Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 11

Fréttablaðið - 05.01.2018, Síða 11
Bergur Ebbi Í dag Um áramótin sýndi RÚV stutta mynd um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga í tilefni af því að nú fer í hönd hundraðasta afmælisár fullveldis landsins. Í myndinni var stiklað á stóru. Gamli sáttmáli. Kalmar sambandið. Einokunarverslun. Fjölnismenn. Jón Sigurðsson. Stjórnar- skráin. Heimastjórnin. Fullveldið. Við þekkjum þessa sögu í grófum dráttum. En sjónvarpsþátturinn gat ekki sýnt okkur neinar hreyfimyndir frá þessari sögu. Það eru að sjálfsögðu ekki til neinar video-klippur af Jóni Sigurðssyni eða Fjölnismönnum og langt fram á 20. öld voru kvikmynda- tökur á Íslandi afar fátíðar. Myndefnið í heimildamyndinni voru bara klassísk „Ken Burns“ skot af ljósmyndum, mál- verkum og teikningum. Raunar er nærri öll Íslandssagan okkur hulin frá myndrænu sjónar- horni. Við vitum ekki almennilega hvernig fólk bar sig dagsdaglega enda voru teikningar og málverk nánast alltaf gerð eftir uppstilltum mótífum og afar stílfærð. Það sama átti við um ljósmyndir og einnig kvikmyndir til að byrja með. Og jafnvel fram á allra síð- ustu áratugi er lítið myndefni að finna sem gerir manni kleift að vera fluga á vegg og heyra fólk tala saman um hversdagsleg málefni. Ríkissjónvarpið hóf göngu sína 1966 en útsendingar voru takmarkaðar fyrstu árin. Fyrsta íslenska kvikmyndin í fullri lengd, Morðsaga, var frumsýnd 1977, og það er hálf óraunverulegt að horfa á hana. Að sjá íslenska unglinga fletta í gegnum plöturekka í miðri reykvískri sjöu í fullum lit er næstum eins og að sjá hreyfimynd af Jóni Sigurðssyni eða Trampe greifa. 1977 var líka árið sem Sjónvarpið tók að fullu upp útsend- ingar í lit. Fyrir þann tíma var Ísland svarthvítt. En það sem mér þykist merkilegast við myndefni frá 8. áratugnum er ekki að sjá viðfangsefnin sjálf heldur bakgrunninn. Hvers konar samfélag var fólk að byggja upp? Sjöan virðist hafa verið undarleg hræra af steypu- styrktar járni, mótatimbri, ullarpeys- um, þungbúnum mönnum, mæðu- legum konum, malarvegum, drullu og veggfóðri. Þetta var önnur veröld. Raddir fólks hljómuðu öðruvísi. Það talaði hægar og með meira tónfalli. Íslensk tunga í dag hljómar eins og lyfjað draf í samanburði. En því fer fjarri að þessum pistli sé ætlað að dásama fortíðina. Fortíðin hefur oft yfir sér þann blæ að þá hafi allt verið í röð og reglu og hlutir farið fram með ró og spekt. En þá tilfinn- ingu fæ ég ekki frá gömlu íslensku myndefni. Það sem fyrir augu ber er bara eins og það er. Börn með koppa- klippingar í smekkbuxum að leika sér í „yfir“ innan um flugbeitt steypu- styrktarjárn. Mömmur að hræra í potti. Pabbar að hræra í sementi. Varla var þetta allt byggt á einhverri stærri hugmyndafræði. Varla voru vansvefta úthverfaforeldrarnir að hugsa um framtíðarsýn Le Corbusiers eða Walt- ers Gropius þegar þau slitu út bökum sínum og geðheilsu til að byggja sements grafhýsin sín. Hefur fólk ekki bara, á öllum tímum, verið að djöflast? Vísast væri það eins ef Fjölnis- menn gætu talað beint við mann í lit. Rómantískri slikjunni af handrissaðri mynd af Jónasi Hallgrímssyni væri skipt út fyrir mann með líf sitt í óreiðu. Vísast var hann líka að djöflast. Að vísu djúpvitur, en samt óreiðukenndur og hálf stefnulaus eins og fjölfræðingar og rómantíkusar eiga til að vera. Þegar ég sé lifandi myndir úr for- tíðinni þá ruglast eitthvað í forritinu. Ég virðist byggja heimsmynd mína á því að fólk fortíðar hafi allt róið í sömu átt. En fólk virðist bara hafa djöflast og svo máir sagan djöfulganginn út og dregur þægilegri pensilstrokur yfir. Í huga mínum ímynda ég mér sjálf- stæðisbaráttu Íslendinga þannig að hún hafi staðið yfir allan þann tíma sem við vorum ekki sjálfstæð, eins og hún hafi í raun hafist um leið og ritað var undir Gamla sáttmála. En auðvitað var það ekki svoleiðis. Fólk hafði aðrar hugmyndir um þjóðerni og sjálfstæði á 13. öld og að meta gjörðir fólks sem lifði á miðöldum við áfanga sem var náð 1918, er auðvitað algjört bull. Við eigum fyrri kynslóðum allt að þakka. Og auðvitað reisi ég allt mitt á þeim grunni sem þær hafa byggt. En þó tel ég einnig ákveðið sannleikskorn í því að fólk hafi verið alveg jafn „lost“ í gamla daga – þó að yfir það hafi verið notuð önnur orð. Og því fylgir sannar- lega engin skömm. Ef sagan okkar væri meira en uppstilltar myndir, þá væri hún ríkari, þá segði hún meira um okkur sjálf. Því við erum meira en áfangasigrar eða töp. Við erum líklega, mörg hver, sífellt með steypuhrærivél- ina í botni, að vinna að einhverju sem við vitum ekkert hvernig mun líta út. Steypuhrærivélin Við erum líklega, mörg hver, sífellt með steypu- hrærivélina í botni, að vinna að einhverju sem við vitum ekkert hvernig mun líta út. 5.290.000 kr.2.390.000 kr. Kia Sorento LuxuryKia Rio LX 2.590.000 kr.3.990.000 kr. Kia Ceed LX SWKia Sportage EX 1.540.000 kr.2.990.000 kr. 5.990.000 kr.2.050.000 kr. Kia Picanto LXKia Sportage EX Kia Sorento ClassicKia Rio LX Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir bílar Allt að 6 ára ábyrgð fylgir NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartímar: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 * ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir Raðnúmer: 291336 Raðnúmer: 992880 Raðnúmer: 992798 Raðnúmer: 992711 Raðnúmer: 992706 Raðnúmer: 992548 Raðnúmer: 992670 Raðnúmer: 320627 Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Árgerð 2017, ekinn 30 þús. km, bensín, 1.368 cc, 100 hö, sjálfskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2017, ekinn 15 þús. km, dísil, 1.685 cc, 142 hö, sjálfskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2015, ekinn 50 þús. km, dísil, 2.199 cc, 200 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Árgerð 2016, ekinn 17 þús. km, bensín, 998 cc, 100 hö, beinskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2015, ekinn 31 þús. km, dísil, 1.396 cc, 90 hö, beinskiptur, framhjóladrifinn. Árgerð 2014, ekinn 128 þús. km, dísil, 1.995 cc, 136 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Árgerð 2016, ekinn 36 þús. km, dísil, 2.199 cc, 200 hö, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Árgerð 2016, ekinn 22 þús. km, bensín, 998 cc, 66 hö, beinskiptur, framhjóladrifinn. Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit sem kaupandi ber kostnað af. Lestu meira um ábyrgðina á kia.com/abyrgd Birt með fyrirvara á verðbreytingum, innslátarvillum og myndarugli. * S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11F Ö S T u d a g u R 5 . j a n ú a R 2 0 1 8 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A 9 -D E 3 4 1 E A 9 -D C F 8 1 E A 9 -D B B C 1 E A 9 -D A 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.