Fréttablaðið - 05.01.2018, Page 54

Fréttablaðið - 05.01.2018, Page 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Við ákváðum að gefa út plötu saman, því við bæði áttum efni á EP-plötu, en ekki nóg á plötu í fullri lengd. Þá fengum við þessa hugmynd, að gefa út saman og að vera með söfnun á Karolina Fund. Við ákváðum sem sagt að hluti ágóð- ans myndi fara í rannsóknarsjóð til styrktar rannsóknum á CFC-heil- kenninu. Okkur datt í hug að fyrst við værum að fara í þá vinnu að vekja athygli á plötunni, þá væru þar viss tækifæri til að vekja athygli á þessum söfnunarsjóði í leiðinni, svona ef ein- hver myndi fá áhuga á þessu mál- efni,“ segir Heiða Dóra Jónsdóttir en hún og bróðir hennar, Daníel Jón, hafa gefið út tvöfalda vínylplötu undir listamannsnöfnum sínum, Bara Heiða og Danimal. Plötuna fjármögnuðu þau í gegnum Karol- ina Fund og notuðu tækifærið til að vekja athygli á CFC-heilkenninu en litli bróðir þeirra systkina er greindur með heilkennið. CFC-heilkennið er eitt af sjald- gæfustu heilkennum í heiminum, en einungis nokkur hundruð ein- staklingar hafa greinst með það í heiminum öllum. Tveir einstakling- ar eru greindir hér á landi, en það verður að teljast ótrúleg tilviljun. Heilkennið veldur ákveðnum útlits- einkennum og alhliða þroskahöml- unum. „Mamma okkar er erfðafræðingur og hún stofnaði rannsóknarsjóðinn. Það sem hefur safnast hefur mest verið notað í að bæta lífsgæði þeirra sem eru með sjúkdóminn, en hún vildi fara lengra með það að finna orsök sjúkdómsins og leiðrétta það með lyfjagjöf. Að einhverju leyti er sjúkdómurinn efnaskiptavandamál sem síðan leiðir til þroskaskerðingar. Ef það eru til lyf sem leiðrétta þessi vandamál er möguleiki á því að sjúklingurinn fái eðlilegan þroska. Vandamálið með sjaldgæfa sjúk- dóma eins og þennan er að lyfjafyr- irtækin sjá ekki fjárhagslegan ávinn- ing í því að þróa lyf við sjúkdómum þar sem markhópurinn er svona Systkini safna fyrir CFC-heilkennið Systkinin Heiða og Daníel gáfu nú á dögunum út plötu. Þau söfnuðu fyrir plötunni á Karolina Fund og létu hluta ágóðans ganga til rann- sóknarsjóðs á CFC-heilkenninu sem bróðir þeirra er greindur með. TÓNLISTARMAÐUR Þorbjörn Einar Guðmundsson PLAY FOLLOWFöstudags- playlisti Lífsins Þorbjörn er annar hluti tvíeykisins BLKPRTY sem dúndrar út töktum fyrir Kilo, Röggu Hólm og Reykjavíkurdætur svo einhverjir séu nefndir. Hann er einnig liðtækur plötusnúður og því vafðist það ekkert fyrir honum að smella í einn góðan playlista fyrir þennan ágæta föstudag. Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna á Spotify undir notandanafninu Vísir. LAGFLYTJANDI Kött Grá Pjé, BLKPRTY 100% Migos, Nicki Minaj, Cardi B MotorSport Diplo, MÖ Get it Right Kendrick Lamar Humble (Skrillex remix) J Balvin, Willy William Mi Gente (Dillon Francis Remix) Ragga Holm, Kilo Hvað finnst þér um það? Party Favor Bury Rickyxsan, Hydraulix Sleep Katy Perry, Nicki Minaj Swish Swish (Valentino Khan remix) BLKPRTY FYAH Danimal og Bara Heiða gáfu út plötu og notuðu tækifærið til að vekja athygli á CFC-heilkenninu, sem litli bróðir þeirra er greindur með. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Okkur datt í hug að FyrSt við værum að Fara í þá vinnu að vekja athygli á plötunni, þá væru þar viSS tækiFæri til að vekja athygli á þeSSum SöFnunarSjóði í leiðinni. lítill. Þannig að þetta hefur fallið á vísindafólk sem þekkir til sjúk- dómsins, á til að mynda börn með hann. Það er verið að safna fyrir því núna að hefja klínískar rannsóknir á lyfi sem búið er að þróa, þannig að það er mjög spennandi að taka þátt í þessu.“ Söfnunin gekk vel hjá þeim systk- inum, takmarkið náðist og gott betur. Reyndar lentu þau í ákveðn- um vandræðum með prentunina á plötunni en þess utan segir Heiða viðtökurnar hafa verið ótrúlega góðar. Platan sjálf er óvenjulega hönnuð, enda er hún í raun og veru með tvær framhliðar í takt við tvö- falt innihaldið. Hægt er að festa kaup á gripnum í nokkrum plötuverslunum, Reykja- vík Record Shop á Klapparstíg, Smekkleysu á Laugaveginum og Lucky Records á Rauðarárstíg. Auð- vitað má svo finna hana á Spotify, en þá sitt í hvoru lagi undir Bara Heiða og Danimal. Einnig er hún inn á Bandcamp. Þau stefna svo á að halda útgáfu- tónleika í apríl og nákvæmari dag- setning verður auglýst síðar. stefanthor@frettabladid.is VERSLUN SALEWA LAUGAVEGI 91 SALEWA VERSLUN ÍTALSKUR HÁGÆÐA FATNAÐUR FYRIR DÖMUR OG HERRA Salewa 9,9x390 útsala mbl.pdf 1 19/12/2017 13:26 5 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r30 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð 0 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E A 9 -C 5 8 4 1 E A 9 -C 4 4 8 1 E A 9 -C 3 0 C 1 E A 9 -C 1 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.