Í skýrslunni segir einnig að
það megi áætla að um 75% barna á
aldrinum 10-12 ára noti samfélags-
miðla og samfélagsmiðlafyrirtæki
eru gagnrýnd fyrir að gera ekki nóg
til að koma í veg fyrir að börn undir
aldurstakmarkinu noti þá.
Samfélagsmiðlafyrirtæki segja
sjálf að reglurnar séu skýrar og
enginn undir 13 ára aldri ætti að
nota miðlana, en það er auðvelt
að falsa fæðingardaginn þegar fólk
skráir sig.
Í skýrslunni segir að börn á aldr-
inum átta til tíu ára noti samfélags-
miðla til að leika sér og skapa, en
það byrji að breytast hratt þegar
þau verða 11 ára. Þá fari samfélags-
miðlanotkunin meira að snúast
um félagslegt samþykki og saman-
burð og börnin byrji að eltast við
„like“ og jákvæðar athugasemdir
við innlegg sín. Börn byrji líka að
nota samfélagsmiðla til að dæma
hvert annað, meðal annars fyrir
útlitið, sem geti haft mjög nei-
kvæðar afleiðingar. Á sama tíma
byrji þau líka oft að fylgjast með
frægu og öðru ókunnugu fólki og
bera sig saman við það og herma
eftir því, sem hafi neikvæð áhrif á
sjálfsmynd þeirra. Rannsakendur
segja börn verða sífellt kvíðnari
yfir því að viðhalda réttri ímynd á
samfélagsmiðlum.
Mörg 11 ára börn sögðust eiga
erfitt með þrýstinginn sem fylgir
því að vera alltaf tengd, en þeim
finnst vinirnir ætlast til þess, jafn-
vel þótt það sé á kostnað annarra
hluta og sumum þeirra finnst
tilkynningar trufla sig og valda
álagi. En ef þau hætta að fylgjast
með finnst þeim þau vera að missa
af eða gefa þeim sem þau fylgja þá
hugmynd að þeim sé sama. Þetta
vekur tilfinningar sem börn eiga
erfitt með að eiga við.
Longfield segir: „Þó samfélags-
miðlar hafi augljósa kosti fyrir
börn, geta þeir haft hættuleg áhrif
á tilfinningalíf þeirra, sérstaklega
þegar þau eldast. Ég hef áhyggjur af
því að mörg börn á aldrinum 11-12
ára séu illa í stakk búin til að eiga
við kröfur samfélagsmiðla, sem
skella á þeim skyndilega.“
Grunnskólabörn þurfa að fá
kennslu á samfélagsmiðla
Ný skýrsla frá Umboðsmanni barna á Englandi segir að börn noti samfélagsmiðla þrátt fyrir ald-
urstakmörk og að þeir hafi slæm áhrif á sálarlíf barnanna. Því þurfi að kenna þeim að nota sam-
félagsmiðla skynsamlega og skilja og undirbúa sig fyrir sálræn áhrif þeirra í skólanum.
listarmaður. Ég lærði krefjandi
söngtækni hjá Má og klassíska
menntunin mín hefur gert mikið
fyrir mig,“ segir Svavar sem hafði
stundað nám í tónlistarskóla á
yngri árum.
„Þegar ég byrjaði í Söngskól-
anum var ég farinn að starfa mikið
sem söngvari. Mig langaði til að
hafa sterkari faglegan bakgrunn.
Ég stóð eiginlega á krossgötum í líf-
inu. Átti ég kannski að fara til Vínar
og læra óperusöng? Ég endaði á að
fara söngvaskáldsleiðina og gaf út
hljómplötu eftir námið þar sem
ég notaði mikið þá tækni sem ég
lærði í Söngskólanum.
Það er mikill kærleikur í þessum
skóla og kennararnir hlýir og
skemmtilegir. Skólinn gaf mér
góðan grunn og fótfestu í söng og
framkomu. Til dæmis hvernig ætti
að kynna lögin fyrir áhorfendum.
Einnig fékk ég góða tilsögn í öndun
og stjórn á röddinni,“ segir Svavar
Knútur.
Söngskólinn í Reykjavík er á Snorra-
braut 54, sími: 552 7366. Nánar
er hægt að skoða námskeið og
námsleiðir á heimasíðunni www.
songskolinn.is.
0
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
A
9
-F
B
D
4
1
E
A
9
-F
A
9
8
1
E
A
9
-F
9
5
C
1
E
A
9
-F
8
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K