Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 4

Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 4
 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 Sjálfshjálparbók á mannamáli eftir Ingvar Jónsson, einn reynslu- mesta markþjálfa landsins. Í bókinni er að finna verkfæri og leiðir fyrir alla sem vilja bæta sjálfa sig. „Sigraðu sjálfan þig er frábær bók. Ég hef aldrei séð efnið sett í svona flott samhengi eins og hér.“ H E I M I R H A L L G R Í M S S O N / L A N D S L I Ð S Þ J Á L F A R I menning Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, hefur keypt málverk myndlistarmanns- ins Þrándar Þórarinssonar af geit í ljósum logum. „Ég gat ekki sleppt henni. Þetta er hrikalega flott verk,“ segir Þórarinn. Þrándur málaði „Jólageitina“ skömmu fyrir jól og ekkert fór á milli mála að auk Goya sótti hann innblástur til IKEA-geitarinnar, sem hefur ítrekað orðið eldi að bráð í aðdraganda jóla. Þórarinn leitar nú að rétta ramm- anum utan um málverkið en gæti þurft að leita langt yfir skammt þar sem rammar seldust upp í IKEA fyrir jólin. „Myndin er á skrifborð- inu mínu og fólk er almennt að dást að henni,“ segir Þórarinn sem ætlar að hafa geitina í öndvegi á skrifstofu sinni. Þórarinn segir þá Þránd hafa verið fljóta að komast að samkomu- lagi um verð. „Hann er flottur lista- maður og er ekkert ódýr en áttar sig líka á því að markhópurinn er þröngur. Líklega ekkert mjög margir sem vilja kaupa logandi geit.“ Þrándur segist kveðja geitina sáttur. „Ég er nú yfirleitt alltaf bara feginn að losna við verk,“ segir hann og bætir við að hann hafi ekki séð þennan áfangastað geit- arinnar fyrir þegar hann málaði hana. „Ég átti ekki von á þessu en finnst gott hjá honum að kaupa hana.“ Þrándur málaði á sínum tíma myndir þar sem merki Gamma og Arion banka voru í brenni- depli en þau rötuðu ekki að uppsprettu hugmyndanna að baki þeim. „Ég bauð Gamma og Arion þau til sölu en þeir höfðu engan húmor fyrir þessu. En það gilda kannski önnur lögmál um geitina enda ekki þung pólitísk ádeila í henni.“ – þþ Þórarinn í IKEA féll fyrir málverki af logandi geit BReTLAnD Í verðmætustu bresku fyrirtækjunum fá æðstu stjórnendur hærri laun fyrir þriggja og hálfs dags vinnu, heldur en venjulegur breskur launamaður vinnur sér inn á einu ári. Greint er frá þessu á vef The Guardian sem vitnar í óháða rann- sókn á launagapinu. Samkvæmt rannsókninni þéna topparnir tæpar 500 milljónir íslenskra króna á ári en venjulegir launamenn um 4 milljónir íslenskra króna. Laun toppanna eru um 120 sinnum hærri. Vinstri menn gagnrýna Theresu May forsætisráðherra fyrir að hafa hætt við að skylda fyrirtæki til að hafa fulltrúa starfsmanna í stjórn. Markmiðið var að með því yrði meira gagnsæi hvað varðar kjör æðstu stjórnenda. May hafði áður harðlega gagnrýnt launagapið. – ibs Laun toppanna 120 falt hærri Theresa May, forsætisráðherra Breta STjóRnmáL Sigurður Ingi Jóhannsson hefur skipað Þórunni Egilsdóttur, þingmann Framsóknarflokksins, for- mann samgönguráðs. Sigurður segir samgöngumálin verða meðal annars í forgangi á þessu kjörtímabili. „Við gerð samgönguáætlunar sem er um það bil að hefjast, verður horft til markmiða í stjórnarsáttmálanum, að hraða uppbyggingu í vegamálum og öðrum samgönguinnviðum, hvort tveggja nýframkvæmdum og við- haldi,“ segir Sigurður Ingi á Facebook. Við forgangsröðun verði sérstak- lega tekið tillit til ólíkrar stöðu svæða, ferðaþjónustu og öryggissjónarmiða. – jhh Þórunn Egils nýr formaður samgönguráðs DómSmáL Matvælafyrirtækið Kræs- ingar, sem áður hét Gæðakokkar, hefur krafið íslenska ríkið um ríflega hundrað milljónir króna í skaða- bætur vegna framgöngu Matvæla- stofnunar í nautabökumálinu svo- kallaða. Ríkið var ekki reiðubúið að samþykkja kröfuna og hefur verið óskað eftir því að fá dómkvaddan matsmann til að meta kröfuna. Í maí síðastliðnum staðfesti Hæstiréttur Íslands skaðabóta- skyldu Matvælastofnunar (MAST) vegna tjóns sem Kræsingar urðu fyrir vegna tilkynningar sem birt var á heimasíðu MAST í febrúar 2013. Sem kunnugt er réðst MAST í rannsókn á kjötinnihaldi 16 íslenskra matvara eftir að hrossa- kjötshneykslið skók Evrópu þar sem fyrirtæki erlendis höfðu orðið uppvís að því að blanda hrossa- kjöti í matvörur í stað nautakjöts. Eftir rannsókn MAST þessu tengda birti stofnunin frétt á vef sínum þess efnis að ekkert kjöt hefði fundist í Nautaböku Gæðakokka frá Borgar- nesi. Málið vakti gríðarmikla athygli og stefndi MAST Gæðakokkum fyrir rangar innihaldslýsingar og vörusvik, en matvælafyrirtækið var sýknað. Krefur ríkið um hundrað milljónir í kjötbökumálinu Framganga MAST í Nautabökumálinu gæti reynst íslenska ríkinu dýrkeypt. FréTTABlAðið/STeFáN Skaðabótakrafa Kræs- inga sem áður hét Gæða- kokkar á hendur MAST nemur rúmum hundrað milljónum króna. Hæsti- réttur viðurkenndi skaðabótaskyldu vegna kjötbökumálsins svo- kallaða í maí. Ríkið sætti sig ekki við kröfuna og var óskað eftir dóm- kvöddum matsmanni. Gæðakokkar, sem síðar varð Kræsingar, stefndi síðan MAST í október 2015 til að fá viðurkennda skaðabótaskyldu stofnunarinnar og hafði betur sem fyrr segir. Kjötbökumálið allt var mikill skellur fyrir matvælafyrirtækið úr Borgarnesi og ljóst að fjárhagslegar afleiðingar þess voru umtalsverðar. Hefur Magnús Nielsson, eigandi og framkvæmdastjóri Kræsinga, sagt í fjölmiðlum að málið hafi í raun drepið fyrirtækið. Verslanir fjar- lægðu allar vörur þess úr hillum sínum, skuldir við birgja hrönnuð- ust upp og neyddist fyrirtækið, sem verið hafði í stígandi vexti, til að segja upp nærri öllum starfs- mönnum sínum sem þá voru tólf fastráðnir. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins fengu Kræsingar óháðan aðila til að reikna út skaðabótakröfu byggða á fjárhagstjóni fyrirtækisins sem lögð hefur verið fram. Sú upp- hæð nemur ríflega 100 milljónum króna með dráttarvöxtum. Magnús staðfestir í samtali við Fréttablaðið að skaðabótakrafa hafi verið lögð fram en vildi ekki tjá sig frekar um málið sem væri í ferli. Heimildir blaðsins herma að íslenska ríkið hafi ekki verið reiðubúið að samþykkja fjárhæð kröfunnar og var því farið fram á að dómkvaddur matsmaður yrði fenginn til að meta kröfuna. Sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er málið nú í því ferli. Ljóst er því að fréttatilkynning Matvælastofnunar um hinar meintu kjötlausu kjöt- bökur kann að reynast ríkinu dýr- keypt. mikael@frettabladid.is Fenginn var óháður aðili til að meta fjárhagslegt tjón Kræsinga vegna ákvörðunar Matvælastofnunar. Skaða- bótakrafan nemur alls ríflega 100 milljónum króna. 5 . j A n ú A R 2 0 1 8 F Ö S T U D A g U R4 F R é T T i R ∙ F R é T T A B L A ð i ð 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 9 -C A 7 4 1 E A 9 -C 9 3 8 1 E A 9 -C 7 F C 1 E A 9 -C 6 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.